Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1994, Blaðsíða 17
LAUGARDAGUR 12. MARS 1994
17
Sviðsljós
Miðaldra fyrirsætur eru í tísku:
Fyrirsætan fær þakkarbréf
frá komim á sama aldri
Þó aö Cindy Crawford, Naomi Campell
og aðrar slíkar fyrirsætustjörnur séu vin-
sælar og mikiö í sviðsljósinu eru aörar
sem gera það líka gott - þótt mun eldri
séu. Miðaldra konur eru nefnilega að
sækja í sig veðrið sem fyrirsætur. Lauren
Hutton, sem er fimmtug, er orðin gífurlega
vinsæl fyrirsæta á nýjan leik en hún var
ein frægasta fyrirsæta Revlon-fyrirtækis-
ins um margra ára skeið.
Það var Eileen Ford sem uppgötvaði
Lauren Hutton og bað hana reyndar að
láta laga á sér tennurnar og grenna sig
svolítið áður en hún færi í fyrstu ljós-
myndatökuna. Lauren var ekki á því að
losa sig við frekjuskarðið milli framtann-
anna og þótt það sé enn á sínum stað hef-
ur hún náð miklum frama sem fyrirsæta.
Stærsti samningur hennar var við Rev-
lon fyrir tuttugu árum og varð Lauren á
nokkrum mánuðum hæst launaða fyrir-
sæta í heimi. Hún fékk samning upp á tvö
hundruð þúsund dollara á ári (rúmlega
íjórtán milljónir króna) frá fyrirtækinu.
Fyrir stuttu gerði hún nýjan samning
við Revlon og þótt hún vilji ekki segja
hversu samningurinn er hár í þetta skipt-
ið er ljóst að hann er hærri en sá fyrri.
Lauren Hutton er ekki eina miðaldra fyr-
irsætan sem gerir samning við snyrtivöru-
fyrirtæki því Isabella Rosselini, sem kom-
in er yfir fertugt, hefur verið samnings-
bundin við Lancome til margra ára. Svo
virðist sem markaðurinn sé farinn að stíla
meira inn á þann aldur.
Uppgötvuð
fyrir tilviljun
Það var í raun tilviljun að Lauren Hut-
ton gerðist fyrirsæta. Hún var á leið til
Afríku frá heimili sínu í Suður-Karólínu
með viðdvöl í New York þegar Ford Mod-
els uppgötvaði hana. Hún hét þá reyndar
Mary Laurence Hutton en breytti nafni
sínu í Lauren eftir átrúnaðargoði sínu sem
var leikkonan Lauren Bacall.
Reyndar fór Lauren aldrei til Afríku eins
og hún ætiaði þá en í gegnum árin hefur
hún ferðast um allan heim sem ljós-
myndafyrirsæta. Oft hafa þetta verið löng
og ströng ferðalög.
Hún hefur aldrei gifst né eignast börn
en hefur átt í sambandi við Malcolm
McLaren. Hún talar um að ættleiða barn
einhvern tíma. Lauren lék í bíómyndum,
m.a. á móti Richard Gere í American
Gigolo.
Lauren taldi að tími sinn sem fyrirsæta
væri á enda. Svo hefur þó ekki orðið. Hún
hefur unnið talsvert fyrir vin sinn Giorgio
Armani og er reyndar ein af uppáhaldsfyr-
irsætum hans. Einnig hefur hún skreytt
allar auglýsingar fyrir Hennes og Mauritz
í vetur og hafa þær þótt takast vel. Britt
Ekland, sem er á svipuðum aldri, skreytti
H&M auglýsingar fyrir nokkrum árum en
þótti þá of gömul og var gagnrýnd. Það
sama verður ekki sagt um Lauren Hutton
núna. Hún fær fjöldann allan af bréfum
frá miðaldra konum þar sem þær þakka
henni fyrir að sýna að konur á miðjum
aldri eru líka fallegar.
Lauren er mjög ánægð með að sýna að
hún er eftirsótt, kvenleg og ekki síst að
hennar kynslóð er langt því frá ósýnileg.
Lauren Hutton verður fimmtug á þessu ári en er engu að siður ennþá mjög eftirsótt fyrirsæta.
Hún sannar að konur þurfa ekki að verða gamlar og hrukkóttar þótt þær komist á miðjan aldur.
Auglýsing frá H&M, þar sem Lauren Hutton er fyrirsætan, hefur vakið
mikla athygli miðaldra kvenna og þær hafa sent henni þakkarbréf.
Fyrir ferminguna
íslenskjárnrúm í öllum stærðum. Innbrennd
lökkun. Sófasett/homsófar eftir máli og áklæðavali.
Svefnbekkir.
Goddi - Efnaco
Smiðjuvegi 5 - Kópavogi, sími 641344
lim
SÓIWik..'"
Sólftepp'^a Kr395l l.9955\
—
at at h\jón'tæK'u
ónvarp kr f1'90°^1 19.900 o.-
itæki mfgeislasp- _0 kr 44.900«...
-jamstæða m/gel 55.8OO
tSST**-
j0 samstϚa 59.900 *w-
|l
.kureyri Akranesi ísafirði
in/rillum 1 Ctillhr\lt KAÍoitonAÍll '
M