Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1994, Blaðsíða 18
18
MÁNUDAGUR 10. JANÚAR 1994
Prófadeildir - (Öldungadeild)
Grunnskóladeild
Grunnnám: Samsvarar 8. og 9. bekk í grunnskóla. Ætlað
þeim sem ekki hafa lokið grunnskólaprófi eða
vilja rifja upp frá grunni.
Fornám: Samsvarar 10. bekk í grunnskóla. Ætlað þeim
sem ekki hafa náð tilskildum árangri í 10. bekk.
Undirbúningur fyrir nám í framhaldsdeild.
Kennslugreinar í grunnnámi og fornámi eru: íslenska,
danska, enska og stærðfræði. Kennt er fjögur kvöld í viku
og hver grein er kennd tvisvar í viku. Nemendur velja eina
grein eða fleiri eftir þörfum.
Framhaldsdeild
Æskilegur undirbúningur er grunnskólapróf eða fornám.
Menntakjarni: Fyrstu þrír áfangar kjarnagreina: ís-
lenska, danska, enska og stærðfræði.
Auk þess félagsfræði, saga, eðlisfræði,
tjáning, þýska, hollenska, ítalska, stærð-
fræði 122 og stærðfræði 112.
Heilsugæslubraut:Sjúkraliðanám í tvo vetur - kjarnagreinar
auk sérgreina svo sem: heilbrigðisfræði,
sálfræði, líffærafræði, efnafræði, líffræði,
næringarfræði, skyndihjálp, líkamsbeit-
ing og siðfræði. Lokaáfanga til sjúkral-
iðaprófs sækja nemendur í Fjölbraut í
Ármúla eða Breiðholti.
Viðskiptabraut: Tveggja vetra nám sem lýkur með versl-
unarprófi. Kjarnagreinar auk sérgreina
svo sem: bókfærsla, vélritun, verslunar-
reikningur og fleira.
Kennsla fer fram í Miðbæjarskóla. Skólagjöld miðast við
kennslustundafjölda og er haldið í lágmarki.
INNRITUN fer fram í Miðbæjarskóla, Fríkirkjuvegi 1, dagana
11. og 12. janúar frá kl. 17.00 til 19.30. Kennsla hefst 17.
janúar.
ATH. Innritun I almenna flokka (frístundanám) fer fram 18.
og 19. janúar.
Fréttir
Þessi hélt á grímuball Eyverja sem hefur verið árlegur vlðburður I Eyjum
á þrettándanum 140 ár. DV-myndir Ómar
Metþátttaka á þrett-
ándagleðinni í Eyjum
Átján ára
piltur í
gæslu-
varðhaldi
18 ára piltur var úrskurðaður í
gæsluvarðhald í 47 daga síðastliðinn
miðvikudag að kröfu rannsóknarlög-
reglu ríkisins.
Pilturinn hefur játað að hafa stolið
veskjum úr búningsklefum í Þjóð-
leikhúsinu fyrir jól og úr kaffiað-
stöðu í Stálsmiöjunni á dögunum.
Krafist var gæsluvarðhalds yfir pilt-
inum vegna ítrekaðra brota hans
undanfarið. -pp
Ómar Garðarsson, DV, Vestmaimaeyjum:
Næstum þrjú þúsund Eyjamenn og
gestir þeirra fylgdust með þrettánda-
gleði Knattspyrnufélagsins Týs hér í
Eyjum að kvöldi þrettándans. Þrett-
ándagleði knattspyrnufélaganna hér
á sér hálfrar aldar hefð og sjaldan
eða aldrei hafa fleiri fylgst með jóla-
sveinunum 13, sem gengu af Hánni
til móts við Grýlu og Leppalúða, álfa
og púka aö Löngulág, þar sem dansað
var kringum stóran bálköst.
Veður var eins og best verður á
kosið, stillt og bjart, og það ásamt
því að allur flotinn lá í höfn vegna
verkfallsins varð til þess að metþátt-
taka var í hátiðahöldunum. Eftir að Leppalúði með hyski sitt í Helgafell
hafa sýnt sig og sína héldu Grýla og og halda sig þar til næstu jóla.
Skilafrestur
launaskýrslna o.fl. gagna
Samkvæmt lokamálsgrein 93. gr. laga
nr. 75/1981 um tekju- og eignarskatt
hefur skilafrestur eftirtalinna gagna sem
skila ber á árinu 1994 vegna greiðslna
o.fl. á árinu 1993 verið ákveðinn sem
hér segir:
1. Til og með 21. janúar 1994:
1. Launaframtal ásamt launamiðum.
2. Hlutafjármiðar ásamt
samtalningsblaði.
3. Stofnsjóðsmiðar ásamt
samtalningsblaði.
4. Bifreiðahlunnindamiðar ásamt
samtalningsblaði.
2. Til og með 20. febrúar 1994:
1. Afurða- og innstæðumiðar ásamt
samtalningsblaði.
2. Sjávarafurðamiðar ásamt
samtalningsblaði.
RSK
RÍKISSKATTSTJÓRI
3. Til og með síðasta skiladegi
skattframtala 1994:
1. Greiðslumiðar yfir hvers konar
greiðslur fyrir leigu eða afnot af
lausafé, fasteignum og
fasteignaréttindum, sbr. 1. og 2. tölul.
C-liðar 7. gr. sömu laga.
2. Gögn frá eignarleigufyrirtækjum þar
sem fram koma upplýsingar varðandi
samninga sem eignarleigufyrirtæki,
sbr. II. kafla laga nr. 19/1989, hafa gert
og í gildi voru á árinu 1993 vegna
fjármögnunarleigu eða kaupleigu á
fólksbifreiðum fyrirfærri en 9 manns.
M.a. skulu koma fram nöfn leigutaka
og kennitala, skráningarnúmer
bifreiðar, leigutímabil ásamt því verði
sem eignarleigufyrirtæki greiddi fyrir
bifreiðina.
Götuljós
í Bláa lóninu
Ægir Már Karason, DV, Suðumesjum:
„Uppbyggingunni við Bláa lónið
er ekki lokið. Við munum byija á
því næstu daga að lýsa allt upp með
götuljósum, bæði bílastæðin og
eins göngustíginn frá baðhúsinu
þar sem meðferðarlónið er,“ sagði
Kristinn Benediktsson, fram-
kvæmdastjóri baðhússins, í sam-
tali við DV.
„Sennilega munum við einnig
lýsa upp og malbika þann stutta
vegarkafla sem liggur hingað frá
Grindavíkurveginum. Þetta hefur
verið í biðstöðu þar sem Heilsufé-
lagið í Bláa lóninu tók við um ára-
mótin. Það verða ýmsar fram-
kvæmdir hér í ár.“
Það hefur komið fyrir aö gestir
hafa vilist á leið í Bláa lónið þar
sem vegarkaflinn sem liggur að
lóninu er ekki lýstur upp. Það hef-
ur þá stundum tekið gesti langan
tíma að finna baðhúsið. Sumir hafa
ient í hrauninu og skemmt bíla
sína.
„Það hafa margir kvartað yfir því
að þaö vanti lýsingu og munu þeir
áreiöanlega gleðjast yfir þeim
framkvæmdum sem verða gerðar
á næstunni. Það er kannski tíma-
bært að setja upp lýsingu þar sem
aukningin á gestum yfir vetrar-
mánuðina er mikil," sagði Krist-
inn.