Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1994, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1994, Blaðsíða 3
FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 1994 3 Fréttir Króatinn sem sótti um dvalarleyfi hér á landi: Ráðuneytið beið með afgreiðslu í f imm mánuði Vopnafjöröur: Fjórir listar m m ■■■ ■ ikjori Ari Hallgrimsson, DV, Vopnafirði; Fjórir framboðslistar eru í kjöri í bæjarstjórnarkosningunum á Vopnafirði í vor, B-listi framsóknar- manna, D-listi sjálfstæðismanna, G- listi alþýðubandalagsmanna og H- listi óháðra kjósenda. Efstu sæti B-lista eru skipuð þess- um: 1. Ólafur Sigmarsson gjaldkeri, 2. Friðbjörn H. Guðmundsson bóndi, 3. Anna P. Víglundsdóttir póstaf- greiðslumaður, 4. Inga M. Ingadóttir bankastarfsmaður. Efstu menn á D-lista eru: 1. Stein- dór Sveinsson byggingameistari, 2. Stefania Amardóttir hjúkrunar- fræðingur, 3. Ólafur Valgeirsson nemi, 4. Alexander Ámason raf- virkjameistari. Efstu sæti G-lista eru þannig skip- uð: 1. Aðalbjörn Bjömsspn aðstoðar- skólastjóri, 2. Ólafur Ármannsson verkstjófi, 3. Harpa Hólmgrímsdóttir kennari, 4. Auður Jónsdóttir bóndi. Óháðir kjósendur bjóða fram H- hsta á Vopnafirði en ekki Bakkafirði eins og misritaðist í frétt DV nýlega. Röð efstu manna er þessi: 1. Ingólfur Sveinsson iðnverkamaður, 2. Ellert Árnason skrifstofustjóri, 3. Kristín Jónsdóttir húsmóðir, 4. Eyjólfur Sig- urðsson atvinnurekandi. „Þessi maður er farinn. Það var aldrei tekin afstaða til erindis hans,“ sagði Ólafur Walter Stefánsson, skrifstofustjóri í dómsmálaráðuneyt- inu, aðspurður um málefni Króata sem kom hingað til lands um miðjan nóvember. Maðurinn sótti um dvalarleyfi hér eftir komu sína til landsins en ráðu- neytið afgreiddi umsóknina aldrei. Hann dvaldi hér á landi rúma 5 mán- uði en hélt til Svíþjóðar í lok apríl. Ólafur vildi engu svara um það Nemendur ásamt Margréti Þorkelsdóttur, 85 ára, sem kenndi þeim að gera sauðskinnsskó. DV-mynd Sigrún Þemavika á þjóðlegu nótunum á Jökuldal hvort ráðuneytið hefði óttast for- dæmi ef Króatanum hefði verið veitt leyfi en sagði: „Það hefði getað breytt máhnu gagnvart Svíþjóð, bæði ef honum hefði verið neitað eða dvalar- leyfi hans hér samþykkt." Króatinn fékk dvalarleyfi í Svíþjóð. Biskupsstofa veitti í samráði við Hjálparstofnun kirkjunnar mannin- um atbeina þegar hann dvaldi hér á landi. Honum var útvegaður sama- staður í Krísuvíkurskóla. Umræddur maður er frá Vojvodina sem áður var sjálfstjómarhérað í Júgóslavíu. Héraðið er nú á valdi Serba en þar búa Ungverjar, Króatar og Serbar. Samkvæmt upplýsingum DV var mál mannsins endurupptekið í Sví- þjóð en þaðan kom hann til íslands. Lögfræðingur, prestur og unnusta mannsins unnu að því að útvega honum dvalarleyflð ytra. Vojvodina var tahð hættusvæði og því fahist á umsókn hans. Sigrún Björgvinsdóttir, DV, Egilsstöðum; „Það vom 10-12 ára nemendur hér í Skjöldólfsstaðaskóla sem tóku þátt í verkefninu. Þjóðháttahópurinn kynnti sér tóvinnu og var farið með honum í gegnum aht ferhð, þ.e. nem- endur tóku ofan af, kembdu og spunnu og spreyttu sig á jurtahtun. Þá gerðu þeir sauðskinnsskó og það var elsti íbúi á Jökuldal, Margrét Þorkelsdóttir, sem kenndi þeim þá hst, Margrét verður 85 ára á þessu ári,“ sagði Stefanía Sveinbjömsdótt- ir, skólastjóri á Skjöldólfsstöðum. Nemendur þar og í Brúarásskóla unnu að merkilegum verkefnum í vetur sem lauk með sýningu í maí. „Við ákváðum þetta verkefni til að auka samstarf og samkennd milh skólanna og til að nemendur kynnt- ust betur þessum þrem sveitum sem standa að skólunum tveim á Skjöl- dólfsstöðum og Brúarási," sagði Guð- björg Kolka, skólastjóri á Brúarási, en sá skóh er fyrir börn úr Jökulsár- hhð og Hróarstungu og 13-14 ára nemendur á Jökuldal. Nemendur skiptust í nokkra hópa eftir verkefnum. Eldri drengimir á Brúarási vom með samgöngur og landnýtingu. Þeir skoðuðu gamla ferjustaði og rannsökuðu áhrif Öskjugossins 1875. Þá var og starf- andi ferðaþjónustuhópur. 10-12 ára börn á Sköldólfsstöðum ásamt 13-14 ára börnum af Jökuldal, sem stunda nám í Brúarásskóla, tóku fyrir byggðina á Jökuldalsheiðinni og þá einkum Sænautasel. Ferrafi H tfð fliViR ^ DEH-670 GEISLASPILARI m/útvarpi ÉS Verð: 42.900 stgr. Inniheldur m.a.: ARC útvarpsmóttakara með 24 stöðva minni flö Kristaltœran hljóm sem fœst með 8 „times oversampling” og 1 bita D/A breyti flð 2x25 W eða 4x15 W magnaraútgang flD Hótalarastilli (Fader) fl& RCA-útgang flö Þjófavörn öö Litabreyti ó takkaborði flð LW/MW/FM stereo Hágœða hatalarar á verði frá 4.600 kr. stgr Frabœrir magnarar á verði frá 11.000 kr. stgr. ISETNING VERSLUNIN KE-1730 UTVARP/KASSETTA Verð: 19.900 stgr. Inniheldur m.a.: flö 2x8,5 W magnaraútgang flö 24 stöðva minni flö „Auto/Reverse” (sjálfvirk skiptihg milli hliða) öö Hágœða tónhaus flö Sjálfvirkan „loudness” flö Tœkið er á sleða flö LW/MW/FM stereo H Þar HLfOMBÆR ■RFISCÖTU 103-SÍMI625999

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.