Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1994, Qupperneq 29

Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1994, Qupperneq 29
LAUGARDAGUR 12. MARS 1994 41 Gleymdi erfiðleikunum með Morðgátunni: Bíó er bara afþreying - segir Woody Allen sem lætur sér fátt finnast um almenningsálitið „Ég var búinn aö ganga meö hug- myndina að þessari mynd í nokkur ár. Ég hætti hins vegar við handritiö á sínum tíma og geröi þess í stað Annie Hall. Undanfarin ár hafa verið mjög erfiö hjá mér og þá þótti mér gott að grípa til þessarar hugmyndar en handritið var klárað rétt áður en ég byrjaði á myndinni," segir kvik- myndaleikarinn og leikstjórinn Woody Allen, 58 ára, en nýjasta mynd hans, Manhattan Murder Mystery, er nú sýnd víða, m.a. í Stjörnubíói. Sumum finnst myndin minna svolítið á óskarsverðlauna- myndina Annie Hali sem Allen gerði áriö 1977. Hann segist hafa haft Miu Farrow, fyrrum konu sína, í huga fyrir hlutverkið sem Diane Keaton fékk síðan. Mia hefur einmitt leikið í velfiestum myndum hans. Diane Keaton fékk hins vegar óskarsverð- laun á sínum tíma fyrir Annie Hall enda er sú mynd talin besta mynd Woodys Allens. Diane Keaton var sambýliskona Allens um nokkurra ára skeið áður en hann byrjaði meö Miu. Þau þóttu leika skemmtilega saman í Annie Hall og endurtaka þann leik nú í myndinni Morðgáta á Manhattan. Aö sjálfsögðu notar Woody Allen Manhattan sem sögusviðið eins og í öörum myndum sínum. Sjálfur er hann fæddur og uppalinn í New York og hefur heyrst að hann sé svo flug- hræddur að þaðan fari hann ekki. Woody segir að Diane Keaton geri hlutverk sitt þannig að úr verði mik- il kímni. „Hún gefur hlutverkinu sérstakt yfirbragð," segir hann. „Hún er svo sterkur persónuleiki. Ég þurfti engu að breyta þó hlutverk- ið hefði veriö skrifað fyrir Miu. Diane aðlagaði það fyrir sig.“ Gaman af morögátum Allen segir aö það hafi hjálpað hon- um í erfiðleikunum að hafa nóg að gera og því hafi hann sökkt sér niður í handritið að þessari mynd. „Ég vann virkilega mikið,“ segir hann. „Ég hef mjög gaman af morðgátum. Mér finnst gaman að lesa þær og horfa á kvikmyndir með þeim. En ég lít áþær sem skemmtun og aíþrey- ingu. Eg hef gaman af öllum mynd- um Alfreds Hitchcocks. Myndin mín á alls ekki að vera djúpt þenkjandi kvikmyndalist heldur fyrst og fremst afþreyingarefni og skemmtun." Woody Allen segist ekki vera hræddur við að tapa aðdáendum sín- um vegna málshöfðunar frá Miu Farrow um að hann hafi misnotað 7 ára dóttur þeirra kynferðislega. Hann kannast ekki við að þeim hafi fækkað. „Ef þeir vilja ekki sjá mynd- ir mínar þá verða þeir bara aö missa af þeim. Það var fullt af fólki sem sá ekki Husbands and Wives og það var þeirra missir. Bíómyndin er skemmtun í um það bil eina og hálfa klukkustund, eins og Manhattan Murder Mystery er, og ef fólk vill ekki sjá hana get ég lítiö gert við því.“ Þegar Allen er spurður hvort hann vilji segja eitthvað við það fólk sem vill ekki lengur sjá myndir hans svarar hann: „Ég myndi helst vilja spyrja fólk hvers vegna það komi ekki. Hvað meinar það með því? Fólk veit ekkert um þetta mál í smáatrið- um. Það gleypir einungis það sem það heyrir og sér í fjölmiðlum. Sumt af því er alls ekki rétt og jafnvel þó það væri rétt sé ég ekki að fólk eigi að setja sig í dómarasæti yfir einka- lífi mínu. Kvikmyndir minar koma einkalífi mínu ekkert viö. Ég skil hins vegar mjög vel að efn- iö sé bitastætt fyrir fjölmiðla. Það er safarík frétt þegar kemur í ljós að eldri maður heldur við komunga stjúpdóttur unnustu sinnar. Þetta er æsisaga fyrir slúðurblöðin. Ég skil Woody Allen og gamla kærastan hans, Diane Keaton, í kvikmyndinni Manhattan Murder Mystery. r * ■■W /CH w- WL ' Wl ■ 1 >• * - » ! Woody Allen er sértræðingur i að búa til samræöur þar sem ekkert mannlegt er óviðkomandi. Það tekst honum í nýjustu myndinni ekki siður en i hinum fyrri. Hér er hann ásamt Anjelicu Huston sem fer með hlutverk rithöfundar í myndinni. Jerry Adler og Lynn Cohen fara með stór og mikilvæg hlutverk i mynd- inni. það vel svo þannig veröur það að vera.