Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1994, Side 2
Fréttir
Félag hárgreiðslu- og hárskerasveina:
FIMMTUDAGUR
19. MAÍ 1994
Þrjátíu án vinnu þrátt
fyrir sjö lausar stöður
starfsmaður félagsins segir Ráðningarstofu ekki standa sig
Samtals 30 manns hafa verið
skráðir atvinnulausir hjá Félagi hár-
greiðslu- og hárskerasveina, þrátt
fyrir að 7 hárgreiðslu- og rakastofur
hafi leitað eftir starfsfólki, sumar frá
páskum. Hjördís Baldursdóttir, sem
starfar hjá félaginu, segir að um sé
að ræða aðila sem hafa verið at-
vinnulausir í langan tíma.
„Þessu fólki hefur verið bent á að
því standi atvinna til boða og einnig
hafa hangið hér uppi auglýsingar þar
sem bent er á hið sama. Það viröist
hins vegar ekki ganga upp. Ráðning-
arstofan hefur hreinlega ekki staðið
sig nóg vel. Ég sendi fax til hennar
en því var ýtt til hhðar og þetta fólk
kemur hingað reglulega og fær sínar
hætur greiddar," segir Hjördís.
Hún segist vonast til að Ráðningar-
stofa Reykjavíkurborgar sjái um að
bjóða þessu fólki vinnu núna eftir
að hún hafði samband við hana sím-
leiðis.
Sigurður Guðmundsson, formaður
Félags starfsfólks á veitingahúsum,
neitar því ekki aö þess séu dæmi að
atvinnuleysisbótakerfið sé misnotað.
Það sé hins vegar ekki í þeim mæli
sem sumir hcdda fram.
„Auðvitað verðum við varir við
þetta. Þetta er hins vegar ekki gegn-
umgangandi. Allavega virðist mér
umræðan núna snúast um einangruð
tilfelh," segir Sigurður.
Um 160 til 170 manns eru á atvinnu-
leysisskrá hjá félaginu núna. Hann
segist ekki kannast við þann fjölda
útlendinga sem lesa megi úr fullyrð-
ingum hótelrekandans.
Aðspurður hvort mikið hefði verið
mn að atvinnulausir væru sviptir
bótum vegna bótasvika, segir Sigurð-
ur svo ekki vera.
Sjá einnig umfjöllun um atvinnu-
máJin á bls. 4.
Vetur konungur er ekki búinn að sleppa takinu á öllum landsmönnum þótt Reykvíkingar hafi baöaö sig í sól und-
anfarna daga. Siglfirðingar eru þessa dagana að moka snjó úr görðunum og þar hefur ekki hefur sést svo mikill
snjór síðan 1941. DV-mynd GK
Samkeppni um nafn á Bónusradíó-karl
Atviimuhúsnæöi í Reykjavík:
140 þús-
undfer-
metrará
söluskrá
Samkvæmt könnun Borgarskipu-
lags Reykjavíkur á framboði at-
vinnuhúsnæðis í horginni eru um 140
þúsund fermetrar á söluskrám fast-
eignasala. Þaö nemur 4,5% af öllu
atvinnuhúsnæði í Reykjavík. Könn-
unin fór fram í febrúar og var unnin
af Ásdísi Hlökk Theodórsdóttur.
Nær helmingur alls atvinnuhús-
næðisins í könnuninni stendur auð-
ur eða 1,9% af öllu atvinnnuhúsnæöi
í borginni. Atvinnuhúsnæði á sölu-
skrám fasteignasala og áætlað ónot-
að húsnæði samkvæmt könnuninni
skiptist nokkuð jafnt yfir borgar-
svæðið ef mælt er í fermetrafjölda.
Ef mælt er í fjölda eigna er yfir-
gnæfandi meirihluti staðsettur vest-
an Reykjanesbrautar en austan
hennar er atvinnuhúsnæöi almennt
stærra en í eldri bæjarhlutunum.
Þær fasteignasölur sem veittu upp-
lýsingar voru Eignamiðlunin, Eigna-
salan, Fasteignamarkaðurinn, Fast-
eignamiðstöðin, Kjöreign og Þing-
holt. Leitað var til fleiri fasteignasala
en hjá þeim fengust ekki upplýs-
ingar.
Bónusradíó efnir i samvinnu við
DV og Bylgjuna til verðlaunasam-
keppni um nafn á Bónusradíó-karl-
inn. Fyrstu verðlaun eru vandað 29
tommu Samsung Nicam Stereo sjón-
varpstæki með 40 W magnara, ís-
lensku textavarpi, aðgerðastýring-
um á skjá og þráölausri fjarstýringu
auk margs annars. Einnig verða 15
ferðaútvarpstæki í aukaverðlaun.
Æskilegt er að nafniö tengist á ein-
hvern hátt verðlaginu í Bónusradíói.
Síðasti skhadagur er 6. júní. Thlög-
um skal skhað th Bónusradíós,
Grensásvegi 11,108 Reykjavík. Úrsht
verða tilkynnt í þætti Önnu Bjarkar
á Bylgjunni 9. júní.
