Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1994, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1994, Side 8
8 FIMMTUDAGUR 10. MARS 1994 Stuttar fréttir Útlönd Hafaekki áhuga Bosníumenn eru óánægöir og vyja ekki sameinast sambands- ríki múslíma og Króata. Villfrið Al-Assad, for- seti Damascus, tilkynnti á ráð- stefnu ísraeia og Araba í Sýr- landi á dögun- um aö hann vill semja um friö viö ísrael en kærir sig ekki um að gefa eftir varöandi mikilvæg málefni. Alls 26 flokkar Alls ætla 26 stjómmálaflokkar aö taka þátt í kosningunum í S- Afriku í apríl. Atk væðagreiðslu frestað Öryggisráð SÞ frestaöi at- kvæðagreiðslu um fordæmingu á Hebron-morðunum. Óeirðir aukast Óeirðir og glæpir aukast í Só- malíu eftir því sem íleiri herir Bandaríkjamanna yfirgefa svæð- ið. LofarKína Forsætisráöherra Kína segir erfiöleika í nánd vegna markaðs- kerfis. TekiðfyriríGenf Leiðtogi Ge- orgiu, Eduard Shevardnadzc, sogir viðræður um Iríö milli stjórnar sínsog Abkhazian aö- skilnaöar- sinna, sem fram hafa farið á þingi SÞ, veröí haldið áfram í Genf i þessum mánuöi. Syrgja Mercouri Gríska þjóðin syrgir Melinu Mercouri sem jörðuð var í heima- landi sínu, Grikklandi, í gær. Vilja yfirheyrslur Repúblikanar vilja aö yfir- heyrslur hefjist um Whítewater- máliö í öldungadeildinni en demókratar neita því. Vitaum helförina Meirihluti þýsku þjóðarinnar veit og trúir að helfor gyöinga hafi veriö raunveruleiki. Ekki látinn laus írskur maður, sem fangelsaöur var fyrir íran-kontra, var ekki látinn laus gegn tryggingu. Sættirnást Hemefhd i Saana segir sættir hafa náðst í deilum á milli strið- andi fylkinga í Yemen. Viljaskýringu SÞ vill skýringu frá stjórn Súd- an á loftárásum á borgara. Vildiekkimóðga Carlos Men- em, forseti Argentínu,seg- ist ekki hafa ætlað sér að móðga gyðinga með þvi að mæta ekki á frumsýningu á Lista Schindlers í Argentínu. Viljafund Rússar vilja nýjar friöarvið- ræður milli PLO og ísraels í Madríd vegna Hebron-morðanna. Þúsundiátist Þúsund manns hafa látist í óeirðum roilli ættflokka í Ghana aö undanfomu. Reuter Óvissa rnn hlutverk Islendinga í Noröurlandaráði á komandi árum: Það er engin ástæða til að fara á taugum - segir Guðmundur Árni Stefánsson heilbrigðisráðherra um stöðuna Gísli Kiistjánsson, DV, Stokkhólmi; „Auðvitað em menn hræddir en það er engin ástæða til að fara á taug- um,“ sagði Guðmundur Ámi Stef- ánsson heilbrigðisráðherra í viðtali við DV á Norðurlandaráðsþinginu í Stokkhólmi um breytta stöðu íslands í Norðurlandasamstarfinu fari svo að Svíar, Finnar og Norðmenn gangi í Evrópusambandið, ESB. „Ég viðurkenni að óvissuþættirnir eru margir en þetta bendir ekki til að leiðir séu að skilja," sagði Guö- mundur. Hann spáði því að á næstu árum myndi verða til tvöfalt kerfi innan Norðurlandaráðs. Annars vegar myndi starfið beinast að sam- ræmingu á stefnu Norðurlandanna Guðmundur Árni Stefánsson heilbrigðisráðherra. innan ESB. Þar gætu íslendingar aðeins orðið áheyrendur. Hins vegar héldist menningarsamstarfið líkt og áður. Guðmundur sagðist telja að menn gerðu of mikið úr einangrun íslands utan ESB og sagðist ekki sjá fyrir sér að hörmungar biðu landsmanna. „Ef vilji skapast til að skoða ein- hvers