Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.1994, Síða 7
FIMMTUDAGUR 27. JANÚAR 1994
7
i>v Fréttir
Geymslupláss Þjóðskjalasafnsins á þrotum:
GJaldþrot og einkavæðing
spæna upp hillukílómetra
- stjóm safnsins gimist ísgerðarhús til skjalageymslu í næsta nágrenni
„Við viljum hyggja að framtíðinni'
og aö okkar mati felst í því sparnaður
að kaupa húsnæði í stað þess að
leigja það. Safnið rúmar nú um 35
hillukílómetra en við sjáum fram á
að um aldamótin verði þörf á 15 kíló-
metrum til viðbótar. Yfir okkur hef-
ur verið að hellast flóðbylgja af skjöl-
um, meðal annars vegna einkavæð-
ingar og tíðra gjaldþrota í þjóðfélag-
inu,“ segir Ólafur Ásgeirsson þjóð-
skjalavörður.
I fjárlögum þessa árs er að finna
heimild fyrir fiármálaráðherra til að
kaúpa geymsluhúsnæði fyrir Þjóð-
skjalasafn íslands. Árið 1985 keypti
ríkissjóöur húsnæði af Mjólkursam-
sölunni í Reykjavík við Laugaveg og
var þá tahð að húsnæðið myndi duga
safninu fram til aldamóta. Nú þykir
hins vegar sýnt að þörf verði á við-
bótarhúsnæði fyrir þann tíma. Alls
eru nú til geymslu í safninu um 25
kílómetrar af skjölum.
Að sögn Ólafs hefur stjórn Þjóð-
skjalasafnsins augastað á húsnæði
Emmess-ísgerðarinnar sem er á
sömu lóð og safnið og er tengt safna-
húsinu með átta metra tengigangi.
Húsið er um 1.500 fermetrar og
myndi rúma allt að 15 kílómetra af
Yfir okkur hefur verið að hellast flóðbylgja af skjölum, meðal annars vegna einkavæðingar og tiðra gjaldþrota i
þjóðfélaginu," segir Ólafur Ásgeirsson þjóðskjalavörður.
hafi í raun ekkert verið gert í hús-
næðismálum Þjóðskjalasafnsins í 60
ár. Á sama tíma hafi íslenskt nútíma-
samfélag orðið til með tilheyrandi
skjalafiölda. Mjög hafi gengiö á
geymslurýmið undanfarin ár því við
gjaldþrot fyrirtækja og einkavæð-
ingu opinberra stofnana hafi safninu
borist mikill fiöldi skjala á einu
bretti, umfram það sem venjulegt er.
Skjöl molna en
hænufetin telja
Aðspurður segir Ólafur mörg eldri
skjöl Þjóðskjalasafnsins hggja undii
skemmdum vegna lélegs pappírs.
mörg ár hafi mikil vanræksla verið
á þessu sviði og fiárskortur hamlað
því að ráðist væri í nauðsynlegar
ráðstafanir.
„Skjöl hreinlega molna og gufa upp
í höndunum á okkur. Við höfum
stöðugar áhyggjur af þessu. Það þarf
meiri háttar björgunaraðgerðir til aö
bjarga sumu, til dæmis ýmsum kóp-
íubækur úr stjómsýslunni frá alda-
mótunum. Við reynum hins vegar
okkar besta og hænufetin telja þó ht-
h séu,“ segir þjóðskjalavöröur.
-kaa
Stjórn Þjóðskjalasafnsins hefur augastað á húsnæði Emmess-ísgerðarinnar
sem er á sömu lóð og safnið og er tengt safnahúsinu með átta metra tengi-
gangi. Húsið er um 1.500 fermetrar og myndi rúma allt að 15 kílómetra
af skjölum. DV-mynd GVA
Eskifjörður:
Deilur um skólaakstur
Emil Thorarensen, DV, Eskifirði:
„Þetta er einn sprengur fyrir mann
í hádeginu - fyrst að ná í eldri strák-
inn og fara síðan eftir hálftíma með
þann yngri í skólann. Þú getur rétt
ímyndað þér hvemig þetta er hjá
foreldrum sem báðir vinna úti. Það
hefði mátt spara ýmislegt annað í
rekstri bæjarfélagsins í stað þess að
ráðast á ungu kynslóðina," sagði
Lára Metúsalemsdóttir, fyrrv. for-
maður skólanefndar hér á Eskifirði.
