Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1994, Page 6
6
MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 1994
Viðskipti
Þingvísit. hlutabr.
884
883
Þr M! Fl Fö Mð
Dollar lækkar
Gott verð hefur fengist fyrir ýsu
á fiskmörkuðum undanfarið, eða
þar til í gærmorgun að meðal-
verðið fór niður í 90 krónur kíló-
ið.
Þingvísitala hlutabréfa stóð í
882 stigum á mánudag. Þá urðu
næstum jafnmikil viðskipti og í
allri síðustu viku, eða upp á tæp-
ar 6 milljónir.
Á einni viku hefur álverð er-
lendis hækkað um nær 5% og
ekki verið hærra í 3 ár. í gær-
morgun var staðgreiðsluverðið
1405 dollarar tonnið.
Dollarinn virðist vera á niður-
leið. Sölugengið var 70,69 krónur
í gærmorgun, eða um 1,2% lægra
en fyrir viku.
Dow Jones hlutabréfavísitalan
hefur verið á uppleið frá því á
fimmtudag. Um miðjan dag í gær
stóð talan í 3790 stigum og virtist
fara hækkandi.
Forráðamenn Islandsiiugs og DHL með hluta af fyrstu fragt sem fór til Englands á mánudag. Frá vinstri eru
Ómar Benediktsson, stjórnarformaður íslandsflugs, Gunnar Þorvaldsson, framkvæmdastjóri íslandsflugs, og
Bjarni Hákonarson, framkvæmdastjóri DHL á íslandi. DV-mynd ÞÖK
DHL með íslands-
flugi til Evrópulanda
íslandsflug fór í fyrsta sinn á
mánudag til Evrópu með fragt fyrir
DHL-hraöflutningafyrirtækið á ís-
landi. Þetta er hluti af svonefndri 24
tíma þjónustu DHL. Forráðamenn
DHL telja þessa þjónustu bæta mjög
samkeppnisstöðu íslenskra útflytj-
enda.
Að auki var þetta fyrsta vöruflug
íslandsflugs milli Englands og ís-
lands. Flogið verður til East Mid-
lands flugvallar á miðju Englandi
flesta virka daga vikunnar. Flugvöll-
urinn, sem sérhæfir sig í vöruflutn-
ingum, stendur við hhðina á Ml,
helstu hraðbraut Bretlands. Innan
við tveggja tíma akstur er til nær
allra stórborga í Englandi.
í tengslum við flugið til East Mid-
lands er tengiflug til 33 borga í Evr-
ópu. Tekið er á -móti vörum allt að
90 mínútur fyrir brottfór síðdegis og
varan afhent á hádegi daginn eftir.
Afkoma Flugleiða fyrsta árs^órðunginn:
Tap upp á tæpan milljarð króna
- 56 milljóna lakari afkoma en 1 fyrra
Fyrstu þrjá mánuði ársins varð tap
á rekstri Flugleiða fyrir skatta upp á
tæpan 1 milljarð króna eða um 950
milljónir króna. Þetta er öllu lakari
afkoma en á sama tíma í fyrra þegar
tapið nam 897 milljónum eftir fyrsta
ársflórðung. Um 965 milljóna.tap
varð af heildarstarfsemi Flugleiða
fyrstu þijá mánuöi ársins samanbor-
ið við 739 milljóna tap í fyrra.
í fréttatilkynningu frá Flugleiöum
segir að verulegt tap sé jafnan á
rekstri félagsins á þessum árstíma
vegna árstíðarsveiflu í flutningum
en gengið yfir sumarmánuðina skeri
úr um afkomuna í árslok.
Farþegum flölgaði um 40% á fyrsta
ársflórðungi milli ára en hins vegar
laekkuðu meðaltekjur af hverjum
farþega um 10% þar sem flölgunin
varð mest á skemmri flugleiöum.
Fargjald lækkaði að meðaltali um
10% milh ára og kostaði Flugleiðir
180 mihjónir. Auk þessa setti óhag-
stætt gengi dohars strik í reikning-
inn.
Horfur fyrir sumarið eru góðar, að
því er segir í fréttatilkynningu Flug-
leiða. Reiknað er með betri sætanýt-
ingu en í fyrra og vonast eftir háu
gengi erlendra gjaldmiðla yfir sum-
arið.
Hæsta álverð í 3 ár
Álverð á mörkuðum í London fór
yfir 1400 dollara tonnið á mánudag
og hefm- ekki verið hærra í 3 ár.
Verðhækkunin kemur til af minni
birgðum framleiðenda og spá sér-
fræðingar að verð eigi eftir að hækka
enn frekar. Þetta veröa að teljast
mjög góð tíðindi fyrir ísal í Straums-
vik sem selur alla sína framleiðslu
jafnóðum og eftirspum er mikil.
