Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1994, Side 44
56
LAUGARDAGUR 12. MARS 1994
Menning
Lars Meller
fór á kostum
Danski tenórsaxófónleikarinn Lars Meller hélt tón-
leika á Sóloni íslandusi síðastliðiö fimmtudagskvöld.
Með honum léku þeir Matthías Hemstock á trommur,
Tómas R. Einarsson á kontrabassa og Þórir Baldurs-
son á píanó. Þótt Lars sé ekki nema 27 ára hefur hann
þegar skipað sér í fremstu röð tenórsaxófónleikara í
Danmörku og gefið af sér tvær eigin plötur og fyrir
þá nýjustu, Pyramid, fékk hann dönsku Grammy-
verðlaunin. Á þeirri plötu leika með honum þeir
Thomas Clausen píanóleikari, Billy Hart trommuleik-
ari og Jesper Lundgaard sem okkur íslendingum þyk-
ir vænt um eftir síðustu RúRek-hátíð en þá lék hann
með Svend Asmussen og bjargaði tónleikum Freddie
Hubbard með kontrabassa fyrir hom.
Það er óhætt að segja að Lars hafi heillað áheyrend-
ur þetta kvöld með leik sínum. Tónn hans er mikill
og fylltur og snarsteíjanir allar hugmyndaríkar og létt-
leikandi. Tónlist kvöldsins var klassískt bíbopp. Fyrir
hlé léku þeir tvö lög eftir Lars og það þriðja sem var
einhvers konar samsuða úr Green Dophin Street og
Nothing Personal en hljómagangininn var úr því fyrr-
nefnda. Síðan kom Vangadans Tómasar og Softly as
in a Moming Sunrise var síöasta lag fyrir hlé og var
það spilað töluvert hraðar en útgáfur þeirra félaga
Sonny Rollins og Jim Hall. Fyrsti ópus eftir hlé var
eftir Lars, Purple Twilight kailar hann það. Það er
byggt á indversku raga sem er eins konar klassískar
línur eða stef sem eiga sér rætur í þjóðarsálinni ind-
versku. Menn leika sér svo með þessi stef fram og
aftur. Indverjar skipta áttundinni niður í 18-24 tóna í
stað 12 svo það sem vestræn eyru heyra yfirleitt sem
bjögun er í raun millitónar eða tónaraðir og snarstefj-
unin snýst oft í kringum að skreyta linumar með því
að hlaupa fram og aftur í þessum litlu tónbilum. Þetta
mátti heyra í þessu verki Lars, sérstaklega í upphafs-
kaflanum. Verkið var vitaskuld með pedalnótu út í
Tónlist
Askell Másson
gegn (E að ég held), utan stuttrar brúar sem kom tvisv-
ar eða þrisvar og lágu bassinn og píanóið á pedalnót-
unni. Matthías notaði pákukjuöa og Lars spilaði svo
ofan á. Kærkomin tilbreyting á tónleikum sem þessum.
Til viðbótar var svo einn jólavals eftir Lars og þrjú
úr Bókinni plús aukalagið.
Þessir tónleikar vom vel heppnaðir í alla staði, þol-
anlega margir áheyrendur voru til staöar og hljóm-
burður allur annar nú en verið hefur. Til viðbótar við
loftplötumar er búið að skerma af útskotið í suður-
enda salarins og virðist það hafa töluvert að segja, auk
þess aö Matthías er svo nettur á settinu að ómagnaður
flygillinn heyrðist mjög vel um allan salinn.
Tilkyimingar
Marsmessa
Kvennakirkjunnar
verður í Neskirkju sunnudagiim 13. mars
kl. 20.30. Séra Dalla Þórðardóttir, prestur
í Skagafirði, prédikar. íris Erlingsdóttir
syngur einsöng og Sönghópur Kvenna-
kirkjunnar leiðir almennan söng. Allir
velkomnir.
Menningarvika BÍSN
Menningarvika Bandalags islenskra sér-
skólanema verður haldin 12.-20. mars nk.
Dagskrá vikunnar er mjög fjölbreytt.
Menningarvikan verður fonnlega sett í
dag, 12. mars í Tækniskóla íslands.
UPPBOÐ
Uppboð munu byrja á skrifstofu
embættisins, Austurvegi 4, Hvols-
velli, fimmtudaginn 17. mars 1994
kl. 15.00.
