Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1994, Side 34

Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1994, Side 34
42 MÁNUDAGUR 10. JANÚAR 1994 Afmæli Finnbogi Guðmundsson Finnbogi Guðmundsson landsbóka- vörður, Sólvangsvegi 7, Hafnarfirði, varð sjötugur á laugardaginn. Starfsferill Finnbogi er fæddur í Reykjavík. Hann lauk stúdentsprófi frá MR 1943, cand.mag. prófi í íslenskum fræðum frá HI1949 og doktorsprófi frá HÍ1961. Finnbogi var stundakennari við MR1946-47,1949-50 og 1958-59, kennari við MR1959-64, aðstoðar- kennari við Manitoba-háskóla í Winnipeg 1951-56, sendikennari við Óslóarháskóla 1957 og Björgvinjar- háskóla 1958 og hefur verið lands- bókavörður frá 1964. Hann hafði umsjón með töku kvikmyndarinnar Hundrað ár í Vesturheimi, 1954-55. Finnbogi var í stjórn Þjóðræknis- félags íslendinga í Vesturheimi 1952-56, formaður Félags íslenskra fræða 1962-64, formaöur Deildar bókavarða í íslenskum rannsóknar- bókasöfnum 1966-73, forseti Hins íslenzka þjóðvinafélags 1967-82 og í stjórn Nordinfo 1976-79. Hann var formaður samstarfsnefndar um upplýsingamál 1979-82 og formaður byggingarnefndar Þjóðarbókhlöðu frá 1970. Ritstörf: Hómersþýðingar Svein- bjarnar Egilssonar, doktorsritgerð 1960. Aö vestan og heiman, greina- safn, 1967. Gamansemi Egluhöfund- ar, 1967. Endimörk vaxtarins, þýð- ing fyrsta og síðasta kafla, 1974. Stephan G. Stephansson in Ret- rospect, seven essays, 1982. Orð og dæmi, nýtt greinasafn, 1983. Og enn mælti hann, ræður og greinar, 1989. Gamansemi Snorra Sturlusonar, 1991. Ritstjóri Árbókar Landsbóka- safns frá 1964. Útgáfur: Flateyjarbók I-IV (meðútgefandi), 1944-45. Þá riðu hetjur um héruð, 1949. Reika svipirfornaldar, 1950. Karlamagnús saga I—III (með Bjarna Vilhjálms- syni), 1950. Foreldrar mínir, endur- minningar nokkurra íslendinga vestan hafs, 1956. Orkneyingasaga, íslensk fomrit, XXXIV, 1965. Helgi Hjörvar: Konur á Sturlungaöld, 1967. Frá einu ári, 1971. Bréf til Step- hans G. Stephanssonar, úrval I—III, 1971-72 og 1975. íslenskar úrvals- greinar I-III (með Bjarna Vilhjálms- syni), 1976-78. Bréf til Jóns Sigurðs- sonar, úrval I—II (meðútgefandi), 1980 og 1984. Ferðir um ísland á fyrri tíð, 1981. Bréf skáldanna til Guð- mundar Finnbogasonar, 1987. Vest- ur í frumbýli, 1989. Sá um útgáfu eftirtalinna rita Guðmundar Finn- bogasonar: Mannfagnaður, 1962. Land og þjóð, 1969. íslendingar, 1971. Þeir hafa hitann úr, úrval úr ræð- um, blaðagreinum og ritgerðum 1900-20,1974. Italíuferð sumarið 1908,1985. Ritstjóri Andvara, ásamt Helga Sæmundssyni, 1968-72, einn 1973-82. Finnbogi var gerður að heiðursfé- laga Þjóðræknisfélags íslendinga í Vesturheimi 1964. Fjölskylda Kona Finnboga var Kristjana P. Helgadóttir, f. 5.8.1921, d. 8.11.1984, læknir. Foreldrar hennar: Helgi Ól- afsson, f. 8.5.1891, d. 25.10.1976, tré- smíðameistari, og Þóra Guðrún Kristjánsdóttir, f. 27.7.1891, d. 17.1. 1976, húsfreyja. Dóttir Finnboga og Kristjönu: Helga Laufey, f. 25.1.1964, píanóleik- ari. Systkini Finnboga: Guðrún, f. 3.5. 