Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1994, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1994, Blaðsíða 31
-4- LAUGARDAGUR 12. MARS 1994 43 „Hann blés og rótaðist um heiminn og feykti öllu sem fyrir varö. Hann rykkti trjám upp með rótum og braut niður hús.“ Nökkvi læknir og tilgangs - leysi daganna Tilgangsleysi daganna helltist yfir Snæbjörn Frostason rafvirkja þetta vor. Hann undi hag sínum illa, fjarg- viðraöist yfir öllu og fjasaði um gengisleysi sitt í lífinu. „Þetta er ömurlegt," segir hann stundum við Skjannhvíti konu sína. „Allir eru að gera það gott nema ég. Alls konar undirmálsmenn eru orðnir yfir- læknar, forstjórar og háttsettir emb- ættismenn en ég er alltaf að gera við sömu innstunguna og skipta um peru í sama perustæðinu." Skjann- hvít var löngu búin að gefast upp á þessari ræðu. í þessu niðamyrkri sjálfsvorkunnar hitti hann fyrir Nökkva lækni og tók hann tali. Nökkvi kannaöist við öll einkenni Snæbjarnar. „Éghefsjálfurfundið fyrir ótal gerðum þunglyndis og velt fyrir mér öllum tegundum sjálfsmorða, gjaldþrota, hjónaskiln- aða og annarra skipbrota. Mér líður yfirleitt eins og Skarphéðni eftir Njálsbrennu," sagöi Nökkvi. Þetta þótti Snæbimi skrýtinn söngur. „Ekkert skil ég í þessari óánægju þinni, Nökkvi minn,“ sagði hann. „Þú ert um læknir og merkur mað- ur. Ef ég hefði þína menntun og stöðu í lífinu væri ég ekki með bögg- um hildar í kvöld.“ Nökkvi leit á hann og sagði dapurlega: „Staða og stefna á lífssundinu skiptir engu. Ekkert getur komið í veg fyrir þá lífsófullnægju sem þú þjáist af, Snæ- bjöm. Hún býr í þér sjálfum. Einu sinni heyrði ég þessa sögu á ferðum mínum um kínverska múrinn. Festu þér hana í minni. Þetta er saganumþigogmig: Úr safni dæmisagna Nökkva læknis Einu sinni var steinsmiður nokk- ur í Kínaveldi sem líktist þér, Snæ- bjöm. Hann var ósáttur við líf sitt og harmaði hlutskipti sitt. Dag einn gekk hann fram hjá húsi sem ákaf- lega ríkur kaupmaður átti. Hann gægðist inn um glugga og sá kaup- manninn og fiölskyldu hans baða sig í allsnægtum. Steinsmiðurinn fylltist öfund og hugsaði með sér. „Það vildi ég óska að ég væri eins og þessi kaupmaður. Þá þyrfti ég ekki að lifa lengur hinu fábreytta lífisteinsmiðsins." Sér til mikillar furðu varð hann skyndilega kaupmaður og vissi Á læknavaktiimi Óttar Guðmundsson læknir ekki aura sinna tal. Hann var öfund- aður af sumum en naut aðdáunar annarra. Nokkm síðar varð hann vitni að því að voldugur höfðingi var borinn fram hjá húsi hans í burðar- stól. Með honum vom þjónar, her- menn og embættismenn sem sýndu honum ótakmarkaöa lotningu. Fólk stóð meðfram veginum og tjáði hrifningu sína. Steinsmiðurinn hugsaði með sér. „Þessi höfðingi nýtur meiri virðingar en einhver kaupmaður. Ég vildi að ég væri eins oghann." Áður en hendi varö veifað var hann orðinn að háum höfðingja sem þjónar báru og fólk hyllti með húrrahrópum. Hann naut lífsins um stund í vellystingum en sumardag nokkum varð honum litið til sólar- innar. Tilvist hans og höfðingdómur virtist ekki skipta hana neinu máli. „Sólin virðist vera ótrúlega vold- ug,“ sagöi hann. „Ég vildi óska þess aðégværisól." Og skyndilega breyttist hann í sól. Hann skein á allt sem fyrir varð og þurrkaöi upp akra og beitilönd bændanna. Þeir báðu honum böl- væna sem hann skeytti engu. En allt í einu kom stórt ský og skyggði á sólina. Geislarnir náðu ekki leng- ur til jarðarinnar. „Það er merkilegt hversu stórt og voldugt skýið er. Ég vildi óska þess að ég væri ský,“ hugsaöi hann meö sér. Og hann breyttist í ský. Hann skyggöi á akra og bæi og hristi úr sér hverja stórrigningu annarri verri bændum og búaliði til mikillar hrellingar. En skyndilega kom mik- ill stormur og feykti honum út í buskann. „Vindurinnerótrúlega kraftmikill," sagði hann. „Ég vildi óska þess aö ég væri eins og hann.