Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.1994, Page 2
Fréttir
FIMMTUDAGUR 27. JANÚAR 1994
Allt upp í loft á Alþingi í gær vegna bráðabirgðalaganna:
Forsætisráðherra sak-
aður um ósannsögli
- aðeins rætt við tvo óbreytta þingmenn Sjálfstæðisflokksins um lögin
Allt fór í loft upp á Alþingi í gær
þegar greiða átti atkvæði eftir 1.
umræðu um bráðabirgðalög ríkis-
stjórnarinnar. Enda þótt umræðu
væri lokið fóru sijómarandstæðing-
ar í ræðustól undir þeim formerkjum
að ráeða stjóm þingsins, bera af sér
sakir eða annað sem leyfir þeim að
taka til máls.
Það sem umræðan snerist fyrst og
fremst um var að Þorsteinn Pálsson
hafði upplýst daginn áður að einung-
is hefði verið rætt við tvo þingmenn
Sjálfstæðisflokksins, fyrir utan ráð-
herra, um setningu bráðabirgóalag-
anna 14. janúar síðastliðinn.
Guðni Ágústsson vitnaði til sjón-
varps- og útvarpsviðtala við Davíð
Oddsson forsætisráðherra þar sem
hann sagði að rætt hefði verið við
flesta þingmenn Sjálfstæðisflokks-
ins. Guðni sagði að upplýsingar Þor-
steins Pálssonar um að aðeins hefði
verið rætt við tvo þingmenn flokks-
ins staðfestu að forseti Islands hefði
verið látinn skrifa undir bráða-
birgðalögin á folskum forsendum.
Davíð Oddsson er erlendis og tók
Geir H. Haarde, formaður þingflokks
Sjálfstæðisflokksins, upp vöm fyrir
forsætisráðherra og var reiður.
Hann sagði það tilhæfulausa ásökun
að forsætisráðherra hefði skrökvað
að forseta íslands. Það vissi enginn,
nema þau tvö, hvað þeim hefði farið
í milli.
Valgerður Jóna Krisfjánsdóttir
sagði það hið alvarlegasta mál að
setja bráðabirgðalög án þess að
kanna fyrst hvort meirihluti væri
fyrir þeim á Alþingi. Það væri hefð
fyrir slíku. Nú hefði það ekki veriö
gert. Hún minnti einnig á að forsæt-
isráðherra hefði sagt ósatt þegar
hann sagði í sjónvarpsviðtali að rætt
hefði verið við flesta þingmenn
stjómarinncir.
Margir þingmenn tóku til máls.
Stj órnarandstæðingar fundu harð-
lega að fundarstjóm forseta Alþingis,
Gunnlaugs Stefánssonar, á þriðju-
dagskvöld. Þá hefði hann tekið geð-
þóttaákvörðun um að ljúka umræð-
unni í stað þess að fresta henni þar
til forsætisráðherra væri kominn til
landsins. Þaö væri einsdæmi að for-
setí Alþingis hafnaði ósk allra stjórn-
arandstöðuflokkanna um að fresta
umræðu um mál eins og þetta.
-S.dór
Landbúnaðameöid:
Formaðurinn
frumvarp sem
ekki er til
Hið mjög svo umdeilda frumvarp
til breytingar á búvörulögunum, sem
átti að leggja fram á Alþingi síðastlið-
inn mánudag, hefur enn ekki verið
lagt fram.
Ástæðan er sú að sfjómarflokkarn-
ir deila enn um hvað eigi að vera á
bannlista landbúnaðarráðherra og
hvað ekki. Halldór Blöndal landbún-
aðarráðherra hefur raunar sagt að
frumvarpið sé ekki til enn þá. Friðrik
Sophusson flármálaráðherra segir
ástæðuna lagatæknilega.
En fmmvarpið er til og Egill'Jóns-
son, formaður landbúnaðamefndar,
lagði það fram til kynningar og um-
ræðu í landbúnaðarnefnd á mánu-
dag. Það var svo aftur tekið fyrir á
þriðjudag og enn í gær. Fulltrúi Al-
þýðuflokkins neitaði að mæta á fund
landbúnaðamefndar vegna þessa.
Egill Jónsson sagði í umræðu um
þessa kynningu hans á frumvarpi,
sem landbúnaðarráðherra segir að
sé ekki til að hann hafi fengið. leyfi
til að kynna það í nefndinni. Ástæðan
hefði verið dómur Hæstaréttar í
skinkumálinu. Sagðist Egill hafa vilj-
að ræða stöðuna í ljósi þess dóms.
Hann staðfestí líka að fulltrúi Al-
þýðuflokkins í landbúnaðamefnd
hefði ekki mætt á fundina.
DV hefur fyrir því heimildir að
þingmenn og ráðherrar Sjálfstæðis-
flokksins séu við það að springa
vegna framgöngu krata í þessu máli.
Einn þeirra gekk svo langt í gær að
segja að þetta gæti ekki gengið svona
lengur og að sér kæmu vorkosningar
ekkert á óvart.
-S.dór
Björgunaraðgerðir til aðstoðar lömbum í Esjuhlíðum:
Vil ekki fórna mér fyrir fjallalamb
- segir einn björgunarmannanna sem ætlar þó ekki aö gefast upp
„Það hefur eitthvað fundist af þess-
um lömbum og það var eitt sem við
vorum að eltast við núna. Við náðum
að festa hendur á því í gilinu. Þetta
er í klettum og erfitt að athafna sig.
