Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1994, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1994, Blaðsíða 8
8 FIMMTUDAGUR 19. MAÍ1994 Stjómmál Spurt í Kópavogi Hver verða úrslit kosninganna? Eiður Jóhannesson ellilífeyrisþegi: Ég er hræddur um aö Sjálfstæðis- flokkurinn haldi meirihlutanum. Lovísa Hannesdóttir húsmóðir: Ég vona að A-flokkamir fái 3 fulltrúa hvor. Sigurbjörn Þorgrímsson dyravörður: Ég er nýfluttur hingað og ég er ekk- ert farinn að velta þessu fyrir mér. Klara Friðriksdóttir bréfberi: Ég hef enga skoðun á þessu. Ég er ekkert farin að spá í úrshtin. Guðrún Einarsdóttir herbergisþerna: Ég pæh ekkert í þessu. Þorbjörn Daníelsson flugmálastarfs- maður: Ég er hræddur um að D-hst- inn fái 4 menn, A-hstinn 4, B-hstinn engan, G-listinn 2 og V-listinn 1. Mig dreymdi þessi úrsht svo þau hljóta að vera pottþétt. Kópavogur: Atvinnumál og uppbygging LvÖ [Iáv(JglLL' (11) Helstu hitamálin í bæjarstjómar- kosningunum í Kópavogi era hvern- ig laga skuh skuldastöðuna og hvernig vinna eigi að útrýmingu at- vinnuleysis. Fimm listar eru í kjöri í bæjar- stjórnarkosningunum í Kópavogi, A-listi Alþýðuflokks, B-hsti Fram- sóknarflokks, D-listi Sjálfstæðis- flokks, G-listi Alþýðubandalags og V-hsti Kvennahsta. Kvennalistinn býður nú fram í annað sinn í Kópa- vogi. Mikh spenna er um úrshtin í ár og hefur kosningabaráttan verið hörð. Titringurinn minnkaði ekki við yfir- lýsingu Gunnars I. Birgissonar, odd- vista D-lista, um að hann gæfi kost á sér í embætti bæjarstjóra. í síðustu kosningum hætti Sjálfstæðisflokkur- Frá Kópavogi. inn við sig einum manni og fékk flmm. Framsóknarflokkurinn fékk einn mann kjörinn eins og áður. Al- þýðubandalagið missti einn mann, fékk tvo kjörna. Alþýðuflokkurinn hélt sínum þremur mönnum. Kvennalistinn fékk engan mann kjörinn. Meirihlutasamst. B og D Úrslitin 1990 Guömundur Oddsson, A-lista: Atvinnumálin í fyrsta sæti „Hjá okkur eru atvinnu- málin í fyrsta sæti. Hér hafa verið um 500 manns á at- vinnuleysis- skrá. Ég hef haldið því fram að núverandi meirihluti hafi enga stefnu í atvinnumálum. Við höfum verið að benda á ýmsar leiðir sem hægt sé að fara og leggjum mikla áherslu á að bærinn komi þar inn í,“ segir Guðmundur Oddsson sem skipar efsta sæti A-hstans. „Við höfum haldið því fram að fjár- hagsstaða bæjarins sé afleit. Það er framkvæmt fyrir lánsfé og það getur ekki gengið endalaust. Því hefur ver- ið haldið fram að það eigi að fram- kvæma í erfiðu árferði og þegar ár- Sigurður Geirdal, B-lista: Gífurleg uppbygging „Aðalmálin undanfarin misseri hafa veriö gífurleg uppbygging í Kópavogsdaln- um, skilvirkari stjómun og bætt greiðslu- staða,“ segir Sigurður Geirdal sem skipar efsta sæti B-lista. „I bæ sem vex svona hratt er ekk- ert eitt mál sem yflrgnæfir hin. Hér er gífurlega mikil uppbygging á fé- lagslegum íbúðum og félagsþjónustu. Það er mikið unnið í umhverflsmál- um. íþróttaaöstaðan hefur verið stór- bætt. Gömlu götumar hafa verið teknar með áhlaupi. Atvinnumáhn eru ahs staðar ofar- Gunnar I. Birgisson, D-lista: Allir skólar