Ármót, Rangárvallahreppi, þingl. eig-
andi Þorkell Steinar Ellertsson. Gerð-
arbeiðandi er Stofhlánadeild landbún-
aðarins.
Jaðar, Djúpárhreppi, þingl. eigandi
Jens Gíslason. Gerðarbeiðandi er
Stofiilánadeild landbúnaðarins.
Biskup vísiterar
Árbæjarsöfnuð
Sunnudaginn 13. mars mun biskup fs-
lands, herra Ólafur Skúlason, visitera
Árbæjarsöfnuð og predika við guðsþjón-
ustu í Árbæjarkirkju á venjulegum
messutíma safnaðarins kl. 11 árdegis.
Þriðjudaginn 15. mars mun biskup heim-
sækja þjónustumiðstöð fyrir aldraða í
Hraunbæ 105 og er opið hús fyrir eldri
borgara í Árbæjarkirkju miðvikudaginn
16. mars.
Opnunarhátíð í Gallerí
aerobic-sport
Opnunarhátíð verður í Gallerí aerobic-
sport, Faxafeni 12, í dag, laugardag, kl.
18. Hér er um nýja og glæsilega heilsu-
Litlagerði 13, Hvolsvelli, þingl. eig-
andi Öm Þór Einarsson. Gerðarbeið-
andi er Samvinnulífeyrissjóðurinn.
Mykjunes (nýbýli), Holta- og Land-
sveit, þmgl. eigandi Lars Hansen.
Gerðarbeiðandi er Litaver.
Norður-Nýibær, Djúpárhreppi, þingl.
eig. Tiyggvi Skjaldarson og Halla
M. Ámadóttir. Gerðarbeiðandi er
Stofhlánadeild landbúnaðarins.
Strönd, Rangárvallahreppi, þingl. eig-
andi Bergur Óskarsson. Gerðarbeið-
endur em Búnaðarbanki íslands,
Rangárvallahreppur og innheimtu-
maður ríkissjóðs.
SÝSLUMAÐURINN í RANGÁRVALLASÝSLU
ræktarstöð að ræða sem býður upp á það
nýjasta og besta í þolfimlkennslu, full-
kominn tækjasal, karate, júdó, box og
fleira. Leiðbeinendur eru Anna Sigurðar-
dóttir, Ágúst Hallvarðs, Magnús Schev-
ing og Karl Sigurðsson.
Kristniboðsvika í
Reykjavík
Á morgun hefst árleg kristniboðsvika í
Reykjavík með síðdegissamkomu í Breið-
holtskirkju kl. 17. Á meðan á samkom-
unni stendur verður bamasamvera í
kirkjunni. Kristniboðsvikan heldur síðan
áfram með samkomum frá þriðjudegi til
sunnudags í Kristniboðssalnum, Háaleit-
isbraut 58-60, 3. hæð. Hefjast þær allar
kl. 20.
Húnvetningafélagið
Félagsvist á laugardag kl. 14 í Húnabúð,
Skeifúnni 17. Allir velkomnir.
Laugardagskaffi
Kvennalistans
í blíðu og stríðu - ástin og hjónabandið
er umfjöllunarefni í laugardagskaffi
Kvennalistans 12. mars. Valgerður Jóns-
dóttir þjóðfélagsfræðingur segir frá nýút-
kominni bók sinni með þessu nafni. Kaff-
ið er á Laugavegi 17, 2. hæð, og hefst kl.
11. Allir velkomnir.
Félag eldri borgara
Kópavogi
Spiluð verður félagsvist og dansað í Fé-
lagsheimili Kópavogs, 2. hæð, í kvöld kl.
20.30. Húsiö öllum opið.
Tapað fimdið
Hárspenna tapaðist
á Hótel Sögu
Ljósbrún hárspenna með gulllituðu
munstri varð eftir á hárgreiöslustofunni
á Hótel Sögu þann 11. febrúar sl. Þeir sem
hafa orðið varir við spennuna eru vin-
samlegast beðnir að láta vita í s. 31172.
Spennan tengist konu sem er látin og er
þvi eigandanum dýrmæt.
Tónleikar
Unglingatónleikar hjá KR
f tilefni 95 ára afmælis KR verða haldnir
unglingatónleikar í stóra sal KR við
Frostaskjól í dag, 12. mars, og hefjast
þeir kl. 19.30. Húsið verður opnað kl.
