Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1994, Síða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1994, Síða 30
42 LAUGARDAGUR 12. MARS 1994 Iþróttir Nýliðamir frá Akranesi slá í gegn í körfuboltanum: Skagamenn skora stigin - komast þeir í úrslitakeppnina í fyrstu atrennu? Sigurður Sverrisson, DV, Akranesi; Árangur Skagamanna í úrvals- deildinni í körfuknattleik eftir ára- mótin hefur vakið verðskuldaða at- hygli. Eftir að hafa vermt botninn í deildinni fram undir áramót hefur liðið stöðugt sótt í sig veðrið og hefur nú alla möguleika á að tryggja sér sæti í 4-liða úrslitakeppni mótsins, eftir að hafa unnið 4 af síðustu 5 leikj- um sínum. Heimavöllurinn, sem áhangendur liðsins eru famir að nefna „Bý- flugnabúið,“ hefur reynst drjúgur því þar hefur liðið unnið 8 af níu sigr- um sínum í vetur. Takist Skaga- mönnum að komast í úrslitakeppn- ina er það árangur sem engan óraði fyrir við upphaf keppnistímabilsins. Faðir körfuboltans á Akranesi Ragnar Sigurðsson hefur af mörgum verið kallaður „faðir körfuboltans" á Akranesi, þrátt fyrir ungan aldur. Ekki eru mörg ár síðan hann var allt í öllu hjá Körfuknattleiksfélagi Akraness og hélt starfinu gangandi ! nánast einn síns liðs. „Nei, ég verð að viðurkenna að ég sá þessa þróun ekki fyrir þegar ég var að basla í þessu fyrir nokkrum árum. Auðvitað vonaði maður að sá dagur kæmi að Skagamenn lékju í úrvalsdeildinni, og sá draumur rætt- ist sl. vor. Framhaldið hefur síðan verið betra en ég þorði nokkurn tíma að vona. Við þurfum ekki að kvíða neinu í framtíðinni. Við erum með góða yngri flokka sem eru reiðubún- ir að taka við - en þó ekki fyrr en eflir nokkur ár,“ sagði Ragnar við DV. Koma Greyers vendipunkturinn , Öllum ber saman um að koma Steve Greyer eftir áramótin sé vendipunkt- urinn í gengi Uðsins. Fyrir komu hans hafði ÍA aðeins unnið 3 leiki. Eftir að hann kom hefur liðið allt tekið miklum framförum, leikið fullt sjálfstrausts í síðustu leikjum og ekki borið neina virðingu fyrir andstæð- ingum sínum. En hvernig kom hið unga Akra- neslið honum fyrir sjónir er hann kom fyrst til bæjarins? „Ég vissi að liðið var í erfiðleikum þegar ég var fenginn til að koma. Þessir fjórir hafa komið mikið við sögu í uppgangi körfuboltaliðs Skagamanna. Frá vinstri, ívar Ásgrimsson, þjálf- ari og leikmaður, Ragnar Sigurðsson, „faðir körfuboltans" á Akranesi, Ólafur Óskarsson, formaður Körfuknattleiks- félags ÍA, og Steve Greyer, Bandaríkjamaðurinn sem hefur gert útslagið um gott gengi liðsins siðustu vikurnar. DV-mynd Sigurður Sverrisson bærrar frammistöðu John Rhodes. Greyer gegnir svipuðu hlutverki hjá okkur í dag.“ Skagamenn mæta Valsmönnum annað kvöld og sigur í þeim leik myndi koma liðinu í góða stöðu fyrir úrslitaleik riðilsins gegn Snæfelii á Akranesi á fimmtudaginn. „Við er- um með betra lið en Valur og eigum að vinna. Því er hins vegar ekki að neita að liðiö er undir óvæntri pressu en ég hef enga trú á öðru en að strák- amir standist hana. Þeir hafa sýnt það í undanförnum leikjum að þeir eru hættulegir hvaða andstæðingi sem er.“ Staðráðnir í að komast í úrslitin Greyer, sem er frá Macon í Georgíu og hefur meðal annars leikið í Ur- uguay og Kanada, auk þess að hafa spreytt sit með tveimur höum í Strax á fyrstu æfingunum gerði ég mér Ijóst að miklu meira bjó í þessu hði en staða þess í deildinni sagði til um. Strákana vantaði aðeins meira sjálfstraust og einhvem til þess að leiða hópinn. Okkur hefur samið ákaflega vel og okkur hefur tekist það ætlunarverk að festa hðið í sessi í deildinni, og við eigum að mínu viti mjög góða möguleika á að kom- ast í úrslitakeppnina," sagði Greyer. Mörg lið státa af mjög góðum leikmönnum Greyer segist hafa orðið undrandi á því hversu margir góðir körfuknatt- leiksmenn væru í úrvalsdeildinni. „Mörg liðanna státa af mjög góðum leikmönnum, sem flestir eiga það sammerkt að eiga eftir að verða enn betri. Það hefur verið gaman að taka þátt í þessu og almennt era andstæð- ingarnir mjög drengilegir, þótt auð- vitað séu á því undantekningar." Klúðuref við klárum ekki dæmið ívar Ásgrímsson, þjálfari og leikmað- ur Akraneshðsins, tekur undir þau orð Greyers að úrshtakeppnin sé raunhæft markmið. „Auðvitað sett- um við okkur það markmið númer eitt að halda sæti okkar í deildinni, en nú þegar möguleikinn er fyrir hendi á að komast í úrshtakeppnina teldi ég það klúður hjá okkur ef við ekki kláruðum dæmið. Við ætlum okkur aha leið.