Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1994, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1994, Page 10
10 MÁNUDAGUR 10. JANÚAR 1994 Utlönd Mannskaðaveöur í Bandaríkj unum: Fannfergi og ófærð allf suður til Flórída Boston hefur snióaö látlaust fólk orðið í erfiðleikum Austurströnd Bandaríkjanna er nú á kafi í snjó og um helgina urðu íbúar sólarríkisins Flórída jafnvel að sætta sig við frost sem ekki er al- gengt á þeim slóðum. Þegar er vitað um nokkur dauðs- fóll vegna ótíðarinnar. Fólk hefur orðið úti og nokkrir hafa látist í umferðarslysum sem rekja má til fannfergisins. Ástandið er sýnu verst í nyrstu ríkjunum á austurströnd- í Maine má heita að ofankomunni hafi ekki linnt alla helgina og er þar nú víða 60 til 80 senítmetra djúpur jafnfallinn snjór. Þannig er ástandið t.d. í Boston og er vart fært bílum um borgina. í miðvesturríkjunum er fimbul- kuldi og muna elstu menn ekki ann- að eins og eru þó ekki óvanir kuldum á þessum árstíma. Veðurfræðingar sjá ekki að lát verði á ótíðinni í bráð. uter Hæsta ársávöxtun á innlánsreikningi Hæsta ávöxtun á innlánsreikningum hjá bönkum og sparisjóðum árið 1993 kom í hlut þeirra sem skipta við sparisjóðina, 9,95% ársávöxtun sem jafngildir 6,76% raunávöxtun! Enn einu sinni hefur reynslan sýnt að þeir sem vilja ávaxta sparifé á innlánsreikningum geta borið mest úr býtum hjá sparisjóðunum. Hafðu þetta í huga þegar þú leggur drög að ánægjulegri framtíð. SPARISJÓÐIRNIR fyrir þig og þtna Flugmennbjóða launalækkun Flugmenn hjá flugfélaginu SAS eru fúsir til að lækka um 2,5 pró- sent í launum og fara í launa- laust leyfi til þess að forðast fjöldauppsagnir. Danska blaðið Politiken greindi frá þessu í gær. Stjórn SAS hefur nýlega lýst því yfir að við árslok 1995 verði 400 af2000 fiugmönnum flugfélagsins ofaukiö. ísrælarreiðu- búniraðyfirgefa Gólanhæðir Yitzhak Rab- in, forsætisráð- herra ísraels, segir ísraela íhuga að yfir- gefa Gólan- hæðir fyrir fuUt og allt gegn því að Sýrlendingar tryggi frið. Hingað til hafa ísraelar einungis sam- þykkt að láta af hendi hluta Gól- anhæða sem þeir hertóku í sex daga stríðinu 1967. Seldivíníóleyfi áKarlJohan Vínið rann út hjá Norðmannin- um Carsten Lier frá Rakkestad á breiðgötunni Karl Johan í Ósló á laugardag. Hann sagöi aö líta mætti á sína vínsölu sem mót- mæli gegn norskum yfirvöldum. Hugmyndina kvaðst haim hafa fengið frá sænskum kaupmanni sem seldi vín í verslun sinni þeg- ar EES-saraningurinn tók gildi um áramótin. Báöir eru þeirrar skoðunar að selja megi áfengi í venjulegum verslunum. Carsten keypti fjóra kassa, tvo meö áfengu vini og tvo með alkó- hóllausu. Flöskuna af því síðar- nefnda seldi hann á 60 krónur islenskar og gaf eina áfenga í kaupbæti. Tekjurnar, 1400 krón- ur, hirti lögreglan. Carsten greiddi yfir 20 þúsund fyrir vínið. Savalasmeð krabbamein Kvikmynda- leikarinn Telly Savalas, sem er einnaþekktast- ur fyrir hlut- verk sitt i sjón- varpsmynda- flokknum Koj- ak, er með krabbamein í blööruhálskirtli. Savalas verður sjötugur 21. jan- úar næstkomandi. Meðal kvikmynda sem Savals hefur leikið í eru Bird Man af Alcatraz, The Greatest Story Ever Told og The Dirty Dozen. Reynduað smygla19kfló- umafheróíni Grískir tollverður gerðu upp- tæk 19 kíló af heróíni viö landa- mæri Tyrklands. Heróínið fannst í bíl Pakistana sem var á leiö til Þýskalands og Bretlands. Lög- reglan á Krít fann 5 tonn af hassi í skipi undir breskum fána. Tveh Króatar hafa verið kærðir. Þeir voru á leið frá Jemen til Slóveníu. Ritzau, NTB og Reuter POIAR RAFGEYMAR 618401

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.