18.45. Fram koma Bubbi Morthens,
Bubbleflies, Hjassið og Spilaborgin. Ald-
urstakmark 13 ár.
Kammermúsikklúbburinn
Fimmtu tónleikar á 37. starfsári, 1993-
1994, verða haldnir sunnudaginn 13. mars
kl. 20.30 í Bústaðakirkju.
Tónleikar í Hafnar-
fjarðarkirkju
Sunnudaginn 13. mars verða haldnir tón-
leikar í Hafnarfj arðarkirkj u sem helgaðir
verða minningu Páls Kr. Pálssonar sem
lést á fyrra ári og var organleikari Hafn-
arfjarðarkirkju í áratugi og fyrsti skóla-
stjóri Tónlistarskóla Hafnarfjaröar.
Innréttingar fyrir
verslanir og fyrirtæki
Fyrir heimilið
Hillukerfi
Afgreiðsluborð
Gínur
Fatastandar
Panill
Gataplötur
Pinnar
Bæklingastandar
Erum fluttir
aö Síðumúla 32
G. Davíðsson, sími 687680
Fataslár
kr. 5.400 án vsk.
Leikhús
LEIKFÉLAG
REYKJAVÍKUR
GLEÐIGJAFARNIR
eftir Neil Simon
með Árna Tryggva og Bessa Bjarna.
4. sýn. sun. 13. mars, blá kort gilda, upp-
selt, 5. sýn. mið. 16. mars, gul kort gilda,
uppselt, 6. sýn. lös. 18. mars, græn kort
gllda, uppselt, 7. sýn. sun. 20. mars, hvit
kort gilda, uppselt, 8. sýn. mið. 23. mars,
brún kort gilda, uppselt, lau. 26. mars,
uppselt, mið. 6. april, fáeln sæti laus, fös.
8. april, örfá sæti laus, fim. 14. april.
- Stóra sviðið kl. 20.
EVA LUNA
. Leikrit eftir Kjartan Ragnarsson og
Oskar Jónasson. Unnið upp úr bók Isa-
belAilende
i kvöld, uppselt, fim. 17. mars, örfá sæti
laus, laud. 19. mars, uppselt, fimd. 24.
mars, fösd. 25. mars, uppselt, sun. 27.
mars., fim. 7. april, lau., 9. aprí I, örfá sæti
laus, sun.10. aprfl.
Gelsladiskur með lögunum úr Evu Lunu tll
sölu i miðasölu. Ath.: 2 miðar og gelsla-
diskur aðelns kr. 5.000.
Miðasala er opin kl. 13.00-20.00 alla
daga nema mánudaga. Tekið á móti
miðapöntunum I síma 680680 kl.
10-12 alla virka daga.
Bréfasimi 680383.
Greiðslukortaþjónusta.
Munið gjafakortin okkar.
Tilvalin tækifærisgjöf.
Leikfélag Reykjavíkur-
Borgarleikhús.
Leikfélag Akureyrar
BarPar
eftir Jim Cartwright
SÝNT Í ÞORPINU, HÖFÐAHLÍÐ1
j kvöld kl. 20.30, uppselt.
Á morgun kl. 20.30.
Föstudag 18. mars kl. 20.30.
Laugardag 19. mars kl. 20.30.
Sunnudag 20. mars kl. 20.30.
Ath.: Ekki er unnt að hleypa gestum i
salinn eftir að sýning er hafin.
ÓI'liRl
DRAUÍÍURINN
eftir Ken Hill
i Samkomuhusinu
Frumsýning fös. 25. mars, kl. 20.30.
2. sýning laud. 26. mars, kl. 20.30.
Aðalmiðasalan i Samkomuhúsinu er
opin alla virka daga nema mánudaga
kl. 14-18 og sýningardaga fram að
sýningu. Simi 24073.
Simsvari tekur við miðapöntunum ut-
an afgreiðslutíma.
Ósóttar pantanir að BarPari seldar i
miðasölunni i Þorpinu frá kl. 19 sýn-
ingardaga. Simi 21400.
Greiðslukortaþjónusta.
ÍSLENSKA
LEIKHÚSI0
Hinu húsinu, Brautarholti 20
Sími624320
VÖRULYFTAN
eftir Harold Pinter
i ieikstjórn Péturs Einarssonar
í kvöld kl. 20, sun. 13. mars kl. 20, þri.