verði einsetnir „Það er á stefnuskrá Sjálfstæðis- flokksins að all- ir skólar í Kópavogi verði einsetnir 1997. Það er einnig stefna okkar að byggja þrjá nýja leikskóla á næsta kjörtimabih," segir Gunnar I. Birgis- son sem skipar efsta sæti D-lista. „Við munum byggja nýtt sambýh fyrir aldraða í Kópavogsdal og einnig þjónustumiðstöð fyrir aldraða á sama stað. Við munum einnig halda áfram að efla félagsíbúðakerfið og fjölga leiguíbúðum bæjarins. Við höf- um fengið úthlutun frá húsnæðis- stjórn sem færir okkur í rétta átt. Valþór Hlöðversson, G-lista: Formaður bæjarráðs spilar á fiðlu „Það er ljóst að brýnasta verkefni bæjar- stjómar Kópa- vogs nú er að koma böndum á fjármál bæj- arins en sjálf- stæðismenn og Framsókn hafa aukið skuldir um 2,2 mihjónir króna á degi hveijum síðan sumarið 1990,“ segir Valþór Hlöð- versson sem skipar efsta sæti G-hst- ans í Kópavogi. „Mér finnst raunar að formaður bæjarráðs ætti að beina athyglinni að þeim vanda og ekki síður atvinnu- leysisböhnu fremur en að nota dýr- mætan tíma í vangaveltur um það hvort hann sjálfur geti orðið bæjar- stjóri í Kópavogi. Mér finnst óneitan- lega mikhvægara að útvega 500 at- vinnulausum Kópavogsbúum vinnu en að tryggja Gunnari Birgissyni vel Helga Sigurjónsdóttir, V-lista: Andmælum útþenslu fyrir lánsfé „Kvennalist- inn leggur áherslu á að bæjarbúar hafi greiðan aðgang að valdhöfum þegar um er að ræða mikilvæg mál eins og skipulags- og umhverfismál. Við vhj- um ekki fleiri skipulagsmistök,“ seg- ir Helga Siguijónsdóttir sem skipar efsta sæti Kvennahstans. „Við andmælum útþenslustefn- unni sem nú ríkir þar sem allt er gert fyrir lánsfé. Skuldir verður að borga. Kópavogur virðist vera að fara færeysku leiðina í fjármálum. Fjölskyldumálin era eins og ævin- lega mál málanna, leikskóla vantar og einsetna skóla. Hér vantar einnig atvinnustefnu og atvinnutækifæri eru enn færri fyrir konur en karla. Konum hefur fjölgað á atvinnuleys- ferðiö lagast þá eigi aö fara aö borga þessar skuldir. Þessi meirihluti hef- ur ekki borgað eina einustu krónu þannig að hann er búinn að setja bæinn nánast í gjörgæslu. Skuldirn- ar era á fjóröa mihjarð. Það er meira en tvöfóldun á hehdarskuldum frá því að meirihlutinn tók við völdum. Það er brýnt að það myndist ein- hver miðbær í Kópavogi. Við höfum verið að skoða það alvarlega að byggja yfir Kópavogsgjána og tengja þannig saman þjónustu og menning- arstofnanir mihi bæjarhlutanna." lega á baugi og okkar aðalsvar við þeim er að halda framkvæmdum hér í hámarki og gera það sem við getum. Við erum með fjögur þúsund manna hverfi í byggingu núna. Aðalupp- byggingin á höfuðborgarsvæðinu er hér í Kópavogi. Það er aðalatriðið að virkja alla atorkuna og aðstreymið. Við höfum saxað verulega á biðhst- ann í dagvistarmálum og gert áætlun um að útrýma honum. Við erum búnir að samþykkja áætlun um ein- setinn skóla sem verður að fullu lok- ið 1997.