Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1994, Síða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1994, Síða 15
MÁNUDAGUR 10. JANÚAR 1994 15 Verkfræðideild háskólans metin Spumingin um gildi mennta- kerfisins er sígiid og ævarandi. Menntakerfiö þarf að þróast með nýjum og þreyttum þjóðfélagshátt- um, tækni og nýjungum þó grunn- gildi sannrar menntunar breytist ekki. ' Háskóla íslands er nauðsyn að vera í sífelldri sjálfsskoðun, athug- un á hvort hinar ýmsu skorir upp- fylli kröfur tímans, fylgist með en dagi ekki uppi eins og steintröll aftan úr grárri fomeskju við dag- renningu nýs tíma. Að frumkvæði Verkfræðingafé- lags íslands hefur nú farið fram athugun á verkfræðideild Háskól- ans en félaginu er það mikið kapps- mál að verkfræðideildin útskrifi góða verkfræðinga og standi á sporði þeim_sem best gera í þeim efnum. Athúgunin var gerð með tilstyrk menntamálaráðuneytis, iðnaðarráðuheytis og háskólans sjálfs. Athugunina framkvæmdu bandarískir aðilar sem sérhæfa sig í slíkum úttektum ABET (Accredi- tation Board for Engineering and Technology) sem er sjálfseignar- stofnun. Uttektin var mjög jákvæð fyrir verkfræðideild háskólans þó þar eins og annars staðar megi margt betur fara. Meginniðurstaða Það er ánægjulegt fyrir háskól- ann og íslenska verkfræðinga að meginniðurstaða úttektarinnar er að verkfræðideild Háskóla íslands sé menntastofnun í háum gæða- flokki. Stúdentar eru vel undirbún- ir og áhugasamir kennarar vel hæfir. Námið stenst fyllilega og raunar enn framar þeim grunn- kröfum sem ABET setur. Hér er KjaUaiinn Guðmundur G. Þórarinsson formaður Verkfræðingafélags íslands ekki verið að fjalla um meistara- nám. Eigi að síður er í úttektinni tals- vert fjallaö um vandamál deildar- inn'ar sem sum hver snerta háskól- ann sem heild. Til að mynda kemur fram að áhersla sé um of á sumar greinar verkfræði, s.s. buröarþolsfræði í byggingarverkfræði, umfram ýms- ar hefðbundnar greinar verkfræði er fái of litla athygli. Þar er bent á ýmsa greinar bæjarverkfræði, um- ferðarmál, jarðvegsfræði og grund- un, umhverfismál o.s.frv. Jafn- framt koma fram ábendingar er snúa að skipulagi námsins, s.s. að dreifa stærðfræði meira á árin og byrja fyrr á verkfræðinni sjálfri. Spurningu er varpað fram um hvort setja eigi lágmarkskröfur um inntökuskilyrði. í heildina séð „Það er ánægjulegt fyrir háskólann og íslenska verkfræðinga að meginniður- staða úttektarinnar er að verkfræði- deild Háskóla íslands sé menntastofn- un 1 háum gæðaflokki.“ „Háskóla íslands er nauðsyn að vera t sífelldri sjálfsskoðun, athugun á hvort hinar ýmsu skorir uppfylli kröfur tímans ..segir Guðmundur kemur verkfræðideild vel út úr þessari úttekt sem fyrr segir og ættu fleiri deildir háskólans að fara í slíka úttekt. Launamál Athyglisvert er að úttektin kem- ur talsvert að launamálum kenn- ara við verkfræöideildina. Reyndar geri ég ráð fyrir að það sem þar er sagt eigi við um flestar deildir há- skólans. Laun prófessors, þ.e. grunnlaun við verkfræðideild, munu í dag vera lítið hærri en byrj- unarlaun verkfræðings. Slík