Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1994, Page 22

Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1994, Page 22
22 LAUGARDAGUR 12. MARS 1994 Sérstæð sakamál i I „Verk hins vonda" í bænum gekk hann undir nafninu „Sá heilagi", enda var Peter Stout öfgafullur í trú sinni. í raun talaði hann ekki um annað en hana. Og dag einn heyrði hann Susan Ste- venson syngja í kirkjukórnum. Þá fóru hugsanir hans loks að snúast um eitthvað annað en trúna sem tekið haíði allan hug hans og tíma. í rauninni var Peter Stout, sem var aðeins átján ára þegar það sem hér segir frá gerðist, einmana, vinafár og leitaði huggunar í trú á þann hátt sem honum þótti best við sitt hæfi. Ekki einkenndust öll við- horf hans þó af ofstæki. Þannig aðstoðaði hann oft gamalt fólk og lasburða sem komst ekki til kirkju. Margir höfðu þá skoðun á Peter Stout að hann væri trúboði í sínum eigin heimabæ, því hann ræddi vart nokkuð annað en trúmál við þá sem gáfu sig á tal við hann. í raun var hinn mikli trúaráhugi að verulegu leyti þó ytra merki þess andlega ójafnvægis, sem hann bjó við, sem og ófullkominna sam- skipta við annað-fólk. Feiminn Hvar sem Peter fór hafði hann með sér lítil barmmerki sem á stóð: „Guð er kærleikur". Fólk sem var honum málkunnugt taldi hann gjarnan sérvitring en starfsfélagar hans við höfnina, þar sem hann var í fostu starfi, tóku hann ekki mjög alvarlega. „Má ekki bjóða þér snafs, Peter,“ sögðu þeir stundum við hann og réttu þá bæði að honum bjór og sterka drykki. En svar Peters var venjulega það sama: „Ekki freista mín. Ég er trúaður maður og sterk- ir drykkir leiöa menn inn á veg hins vonda." Þegar félagamir, sem fengu sér gjarnan neöan í því, gerðust of at- gangsharðir við hann dró Peter sig í hlé og fór að horfa á feijumar sem gengu yfir Ermarsund, en sagan gerðist í hafnarbænum Rochester. Fyrir kom að ungar stúlkur, sem stóðu við borðstokkinn, veifuðu til Peters en hann var allt of feiminn til að veifa til baka. Hann átti held- ur enga vinkonu. Falleg rödd Morgun einn í september gekk Peter fram hjó dómkirkjunni með- an innra var kirkjukór á æfingu. Tærar raddirnar drógu hann að eins og segull. Hann gekk inn fyrir og tók sér stööu í skugga rétt innan við dymar. Af röddunum hreif ein hann öðmm meira og hann starði hrifinn á stúlkuna sem honum fannst mjög lagleg. En hann vissi ekki hvað hún hét. Stúlkan sem söng svo fallega var Susan Stevenson. Hún var tvítug, nýgift og mjög hamingjusöm. Reyndar hafði hún gengið í hjóna- band tveimur mánuðum áður. Maður hennar var myndarlegur og höfðu margar ungar stúlkur litið hann hýru auga. Höfðu vinkonur Susan oft haft á orði hve heppin hún hefði verið að fá hann fyrir eiginmann. Þar sem Peter stóð þama í kirkj- unni og dáðist að ungu, laglegu stúlkunni með fallegu röddina var sem hugur hans tæki af honum stjómina og breytti honum í nær einu vetfangi. „Það var sem eitt- hvað djöfullegt og vont tæki völd- in,“ sagði hann síðar um það. Peter Stout hljóp út úr kirkjunni og heim. Þá fannst honum sem „hinn vondi“ heföi skipaö sér aö fremja morð. Gæti fómardýrið orð- iö nær hver sem væri og mætti hann láta til skarar skríöa hvenær sem væri. Susan á brúðkaupsdaginn. Hnífurinn í skúffunni Á þessari stpndu hefði Peter átt aö leita til læknis eða prests en til þeirra síðarnefndu bar hann mikið traust. Það gerði hann þó ekki og var brátt kominn heim til sín. Þar gekk hann fram í eldhús, opnaði skúffu og tók fram stóran hníf. Honum fannst hann heyra raddir sem skipuöu honum að fremja morð. Hann stakk hnífnum undir beltið á sér og fór út úr húsinu. Ekkert varð þó úr því að Peter yrði neinum aö fjörtjóni þennan dag. En næstu viku gekk hann um eins og í leiðslu, án þess að nokkur veitti honum sérstaka athygli. Alla daga gekk hann með hnífinn á sér og viku síðar fór hann að kirkjunni en þá vom kórstúlkumar að fara á æfingu. Peter faldi sig á bak við runna og beið. Skyndilega heyröi hann fótatak á stígnum sem lá að kirkj- unni. Það var tekið að dimma en hann sá þó að þar fór laglega stúlk- an sem söng svo vel. Hún hélt á tösku og átti sér einskis ills von. Skyndilega stökk Peter frarn úr fylgsni sínu, réðst á hana og stakk hana hvað eftir annað með hnífnum. „Raddirnar" þagna Peter hljóp af staðnum þegar hann hafði unniö ódæðið. Þá hætti hann að heyra „raddirnar" sem honum fannst hafa ómað í eyrum sér undanfama viku. Nú fannst