Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1994, Qupperneq 4
4
FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 1994
Fréttir
Þórarinn V. Þórarinsson um atvinnuLeysi 1 apríl:
Látum ekki tölurn-
ar blekkja okkur
- telur raunverulegt atvmnuleysi helmingi minna
„Það hafa engar formlegar kann-
anir verið gerðar. Menn hafa verið
að reyna að búa til greiningu á því
hvaöa fólk það er sem er atvinnu-
laust. Tilfinningin sem menn hafa er
að þriöjungur sé með umdeilanleg-
um hætti á vinnumarkaðinum, sé
ekki tiltækur fyrir vinnumarkaðinn.
Þar til viðbótar kemur hópur sem er
ekki að leita að vinnu af einhverri
hörku; sem er á miili starfa eða horf-
ir til þess að fara í önnur störf. Það
er líka athyglisvert hve stór hópur
ungra kvenna er atvinnulaus í fram-
haldi af fæðingarorlofi. Afgangurinn
er þá náttúrlegt lágmarksatvinnu-
leysi miðað við okkar kvótakerfi. Við
erum því ekki að tala um að það
vanti störf fyrir á áttunda þúsund
manns heldur fjögur þúsund manns
og það er ærinn starfi," segir Þórar-
inn V. Þórarinsson, ffamkvæmda-
stjóri VSÍ, um tölur Vinnumálaskrif-
stofu félagsmálaráðuneytsins, sem
kveða á um að 7.061 maður hafi ver-
ið atvinnulaus í apríl.
„Bótakerfið okkar er þannig upp
sett að bætur atvinnuleysistrygginga
eru ákveðnar þær sömu og lægstu
laun. Síðan er greitt fjögur prósent
álag á hvert barn á framfæri. Fyrir
allra lægst launuðu störfin er ávinn-
ingurinn af því að fara í starf aug-
ljós. Hann er kannski félagslegur en
ekki afkomulegur," segir Þórarinn.
Hann segir að þrátt fyrir þetta sé
nauðsynlegt að viðhalda ríkjandi
keríi, þannig að um sé að ræða fram-
færslutryggingu. Vandamálið sé hins
vegæ: tímabundið.
„Ákveðinn hópur hefur notað þetta
sem framlengingu á fæðingarorlofi
og annar, sem færi í lægst launuðu
störfln, finnur ekki hvöt hjá sér að
fara að vinna,“ segir Þórarinn.
Þórarinn segir enga þýðingu hafa
að hækka launin því lögbundið væri
að bætumar fylgdu lægstu launum.
„Við erum aö benda á að þaö eru
að koma fram ný vandamál tengd
atvinnuleysinu. Þau kalla á virkari
vinnumiðlun, meira aðhald í gegnum
þær og við þurfum einnig að horfa á
sérstakar lausnir fyrir ákveðna
hópa. Mér finnst til dæmis skelfilegt
að verið sé að borga miklum fjölda
af fólki yngra en tvitugu atvinniúeys-
isbætur. Eg vildi sjá þetta fólk í skól-
um þar sem það bætti við sig og gerði
sjálft sig hæfara til að takast á við
lifsbaráttuna síðar en ekki að mæla
göturnar," segir Þórarinn.
„Það er ekki svo að átta þúsund
manns séu að bíða hér eftir störfum.
Við megum aldrei láta tölumar
blekkja okkur. Ástandið er mjög erf-
itt en það er ekki eins erfitt og tölurn-
ar segja,“ segir Þórarinn.
Sóknarkona meö 2 böm og atvmnulaus með 2 böm:
Betra að vera atvinnulaus?
í samanburði, sem DV hefur gert
á kjörum tveggja kvenna, 28 ára
Sóknarkonu með tvö böm og at-
vinnulausrar konu sem einnig er
með tvö böm, kemur fram að vem-
legur munur er á kjörum þeirra, at-
vinnulausu konunni í vil.
Taxtalaun 28 ára Sóknarkonu em
51.590 krónur en fullar atvinnuleys-
isbætur eru 46.388 krónur. Ef Sókn-
arkonan þarf að láta gæta tveggja
bama þá kostar leikskólavist, sam-
kvæmt upplýsingum frá Dagvist
barna, 8.600 krónur á hvort bam eða
samtals 17.200 krónur. Þá hefur
Sóknarkonan til aflögu 34.390 krón-
ur. Þá á eftir að koma sér til og frá
vinnu. Grænt kort í almennings-
vagna kostar 2.900 krónur og era þá
31.490 krónur eftir í buddu Sóknar-
konunnar.