“ Það er á stefnuskrá okkar að end- urbyggingu gömlu gatnanna ljúki 1996. Það er búið að endurbyggja 12 km af 16. Við stefnum á það að hefja hér byggingu menningarmiðstöðvar á vesturbakka Kópavogsgjár og að ljúka við sundlaug Kópavogs. í atvinnumálum munum við skha nýju atvinnusvæði við Kópavogs- höfn og á Fífuhvammslandi. Það er einnig markmið að lokið verði við byggingu matvælaiðjuskóla. Þetta er stór vinnustaður og veitir mörgum atvinnu." launaða stöðu. Þetta minnir helst á Neró sem sphaði á fiðlu þegar Róm brann. Það hefur verið mikil uppbygging í Kópavogi síðustu átta árin enda á . bærinn sér framtíðarmöguleika. Gíf- urlegar skuldir setja hins vegar skorður og það er blóðugt að horfa th þess að síðustu tvö árin nemur greiðslubyrði lána Kópavogskaup- staðar um 940 mihjónum króna. Eg hefði gjarnan vhjað sjá þá peninga fara í eitthvað annað. Við verðum að laga fjárhagsstöðuna th að geta sinnt þeim skyldum sem bærinn verður að gegna gagnvart íbúunum." isskrá frá því í apríl. Kópavogur er ekki lengur eftir- sóknarverður fyrir efnalítið fójk. Hér eru fasteignagjöld hæst á höfuðborg- arsvæðinu og leikskólagjöld sömu- leiðis. Láglaunafólk munar um 50 þúsund krónur á ári og tvöfalt það sé um tvö börn á leikskóla aö ræða. Jafnréttismáhn eru mikilvæg og við ætlum að endurskoða launastefnu bæjarstarfsmanna." Aiþýðuflokkur fékk 1.901 atkvæði og þijá menn kjöma í kosningunum 1990. Framsóknarflokkur fékk 1.140 atkvæði og einn mann kjörinn. Sjálf- stæðisflokkur fékk 3.452 atkvæði og fimm menn. Alþýðubandalag fékk 1.740 atkvæði og tvo menn. Kvenna- hsti fékk 480 atkvæði og engan mann. Þessi voru kjörin í bæjarstjórn: Af A-lista: Guðmundur Oddsson, Sigríður Einarsdóttir og Helga E. Jónsdóttir. Af B-hsta Sigurður Geir- dal. Af D-hsta: Gunnar Birgisson, Guðni Stefánsson, Birna G. Friðriks- dóttir, Amór L. Pálsson og Bragi Michaelsson. Af G-lista: Valþór Hlöð- versson og Elsa S. Þorkelsdóttir. Framboðslist- ar I Kópavogi A-listi: 1. Guðmundur Oddsson 2. Kristján Guðmundsson 3. Helga E. Jónsdóttir 4. Sigríður Einarsdóttir 5. Ingibjörg Hinriksdóttir 6. Kristín Jónsdóttir 7. Gunnar Magnússon 8. Snorri Konráðsson 9. Hreinn Hreinsson 10. Esther Steinsson B-listi: 1. Sigurður Geirdal 2. Páh Magnússon 3. Hansina Björgvinsdóttir 4. Sigrún Ingólfsdóttir 5. Stefán Arngrímsson 6. Ómar Stefánsson 7. Einar Tómasson 8. Sigríður Jóhannsdóttir 9. Sigríður Jónasdóttir 10. Dagný S. Sigurmundardóttir D-hsti: 1. Gunnar I. Birgisson 2. Bragi Michaelsson 3. Arnór L. Pálsson 4. Guðni Stefánsson 5. Halla Halldórsdóttir 6. Sigurrós Þorgrímsdóttir 7. Sesseha Jónsdóttir 8. Jón Kristinn Snæhólm 9. Gunnsteinn Sigurðsson 10. Ingibjörg Gréta Gisladóttir G-listi: 1. Valþór Hlöðversson 2. Birna Bjarnadóttir 3. Flosi Eiríksson 4. Guðný Aradóttir 5. Helgi Helgason 6. Lára Jóna Þorsteinsdóttir 7. Bjarni Benjamínsson 8. Ragnhildur Ásvaldsdóttir 9. Neil Mac Mahon 10. Þórann Bjömsdóttir V-listi: 1. Helga Sigurjónsdóttir 2. Sigrún Jónsdóttir 3. Brynhildur Flóvenz 4. Þóranna Pálsdóttir 5. Birna Sigurjónsdóttir 6. Hafdís Benediktsdóttir 7. Steinunn Karlsdóttir 8. Guðný Guðmundsdóttlr 9. Berglind Guðmundsdóttir 10. Hahveig Thordarson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.