Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1994, Page 22
34
FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 1994
teg !!!!;!y?!!!!!!l ÍÍÍH!!
Merming
Þau Ragnar, Eyrun, Sindri og
Anna Sólveig, nemendur í Laug-
arnesskóla, sungu íslensk þjóö-
tög og dönsuðu islenska þjóð-
dansa ásamt bekkjarfélögum
sinum í 2. L i Laugarnesskóla i
tilefnl af lýðveldisvlku í skólanum
á dögunum.
Laugamesskóli:
íslandsferð
fjölskyldunnar
Nemendur Laugamesskóla
tóku þátt í myndlistarverkefni á
vorönn sem ber heitið „íslands-
ferð fiölskyldunnar 1994“ undir
slagorðunum „island, sækjum
það heim“. Afrakstur myndlist-
arverkefnis nemendanna má nú
sjá á göngum skólans en mynd-
menntakennarar skólans lögðu
upp með myndefnið íslensk fjöll.
Nemendur skoðuðu íslenska
náttúru og fegurð hennar og fjöl-
breytni í verkum íslenskra lísta-
manna.
Verkefnið, sem efnt var til af
Félagi íslenskra myndlistarkenn-
ara og samgönguráðuneytinu, fór
fram í fjórum aldursflokkum í
grunnskólum landsins. Sérstakar
aðalviðurkenningar verða veittar
í hverjum aldursflokki en auk
þess fá allir þátttakendur viður-
kenningarskjal. Aö minnta kosti
120 myndir hvaðanæva af land-
inu verða valdar á farandsýningu
sem hefst í Ráðhúsi Reykjavíkur
27. maí, við opnun Listahátíðar.
íslensk ión-
listí
argentínsku
útvarpi
íslenskri tónlist hefur verið
gert hátt undir höfði í argent-
ínsku útvarpi að undanfórnu. ís-
lensk tónverkamiðstöð fékk ný-
verið sent tímaritið Clasica írá
Argentínu en þar má lesa dag-
skrá klassísku útvarpsstöðvar-
innar Radio Clasica. í marsmán-
uöi var leikin tónlist írá fslandi
flmm eftirmiödaga, eftir tón-
skáldin Jón Nordal, Leif Þórar-
insson, Magnús Bl. Jóhannsson,
Hafliða Hallgrímsson og Karó-
línu Eiríksdóttur.
Tónverkamiðstöðin fær oft
beiðnir erlendis frá um diska með
íslenskri nútímatónlist. Hefur
miðstöðin gefiö út 16 geislaplötur
með íslenskri tónlist og er allt að
helmingurinn sendur um allan
heim til kynningar á flytjendum
og tónskáldum.
Langisandur
í Reykjavík
Siguiöur Sverriaaon, DV, Akranesú
Guttormur Jónsson, myndhst-
armaður frá Akranesi, opnaði á
uppstigningardag sýningu á 23
verkum sínum í Gallerí Úmbru í
Reykjavík. Nokkur ár eru Uðin
frá því Guttormur sýndi síðast í
Reykjavík en þá hélt hann sýn-
ingu í Stöðlakoti. Verkin á sýn-
ingunni að þessu sinni eru öll
unnin á síðastUðnu ári. Efnivið-
urinn í flest þeirra er sóttur í grjót
sem tekiö hefur verið af Langa-
sandi, baöströnd Skagamanna.
ReglurfyrirSin-
fóniuhljómsveit
æskunnar
í menntamálaráðuneytinu hef-
ur verið gengið frá samþykktum
fyrir Sinfóníuhljómsveit æsk-
unnar, þar á meðal hvemig stjóm
skuU skipuð. Hafa engar slikar
reglur verið til fyrir hljómsveit-
ina on hún nýtur fjárstuðnings
frá ríkinu. Er búist við að ný
stjóm hljómsveitarinar verði
skipuð einhvern næstu daga.
Ovíst er hvort fyrrum stjóra-
andi og einn aðalfrumkvöðuU
hljómsveitarinnar, Paul Zukof-
sky, verði fenginn aftur til starfa
en stjóm hljómsveitarinnar
ákvað snemma í haust að ekki
gæti oröið af frekara samstarfi
hljómsveitarinnar við Zukofsky.
íslensk-hollensk
myndlistarsýn-
ingíHollandi
Eyþór EðvarösBan, DV, Amsterdam:
„There’s more to life“ eða
„Meira í lífinu" er yflrskrift sýn-
ingar íslensku myndUstarkon-
unnar Sólveigar og eiginmanns
hennar Robs Kœkstra sem hald-
in veröur um hvítasunnuhelgina
á vinnustofu þeirra 1 Hijun, nyrst
i HoUandi. Er þetta jafnframt
fyrstá samsýning þeirra hjóna.
Sólveig, sem er mjög fjölhæfur
listamaður, vinnur aðaUega með
figúratívar myndir. Rob vinnur
aðaUega með styttur, teikningar
og málverk, sérstaklega andlits-
myndir.
Verkum Sólveigar svipar tfl
verka Sigurðar Guðmundssonar
en em samt með sín sérkenni.
Sýningar hennar hafa jafhan
hlotíð talsverða athygli fjölmiðla
í HoUandi enda hispurslausar,
beinskeyttar og fuUar af kímni. í
hoUenskum dagbiöðum birtust
þannig myndir af henni á
kvennarannsóknarhátíð í Ut-
rechts-háskóla þar sem hún var
fáklædd og útötuð leir við aö
þrykkja mynd af sér með sjálfri
sér undir yfirskriftinni „Þvílík
mynd af konu“.