Hins vegar á atvinnulausa konan,
sem fær 46.388 krónur í bætur, rétt
á aukagreiðslu fyrir hvert barn sem
hún á, rúmlega 3.700 krónur fyrir tvö
böm. Ef gengiö er út frá því að hún
gæti þeirra sjálf þarf hún ekki að
greiða fyrir dagvistun og hefur því
rúmlega 50 þúsund krónur til ráð-
stöfunar á mánuði.
Samkvæmt upplýsingum, sem DV
leitaði sér hjá stóm verkalýösfélagi,
liggur fyrir vitneskja um að félagar
í því stundi svarta vinnu. Hins vegar
sé erfitt aö bregöast við því vegna
skorts á sönnunum. Hins vegar sé
ljóst af því dæmi sem sett er upp hér
fyrir ofan að margir fáist ekki í vinnu
og af bótum. Fullyrt var að fjöldi
aðila á bótum starfi við ræstingar,
án þess að sú vinna sé talin fram, og
við aö gæta bama.
Borgar sig alltaf að vinna?
i
in
ú
£ <
C
3
rs
1
£
28 ára kona m/vinnu
og 2 börn
á lægsta taxta Sóknar
Atvinnuleysingi
m/2 börn
1
w 2J
II
c "■
il
* 3
w
§
MiðstjóraASÍ:
Tilefitilögsóknar
Pundur núðstjórnar ASÍ og for-
ystumanna lands- og svæðasam-
banda innan ASÍ hefur sent frá
sér fréttatilkynningu þar sem
mótmælt er harðlega þvi sem
þeir kalla ósvífnar og rakalausar
fullyröingar Þórarins V. Þórar-
inssonar, frapikvæmdastjóra
VSÍ, um að þeir „sem em án at-
vinnu hafi í raun engan áhuga á
því að fá vinnu".
Telur fundurinn ummæli Þór-
arins „ærameiðandi aðför að því
fiölmarga fólki sem má þola það
að vera án atvinnu og fullt tilefhi
til lögsóknar á hendur þeim sem
hafði þau í frammi“.
Ennfremur segir þar að fuilyrð-
ingar Þórarins um að þessi mikli
fiöldi sé að misnota atvinnuleys-
isbótakerfið og brjóta þar með lög
séu óþolandi og ætti hann að hafa
manndóm i sér til að biðjast opin-
berlega afsökunar."
Hótelrekandi í Reykjavík:
Gengurerfídlega
aðfáfólkívinnu
„Okkur hefur gengiö illa að fá
fólk til starfa í gistideildinni og
eins við ræstingu og uppvask. Þá
hefur verið leitað til stéttarfélag-
anna, vitandi það að þau eru með
fólk á atvinnuleysisskrá. Ég verð
að segja að það hefur ekki gengið
upp og útlendingar hafa hrein-
lega bjargað okkur,“ segir hótel-
rekandi í Reykjavík.
„Þaö er mjög oft þannig að
stúlkur koma lúngaö og byrja en
fá svo fljótlega í bakið eða kunna
ekki við vinnuna. Þær virðast
einhverra hluta vegna eiga auö-
velt með að komast aftur inn á
atvinnuleysisskrá. Við vitum að
fólk hefur fengið atvinnuleysis-
bætur og farið að vinna „svart“.
Ástæðan íyrir því að við vitum
þetta er að þaö hefur komið lúng-
að aftur og ætlaö sér að fá viður-
kenningu fyrir sínum störfum.
Fólkið fékk þær upplýsingar að
það gagnaði því ekki og þá kom
i ljós að það var byijað að vinna
svart og væri aö reyna að halda
atvinnuleysisbótunum líka,“ seg-
ir hótelrekandinn.
Hann segir aö svo virðist sem
þeir sem gæta eiga þess að ekki
sé svindlað á kerfinu passi ekki
nógu vel upp á hluti sem þessa.