Af öðmm útflutningsafurðum ís-
lendinga er það m.a. að frétta að
Múlaberg ÓF náði mjög góðri sölu í
Bremerhaven í síðustu viku. Seld
voru 153 tonn fyrir um 26 milljónir
króna. Meðalverð því tæpar 170
krónur á kílóið. Þorskur í gámasölu
í Englandi hækkaði mihi vikna en
ahs seldust 485 tonn í gámasölunni í
síðustu viku fyrir um 72 mihjónir
króna.
Gengi dohars og punds gagnvart
íslensku krónunni hefur verið að
lækka að undanfórnu en hins vegar
hefur japanska jenið hækkað um
1,5% á einni viku.
Töluverð viðskipti hafa verið með
hlutabréf Eimskips og Flugleiða und-
anfarið. Eimskipsbréfin hafa hækk-
að en við fréttir um mikið tap fyrsta
ársflórðunginn lækkuðu bréf Flug-
leiða um rúm 4% á þriðjudag. Við-
skipti gærdagsins lágu ekki fyrir þeg-
ar þetta var ritað. Þingvísitala hluta-
bréfa hefur verið í jafnvægi, enda
viðskipti með hlutabréf lítil í síðustu
viku þegar á heildina er htið.
Hlutabréfí
AKVAseld
vestanhafs
Að undanfórnu hefur staðið yf-
ir i Bandarikjunum lokað útboð
á nýju hlutafé í iVKVA USA, sem
er dótturfyrirtæki Kaupfélags
Eyflrðinga, og lauk fyrsta áfanga
útboðsins 6. júní sl. í þessum
áfanga var boðið út hlutafé að
lágmarki 4 mhljónir doilara og
að hámarki 5 milljónir dohara,
eða 284 til 355 mihjónir íslenskra
króna.
Þann 6. júní höföu selst hluta-
bréf fyrir 284 tniHjónir króna.
Kaupendur voru annars vegar
ýmsir bandarískir aðhar sem
kei>ptu fyrir 206 mílljónir og hins
vegar KEÁ sem keýþti bréf fyrir
um 76 milljónir króna. Útboöinu
lýkur þann 31. júlí nk. eða þegar
hlutafé fyrir 355 mhljónh- hefur
selst. Gengi hlutabréfa í þessu
útboði er við það miðað að fyrir
355 mihjónir cignist flárfestar um
40% hlutdehd í fyrirtækinu.
íslensk-amer-
íska kaupir
helmingíTrico
Sgurður Sverrisson, DV, Jtkranesi:
Gengið var frá kaupum ís-
lensk-ameríska hf. á helmingi
hlutaflár í sokkaverksmiðjunni
Tiico hf. á Akranesi sl. fóstudag.
Við kaupin var hlutafé fyrirtæk-
isms jafnframt þrefaldað.
Viðar Magnússon, sem hefur
að undanförnu átt fyrirtækið
ásamt konu sinni, Marsibil Sig-
urðardóttur, sagði kaupin renna
styrkari stoðum undir rekstur-
inn. Trico og Íslensk-ameríska
hafa haft með sér samstarf i rúmt
ár og hefur heildsalan á þeim
tíma annast dreifingu og sölu á
sokkum verksmiðjunnar.
Tölvusamskipti
ogTæknivalí
samstarf
Tölvusamskipti og Tæknival
gerðu með sér samkomulag í síð-
ustu viku um sölu og þjónustu
Skjáfaxins, faxhugbúnaðarins frá
Tölvusamskiptum. Samkomulag-
ið felur í sér að Tækmvai mun
sjá um þjónustu við núverandi
notendur Skjáfaxins og hefla sér-
stakt kynningar- og söluátak með
þaö aö markmiöi að Skjáfax nýt-
ist hjá sem fleslum íslenskum
fyrirtækjum strax á þessu ári.
Skjáfaxið er nú komið í notkun
hjá 100 fyrirtækjum hér á landi.
Hins vegai- hafa um 80 prósent
tekna Tölvusamskipta komið af
sölu Skjáfaxins á erlendum
mörkuðum. Með samkomulaginu
er ætíað að rækta íslenska mark-
: aðinn betur samkvæmt því sem
kemur fram í fréttatilkynningu
frá forráðamönnum fyrirtækj-
anna.
viðnorskt
: Flugleiðir og norska flugfélagið
Norwegian Air Shuttle, sem flýg-
ur iimanlands fyrir Braathens í
Noregi, hafa gert samning um að
Flugleiðir taki að sér stórskoðun
á þremur Fokker 50 flugvélum
norska félagsins. Jafnframt
munu Fiugleiðir leigja Norð-
mönnum Fokker: 50 flugvél á
meöan skoðumn fer fram. Þetta
kemur fram í fréttabréfi Flug-
leiða.
Þetta verkefni mun gefa Flug-
leiðum um 30 milljónir í tekjur.
Horfur eru á fleiri viöhaldsverk-
efnum hjá Flugleiðum sein hafa
fengið viðurkenningu á viðhalds-
stöðinnii Keflavík í samræmi við
staðla evrópskra flugmála-
stjórna.