stað- reynd hlýtur að koma mönnum undarlega fyrir sjónir. Kennarar við háskólann auka síðan laun sín með umframkennslu og rannsóknum sem metnar eru til launa og einhverjum slíkum atrið- um. Vafasamt er að unnt sé að fá hæfustu mennina til fræðslustarfa við slíkar aðstæður. Raunar er allt launakerfi íslenska stjórnkerfisins hálfgert felukerfi. Enginn virðist ráða við að taka á þessu kerfi. Nokkuð er fjallað um nauðsyn þess að auðvelda prófessorum að fara á eftirlaun vegna örrar þróun- ar í fræðigreininni þannig að nýir menn með nýjustu vísindin komist að. Ef til vill er það lausn að gera Háskóla íslands að nokkurs konar sjálfseignarstofnun sem ráði launamálum sínum og innri skipu- lagsmálum umfram það sem nú er. Uttekt ABET fjallar fyrst og fremst um verkfræðideildina eins og hún er í dag og ber þannig sam- an við það sem annars staðar er gerð krafa um. Gaman hefði verið að sjá álit á því hvernig námið ætti að þróast til þess að mæta kröfum komandi ára. Guðmundur G. Þórarinsson H vers eiga þeir að gjalda? „Augljóst er að gjaldtökur þessar eru dulbúnar Qársektir þar sem engin rétt- indi eða þjónusta koma fyrir greiðsl- urnar og því í andstöðu við trúfrelsi sem talið er tryggt í stjórnarskránni.“ í áratugi hefur fólk utan trúfélaga orðið að greiða eins konar refsi- gjald fyrir að hafa ekki sömu trúar- þarfir og annað fólk. Að greiða gjald fyrir að þurfa ekki þjónustu er óvenjulegt og andstætt fijálsum viðskiptaháttum í nútímaþjóðfé- lagi. Gjaldtaka þessi hefur vafalaust upphaflega verið ákveðin vegna ótta yfirvalda um að stór hluti landsmanna segði sig úr þjóðkirkj- unni ef þeir kæmust hjá að greiða sóknargjöld sem væru utan trúfé- laga. Því var ákveðið að Háskóli íslands fengi til eigin nota það fé sem utantrúflokkafólki er gert að greiða sem eins konar sóknargjöld. Ekkert virðist hafa verið tekið fram af stjómvöldum til hvaða verkefna fé þetta færi, en Háskólinn hefur mörg og ólík viðfangsefni. Trúarsektir Augljóst er að gjaldtökur þessar eru dulbúnar fjársektir þar sem engin réttindi eða þjónusta koma fyrir greiðslumar og því í andstöðu við trúfrelsi sem talið er tryggt í stjórnarskránni. KjaHariim Björgvin Brynjólfsson fyrrv. sparisjóðsstjóri Skagaströnd Óljóst er um nýtingu þessa fjár hjá Háskólanum, ýmsir telja þvi variö til að endurmennta guðfræð- inga og undirbúa djáknanám við guðfræðideildina. Ekki væri hægt að nota fé þetta á ósmekklegri hátt, því greiðendurnir eru flestir utan trúfélaga vegna andstöðu við þjóð- kirkjuna og hennar rekstur fyrst og fremst. Þetta er að míhu mati gróft mannréttindabrot sem full þörf er á að leiðrétta sem fyrst. Umbætur Þar sem utantrúflokkafólki er gert að greiða eins konar sóknar- gjöld er lágmarkskrafa að það ráði sjálft hvaða félög eða stofnanir njóti þess fjár sem það greiðir. Inn- heimta þessara gjalda fylgir tekju- skatti og væri því hægt að láta þessa greiöendur fá bréf með svar- seðli um hvert framlag þeirra ætti að renna og endurgreiða svo sam- kvæmt því, í sama hlutfalli og svör- in sem bærust segðu til um. Þetta væri leið til að milda það misrétti