Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1994, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1994, Blaðsíða 18
LAUGARDAGUR 12. MARS 1994 18 Dagur í lífi Guðrúnar Ágústsdóttur hjá Samtökum um kvennaathvarf: Barist gegn kyn- ferðislegu ofbeldi Guðrún Ágústsdóttir i baráttugöngu 8. mars. DV-mynd Þök „Ég svaf yfir mig þennan morgun en vaknaði við viðtal á rás tvö við tvær konur úr Kvennaathvarfinu, bamastarfsmann og eina vaktkonu. Einnig var þar viðtal við kennara sem starfar í skóla athvarfsins og börn þaðan. Sem betur fer missti ég ekki af viðtölunum. Þau voru liður í þessum degi, 8 mars, sem er alþjóð- legur baráttudagur kvenna. Hann var að þessu sinni helgaður barátt- unni gegn kynferðislegu ofbeldi. Ég flýtti mér að drekka teið mitt og borða ristað brauð áður en ég stökk af stað niður í Kvennaathvarf. Kom reyndar aðeins of seint á fund fram- kvæmdanefndar Samtaka um kvennaathvarf en þar vomm við að ræða ýmiss konar nýbreytni í starf- inu. Bæði í bamastarfmu og skóla athvarfsins, svo og mannaráðningar, sumarafleysingar og fleira í þeim dúr. Fundinum lauk um ellefuleytið en þá vora komnir menn til að setja upp hljóðkerfi í Hlaðvarpanum fyrir útifundinn sem átti að verða síðar um daginn. Ég hafði klukkustund áður en borgarráðsfundur hófst klukkan tólf. Ég notaði hann til að taka nokkur símtöl sem ég þurfti að sinna en einn- ig undirbjó ég tillögu um skóladag- heimili sem fulltrúar minnihlutans fluttu á fundinum. Síðan hljóp ég út í ráðhús þar sem fundurinn var hald- inn og fékk þar hádegisverð. Hann samanstóð af reyktu lambakjöti með hnausþykkri, dökkbrúnni sósu, syk- urbrúnuðum kartöflum og rjóma- lagaðri blómkálssúpu. Þetta var ekki beint megrunarfæði. Langurborgar- ráðsfundur Fundurinn var langur og strangur. Við afgreiddum á milh sextíu og sjö- tíu mál en fundurinn stóð til þrjú. Á leiðinni út kom ég við á skrifstofu borgarlögmanns til að sækja plögg. Ég skoðaði eitt fallegasta Kjarvals- málverk, sem ég hef séð, á skrifstofu hans. Einnig skoðaði ég þar gamla, fallega mynd sem sýndi tjarnarsvæð- ið eins og það var áöur en ráðhúsiö var reist. Síðan hljóp ég út í Hlaðvarpa. Hitti reyndar á leiðinni konu sem er að vinna í Kvosinni en við ósköpuðumst mikið yfir nýbyggingu ofan á Mið- bæjarmarkaðnum sem tekur sól frá nýja Ingólfstorginu hluta úr degi. Þegar ég kom í vinnuna aftur var nóg að gera. Það var reyndar gott að ég var búin að ræða við fram- kvæmdanefndina um fækkun á vinnustundum inínum. Vegna kosn- ingabaráttunnar get ég ekki unnið fullt starf hjá Kvennaathvarfinu. Síminn hringdi látlaust og ég fékk óvænt viðtal við þolanda. Það var kona sem leitaði til mín og við rædd- um saman nokkra stund okkur báð- um til gagns. Síðan var klukkan orð- in fimm. Hljóðkerfið var komið upp og allt tilbúið fyrir hátíðahöldin. Áhrifamiklar konur Ég ætlaði að taka strætó upp á Hlemm þar sem gangan átti að byija en enginn vagn kom þannig að ég labbaði upp Hverfisgötu. Ég tók síð- an strætó við Þjóðleikhúsið. Það gat kostað eitt hundrað krónur að taka