“ Hann varð sem vindurinn. Hann blés og rótaöist um heiminn og feykti öllu sem fyrir varð. Hann rykkti trjám upp með rótum og braut niður hús. Fólkið formælti honum og bað guöina að bjarga sér undan þessu fárviðri. En eftir nokkra hríð fann hann stórt bjarg sem ekki hreyfðist. Engu máli skipti hversu mjög hann hamaðist. Fjallið bifaðist ekki. „Ég vildi óska þess að ég væri eins og þetta fjall," sagði hann. „Það lætur ekki hlut sinn fyr- ir neinum." Hann breyttist í fjall og kærði sig kollóttan þótt vindurinn blési og sólin skini. „Nú loksins er ég voldugastur allra.“ En skyndi- lega heyrði hann hamarshögg og hann fann hvernig einhver rak meitil inn í sterkan stofn bjargsins. Hann kipptist við og hugsaði með sér: „Hver getur þetta verið? Hver getur ógnað fjallinu sem er sterkara en höfðinginn, sólin, skýin og vind- urinn?" Hann leit niður og sá stein- smið að störfum með hamar og meitil. Nökkvi læknir þagnaði og leit óræðum augum á Snæbjörn vin sinn. „Þetta var góð saga,“ sagði rafverktakinn. „Kannski maður verði þá aldrei ánægður í lífinu." Hann tók upp farsímann sinn og gekk hljóðlega út af leiksviðinu til hægri. Nökkvd læknir sat eftir og hugsaöi: „Hvernig skyldi standa á því að mér gengur ekkert að lifa eftir öllum þeim vdsdómi sem ég bý yfir?“ Aðalfundur verður haldinn Hvammi, Hótel íslenska útvarpsfélagsins hf þriðjudaginn 22. mars 1994 Holiday Inn, kl. 16.00. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt samþykktum félagsins. Tillögur frá hluthöfum, sem bera á fram á aóal- fundi, skulu vera komnar skriflega í hendur stjórnarinnar eigi síðar en 7 dögum fyrir aöal- fund. Reikningar, dagskrá og tillögur munu liggja frammi á skrifstofu félagsins viku fyrir aðalfund. Stjórnin Leikskólar Reykjavíkurborgar Óskum að ráða fóstru í 50% starf á leikskólann Ægisborg v/Ægisíðu, s. 14810. Einnig vantar þroskaþjálfa og fóstru á leikskólann Ösp v/Iðufell, s. 76989. Þá vantar fóstru í fullt starf frá 15. maí nk. á leikskól- ann Njálsborg v/Njálsgötu, s. 14860. Allar nánari upplýsingar gefa viðkomandi leikskóla- stjórar. Dagvist barna Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími 27277 TIL S 0 L U <«<« Tilboð óskast í eftirtaldar bifreiðar og tæki sem verða til sýnis þriðjudaginn 15. mars 1994, kl. 13-16, í porti bak við skrifstofu vora að Borgartúni 7 og víðar: 1 stk. JeepCherokee 4x4 bensín 1989 5stk. Subaru station 4x4 bensín 1990-91 1 stk.ToyotaCorollastation 4x4 bensín 1989 1 stk.ToyotaTercel 4x4 bensín 1988 1 stk.ChevroletSuburban 4x4 bensín 1981 2 stk. Lada Sport 4x4 bensín 1990-91 1 stk. DodgeW-250P/U(skemmdur) 4x4 dísil 1990 1 stk. FordF-250pickupm/húsi 4x4 bensín 1977 1 stk.Volvo244fólksbifreið bensín 1988 1 stk. Plymouth Volaré station bensín 1980 2stk. Ladastation bensln 1986-88 1 stk. ToyotaCorollafólksbifr. (skemmd) bensín 1985 1 stk.MercedesBenz303 fólksflbifr., 33farþ. dísil 1988 1 stk. Mercedes Benz 1928 dráttarbifreið6x2 dísil 1986 2 stk. Arctic Cat vélsleðar bensín 1987 1 stk. Shetland Fishing, 17 feta plastbátur ávagni (vél-Yamaha, 70 hö. ný) bensín 1975 Til sýnis hjá Landsvirkjun, birgðastöð v/Elliðaár: 1 stk.CanadairFextracCF-20beltabifreið bensín 1975 Til sýnis hjá Vegagerð ríkisins, birgðastöð í Grafarvogi: 1 stk. snjótönn á veghefil, handskekkt 1 stk. kastplógur á vörubíl, Viking 285-PD 1974 1 stk. fjölplógur á vörubíl, Sindri 1985 Til sýnis hjá Vegagerð ríkisins, Vík I Mýrdal: 1 stk. festivagn með 22.000 I vatnstanki og dælu Til sýnis hjá Vegagerð ríkisins, Borgarnesi: 1 stk. dráttarvél, Massey Ferguson 699 4x4 m/ámoksturstækjum 1984 Til sýnis hjá Vegagerð ríkisins, Selfossi: 1 stk. dráttarvél, Massey Ferguson 675 4x4 m/ámoksturstækjum 1984 1 stk. vatnstankur, 10.000 I, m/dælu Til sýnis hjá Vegagerð rikisins á isafirði: 1 stk. snjófeykir, Viking 1300 S SA-0033 (ógangfær) 1971 1 stk. snjófeykir, Viking 1300 S SA-0034 1971 Tilboðin verða opnuð á skrifstofu vorri sama dag kl. 16.30 að viðstöddum bjóðendum. Réttur er áskilinn til að hafna tilboðum sem ekki teljast viðunandi. W RÍKISKAUP Ú I b o b t k I / a á r a n g r i I BORGARTÚNI 7, 105 REYKJAVlK SÍMI 91-26844, BRÉFASÍMI 91-626739 * i iUÍi.i

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.