Hún er afar óánægð eins og fleiri
foreldrar hér vegna niðurskurðar á
skólaakstrinum. í upphafi þessa
kjörtímabhs skar núverandi bæjar-
stjóm niður skólaakstur sem verið
hafði eftir aö byggðin færðist inn í
botn Eskifiarðar í 2 km fiarlægð frá
skólanum. Mikh gremja er í garð
bæjarstjómar vegna þeirrar ákvörð-
unar.
„Mér er minnisstætt að skólastjór-
inn okkar, Jón Ingi Einarsson, sem
jafnframt var bæjarsfiómarmaður,
að vísu í minnihluta, stóð vel vörö
um hagsmuni nemenda hvað skóla-
akstur varðaði. Hann krafðist þess
alltaf á hverju hausti að skólaakstur
úr og í skóla væri fyrir nemendur
sem lengsta leið áttu. Helstu rök hans
þá vom löng leið og vond veður. Það
var auðvitað laukrétt," sagði Lára.
En svo strax eftir kosningarnar
1990, þegar Jón var kominn í meiri-
hlutann, samþykkti bæjarstjóm að
leggja skólaaksturinn niður. Með
mótmælum foreldra tókst þó árið
eftir að fá bæjarstjórnina th að hefia
skólaakstur aftur, skertan, þar sem
eingöngu nemendur 1.-4. bekkjar var
ekið heim 2-3 mánuði eftir áramótin.
„Við erum ekkert að fara fram á að
fá meiri þjónustu en aðrir sem búa
við sambærilegar vegalengdir í hin-
um ýmsu byggöum landsins. Bæjar-
sfiórnarmenn þurfa að átta sig á að
hlutverk sveitarfélaga er að veita
fólkinu þjónustu. Ég mun fara á
hverja einustu kosningaskrifstofu og
athuga vhja frambjóöenda th skóla-
aksturs næstu ár,“ sagði.Lára.
skjölum. Talið er að viðbótarrýmið
nægi safninu fram til ársins 2025.
Áætlað er að ísgerðin flytji úr hús-
næðinu fyrir áramót. ÓMur segir
húsið henta vel undir starfsemi
safnsins, bæði hvað varðar stærð og
öryggissjónarmið. Enn hafi þó engin
ákvöröun verið tekin um kaup á
húsinu né Uggi fyrir verðhugmyndir.
Samkvæmt upplýsingum sem DV
hefur aflað má hins vegar gera ráð
fyrir að kaupverð hússins hggi á bil-
inu 30 til 40 mhljónir.
Ólafur segir að fram til ársins 1985
er að sofa á ekta rúmdýnu
sem passar hæð þinni og pyngd
Húsgagnahöliin
BÍLDSHÖFPA 20 - 112 REYK.JAV1K - SÍMI 91-081199
SÍMINN HJÁ OKKUR ER 91-68 11 99
hónsboiii!
THboðfynrhópa:
cfí
eru 15 rru
fleiri. 40.000 kr.
20 manna hóp.
i’ltir t//ii 2 lil 4 nœtur
á manninn í tvíbýli
í 2 ncetur og 3 daga
á Selandia.
Veittur er 5% staðgreiðsluafsláttur
i
| *M.v. að greitt sé með minnst 14 daga íýrirvara. Innifalið er flug, gisting,
| morgunverður og flugvallarskattar. Börn, 2ja - 11 ára, fá 13.500 kr. í afslátt.
| Börn að 2ja ára aldri greiða 3.000 kr. Enginn bókunarfyrirvari.
1 Hafðu samband við söluskrifstofur okkar, umboðsmenn um allt land,
| ferðaskrifstofumar eða í síma 690300 (svarað alla 7 daga vikunnar
1 frá kl. 8 -18).
QATXAS^ (D®
Brottfarir á fimmtu-, föstu- og
laugardögum.
Heimflug á sunnu-, mánu- og
þriöjudögum.
Perudanskt andrúmsloft, dönsk
matargerð, alþjóðleg matargerð,
mjög góðir veitingastaðir, krár,
kaffihús, skemmtistaðir, nætur-
klúbbar. Oflugt tónlistar- og
leikhúslíf, ópera, ballett, jass.
Stór vöruhús og verslunargötur,
vömgæði, kjarakaup. Góð söfh.
íslendingaslóðir.
FLUGLEIDIR
Traustur íslenskur ferðafélagi