Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.1994, Síða 30
42
FIMMTUDAGUR 27. JANÚAR 1994
Afmæli
Haraldur B. Bjamason
Haraldur B. Bjarnason múrara-
meistari, Vesturgötu 7, Reykjavík,
er áttatíu og fimm ára í dag.
Starfsferill
Haraldur fæddist á Stokkseyri og
ólst þar upp. Hann lærði múraraiðn
og lauk sveinsprófi í Hafnarfirði
1932 en meistari hans var Ólafur
Jónsson, múrarameistari og b. á
Reynisvatni. Haraldur starfaði síð-
an við múrverk, hlaut meistararétt-
indi í greininni og hefur unnið við
fjölda stórhýsa í Reykjavík. Hann
var lengi forstjóri hyggingafélagsins
Goða.
Haraldur varð félagi í Múrarafé-
lagi Reykjavíkur 1933 og var félagi
í Múrarameistarafélagi Reykjavik-
ur frá 1945. Hann var formaður
Stokkseyringafélagsins í Reykjavík
ífjöldaára.
Fjölskylda
Systkini Haralds: Grímur Bjarna-
son, pípulagningarmeistari í
Reykjavík, sem er látinn; Dagbjart-
ur Bjarnason, stýrimaður hjá Ríkis-
skip, búsettur í Reykjavík, látinn;
Hróbjartur Bjamason, stórkaup-
maður í Reykjavík, látinn; Sigríður
Bjarnadóttir, húsmóðir í Reykjavík;
Elín S. Bjarnadóttir, húsmóðir í
Reykjavík.
Foreldrar Haralds voru Bjarni
Grímsson, f. 4.12.1870, d. 29.8.1944,
útvegsb. á Stokkseyri, og Jóhanna
Hróbjartsdóttir, f. 20.11.1879, d. 9.6.
1969, húsmóðir.
Ætt
Bróðir Bjarna var Páll, hreppstjóri
í Nesi í Selvogi, afi prófessoranna
Bjarna og Jóns Guðnasona. Bjami
var sonur Gríms, b. í Óseyrarnesi,
bróður Margrétar, ömmu Páls
ísólfssonar tónskáilds, föður Einars
fræöimanns og Þuríðar söngkonu,
móður Guðmundar Páls Arnarson-
ar bridgespilara. Grímur var sonur
Gísla, formanns á Kalastöðum, Þor-
gilssonar, og Sesselju Grímsdóttur,
b. í Traðarholti, Jónssonar, b. á
Eystri-Rauðarhól, Bergssonar, ætt-
fóður Bergs-ættarinnar Sturlaugs-
sonar. Móðir Bjama var Elín
Bjamadóttir, formanns á Óseyrar-
eyri, Hannessonar, b. á Baugsstöð-
um, Árnasonar, hreppstjóra á Sela-
læk, Ormssonar. Móðir Bjarna var
Elín Jónsdóttir, hreppstjóra á
Stokkseyri, Ingimundarsonar, b. á
Hólum, bróður Jóns á Eystri-Rauð-
arhól. Móðir Elinar Bjamadóttur
var Sigríður Guðmundsdóttir á Ós-
eyrareyri Jónssonar, skipasmiðs á
Ásgautsstöðum, Snorrasonar, b. á
Hóli, Ögmundssonar. Móðir Sigríð-
ar var Margrét Haggensdóttir Jens
Möller, beykis á Skinnstöðum á
Eyrarbakka.
Jóhanna, móðir Haralds, var dótt-
ir Hróbjarts, b. á Grafarbakka í Ytri-
hreppi, Hannessonar, b. á Fossi,
Torfasonar, b. í Foki á Eyrarbakka,
Haraldur B. Bjarnason.
Björnssonar, b. í Vestra-Stokkseyr-
arseli, Einarssonar, b. á Skúmsstöð-
um, Brandssonar. Móðir Jóhönnu
var Ástríður Jónsdóttir, b. í Efra-
Langholti í Ytrihreppi, Magnússon-
ar.