Maður skutlar sér ekki ööruvísi en
að fara fram af sjálfur. Þó að fialla-
lambið sé nú ágætt þá er það nú
kannski ekki þess virði, svoleiðis að
við náðum því í tvígang en síðan
stökk það til fialls og þá var komið
myrkur," segir Torfi Þórhallsson hjá
Björgunarsveitinni Ingólfi sem í
fyrradag reyndi ásamt félögum sín-
um að bjarga lambi í Blikdal í Esju.
Lambið er af bænum Króki undir
Esjuhlíðum. Fyrir nokkru fóru
björgunarsveitarmenn frá Kyndh og
Kili og reyndu aö bjarga nokkrum
hrútlömbum sem þama voru en án
árangurs. Um seinustu helgi fóru svo
tveir menn á vélsleða og tókst að
bjarga tveimur lambanna í Bleikár-
gljúfrum í Esju. Daníel Guðmunds-
son, vinur bóndans í Króki, segist
hafa tekið á öðmm lambhrútanna.
„Hann var spikfeitur og að öllu leyti
í góðum holdum, þannig að þó nokk-
ur gróður virðist gægjast undan
snjónum þama. Það var líka þó
nokkuð mikil homahlaup á honum.“
Eins og fyrr segir er enn eitt lamb
í Blikdal í Esjunni. Segir Torfi að
hann og félagar hans í Ingólfi séu að
íhuga að fara um helgina og reyna
að bjarga því. Síga þarf niður í 50
metra djúpt gilið sem er nfiótt en
nokkurra kílómetra langt. „Lambið
hefur fullt ferðafrelsi þama þannig
að þetta verður sennilega meira
smalamennska en björgunarað-
gerð,“segirTorfi. -pp
Björgunarsveitarmenn við bíl sinn við Esjurætur.
DV-mynd Helgi Pétursson
Var tilkynnt um bráöabirgöalögin fyrirfram?
Byrjað að lögskrá á báta löngu fyir
- dómsmálaráöherra ætlar aö láta kanna hvemig á því stóð
Svavar Gestsson lagði í gær fram
á Alþingi ljósrit af tveimur síðum úr
lögskráningabók bæjarfógeta í Vest-
mannaeyjum. Ljósritin bámst til
Farmanna- og fiskimannasambands-
ins frá Sjómannafélaginu Jötni
klukkan 17.00 og 18.00 fóstudaginn
14. janúar. Bráöabirgðalögirt voru
hins vegar ekki sett fyrr en klukkan
að ganga ellefu um kvöldið.
í umræðunum daginn áður sakaði
Svavar dómsmálaráðherra, Þorstein
Pálsson, um að hafa vitað af þessu,
jafnvel að hann hefði leyft þetta. Þor-
steinn þrætti þá fyrir aö þetta heföi
átt sér stað.
Þorsteinn Pálsson brást hinn reið-
asti við ásökunum Svavars þegar
hann lagði ljósritin fram í gær. Svav-
ar hafði einnig verið stóryrtur og
reiður. Þorsteinn sagðist hvorki hafa
leyft né vitað af því að lögskráning
hefði hafist löngu fyrir setningu
bráðabirgðalaganna.
Hann var þráspurður, bæði af
Svavari og fleiri þingmönnum, hver
hefði þá heimilað að lögskráning
færi fram í yfirvinnu starfsmanna
bæjarfógeta í Vestmannaeyjum allt
að 5 tímum áður en bráðabirgöalögin
voru sett.
Þorsteinn svaraði því aldrei en þeg-
ar þeim Svavari var mnnin mesta
reiðin sagðist dómsmálaráðherra
ætla að láta kanna hver hefði ákveð-
ið að lögskráningin hæfist áður en
bráðabirgðalögin voru sett. Og þar
við situr nú.
-S.dór
Stuttar fréttir
Skattmannmeðátak
Sjö manna rannsóknardeildhjá
skattrannsóknarstj óra ríkisins er
farin aö rannsaka svarta at-
vinnustarfsemi.
stað nefnd á vegum
viðskiptaráðherra og samræma
aðgerðir tíl að greiða fyrir við-
skiptum við rússnesk fyrirtæki.
Þetta kemur fram í Mbl.
DavíðíÖlpunum
Árlega Alþjóða efnahagsráð-
stefhan hefst í dag í svissnesku
Ölpunum. Meðal þátttakenda er
Davíð Oddssonforsætisráðherra.
Kaupmannasamtökin íhuga
kaup á eigin posatækjum til að
skanna greiðslu- og debetkort í
stað þess að leigja tækin frá
kortafyrirtækjunum.
Tíminn greinir frá því að 10%
minna hefði safnast í jólasöfnun
Hjálparstofnmtar kirkjunnar fyr-
ir síöustu jól en fyrir jólin 1992.
Alls söfnuðust um 11,5 milljónir
króna.
17þúsundmál
Héraðsdómur Reykjavikur af-
greiddi alls rúmlega 17 þúsund
mál á síöasta ári. Að sögn Tímans
voru þar af um 2 þúsund mál
óafgreidd frá árinu áður.
ísienskt, nei takk
Að mati Múrarafélags Reykja-
víkur er íslensk vara sniðgengin,
m.a. í útboöum á vegum ríkisins.
RÚV greindi frá þessu.
Um 13 þúsund manns hafa sett
nöfn sín á undirskriftalista þar
sem því er mótmælt að afnota-
gjöld Ríkisútvarpsíns séu lög-
bundin. Þetta kom fram á Stöð 2.
Refsitollar
ekkiútilokaðir
Iðnaðarráðherra hvetur is-
lenskar lánastofnanir til að taka
ekki þátt í undirboðum og útilok-
ar ekki að refsitollar verði lagðir
á í skipaiðnaðl