15. mars kl. 17, miö. 16. mars kl. 17.
Miðapantanir í Hinu húsinu, simi 624320.
Félagsstarf aldraðra
í Gerðubergi
Hárgreiðsla og fótsnyrting á mánudag. Á
þriðjudag kl. 8.20 sund og léttar íþrótta-
æfingar í Breiðholtssundlaug. Heimsókn
í Breiöholtskirkju á miðvikudag. Kaffi-
veitingar í boði. Prestur sr. Gísh Jónas-
son. Lagt af stað frá Gerðubergi kl. 14.30.
Upplýsingar og skráning í s. 79020.
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Sími 11200
Stóra sviðið kl. 20.00
GAURAGANGUR
eftir Ólat Hauk Símonarson
í kvöld, uppselt, á morgun, uppselt, fid.
17/3, uppselt, föd. 18/3, uppselt, mvd.
23/3, uppselt, fim. 24/3, uppselt, lau. 26/3,
uppselt, fid. 7/4, uppselt, föd. 8/4, upp-
selL sud. 10/4, uppselt, sud. 17/4, örfá
sæti laus, mvd. 20/4, örfá sætl laus, fid.
21/4.
MENNINGARVERÐLAUN DV1994
MÁVURINN
eftir Anton Tsjekhov
Aukasýning þri. 15. mars, uppselt.
Ósóttar pantanir seldar daglega.
ALLIR SYNIR MÍNIR
eftir Arthur Miller
Lau. 19/3, fös. 25/3.
Ath. öriáar sýningar eftir.
SKILABOÐASKJÓÐAN
eftir Þorvald Þorsteinsson
Ævintýri með söngvum
í dag kl. 14, uppselt, á morgun kl. 14,
öriá sæti laus, mvd. 16. mars kl. 17.00,
uppseiL sud. 20. mars kl. 14.00, nokkur
sæti laus, sud. 27. mars kl. 14.00,10.
aprilkl. 14.00.
ÍSLENSKI
DANSFLOKKURINN
Sud. 20/3 kl. 20.00, lau. 26/3 kl. 14.00.
Ath. Síðustu sýningar.
Smíðaverkstæðið kl. 20.30.
BLÓÐBRULLAUP
eftir Federico Garcia Lorca
Laud. 19. mars, fáein sæti laus, sud. 20.
mars, uppselt, föd. 25. mars.
Sýnlngin er ekki við hæfi barna.
Ekki er unnt að hleypa gestum i salinn
ettir að sýning er hafin.
Litla sviðið kl. 20.00.
SEIÐUR SKUGGANNA
eftir Lars Norén
í kvöld, næstsiðasta sýning, töd. 18.
mars, uppselt, siðasta sýning.
Ekkl er unnt aö hleypa gestum i salinn
eftir að sýning er hafin.
Miðasala Þjóðleikhússlns er opln alla
daga nema mánudaga frá 13.00-18.00
og fram að sýnlngu sýningardaga. Tekið
á mótl simapöntunum virka daga
frá kl. 10.
Græna línan 99 6160.
1 R l 1 M 1 L í A
LU -J K H Ú S ■
í Leikhúsi frú Emilíu
Héðinshúsinu, Seljavegi 2
DÓNALEGA DÚKKAN
SKJALLBANDALAGIÐ sýnir Dóna-
legu dukkuna
eftir Dario Fo og Fröncu Rame i leik-
stjórn Mariu Reyndal.
Öli hlutverk: Jóhanna Jónas.
3. sýn. i kvöld, kl. 20.30,4. sýn. á morg-
un, sun. 13. mars kl. 20.30.
Sýnt I Héðinshúsinu, Leikhúsi frú Emiliu.
Miðapantanlr I sima 12233 og 11742 ailan
sólarhringinn.
LEIKrLÍSTARSKÓLI ÍSLANDS
C77------^
Nemenda
leikhúsið
SUMARGESTIR
Eftir Maxim Gorki
Opin forsýning mánud. 14. mars kl. 20.
Opin generalprufa þri. 15. mars kl. 20.
Frumsýn. mið. 16. mars kl. 20, uppselt.
Félag eldri borgara í
Reykjavík og nágr.
Sveitakeppni í bridge kl. 13 og félagsvist
kl. 14 á sunnudag í Risinu. Dansað í Goð-
heimum kl. 20 á sunnudagskvöld.