Haraldur tekur á móti gestum í
Átthagasal Hótel Sögu á morgun,
fostudaginn28.1., kl. 17.00-20.00.
linda María Fredriksen
Linda María Fredriksen, húsfreyja
að Brunnavöllum í Suðursveit í
Austur-Skaftafellssýslu, er fertug í
dag.
Starfsferill
Linda María fæddist I Árósum í
Danmörku en flutti tveggja ára til
íslands og ólst upp hjá móður sinni
og stjúpfoður í Olafsvík. Þar lauk
hún grunnskólanámi og stundaði
þar fiskvinnslu. Linda María flutti
með fjölskyldu sinni til Reykjavíkur
1970 þar sem hún stundaði fisk-
vinnslu.
Linda María flutti austur að
Bmnnavölum 1976 og hefur verið
þar húsfreyja síðan.
Fjölskylda
Maður Lindu Maríu er Jón Sigfús-
son, f. 22.5.1946, b. að Brunnavöll-
um. Hann er sonur Sigfúsar Jóns-
sonar, b. á Brunnavöllum sem nú
er látinn, og Helgu Bjömsdóttur
ljósmóður.
Dóttir Lindu Maríu frá því áður
er Inga Helga Baldursdóttir, f. 12.2.
1972, sjúkraliðanemi á Höfn í
Hornafirði. Böm Lindu Maríu og
Jóns em Helga Jónsdóttir, f. 1.8.
1978; Sigfús Jónsson, f. 4.2.1984;
Emil Jónsson, f. 7.9.1985.
Uppeldissystkini Lindu Maríu em
Ragnheiður Helgadóttir, f. 24.3.1943,
kennari í Reykjavík; Erlingur
Helgason, f. 21.5.1944, skipstjóri í
Ólafsvík; Sigurjón Helgason, f. 5.3.
1947, verktaki í Keflavík; Kristinn
Helgason, f. 2.2.1950, verktaki í
Keflavík; Svavar Helgason, f. 12.8.
1951, þjónn og verslunarmaöur;
Kristín Þómnn Helgadóttir, f. 24.12.
1954, sjúkraliði í Garðabæ.
Systur Lindu Maríu, sammæðra,
em Alda Helgadóttir, f. 26.12.1958,
hárgreiðslumeistari í Reykjavík;
Bylgja Helgadóttir, f. 25.10.1960,
Linda María Fredriksen.
húsmóðir í Reykjavík; Bára Helga-
dóttir, f. 7.7.1962, snyrtisérfræðing-
uríReykjavík.
Fósturfaðir Lindu Maríu var Helgi
Salómonsson, f. 25.10.1915, d. 22.7.
1981, bifreiðastjóri. Móðir Lindu
Maríu er Inga Margret Fredriksen,
f. 5.10.1934, starfar við framreiðslu
íReykjavík.
Linda María verður heima á af-
mælisdaginn.
Axel Guðmundsson
Hjálmtýr Axel Guðmundsson, dreif-
ingaraðili hjá Plastprenti hf., Sæ-
bólsbraut 14, Kópavogi, er fimmtug-
urídag.
Starfsferill
Axel er fæddur í Reykjavík og ólst
þar upp. Hann var í Myndlista- og
handíðaskólanum 1953-54, Laugar-
nesskóla og Gagnfræöaskólanum
v/Réttarholtsveg. Axel tók 2. stig
vélstjóra frá Vélskóla íslands 1973.
Axel var sendibifreiðastjóri á
Sendibílastöðinni hf. 1979-81 en hef-
ur starfað hjá Plastprenti hf. frá
þeim tíma.
Fjölskylda
Axel kvæntist 20.11.1965 Guðrúnu
Björgu Tómasdóttur, f. 17.11.1946,
matráðskonu. Foreldrar hennar:
Tómas Sigurjónsson, iðnaðarmaður
í Reykjavík, og Jóhanna L. Óskars-
dóttirhúsmóðir.
Böm Axels og Guðrúnar Bjargar:
Ásta, f. 27.5.1966, húsmóðir og nemi,
maki Sigurður Sigurðsson, f. 27.4.
