Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.1994, Page 13
MÁNUDAGUR 3. JANÚAR 1994
,13
pv__________________Meiming
Regnboginn - Maöur án andlits: ★ ★ lA
Maður með framtíð
í frumraun sinni í leikstjórastólnum tekst kyntákninu Mel Gibson að
laða fram einhvern besta kvikmyndaleik ungs leikara sem sést hefur á
hvíta tjaldinu, hjá nýhðanum Nick Stahl. Þaö eitt væri nægilegt hrós
fyrir Gibson, en gott ef hann sýnir ekki líka að hann gæti verið efni í
næman og náttúrlegan leikstjóra.
Gibson ieikur sjálfur annað aðal-
hlutverkið, Justin McLeod, mann
sem hefur dregið sig úr skarkala
heimsins eftir að hann afskræmd-
ist í slysi, sem batt enda á feril
hans sem kennari. Bæjarbúar líta
hann hornauga en láta í friði þar
til ungur drengur, Chuck Norstadt
(Stahl) biður hann ásjár. Hann þarf
hjálp við að ná inntökuprófi í her-
skólann sem látinn faðir hans var
í. McLeod vill í fyrstu ekkert með
hann hafa en stráksi er ýtinn, knú-
inn jafnframt af forvitni um þenn-
an umtalaða nágranna.
Á heildina litið er Man Without
a Face gott verk, sem vantar dálítið
upp á að hafi fuil möguleg áhrif,
aðallega vegna þess að sagan nær
ekki að hringa sig um sína drama-
tísku miðju. Kjarni myndarinnar
er hvemig sambandið milli kenn-
arans og nemandans þróast í vin-
áttu og hvernig McLeod, fóðurfíg-
úran sem Norstadt þarfnast svo
mjög, kemur honum yfir erfiðasta hjallann í tilfinningaþroskanum, sjálfs-
myndina. Þessar tvær persónur eru afskaplega vel skrifaðar, sérstaklega
drengurinn en vegna þess að myndin er líka um fordóma og skort á
umburðarlyndi þá flyst áherslan yfir á viðbrögð samfélagsins áður en
myndin hefur unnið nægilega vel úr því sem á undan gengur.
Við handritsgerðina hefur svolítið mikilvægt orðið að víkja úr bók Isa-
bellu Holland. Þetta kann að skýra hvers vegna myndin endar dálítið
skyndilega. Það væri ekki sanngjarnt að greina frá því hvað það var, en
Kvikmyndir
Gísli Einarsson
að hafa það með hefði gjörbreytt inntaki myndarinnar. Svipað var upp á
teningnum þegar Fried Green Tomatoes var breytt í kvikmyndahandrit.
Gibson getur ekki bundið sannfærandi enda á myndina, en hann bygg-
ir hana afskaplega vel upp, með rólegri stígandi og þægilegri framvindu.
Eins og oft vill verða þegar leikarar fara á bak við myndavélina leggur
Gibson áherslu á persónurnar í verkinu og sambandið milh þeirra. Nor-
stadt er umkringdur fjölskyldu sem hann vill sem minnst með hafa og
Gibson vinnur sérstaklega vel úr þeim hluta.
Nýliðinn Stahl sýnir undraverða leikhæfileika. Ung persóna hans er
dýpri og flóknari er flest það sem fullorðnir leika í dag og það er með
ólíkindum hvað stráksi sýnir mikla breidd í leiknum. I ári uppfullu af
góðum leik frá ungum leikurum ber hann höfuð og herðar yfir alla. Gib-
son sjálfur hefur sjaldan verið betri, þykir eflaust gott að komast aðeins
úr hetjuhlutverkunum sem hann hefur verið viðloðandi undanfarið.
Hann á eftir að eiga lengri feril en nokkurn grunaði í fyrstu.
Man Without a Face (Band. 1993)
Handrit: Malcolm MacRury eftir bók Isabellu Holland.
Leikstjórn: Mel Gibson.
Leikarar: Gibson (Forever Young, Air America), Nick Stahl, Margaret Whitton (Secr-
et of My Success), Fay Masterson (Power of One), Gaby Hoffman (This is My Life),
Geoffrey Lewis, Richard Masur.
SIGLINGASKÓLINN
Námskeið til
30TONNARÉTTINDA
10. jan.-4. mars. Á mánudags-
og miðvikudagskvöldum
kl. 19.00-23.00.
Verð kr. 22.500.
Námskeið til
HAFSIGLINGA Á SKÚTUM
(Yachtmaster Offshore)
11. jan.-1. mars. Undanfari pungapróf.
Á þriðjudags- og fimmtudagskvöldum
kl. 19.00-23.00.
Verð: kr. 20.000.
Bæklingur sendur ef óskað er
Upplýsingar og innritun í
síma 689885.
SIGLINGASKÓLINN LÁGMÚLA7
-meðlimur í Alþjóðasambandi siglingaskóla (ISSA)
ENSKA ER OKKAR MAL
SÉRMENNTAÐIR ENSKIR KENNARAR • LIFANDI NÁMSKEIÐ
Linda P. Samuel
Marie
Ný 7 vikna námskeið
Áhersla á talmál
10 kunnáttustig
Hámark I0 nem. í bekk
Enskuskólinn
TÚNGATA 5 • SÍMI 25330
uldu og Loga
BARNADANSAR
SAMKVÆMISDANSAR c
SUÐUR-AMERÍSKIR DANSAR
GÖMLU DANSARNIR
ROCK-TJÚTT
BYRJENDUR - LENGRA KOMNIR
HÓPTÍMAR - EINKATÍMAR
FAGLÆRÐIR DANSKENNARAR
Innritun stendur yfir í síma 71200 milli kl. 12-19