sem ríkt hefur í þessum efnum. Stærsti hópurinn af því fólki sem hér um ræðir er utan lútersku kirkjunnar, um 3.500 manns sam- kvæmt þjóðskrá. Samtakaleysi þessa fólks veldur því að á mann- réttindum þess er gróflega gengið í samskiptum þess við ríkisvaldið. Við þetta fólk vil ég segja: Vinnið saman og veijið ykkar mannrétt- indi, þaö gera ekki aörir fyrir ykk- ur. Björgvin Brynjólfsson Meðog ámóti Heráíslandi Tryggirfrið „Varnar- samstarf okk- ar íslendinga við Banda- ríkjamenn og aðrar þjóðir í Nató stendur á gömlum mergoghefur ... tryggt frið í ,Pá^°n> okkar heíms- b®iarst'óri Niarö' hluta í bráð- v,kur' um 50 ár. Samfara friði hefur orö- ið meiri velmegun og framfarir í þessum heimshlutum en í nokkr- um öðrum. Þessar staðreyndir blasa við okkur hvert sem við fórum í heiminum. Þótt misjafh- lega mikið hafi veriö lagt af mörk- um til vamarsamstarfsins fjár- hagslega af þessum þjóðum hefur ríkt samstaða um þær aðgerðir og fjárhagslegu skuldbindingar sem ákveðnar hafa verið. ísland hefur verið ein megin- stoðin landfræðilega undir þeim grunni vama fyrir Bandarikin sem byggt hefur veríð á og er homsteinninn í gagnkvæmum samningsrétti þessara tveggja þjóða í varnarsamningum þeirra. Augljóst er að þaö samkomulag sem náðst hefur um fækkun í varnarliðinu er viðunandi niður- staða fyrir báða aðila. Um leið er þetta viðurkenning á þvi að sú öfluga vamarstefna sem ríkt hef- ur er á undanhaldi. Fólkið í heim- inum er að átta sig á að ofbeldi og stríði fylgir örbirgð og óöryggi. Vesturlönd mega ekki sofna á verðinum þó friðvænlega horfi í dag. Þessa þróun verður þó að styrkja áður en hefðbundnum vörnum okkar verður breytt mikið. Við Suöumesjamenn verðum aö búa okkur undir breytingar í atvirmulegu tilliti og erum þegar byrjaðir." AronskurJón „Kalda striðinu er lokiö. Hið hemaðarlega ógnarjafn- vægi sem ríkti milli austurs og veturs er meira og minna úr sög- unni og nær væri að tala um hernaöarlegt misvægi þar sem Bandaríkjaher hefur yfirburðastöðu. Jafnframt er ljóst að fjárhagsstaöa þeirra rfkja sem áður mynduðu Sovét- ríkin sálugu er vægast sagt bág- borin. Sú ógn sem taiin var stafa af Sovétríkjunum er ekki fyrir hendi í dag. Bandaríkjamenn hafa eðlilega gert sér fulla grein fyrir þessari stöðu. Pentagon metur það svo að eðlilegt sé aö draga svo úr hernaðarlegum umsvifum her- stöðvarinnar á Keflavíkurflug- velh að hér nægi í raun að hafa fámenna eftirlitsstöð. Þá gerast þeir atburðir að hinn „aronski" Jón fer á stúfana með betlistaf og nánast grátbiður um fleiri vígatól en Pentagon metur þörf á. Atvinnulíf á Suðumesjum verður ekki leyst með hernaðar- umsvifum sem ekki er þörf á að afloknu kalda stríðinu. Nær væri að farið væri í markvisst at- vinnuátak á þessu svæði með þátttöku ríkisins, sveitarfélag- anna, atvinnurekenda og verka- lýðsfélaga, þar sem byggt væri til langframa upp öflugt atvinnuMf á Suðumesjum í stað þess að hengja sig aftan í hernaðarupp- byggingu sem er úr takt við þá tíma sem við nú lifum." -kaa Arihur Morihens sérkennslufulltrúi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.