1964, verktaki, þau eiga þijú börn,
Magna Reyni, f. 24.10.1985, Ólöfu
Ýr, f. 30.9.1990, og Guðrúnu Björgu,
f. 18.10.1993; Jóhann Tómas, f. 29.8.
1967, sendibílstjóri, unnusta hans er
Lilja Margrét Ólafsdóttir, f. 11.6.
1972, póstafgreiðslukona; Harpa
Björg, f. 21.1.1972, hárskeri, sambýl-
ismaöur hennar er Einar B. Hró-
bjartsson, f. 9.5.1967, sendibílstjóri,
þau eiga tvær dætur, Önnu Krist-
ínu, f. 16.11.1992, og írisi Björgu, f.
16.11.1992; HannaMaría, f. 15.1.
1976, skiptinemi í Frakklandi; Guð-
rúnÁsa, f. 28.12.1978, nemi.
Bróðir Axels: Sigurður Guð-
mundsson, f. 30.6.1939, vélfræðing-
ur í Hafnarfirði, dóttir hans og
Ragnhildar Einarsdóttur kennara
er Ingibjörg, f. 29.4.1966.
Foreldrar Axels: Guðmundur Sig-
urðsson, f. 25.9.1907, járnsmiður 1
Reykjavík, og Ásta Hjálmtýsdóttir,
f. 26.3.1917, matráðskona og hús-
móðir.
Hjálmtýr Axel Guðmundsson.
Ætt
Guðmundur er sonur Sigurðar
Guðmundssonar, sem ættaður er
frá Minna-Hofi á Rangárvöllum, og
Sigríðar Ólafsdóttur sem er ættuö
frá Syðri-Steinsmýri í Meðallandi.
Ásta er dóttir Hjálmtýs Sigurðs-
sonar, sem ættaður er frá Péturey í
Mýrdal, og Lucindu Sigurösson (f.
Hansen).
Axel tekur á móti gestum í Félags-
heimili Rafveitunnar v/Elliðaár
laugardaginn 29. janúar frá kl.
19-22.
Til hamingju meö
afmælið 27. janúar
Áslaug Árnadóttir,
Álfaskeiði 64, Hafnarfirði.
75ára
Jóhanna Bjömsdóttir,
Skarfshóli, Ytri-Torfustaöahreppi.
Ólafur Sigurðsson,
Lambhaga 9, Selfossi. ;
70 ára
Hermann Guðjónsson,
Langholtsvegi 146, Reykjavík,
Klara Konráðsdóttir,
Aðalgötu 6, Siglufirði.
Hólmsteinn Sigurðsson,
Hólavegi 32, Sauðárkróki.
Valgeir Ágústsson,
Höfðabraut 21, Hvammstanga.
60 ára
Guðrún V. Hallgrímsdóttir,
Vallarbarði 3, Hafharfirði.
Auðbjörg Ingimundardóttir,
Tómasarhaga 46, Reykjavík.
Sigrún Guðmundsdóttir,
Skipholti55, Reykjavík.
Sjöfn Helgadóttir,
Melgerði 20, Kópavogj.
Bára Magnúsdóttir,
Grenivöllum 20, Akureyri.
50 ára
Halivarður Sigurjónsson,
Lækj arhjalla 34, Kópavogi.
Þórir Jóhann Ólafsson,
Langholti 6, Keflavik.
Kristin Jóhannsdóttir,
Smáragrund 9, Sauðárkróki.
Eygló Ragnarsdóttir,
Kvíholti 2, Hafnarfiröi.
Auðbjörg Guðmundsdóttir,
Húsinu, Eyrarbakka.
Sigþór Ingólfsson^
skrifstofu-
stjóri,
Sæviðarsundi
66,Reykjavík.
Eiginkona
hans erSólveig
Kristjánsdóttir
ritari.
Þautakaámóti
gestum á heimili sínu á afmælis-
daginnfrá kl. 20-23.
40ára
Svala Sigurðardóttir,
Næfurási 15, Reykjavík.