honum hann aftur vera orðinn eins og hann átti að sér að vera. Og klukkustundu síðar var hann far- inn að syngja með kór kirkju þess safnaðar sem hann var í. Þegar líkið af Susan Stevenson fannst vissi lögreglan í fyrstu ekki hvernig hún ætti að leysa gátuna. Enginn hafði heyrt nokkuö. Og hverjum gat komið til hugar að myrða kórstúlku? Ekki var vitað til þess að hún eða maður hennar hefðu eignast neina óvini. Þá benti ekkert til kynferðislegs ofbeldis. Um Rochester fer mikill fjöldi ferðamanna og gerði það rannsókn málsins enn erfiðari en ella. Stór hluti þeirra er útlendingar en einn- ig fer þama um mikill fjöldi her- manna. Götumálarinn Sakir ferðamannastraumsins geta listamenn haft ofan af fyrir sér á götum úti og í þeim hópi var maður sem málaði myndir á gang- stéttar. Kvöldið sem moröið var Frá höfninni í Rochester. framið hafði hami séð ungan mann hlaupa fram hjá sér. Og þar eö götumálarinn hiafði ekki haft neitt annaö að gera þá stundina teiknaði hann mynd af honum. Lögreglan komst yfir myndina og bar hana saman við myndir í safni sínu. En sá samanburður bar eng- an árangur. Síöar kom þó í ljós að það var einmitt morðingiim sem götumálarinn hafði teiknað. Daginn eftir, rétt eftir dögun, fann lögreglan hins vegar merki í döggvotu grasinu við kirkjuna. Á því stóð: „Guð er kærleikur". Var helst að sjá sem það hefði rifnað af fati, líklega jakka úr gallabuxna- efni. Þótti líklegt að það hefði gerst meðan Susan Stevenson barðist fyrir lífi sínu. Lögreglan fór og talaði við ungt fólk sem kom á hveiju hausti til aö vinna uppskerustörf á ávaxta- ekrunum við bæinn. Margt af því gekk með hvers kyns merki en allt gat þetta unga fólk komið með fjar- vistarsannanir á morðkvöldinu. Ábendingin „Við erum ekki þau einu sem ganga með svona merki,“ sagði einn úr hópi unga fólksins. Benti hann lögreglunni á unga hafnar- verkamanninn sem hefði lengi gengið með merki af þessu tagi. „Sá heilagi" reyndist auöfundinn. Og þegar lögreglan tók hann til yfirheyrslu reyndist hann vera í jakka úr gallabuxnaefni og var gat á jakkanum þar sem ætla mátti að merki hefði hangið. Það var sem Peter létti þegar hann var handtekinn og um leið og hann var að því spurður hvort hann hefði myrt Susan Stevenson játaði hann morðið á sig. „En af hverju gerðirðu það?“ spurði rannsóknarlögreglufulltrúi. Peter hikaði í augnablik en sagði svo: „Ég veit ekki hvers vegna ég valdi hana. Mér hefur síðan verið sagt að hún hafi verið trúuð eins og ég. En „sá vondi" ginnti mig og fékk mig til að gera það. Hann skip- aði mér að fremja illvirki. Þess vegna myrti ég hana. Það var verk „hins illa“. Hún var sú sem fyrst gekk að kirkjunni þetta kvöld. Þess vegna varð hún fyrir valinu.“ Rannsóknin Peter var sendur til geðlæknis óg sálfræðings. Spurðu þeir hann spjörunum úr um alla hans hagi, enda gaf hegðan hans, bæði fyrr og síðar, tilefni til að halda að hann væri ekki alveg eins og fólk er flest. Ekkert kom fram sem sýndi að hann væri haldinn bijálsemi og því ekki sakhæfur en slíkt hefði kallað á öryggisgæslu á hæli um óákveð- inn tíma. Peter kom því fyrir rétt en þar tókst ekki að halda uppi neinum þeim vömum sem dygðu til að forða honum frá þungri refs- ingu. Kviðdómendur fundu hann sekan um morð og dómarinn dæmdi hann í lífstíðarfangelsi sem táknaði þó ekki að hann gæti ekki fengið lausn einhvem tíma síðar. Bróðir Peters, Arthur Stout, lét í ljósi þá skoðun eftir dómsupp- kvaðninguna aö ekkert væri aö marka játningu Peters. Hún væri folsk og hefði bróðir hans tekið á sig sökina fyrir aðra. Aðrir, þar á meðal sumir sér- fræðinganna, sem rannsökuðu Pet- er, em þó í litlum vafa um sekt hans. Og reyndar eru þeir til sem telja sig geta skýrt hvers vegna Peter framdi morðið. Hann hafði hrifist mikið af kórstúlkunni, bæði vegna útlitsins og hinnar fallegu raddar, en skort allt það hugrekki sem þurfti til að nálgast hana á eðlilegan hátt, eins og reyndar allar aðrar stúlkur. Sú fullyrðing að Susan hafi verið sú fyrsta sem kom að kirkjunni eftir að hann faldi sig í runnunum kunni aö vera sönn. Hins vegar kunni hann, nánast ómeðvitað, að hafa látið aðrar kórstúlkur ganga hjá óáreittar, því alla vikuna fyrir morðið hafi hann í fylgsnum hug- ans stefnt að því einu að ráða bana stúlkunni sem hann dáöi en vissi að gat aldrei orðið hans. 5i Í-X£ISI * 4 4 ±Jk'i á L

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.