1915, þýðandi; Sigríður, f. 17.9.1916, d. 2.9.1921; Vilhjálmur, f. 4.6.1918, d. 14.12.1969, verkfræðingur; Örn, Finnbogi Guðmundsson. f. 29.11.1921, d. 3.2.1987, viðskipta- fræðingur; Laufey, f. 20.7.1925, d. 23.5.1928. Foreldrar Finnboga: Guðmundur Finnbogason, f. 6.6.1873 á Arnstapa í Ljósavatnsskarði í Suður-Þingeyj- arsýslu, d. 17.7.1944, prófessor og landsbókavörður, og Laufey Vil- hjálmsdóttir, f. 18.9.1879 á Kaupangi í Eyjafirði, d. 29.3.1960, kennari. Til hamingju með afmælið 10. janúar ________________ Sigurðurlngvarsson, Tungusíðu 1, Akureyri. Sigríður Jónsdóttir, Dalbraut 18, Reykjavík. Sesselja Þorkelsdóttir, Eyrarvegi 24, Selfossi. 75ára Kristmundur Bjarnason, Sjávarborg 1, Skarðshreppi. Friðbjörn Jónatansson, Nípá 1, Ljósavatnshreppi. 70 ára ÁsgeirLórusson, Hlíðargötu4, Neskaupstað. Guðríður Erna Óskarsdóttir, Flyðrugranda 2, Reykjavík. Sveinn Pólsson, Lerkihiíð 5, Reykjavik. 60ára Jóhanna Þórarinsdóttir, Æsustöðum, Bólstaðarhlíöar- hreppi. Jón Ólafur ívarsson, Bogabraut 14, Skagaströnd. Hjörtur Guðmundsson, Hjallabrekku 15, Kópavogi. Álfhildur Jóhannsdóttir, Vesturbergi 105, Reykjavik. Steinunn Friðriksdóttir, Guörúnargötu 9, Reykjavik. Bjamþór Eiríksson, Oddabraut 11, Þorlákshöfn. 50ára Unnur G. Stephensen, Sigluvogi 6, Reykjavík. Eiginmaður hennarerMar- geir R. Daníels- son. Þaueruað heiman. Kristín Sveinsdóttir, Brekkugötu 27, Akurey ri. Edward jóhann Frederiksen, Miðtúni 26, Reykjavík. Þóra Jónsdóttir, Grettisgötu 12, Reykjavík. 40ára Elísabet Gestsdóttir, Furulundi 4h, Akureyri. Aðalsteinn Hákonarson, Logafold 55, Reykjavik. Helga Jónsdóttir, Breiðvangi 46, Hafnarfirði. Gísli Þór Sigurþórsson, Öldugötu 53, Reykjavík. Björg Guðmundsdóttir, Hlíðarhjalla 69, Kópavogi. Jón Lúðvíksson, Kögurseh 29, Reykjavík. Eðvald Karl Eðvalds, Álfaskeiði84, Hafnarfiröi. Jóhanna Guðmundsdóttir, Skólastíg 32, Stykkishólmi. ★ ★★20 ára ★★★ Orgelskóli Yamaha Orgel- og hljómborðskennsla. Innritun núna í síma 870323. Erum fluttir í nýtt húsnæði, Rauðarárstíg 16. Skólastjóri Emil Signrðsson Emil Sigurðsson, vélstjóri og nú starfsmaður Olíufélags íslands, Sól- vallagötu 31, Reykjavík, varð sjötug- urálaugardaginn. Starfsferill Emil er fæddur í Hafnarnesi við Fáskrúðsfiörð og ólst þar upp. Hann lagði stund á vélstjóranám á Norð- firðiveturinn 1944. Emil byrjaði að stunda sjó- mennsku 15 ára gamall, fyrst frá Hafnarnesi við Fáskrúðsfiörð og síðan á öðrum stöðum á landinu. Hann hóf búskap í Vestmannaeyj- um 1952 og starfaði þar áfram sem vélstjóri á fiskibátum en lengst af var hann vélstjóri á mb. Sigurfara VE, eða í 19 ár. Eftir Heimaeyjargos- ið 1973 flutti Emil ásamt fiölskyldu sinni til Grindavíkur og þar starfaði hann í Fiskimjöli og lýsi. Hann flutti til Reykjavíkur 1990 og hóf þar störf hjá Olíufélagi íslands á Gelgjutanga. Fjölskylda Fyrri eiginkona Emils var Lilja Finnbogadóttir, f. 15.2.1920, d. 1.5. 