Árdís ívarsdóttir,
Otrateigi 20, Reykjavík.
Guðrún Erla Gunnarsdóttir,
Urðarstíg 9, Reykjavík.
Guðlaug Guðjónsdóttir,
Hraunbæ22, Reykjavik.
Jón Eggert Bragason,
Skipholti 45, Reykjavík.
Ragnhildur Bjarnadóttir,
Víðigerði3, Akranesi.
Einar Jónatansson,
Holtastig 11, Bolungarvík.
Kona hans er Guörún Magnúsdótt-
ir.
Þau taka á móti gestum að Vitastíg
3 í Bolungarvík föstudaginn 28. jan-
úarfrákl. 20-23.
BirgirHreinn Gunnarsson,
Grundargötu 4, Akureyri.
Nicolai Jónasson,
Reykási 47, Reykjavík.
Jónas Þorsteinsson
Jónas Þorsteinsson skipstjóri,
Strandgötu 37, Akureyri, er sjötug-
urídag.
Starfsferill
Jónas er fæddur á Hjalteyri við
Eyjafjörð og ólst upp þar og á Kljá-
strönd og á Akureyri. Hann lauk
gagnfræðaprófi frá Menntaskólan-
um á Akureyri 1941 og meira fiski-
mannaprófi frá Stýrimannaskólan-
um í Reykjavík 1946.
Jónas hóf sjómennsku 1941 og
stundaði hana til 1964 en hann var
stýrimaöur og skipstjóri frá 1946.
Eftir að Jónas kom í land vann hann
ýmis skrifstofustörf en frá 1967 hef-
ur hann haft á hendi viðgerðir og
leiðréttingar áttavita í skipum. Það
hefur verið aðalstarf Jónasar frá
1982.
Jónas hefur setið í stjórn Far-
manna- og fiskimannasambands ís-
lands og var forseti þess í eitt kjör-
tímabil.
Jónas bjó á Hjalteyri fyrstu tvö
árin, síðan á Kljáströnd til 1932 en
hefur verið búsettur á Akureyri frá
þeimtíma.
Fjölskylda
Jónas kvæntist 8.10.1950 Mattheu
Kristjánsdóttur, f. 19.11.1920, hús-
móður. Foreldrar hennar: Kristján
Jónsson, bakarameistari á Akur-
eyri, og Elísa Ragúelsdóttir, hús-
móðir á Akureyri.
Synir Jónasar og Mattheu: Þor-
steinn, f. 6.8.1952, flugumsjónar-
maður, búsettur í Reykjavík; Krist-
ján Elís, f. 27.5.1955, matreiðslu-
meistari, maki Ólöf Matthíasdóttir,
þau eru búsett á Akureyri og eiga
tvö böm; Haraldur, f. 21.6.1958, við-
skiptafræðingur, maki Valgerður
Lýðsdóttir, þau eru búsett á í safirði
ogeigaeittbam.
Bróðir Jónasar: Sigurbjörn V., f.
27.3.1926, d. 1988, húsasmíðameist-
ari, ekkja hans er Margrét Sigurðar-
dóttir, þau eignuðust fimm böm.
Foreldrar Jónasar: Þorsteinn Stef-
ánsson, f. 7.3.1896, d. 3.9.1973, skip-
stjóri og síðar hafnarvörður á Akur-
eyri, og Laufey Valdimarsdóttir, f.
29.1.1898, d. 19.5.1961, húsmóðir,
þau voru búsett á Akureyri frá 1932.
Ætt
Þorsteinn var sonur Stefáns Hans-
sonar Baldvinssonar, prests á Ups-
um á Upsaströnd, Þorsteinssonar
og Filippíu Erlendsdóttur, klaustur-
haldara á Munkaþverá.
Jónas Þorsteinsson.
Laufey var dóttir Valdimars Jó-
hannssonar Sigurðssonar er ættaö-
ur var úr Möðruvallasókn.
Jónas tekur á móti gestum í Odd-
fellow-húsinu að Brekkugötu 14 á
Akureyri laugardaginn 29. janúar
frákl. 16-19.