konar aðild þá á að skoða alla möguleika í því sambandi og sjá hverju við emm að hafna með því að standa fyrir utan Evrópusam- starfið. En nú sem stendur sé ég ekki að það sé vilji til að ganga lengra en þegar hefur verið gert með samning- unum um Evrópska efnahagssvæð- ið,“ sagði Guðmundur Árni. Fuglaskoðarar flykktust til Pennington Flash Country Park garðsins nærri Manchester á Englandi í gær til að reyna að koma auga á fugl nokkurn frá austurhluta Síberiu en hann hefur nú sést á Bretlandi í fyrsta skipti. Símamynd Reuter Kimberly Mays farinn heimtil kynforeldranna Kimberly Mays, fimmtán ára bandaríska stúlkan sem fékk „lögskiln- að“ frá kynfor- eldrum sínum í fyrra, eins og frægt er orðið, er farin frá fóðumum sem ól hana upp og flutt inn til kynfor- eldra sinna til að reyna að leysa persónuleg vandamál. Skipt var á Kimberly og ann- arri stúlku á fæðingardeild í Flórída á sínum tíma. Að sögn réttargæslumanns hennar eru báðir foreldrar stúlk- unnar samþykkir þessu ráðslagi. Fjölmiðlar hófu mikla leit að Kimberly í gær þegar blaðið Tampa Tribune skýrði frá því að hún hefði farið frá fóöur sínum, Robert Mays, og snúið til kynfor- eldra sinna. í síðustu viku dvaldi hún í nokkra daga í athvarfi KFUK. Lögfræðingur stúlkunnar segir vandræði hennar ekki í neinu sambandi við forræöisdeiluna umhana. Reuter Talsmaður heildarsamtaka norsks sjávarútvegs um tilboðið til ESB: Tvö þúsund tonn af þorski lítið tilað gera veður út af Þrátt fyrir reiöi samtaka norskra sjómanna vegna tillagna stjórnvalda um sjávarútvegssamning við Evr- ópusambandið segir Jan Lauritzen, upplýsingafulltrúi Norges Fiskarlag, heildarsamtaka í norskum sjávarút- vegi, að tvö þúsund tonn af þorski séu lítið til að gera veður út af. Miklu mikilvægara sé að fá yfirráö yfir nýtingu auölindanna norðan 62. breiddargráðu. Jan Henry T. Olsen, sjávarútvegs- ráöherra Noregs, bauö tvö þúsund tonna umframkvóta af þorski til að liðka fyrir að samningar tækjust um inngöngu Noregs í Evrópusamband- iö en það dugði ekki til. Javier Solana, utanríkisráðherra Spánar. Simamynd Reuter Javier Solana, utanríkisráðherra Spánar, hvatti norsk stjórnvöld í gær til að gefa eftir í kvótamálinu. Spán- verjar hafa sætt mikilh gagnrýni innan ESB vegna afstöðu sinnar og hafa Þjóðverjar m.a. sakað þá um aö vera aöalhindrunin í vegi inngöngu Noregs í sambandið. Norðmenn hafa metið tvö þúsund umframþorsktonnin á um tvö hundruð milljónir íslenskra króna. Alf Hummberset, formaður sjávar- útvegssamtakanna í Nordlandsfylki, hefur reiknaö út að umframkvótinn þýði í reynd að 60 mótorbátar með um níutíu menn í áhöfn hafi atvinnu í hálft ár. Bátamir veiða einnig ufsa, ýsu og fleiri tegundir. Um tvö hundr- uð manns í landi fengju vinnu í jafn- langan tíma. Anne Enger Lahnstein, leiðtogi Miðflokksins, sagði í gær að útlit væri fyrir að sjávarútvegsráðherr- ann mundi ná samkomulagi sem væri verra en hún hefði talið mögu- legt. Þá hélt Erik Solheim úr sósíal- íska vinstri flokknum því fram að Jan Henry T. Olsen heföu líklega fallið frá þeirri kröfu að Norðmenn hefðu umráðarétt yfir nýtingu auð- lindanna norðan 62. breiddargráðu. NTB, Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.