BrýrnaríMadi-
sonsýsluáís-
lensku
Brýrnar í Madisonsýslu eftir
bandaríska rithöfundinn Robert
James WaUer er að koma út á
vegum bókaklúbbs Vöku-Helga-
fells, Nýjar metsölubækur. Er
þetta mest selda skáldsaga i
Bandaríkjunum frá upphafi, en
hún hefur selst í meira en 4,5
miUjónum eintaka. Höfundur
bókarinnar er rithöfundur,
blaðamaður og kennari og fékk
bandarísku ABBY-verðlaunin
fyrir bókína. Bókin fiallar um
ijósmyndara og bóndakonu í
sveit í lowafyUci. Ljósmyndarinn
leggur leið sína í Madisonsýslu
tU að taka myndir af yfirbyggðum
brúm. Hittir hann þá konuna fyr-
ir tUviJjun og eru örlög þeirra þar
raeð ráðin,
Styrkir til höf-
undafræðiritaog
kennslugagna
Hagþenkir, félag höfunda
fræðirita og kennslugagna, hefur
veitt 22 höfundum styrki að upp-
hæð samtals 1.550.00 krónur.
Hæstu styrkir tíl ritstarfa, 150
þúsund krónur, voru veittir
vegna tveggja verkefna. Bjami
Þorsteinsson og Michael Dal
hlutu styrk vegna hlustunarefhis
við dönsku kennslubækumar
Danmarksmosaik 1 og 2, og Þór-
unn Valdimarsdóttir vegna rits-
ins Landsraálablöðin um síðustu
aldamót.
Menntamálaráðherra mælir með nýju sýningarhúsi fyrir Þjóðminjasafniö á lóðinni milli Þjóðarbókhlöðunnar og
Hótel Sögu. Tillögur byggingarnefndar um úrbætur á húsakosti Þjóðminjasafnsins eru til meðferðar í rikisstjórn.
Húsið yrði væntanlega staðsett við Suðurgötuna.
Tillögur um úrbætur á húsakosti Þjóðminjasafnsins í ríkisstjóm:
Ráðherra mælir
með nýju húsi
- heildarkostnaðuráætlaðurrúmurmilljarðurkróna
„Eg er búinn að leggja málið fyrir
ríldsstjórmna til kynningar og á von
á að það verði tekið fyrir á næstuni.
Mín tillaga er að byggt verði nýtt
sýningarhús fyrir Þjóðminjasafnið
og unnið verði að viðgerð gamla
hússins en hún er þegar í gangi,"
sagði Ólafur G. Einarsson mennta-
málaráöherra í samtah við DV.
Verði tillaga menntamálaráðherra
samþykkt í ríkisstjóminni verður
byggt nýtt sýningarhús fyrir Þjóð-
minjasafnið á lóðinni milli Hótel
Sögu og Þjóðarbókhlöðunnar. Há-
skóhnn á þá lóð en eftir því sem DV
kemst næst hefur verið gefið vhyrði
fyrir að lóðin fari undir umrætt sýn-
ingarhús. Er gert ráð fyrir að bygg-
ing hússins og viðgerð á því gamla
muni samtals kosta rúman einn
mihjarð króna.
Þijár thlögur um úrbætur á húsa-
kosti Þjóðminjasafnsins komu frá
bygginganefndinni. í þeim öhum er
gert ráð fyrir viðgerð á gamla hús-
inu. í annarri thlögunni er gert ráö
fyrir að byggt verði skrifstofu- og
geymsluhús fyrir muni en gamla
húsið verði áfram sýningarhús.
Þriðja tihagan gengur hins vegar út
á að Gamh garður og Félagsstofnim
stúdenta fari undir starfsemi Þjóð-
minjasafnsins.
Leikritið Haf ið
kvikmyndað
Ólafur Haukur tilnefndur til norrænu leikskáldaverðlaunanna
Helgi Skúlason í hlutverki sínu í Hafinu eftir Olaf Hauk Símonarson.
„Við erum að fara með Hafið th Þýska-
lands í næsta mánuði og vorum að æfa
af þvi thefni. Það var allt thbúið og ekk-
ert th fyrirstöðu að fara inn í myndver
hjá Saga film og taka leikritið upp á
fhmu,“ sgði Þórhahur Sigurðsson leik-
stjóri í samtali við DV.
Leikritið Hafið ^ftir Ólaf Hauk Símon-
arson hefur verið tekið upp á filmu í
samvinnu Þjóðleikhússins og Saga film.
Vonast aðstandendur til að verkið verði
tekið th sýninga í íslensku sjónvarpi.
Einnig er meiningin að nota myndina til
kynningar erlendis.
Þannig verður hluti upptökunnar af
Hafinu sýndur á Norrænu leikhstardög-
unum í Ósló í lok maí en Ólafur Haukur
Símonarson er einmitt thnefndur th
Norrænu leikskáldaverölaunanna. Á
myndbandinu, sem fer th Noregs, verða
einnig bútar úr Gauragangi og fleiri
verkum Ólafs Hauks.
Þjóðleikhúsið fer síðan með Hafið th
Þýskalands 19. júní og setur það upp
þar. Þá veröur leikið á íslensku en text-
inn þýddur jafnóðum á þýsku og komið
th áhorfenda um þráðlaust heyrnartóla-
kerfi.
<##***■
r'_«WSKsr,ss,S5!5,
IflgHtfHttiÍiliisi
51 |*!|iMiHia