Smuguveiðamar:
Ríkisstjórnin tilbúin
til viðræðna við Rússa
Norðmenn vilja engu svara um meint samráð þeirra við Rússa
„Aðalatriðið í svarbréfinu th
Tsjemomyrdíns, forsætisráðherra
Rússlands, er það að samkvæmt ís-
lenskum lögum er ekki hægt að hafa
afskipti af aflamagni íslenskra skipa
sem veiða í Smugunni nema á grund-
velh milliríkjasamninga,“ segir Al-
bert Jónsson, dehdarsljóri í forsætis-
ráðuneytinu, um innihald svarbréfs
Davíös Oddssonar forsætisráðherra
við bréfi Tsjemomyrdíns, forsætis-
ráðherra Rússlands, vegna veiða ís-
lenskra skipa í Smugunni.
„Það vora látnar í ljósi vonir um
að hægt verði að ræða Smugumálið
og önnur fiskveiðimál í anda þeirrar
góðu samvinnu sem hefði ríkt mihi
ríkjanna um langa tíð og Tsjemo-
myrdín minnir á. Jafnframt er bent
á þar sem segir í bréfi hans að ís-
lensk skip veiði eftirhtslaust í Smug-
unni að þar sem annars staðar lúti
íslensk skip ströngum reglum og eft-
irhti th að koma í veg fyrir smáfiska-
dráp. Hvað varði aflamagn sé ekki
hægt að takmarka afla íslenskra
skipa á alþjóðlegum hafsvæðum
nema á grundvelh milhríkjasamn-
inga. Þess vegna geti ríkisstjóm ís-
lands ekkert aðhafst einhhða í þessu
máh og jafnframt er minnt á það að
þar sem Smugan sé alþjóðlegt haf-
svæði hafi strandríkið, þ.e. Rússland,
ekki rétt th að taka einhliða ákvarð-
anir um stjómun shkra veiða.
Þess vegna þurfi að ná samkomu-
lagi um Smuguna. Ríkisstjóm ís-
lands sé thbúin til tvíhhða viðræðna
við ríkisstjórn Rússlands um það mál
í tengslum við sameiginlega fisk-
veiðihagsmuni ríkjanna í hehd.“
Að sögn Alberts var sama inntak í
svarbréfinu th Gro Harlem Brundt-
land, forsætisráðherra Noregs, sem
sent var 5. maí síðasthðinn en bréf
frá henni vegna Smuguveiðanna
barst sólarhring á undan bréfinu frá
forsætisráðherra Rússlands seinni
hluta aprílmánaðar.
Aðspurður hvort um samráð hafi
verið að ræðaum bréfasendingamar
sagði Öivind Östang, upplýsingafull-
trúi norska forsætisráðuneytisins:
„Okkur er kunnugt um að héðan
hafi verið sent bréf en menn vhja
ekki tjá sig um það.“
Stuttar fréttir
1,5 prósenta fjöigun
Farþegum í innanlandsflugi
Flugleiða íjölgaði um 1,5% fyrsta
fjórðung þessa árs miðað við
sama tíma í fyrra á meðan fjölg-
unin í mihhandafluginu nam
40%. Aukningin innanlands kom
einkum vegna leiöanna til og frá
Akureyri og Vestmannaeyjum.
hlunnindabóndilandsins
Miklar rannsóknir fara núna
fram á æöarfugli á Bessastaða-
nesi af Náttúrufræðistofnun en
Vigdís Finnhogadóttir forseti er
einn stærsti hlunnindabóndi
landsms. Ríkissjónvarpið greindi
frá þessu.
Búið er að veiða grásleppu í um
sex þúsund tunnur viö Lslands-
strendur. Samkvæmt frétt RÚV
er það minna en ætlaö var.
Utanríkisráðherra vhl að Aðal-
verktakar fái einkaleyfi áfram th
starfa fyrir Varnarhðið og að fyr-
irtækið geti boðið í verk utan
vahar. Þetta kom fram á RÚV.
Atianta með pilagrima
Atlanta flugfélagið í Mosfellsbæ
flutti í vikunni nær 500 phagrima
frá Bosníu th Mekka. Meðal far-
þega var forseti Bosníu. RÚV
greindi frá þessu.
Verið er að undirbúa stofnun
matvælaverksmiðju á Akureyrí.
Samkvæmt RÚV gætu 50 til 60
manns fengið þar vinnu.
Kárifiúinnnorður
Svanurinn Kári, sem yljað hef-
ur borgarbúum við Tjönúna, er
flúinn norður til Raufarhafhar.
Morgunblaðið íelurhann verá að
flýja átökin í höfuðborginni.
KHstján í Covent Garden
Kristján Jóhannsson hetjuten-
ór hefur samiö við Covent Gard-
en 1 London um að syngja þar í
nokkrum sýningtun á Grímu-
dansleik Verdis. Morgunblaðið
greindi frá þessu.
Minnikornrækt
Reiknaö er með að komrækt
hér á landi verði minni í sumar
en í fyrra. Samkvæmt Morgun-
blaðinu er þaö vegna minni sán-
ingar.