“ Lífsreynslan verður ekki kvikmynduð Þegar Allen er spurður hvort búast megi við kvikmynd um þennan kafla í lífi hans svarar hann neitandi. „Þaö sem er áhugavert í þessari sögu er ekkert spennandi fyrir áhorfendur," segir hann. „Hún verður því aldrei kvikmynduð." - En hvað var að brjótast um í huga þínum þegar þú skrifaðir Husbands and Wives? „Margir halda að ég hafi verið að skrifa um eigin lífsreynslu. Svo var ekki. Ég skrifaði þaö handrit nokkru áður en þetta mál allt saman varð tíl. Ég skáldaði þessa sögu og Mia var ekki að leika sjálfa sig. Hins vegar lét ég Miu hafa handritið áöur en valiö var í hlutverkin og spurði hvora konuna hún vildi leika. Hún valdi því hlutverkið sjálf eins og hún gerði ávallt. Reyndar hafði ég hugsað hana í hlutverkinu sem Judy Davis fékk en henni leist betur á hitt. Fólk heldur alltaf að ég sé að skrifa um eigið líf en svo er ekki. Allir héldu aö myndin Manhattan fjallaði um líf mitt en það voru hlutir í þeirri mynd sem komu frá Marshall Brickman sem skrifaði líka með mér handritið að Manhattan Murder Mystery. - En bæði í Manhattan og Husbands and Wives hefur þú leikið mann sem fellur fyrir ungri konu. Passar það ekki einmitt við þig? _ „Það má snúa öllum hlutum við. Ég hef verið kvæntur tvisvar sinnum og báðar voru þær þremur árum yngri en ég. Ég hef farið út með fjölda kvenna í gegnum tíðina, Diane Kea- ton, Mia Farrow og 99,9% af öllum hinum eru lítið yngri en ég sjálfur." Er góður faðir - Hvað heldur þú að fólk hugsi um þig í dag? „Ég veit það ekki. Ég býst við að fólk dæmi mig eftir fregnum úr slúð- urblöðum. Það ætti hins vegar að hugsa um hversu góður faðir ég er í raun og hve illa er búiö aö fara með mig. Mér er bannað að sjá börnin mín. Ég hef ekki fengið að sjá dóttur mína í meira en ár þrátt fyrir að fjöld- inn allur af fólki vitnaði um í réttin- um hversu góður faðir ég væri. Það sá almenningur ekki. Enginn getur skilið hversu ömurlegt það er að kveðja bamið sitt einn morguninn og fá ekki aö sjá það aftur. Jafnvel morðingjar í fangelsum fá aö sjá bömin sín. Kannski á ég eftir að skrifa um þetta. Það er búið að gera mörg hundruö rannsóknir í þessu máli. Tala viö okkur og alla aöra aftur og aftur. Þaö hefur enginn getað sannað að barnið hafi verið misnotað. Móðirin þarf aðeins á sálfræðihjálp að halda.“ Woody Allen er enn í sambandi við stjúpdóttur Miu, Soon-Yi. „Hún er miklu sterkari en ég og hefur það gott,“ segir hann. „Hún er 23ja ára og er enn í skóla. Hún á ekki við neins konar vandamál að stríða. Ég kom verst út úr þessu máli sjálfur." Kannski hætti ég einhvern tíma að gera bíómyndir. Ef ég geri ekki fleirÞ myndir þá skiptir þaö ekki miklu máli fyrir mig. Mér mundi þykja skemmtilegt að skrifa leikrit fyrir svið og einnig get ég vel hugsað mér að skrifa bækur. Það ætti vel við mig að vakna á morgnana og setjast við skriftir. Ég gæti skrifað skáldsögur fyrir New York-búa.“ Woody Allen er þegar farinn að undirbúa næstu mynd sem á aö vera í gamansömum tón, tekin í New York, hvar annars staöar? - Enhefurhannlærteitthvaðáþess- um erfiðleikum sem hann hefur gengið í gegnum? „Þetta hefur verið hörmuleg lífs- reynsla og fólk er oft að spyija hvern- ig ég hafi getað komist yfir þetta. Ég ætla að halda áfram aö berjast fyrir bömum mínum. Þegar þau verða eldri komast þau að raun um hvern- ig farið hefur verið með þau og þá koma þau til mín með opna arma.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.