Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1994, Blaðsíða 13
FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 1994
13
Neytendur
ítarleg úttekt Neytendasamtakanna á heimilistryggingum:
Skilmálar eru neyt-
endum oft óhagstæðir
- fyrirhugað að koma á fót kvörtunamefnd fyrir neytendur
„Þaö sem kom kannski mest á
óvart viö gerö þessarar úttektar var
hversu óljósir skilmálar tryggingafé-
laganna eru að mörgu leyti og hvað
þeir eru í raun lítiö í takt viö starfs-
venjur félaganna. Þaö þurfti hrein-
lega aö túlka margt í þessum skilmál-
mn í samvinnu við félögin," sagöi
Garðar Guöjónsson, ritstjóri Neyt-
endablaðsins, í samtali viö DV en ít-
arlegt yfirlit er birt yfir heimilis-
tryggingar í nýjasta tölublaði Neyt-
endablaösins.
Þar kemur m.a. fram að skilmál-
amir eru neytendum oft óhagstæðir
sökum þess hversu óskýrir þeir eru.
Tryggingamar setja e.t.v. ákveðin
skÚyrði fyrir bótagreiöslu en skýra
ekki nákvæmlega út hvað þurfi til
aö uppfylla þau. Jafnframt getur ver-
ið ómögulegt að vita hvaða bótafjár-
hæð er réttmæt þegar tjón hefur orð-
ið því yfirleitt skortir upplýsingar
um frádrátt frá bótum vegna aldurs
eða slits. Að mati Neytendablaðsins
er venja tryggingafélaganna við með-
höndlun á tjóni ekki aðgengileg fyrir
aðra en starfsmenn félaganna.
Kvörtunarnefnd fyrirhuguð
„Það stendur til að koma á fót sér-
stakri kvörtunamefnd vegna trygg-
ingamála þar sem neytendur ættu
sinn fulltrúa. Þar færi fram umfjöll-
un um ágreiningsmál í þessu sam-
bandi,“ sagði Garðar. Nefndin yrði
að öllum líkindum skipuð fulltrúa frá
Sambandi íslenskra tryggingafélaga,
Neytendasamtökunum og hugsan-
lega Tryggingaeftirlitinu. Starf slíkr-
ar nefndar myndi væntanlega hraða
málum og skapa fordæmi en miðað
er við aö úrskuröir hennar verði
gerðir opinberir.
Spyrjið ef þið eruð í vafa
Garðar segir yfirlitið einungis veg-
vísi til viðmiðunar en hvetur fólk
eindregið til þess að spyrja félögin
ef það er í vafa um hvað sé bætt og
hvað ekki. „Fólk ætti að kynna sér
framboðið af heimilistryggingum,
meta svo eigin þarfir í því sambandi
og kynna sér verð. í yfirlitinu okkar
er ekki tekið tillit til upphæðar ið-
gjaldanna þar sem erfitt reyndist að
gera sanngjaman samanburð."
í yfirlitinu kemur m.a. fram að
hámarksbætur fyrir peninga, verð-
bréf, frímerkja- og myntsafn séu í
flestum tilfellum einungis um 1% af
vátryggingarfj árhæðinni. Ekkert há-
mark er hins vegar oft og tíðum á
tjónsbótum af tölvmn, reiðhjólum
eða bamavögnum en innbú, sem er
um stundarsakir utan heimilis, er í
flestum tilvikum bætt um 10-15%.
Mjög mismunandi getur verið hvað
er innifalið í heimilistryggingunni
og vert að kanna það til hlítar. Tjón
á þvotti vegna bilunar í þvottavél eða
tjón á matvælum vegna bilunar í ís-
H Fjölskyldutrygging
Heimilistrygging □ Heimilisvernd
1.600 þús. kr.
1400 Hámarksbætur
1200 vegna dauða
1.000
800
600
400 316 316 300
200
1.539
/ // / ý 4
*
*
7.000 þús. kr.
Hámarksbætur vegna
varanlegrar örorku
6.772
5.000
4.000
3.000
2.000
1.000
3.470
Altrygging
1.5UU 1‘4/* 1.400 1.400
H E]
p jí'
& jr/ /
/
<?
8
SMÁAUGLÝSINGASlMINN
FÝRIR LANDSBYGGÐINA:
8 99-6272
^ oza sÍminn Ea
-talandi dæmi um þjónustu!
ííf GRÆNI ISÍMINN i
1 Hga §
Skilmálar heimilistrygginga geta verið ógreinilegir og oft á tíðum óhagstæðir neytendum. Skortur á aðhaldi gæti
verið ástæðan að mati ritstjóra Neytendablaðsins. DV-mynd BG
skáp er t.d. bætt í sumum tilvikum
en öðrum ekki, sem og ábyrgðar-
trygging vegna líkamstjóns.
Lágar dánarbætur
Athygh vekur að hámarksbætur
vegna dauðsfalla em oft á tíðum
mjög lágar. Hjá einu tryggingafélag-
anna fengust þær upplýsingar að oft
væri einungis miðað við útfarar-
kostnað viðkomandi. Bætumar eru
í allflestum tilvikum á bilinu
121.531-771.200 krónur en fjölskyldu-
trygging VÍS sker sig úr með há-
marksbætur að upphæð 1.539.000.
Það er misjafnt hvaða nöfn slíkar
tryggingar bera hjá félögunum en
heiti þeirra koma fram í grafinu hér
á síðunni.
Bætur vegna varanlegrar örorku
eru oft á tíðum hærri, eða á bilinu
l,4-3,5 milljónir króna. Aftur sker
VÍS sig úr með hámark, tæpar 7
milljónir króna fyrir slíkt tjón. Tann-
brot er sums staöar ekkert bætt en
algengt er að bætur fyrirtannbrot
séu 70-100 þúsund krónur.
REYKjAVIKUR
LISTINN
Menningarhátíð í Glæsibæ
Reykjavíkurlistin
o
Nú blómstrar listin(n)!
Dagskrá: Björn Björnsson baritón syngur viö undirleik
Guobjargar Sigurjónsdóttur, Kristín Ómarsdóttir les úr
eigin verkum, Fríöur Siguröardóttir og Halla jónasdóttir
syngja dúetta viö undirleik Kára Gestssonar og Elísabet
Jökulsdóttir les úr eigin verkum. Auk þessa þenur Reynir
jónasson svo nikkuna.
Borgarstjóraefni Reykjavíkurlistans, Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir flytur stutt ávarp.
Góöa skemmtun í kosningabaráttunni!
Hverfamibstöbin Glæsibæ, Álfheimum 74. Sími 886262.
Opið á virkum dögum kl. 16-22 og kl. 13 - 20 um helgar.