strætó frá Þjóðleikhúsinu upp á Hlemm en það er sama og kostar í tvær klukkustimdir í stöðumæh ef maður er á einkabíl. Þegar ég kom upp á Hlemm brá mér heldur í brún í fyrstu því mér fannst konumar vera of fáar sem þar voru mættar. Það var ekki laust við að ég fengi hjartslátt. Ég gekk að Búnaðarbank- anum þar sem konumar vora að velja sér spjöld og gera sig klárar í gönguna. Konumar í svörtu kuflun- um vöktu athygli mína enda vora þær mjög áhrifamiklar svona klædd- ar. Þá var eins og snjóaði inn konum því aht fyhtist á svipstundu. Vegna þess að ég hafði tekið þátt í undirbún- ingnum ásamt fjölmörgum konum gladdi það mig mikið að sjá hversu þátttakan væri góð. Mér þótti einnig myndarlegt af öll- um þeim aðhum, sem fengu afhenta kransa með áskorun, að taka við þeim með nokkrum orðum og loforði um að skoða málin með jákvæðu hugarfari. Nema forseti Hæstaréttar sem taldi það óvirðingu við Hæsta- rétt að þessi ganga skyldi vera farin. Ég hugleiddi að ef þetta væri óvirðing við Hæstarétt þá væra dómarar þar í fílabeinstumi. Dómarar mega þá varla hlusta á fréttir eftir þessu að dæma því þær geta haft mótandi áhrif á þá. Við létum þetta þó ekki á okkur fá. Klukkan tíu mínútur yfir sex vor- um við komnar niður á Lækjartorg og löbbuðum sem leið lá að Hlað- varpanum. Það var heldur þröng á þingi þegar tvö þúsund konur höfðu komið sér fyrir. Þama söng Kvenna- kór Reykjavíkur og Háskólakórinn og konur fluttu ljóð. Ég fékk mér kakó og súkkulaðiköku með miklum rjóma.' Síðan flýtti ég mér heim, borðaði snarl með eiginmanninum, horfði á fréttirnar og hélt síðan á nýju kosn- ingaskrifstofu R-hstans. Þar var fundur um undirbúning með fram- bjóðendum, kosningastjóm og ný- ráðnum kosningastjóra. Þeim fundi lauk um hálftólf. Ég var komin heim rétt fyrir tólf og náði að tala við dæt- ur mínar tvær í síma en önnur er í Edinborg og hin í Boston. Þar með lauk þessum viðburðaríka degi í lífi mínu. Áttu einhverja tegund sem fær manninn minn til að gleyma því að ég Nafn:.......... er komin yfir á ávísanareikningnum? Heimilisfang: Myndirnar tvær virðast við fyrstu sýn eins en þegar betur er að gáð kemur í ljós að á myndinni til hægri hefur fimm atriðum verið breytt. Finnir þú þessi fimm atriði skaltu merkja við þau með krossi á myndinni til hægri og senda okkur hana ásamt nafni þínu og heimilisfangi. Að tveimur vikum liðnum birtum við nöfh sigurvegar- anna. 1. verðlaun: Rummikub-spil- ið, eitt vinsælasta fjölskyldu- spil í heimi. Það er þroskandi, skerpir athyglisgáfú og þjálfar hugareikning. 2. verðlaun: Fimm Úr- valsbækur. Bækumar, sem eru í verölaun, heita: Mömmudrengur, Þrumuhjarta, Blóðrúnir, Hetja og Banvæn þrá. Bækumar eru gefiiar út af Frjálsri fjölmiðlun. Merkið umslagið með lausninni: Finnur þú fimm breytingar? 248 c/o DV, pósthólf 5380 125 Reykjavík Vinningshafar fyrir tvö hundr- uð fertugustu og sjöttu getraun reyndust vera: 1. Aníta Ómarsdóttir Lækjarbergi 34 220 Hafnarfirði 2. Kristján Amason Heiðarlundi 6 H 600 Akureyri

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.