Móðgun á norðurhjara
Óljósar fréttir herma að háttsett
fólk af norðurhjaranum hafi gert
okkur heimsókn í byrjun vikunn-
ar. Hins vegar hafi enginn ráða-
maður hérlendis viljað við þetta
fólk tala né af því vita á nokkurn
hátt. Þó hafi þama í hópnum verið
að finna ráðherra og háttsetta emb-
ættismenn sem hafi orðið sármóðg-
aöir við þessar snautlegu móttök-
ur. Ferðahópurinn var á vegum
samtaka leiðtoga þjóða á norður-
hjara og formaður þeirra samtaka
er ríkisstjóri í Alaska. Ferðin hing-
að var sögð vera í þeim tilgangi aö
sýna fram á þau menningarlegu og
upplýsandi samskipti sem geta átt
sér stað milli þjóða á norðurslóö-
um.
Norðurhjaraliðið undraöist að
enginn fulltrúi frá ríki eða borg tók
á móti hópnum. En menn létu kyrrt
liggja í bili og áttu von á móttöku
síðar frá hinu opinbera eða fundum
með ráðamönnum. Heimsóknin
stóð í tvo daga og hópurinn fór
meðal annars í skoöunarferðir til
Nesjavalla og Þingvalla. Hvergi
bólaði á tilburðum til opinberrar
móttöku og ekki var einu sinni
hægt að hitta óbreytta borgarfull-
trúa og eiga við þá spjall. Þetta
þótti þeim af norðurhjaranum skítt
og fóm í fússi.
Rannsóknarblaðamenn fóm að
grafast fyrir um hverju þetta sætti
því það ber nýrra við ef embættis-
menn eða pólitíkusar slá hendi á
móti tilefni til gleðskapar. Kontór-
istar hjá utanríkisráðuneytinu og
Reykjavíkurborg könnuðust við að
þaö hafði verið beðið um fundi meö
þessum hópi. Hins vegar hefði
beiðnin komið frá ferðaskrifstofu
sem annaðist fyrirgreiðslu við hóp-
inn hérlendis. Vikadrengir utan-
ríkisráðuneytis og Reykjavíkur-
borgar sögðust ekki ansa beiðnum
um fundi eða móttökur fyrir út-
lendinga þegar slík tilmæli kæmu
frá ferðaskrifstofum. Þeir hefðu
annað að gera en skipta sér af fólki
sem bæði ferðaskrifstofu um að
koma á fundi. Ef einhveijir útlend-
ingar vildu hitta ráðamenn ríkis
eða borgar yrði að koma um það
beiðni frá sendiráðum viðkomandi
landa. „Við erum ekki í því að tala
við einhveija túrista sem hingað
flækjast,“ sögðu vikadrengir hins
opinbera og dustuðu kusk af
hvítflibbanum.
Gestalisti hins opinbera var fúll
þegar það spurðist að þama hefði
gott tilefni kokkteils farið forgörð-
um. Við nánari umhugsun sá gesta-
listinn þó að þaö væri varla ástæða
til að púkka mikið upp á þetta norð-
urhjaralið. Þetta fólk væri varla
einnar messu virði fyrst það hefði
ekki haft vit á að láta sendiráðin
um að semja um móttökur.
Einhveijir fóm að velta því fyrir
sér hvers vegna þessir útlendingar
hefðu staðið í þeirri meiningu aö
þeir mundu hitta ráöamenn hér.
Helst datt mönnum í hug að þetta
stæði í sambandi við ferðalag sem
nokkrir borgarfulltrúar úr öllum
flokkum fóra í fyrir nokkmm mán-
uðum. Lítt hefur frést af þessu
ferðalagi sem mun hafa verið til
einhverra borga á norðlægum slóð-
um. Menn sem leggja sig eftir frétt-
um af borgarstjóm segja að ferða-
langamir hafi lagt það til í borgar-
stjóm við heimkomuna að Reykja-
vík yrði ein af vetrarborgum norð-
urhjarans. Allur hafi sá tillögu-
flutningur þó verið næsta óljós. Því
vaknaði grunur um að þessi sendi-
nefnd borgarinnar hefði í móttöku
í utanfórinni boðiö öllum gestun-
um að líta inn í Ráðhúsið við Tjöm-
ina ef liðið ætti leið um nágrennið.
Þetta kurteisishjal hafi verið tekið
svo bókstaflega að liðið hafi drifið
sig hingað við fyrsta tækifæri án
þess að gera sér grein fyrir því að
íslenskir embættismenn og pólitík-
usar tala ekki við útlendinga nema
þeir hafi meðmæli sendiráða. Það
er auðvitað tóm fjarstæða að halda
þessu fram með borgarfulltrúana
en gott til þess aö vita að hér er
ekki til siðs af opinberri hálfu að
tala við óbreytta ferðamenn.
Dagfari