Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1994, Side 21

Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1994, Side 21
LAUGARDAGUR 12. MARS 1994 21 leikjabók Krakkaklúbbsins. Þeir sem eiga sögur í bókinni eiga möguleika á að vinna Meiming í slenskur flautusnillingur Sinfóniuhljómsveit íslands hélt tónleika í gærkvöldi í Háskólabíói. Stjórnandi var Oliver Gilmour og einleikari á flautu Áshildur Har- aldsdóttir. Á efnisskránni voru verk eftir Ríkarð Örn Pálsson, Jaques Ibert og Nikolaj Rimskíj Korsakov. Eins og kunnugt er leikur Sinfó- níuhljómsveitin alltaf öðru hverju verk eftir íslensk tónskáld. Slíkt er þakkarvert og mikils virði en þó þvi aðeins að flutningurinn sé vandaður og geri verki og tónskáldi réttlát skil. Sé kastað höndum' til flutnings er verr farið en heima setiö, áheyrendur fá ranga hug- mynd um verk höfunda og íslenska tónlist yfirleitt. Undirritaöur hefur hiýtt á flutning íslenskra verka hjá sinfóníuhljómsveitinni nú í nokkur ár og getur fullyrt á grundvelh þeirrar reynslu að flutningur þeirra er aflt of oft hroðvirknisleg- ur. Hljómsveitin á sér þá afsökun að reynsla hennar í flutningi nútí- matónlistar er takmörkuð. Þá má vel vera að hljómsveitarstjórar þeir sem hingað koma hafl lítinn áhuga á útkjálkatónlist. Hvorttveggja er unnt að laga ef vilji ér fyrir hendi. Hægt er að gera hljómsveitarstjór- um grein fyrir því að ekki verði leitað til þeirra aftur ef þeir sýna ekki íslensku verkunum virðingu. Þá virðist alveg einsýnt að ætla nýjum verkum meiri æfingartíma en öðrum verkum. Hljómsveitin ætti að gera gagngért ráð fyrir því í skipulagi æfinga. í þessu efni má læra af fordæmi íslenskra leikhúsa en þau eru komin mun lengra í flutningi íslensks efnis en Sinfóníu- hljómsveitin. Þar þykir sjálfsagt að verja meiri æfmgatíma í ný íslensk verk en önnur og leikstjóra er greitt meira fyrir. Því er orðlengt um þessi efni hér aö flutningur hljómsveitarinnar á verki Ríkarðs Arnar Pálssonar var ekki boðlegur. Verkið sjálft virtist einkar skemmtilega skrifaö og sýndist hafa alla burði til að vera hið áheyrilegasta. Stíllinn var léttur og með nokkrum leikhúsbrag og fyrir bragðið nokkuð gagnsær svo ekki fór á milli mála hvað var illa spil- að. Svo virtist sem hljómsveitar- stjórinn væri ekki með það á hreinu hvort hann ætti að fylgja hljómsveitinni eða hún honum og virtist ráðast af tilviljunum hve- nær leiðir lágu saman. viðar var vart að finna og er því ekki að neita að hinar fallegu lagl- ínur voru farnar að verða svolítið leiðigjarnar undir lok verksins. Flutningur hljómsveitarinnar var einna skástur í þessu síðasta verki enda reyndi það þar tiltölu- lega lítið á hljómsveitarstjórann. Sá ungi maður virðist eiga eitt og annað ólært í fræðum sínum. Þetta voru einhverjir lökustu tónleikar hljómsveitarinnar í vetur. m Laugavegi 178 Borðapantanir í síma 679967 Tónlist Finnur Torfi Stefánsson Ljósi punkturinn á þéssum tón- leikum var flautuleikur Áshildar Haraldsdóttur í Konsert Iberts fyr- ir flautu og hljómsveit. Öryggi, skýrleiki og sérlega hreinn og fall- egur tónn eru aðalsmerki þessarar glæsilegu tónlistarkonu sem gerir það að verkum að hugsun hennar og túlkun kemst beint til skila á afslappaðan og áhrifamikinn hátt. Konsert Iberts er glæsilegt verk og kröfuhart en jafnframt aðgengilegt. Það gildir einnig um hið vinsæla verk Rimskíjs Korsakovs, Sche- herazade. Þar eru það grípandi laglínur sem ráða ferðinni og er verkið fyrst og fremst tilbrigði um þær, þar sem höfundur byggir mjög á færni sinni í hljómsveitarútsetn- ingum. Eiginlega úrvinnslu efni- /////////// TÍORA- PENNINN 1994 Smásagnasamkeppni um íslandsævintýri Tígra * Tígri ætlar aö ferðast um ísland í sumar því hann þekkir landið okkar svo lítið. Hvert ætti hann að fara? Upp á fjöll og leita að öðrum tígrum því kannski á Tígri ættingja sem hann þekkirekki? Nú eða sigla um Breiðaflörð og skoða selina og hvalina sem svamla á milli allra eyjanna. Kannski hittirTígri tröll eða álfa, kannski drauga. Það er margt sem getur komið fýrir lítinn Tígra sem ekki þekkir landiðvel. Ef þú ert 12 ára eða yngri getur þú tekið þátt í ævintýrum Tígra á íslandi með því að skrifa smásögu um ferðir hans og ævintýrin sem hann lendir í. Allir sem senda inn sögur fá sérstakan Tígrablýant að gjöf og 50 sögur verða valdar og gefnar út í einni bók, Tígrabókinni. vegleg verðlaun frá verslunum Pennans. Komið verður upp Tígrahomi í Kringlunni 4.-12. mars þar sem þú getur fengið öll þátttökugögn. Áshildur Haraldsdóttir flautuleikari. Þú getur einnig haft samband við Krakkaklúbb DV, Þveihotti 14,105 Reykjavík, RAÐHUS - EINBYLI 5 manna reglusöm fjölskylda óskar eftir rúm- góðu húsnæði í Reykjavík sem fyrst. Upplýsingar í síma 619027. GEEEEÞ- og við sendum þér gögnin. Skilafrestur er til 23. apríl. Það er leikur að skrifa um íslandsævintýri Tígra. Vertu með! KRINGWN island Við höfum yfirstæröirnar Fatnaður við allra hæfi. Kynnið ykkur okkar hagstæða verð. búðin, Bífdshöfða 18, §. 879010, fax 879110 Opið virka daga 9-18, laugard. 10-16

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.