1959, frá Vestmannaeyjum. Foreldr- ar hennar: Finnbogi Finnbogason og Sesselja Einarsdóttir frá Bræðra- borg í Vestmannaeyjum. Seinni eig- inkona Emils var Helga Þorkels- dóttir, f. 11.11.1913, d. 20.9.1980, frá Vestmannaeyjum. Foreldrar henn- ar: Þorkell Þórðarson og Guðbjörg Jónsdóttir frá Sandprýði í Vest- mannaeyjum. Dætur Emils og Lilju: Gunnhildur, f. 1.11.1952, framkvæmdastjóri, hennar maður er Jakob Fenger, tré- smiður, þau eiga tvö börn, Olgu Hörn, f. 12.5.1978, og Emil, f. 10.2. 1986; Ásdís Lilja, f. 5.8.1956, hjúkr- unarfræðingur, hennar maður er Kristján Ingi Einarsson, prent- smiðjustjóri, þau eiga þrjár dætur, Rósu Hrund, f. 3.1.1980; Hildi Helgu, f. 20.4.1984; Lilju, f. 29.5.1990. Dætur Lilju Finnbogadóttur og fyrri eigin- manns hennar, Gunnars Þórðar- sonar frá Fáskrúösfirði: Bryndís Gunnarsdóttir, kennari; Rósa Gunnarsdóttir, hjúkrunarfræðing- ur. Sonur Helgu Þorkelsdóttur og fyrri eiginmanns hennar, Antons Friðrikssonar frá Ólafsfirði: Pétur Antonsson. Emil Sigurðsson. Systkini Emils: María, f. 14.9.1922; Jórunn, f. 27.10.1925, d. 4.8.1967; Óskar, f. 13.5.1927; Rafn, f. 29.3.1929, d. 27.9.1988; Erna, f. 16.5.1932; Ásta, f. 1.8.1933; Fjóla, f. 13.10.1936; Val- gerður, f. 5.12.1942. Foreldrar Emils: Sigurður Karls- son, f. 29.3.1904, d. 12.8.1972, og Kristín Sigurðardóttir, f. 6.10.1906, d. 27.5.1981. Þau voru bæði fædd og alin upp í Hafnarnesi þar sem þau seinna hófu búskap en þau fluttust svo til Vestmannaeyja um 1950. Jón Stefánsson Jón Stefánsson leigubílstjóri, Engi- hjalla 3 í Kópavogi, er fertugur í dag. Starfsferill Jón Stefánsson eyddi bernsku- árum sínum í Kópavoginum. Hann lauk grunnskólaprófi í Kópavogi og stundaði síðan sjómennsku og ýmis önnur störf árin 1969-80. Hann var starfsmaður hjá BYKO frá 1980 til 1986 er hann gerðist leigubílstjóri BSR. Fjölskylda Jón kvæntist 17.6.1978 Ásthildi Sigurjónsdóttur, f. 21.7.1955, rann- sóknarmanni. Foreldrar hennar; Elísa Jónsdóttir og Siguijón Jóns- son sem nú er látinn. Börn Jóns og Ásthildar eru Þor- gerður Ósk Jónsdóttir, f. 4.5.1977, nemi; Jóna Björk Jónsdóttir, f. 31.8. 1982; Sigurjón Jónsson, f. 24.2.1984. Systkini Jóns; Inga Jóna, f. 7.9. 1948, gift Kristni Hermannssyni, f. 2.4.1948, bónda, og eiga þau 4 böm; Helga Kristín, f. 2.12.1951, gift Guð- mundi Baldurssyni, f. 19.9.1949, raf- virkja, og eiga þau 3 böm; Jóhann, f. 19.2.1950, kennari, í sambúð með Sigrúnu Þórarinsdóttur, f. 12.10. 1951, kennara, og eiga þau eitt bam; Þórður, f. 9.11.1958, garðyrkjufræð- ingur, ókvæntur; Linda María, f. 9.1. 1962, nemi, í sambúð með Valgarði Einarssyni, f. 30.11.1960, verktaka, og eiga þau 2 böm; Dóra Mjöll, f. 18.9.1965, garðyrkjufræðingur, gift Rafni Emilssyni, f. 24.9.1962, garð- yrkjufræðingi, og eiga þau 2 börn. Foreldrar Jóns eru Stefán Jó- hannesson, f. 12.12.1916, verkstjóri, Jón Stefánsson. og Sigríður Sóley Sigurjónsdóttir, f. 7.5.1930, húsmóðir. Gagnkvæm tillitssemi allra vegfarenda UMFERÐAR RÁÐ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.