“ ívar tekur einnig undir það sjón- armið að góður útlendingur geti skipt sköpum hjá hðum í deildinni. „Við sjáum það best hjá sterkari hð- unum hversu miklu máh það skiptir að hafa góðan útlending. Haukamir fóru t.d. að mínu mati í úrshtakeppn- ina í fyrra fyrst og fremst vegna frá- Leikmenn IA Stig-Fráköst-Stoðsend. (meöaltal í leik) Einar Einarsson 16.2- 2,0-3,2 Steve Greyer 30.3- 16,0-3,4 ívar Ásgrímsson 11,8-4,2-2,9 Haraidur Leifsson 10,9-5,9-0,8 Eggert Garöarsson 9,3-1,1-0,2 Jón Þór Þórðarson 9,0-1,1-2,4 Dagur Þórisson 5,2-2,3-0,1 Pétur Sigurösson 1,1-0,3-0,6 Svanur Jónasson 0,7-0,8-0,0 Höröur Birgisson 0,2-0,1-0,0 CBA-deiIdinni, segir leikmenn stað- ráðna að komast í úrshtakeppnina. „Við höfum sýnt að við getum unn- ið hvaða lið sem er. Stjórn félagsins hefur stutt okkur með ráðum og dáð og við stöndum í þakkarskuld við hana. Hana getum við greitt með því að klára dæmið. Og ég er þess fuh- viss að við eigum fuht erindi í slaginn við bestu hð landsins. Við höfum enn ekki unnið Grindavík en fáum kannski tækifæri til þess í úrslita- keppninni." Olafur Óskarsson, formaður Körfuknattleiksfélags Akraness, segir að stjórnin geti vel unað við árangurinn í vetur. „Nú er það bara spurningin hvort við fórum aha leið í úrslitakeppnina. Þaö yrði frábært strax á fyrsta ári og ómetanlegt fyrir körfuboltann á Akranesi." Iþróttamaður vikurmar Plús vikunnar fær Garöar Jónsson, framkvæmdastjóri Tennishallarinnar, sem er að koma upp glæsilegu íþrótta- mannvirki á methraða og á annan hátt en tíðkast hefur. Gangi þetta ævintýri upp hlýtur það að marka þáttaskil í byggingum íþróttahúsa hér á landi. Mím Mínus vikunnar fá þeir sem viröast mæta á handboltaleiki með það eitt aö markmiði að mótmæla öhum dómum. Það er auðvelt að afsaka öh mis- tök sinna manna með lélegri dómgæslu en væri ekki nær að eyða púðrinu í að hvetja sitt lið til sigurs? Hans Guðmundsson - átti drjúgan þátt í sigri FH-inga í bikarúrslitaleiknum Hans Guömundsson - mest hissa á hve varnarleikurinn var góður. „Eftir slakan leik gegn Val þar sem ég var hálfmáttlaus, nýstiginn upp úr veikindum, var ég ósáttur við það hve margir voru fljótir að snúa við mér bakinu. Maöur heyrði talað um að ég væri útbrunninn og fleira í þeim dúr. Ég var með fiðring í maganum, skíthræddur um að eiga annan lélegan leik, og sennilega gaf það mér aukakraft í úrshtaleiknum,“ sagði Hans Guð- mundsson, íþróttamaður vikunn- ar, sem lék ipjög vel og skoraði 8 mörk fyrir FH í bikarúrshtaleikn- um í handknattleik gegn KA um síðustu helgi. „Leikurinn var miklu léttari en ég bjóst við, ég reiknaði með því að við myndum sigra með eins til tveggja marka mun, en svona stór sigur kom mér mjög á óvart. Ég var mest hissa á því hve góðan vamar- leik við náðum að sýna því hann hefur ekki ahtaf verið okkar sterka hlið. FH er ekki frægt fyrir góðan vamarleik og þegar hann bætist við sóknarleikinn, sem ahtaf er öflugur hjá okkur, vinnum við hvaða hð sem er,“ sagði Hans. Hans verður 33 ára í vor og er í hópi reyndustu leikmanna 1. dehd- ar en hann hóf að spha í dehdinni með FH árið 1979, þá 18 ára gam- all. Hann lék með FH th 1985, en hefur síðan leikið tvisvar á Spáni, og með KA, Breiðabliki, aftur með FH, og HK. Hans byrjaði þetta tímabil með Stjömunni en var ósáttur við gang mála þar og hætti eftir örfáa leiki og sneri heim í Hafnarfjörðinn. „Ég er ákveðinn í aö halda áfram í 1. deildinni á meðan ég hef þrek í þetta og get haldið mér í hópi þeirra bestu. Ég verð áfram með næsta vetur, svo framarlega sem ég meiðist ekki iha, en ef það myndi gerast reikna ég með að þetta væri búið hjá mér,“ sagði Hans Guð- mundsson. -VS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.