Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1994, Síða 32
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta- skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrif t - Dreifing: Sími 632700
Frjálst,óháð dagblað
MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 1994.
LOKI
Eina Ijósið í tilverunni í dag
er blessaðir tómatarnir!
Svalbarðadeilan:
Ráðherrar
- og embættis-
menn
funduðuí
morgun
Davíð Oddsson forsætisráðherra,
Jón Baldvin Hannibalsson utanríkis-
ráðherra og Björn Bjarnason, for-
maður utanríkismálanefndar Al-
þingis, ásamt embættismönnum
komu samnan til fundar í forsætis-
ráðuneytinu snemma í morgun til
^ð ræða Svalbarðadeilu íslendinga
og Norðmanna.
„Það hefur svo sem ekkert nýtt
gerst síðan í gærkvöldi. Við munum
fara yfir stöðu mála á þessum fundi.
Meira get ég ekki sagt á þessar
stundu," sagði Davíð Oddsson for-
særtisráðherra þegar hann mætti til
fundarins.
Davíð hefur sagt að hann vonist til
að upp verði kveðinn löglegur úr-
skurður í þessari deilu. Engin þjóð
nema Finnar hafi viðurkennt yfir-
—j^áðarétt Norðmanna á Svalbarða-
svæðinu.
Norski sendiherrann á íslandi kom
í forsætisráðuneytið rétt fyrir fund-
inn og afhenti mönnum þar skjöl.
Hann stoppaði stutt en sagðist ekkert
vilja segja um þessa deilu þjóðanna.
Eiður Guðnason:
Ekki viður-
kennt rétt
Norðmanna
Eiður Guðnason sendiherra ís-
lands í Ósló kvaðst í morgun hafa
fregnir af því að forystumönnum
þingflokka í Noregi hafi verið til-
kynnt um aðgerðir Norðmanna á
miðunum í gærkvöldi. Samkvæmt
fréttum fjölmiðla virðast aðgerðimar
njóta almenns stuðnings í þinginu.
„Við höfum ekki viðurkennt 200
mílna yfirráð Norðmanna yfir
fiskimiðunum við Svalbarða. Það
hafa engir gert nema Finnar þó aðrir
hafa virt það að mestu í verki. Það
gefur auga leið að þetta eru mjög
harðar aðgerðir, mun harðari en til-
efnið gefur ástæðu til,“ sagði Eiður.
- Eiður hefur verið kallaður á fund
Björns Tores Godals, utanríkisráö-
herra Noregs, og hefst fundurinn
laust fyrir hádegi í dag.
Þettaer hrein
millkikjadeila
„Þetta er lirein milliríkjadeila
milli íslands og Noregs. Ég hlýt að
fagna viðbrögöum forsætisráð-
herra og utanríkisráðherra í mál-
inu þar sem þeir tala um ólöglegar
aðgerðir aö hálfu Norðmanna. Við
teljum þá ekki hafa rétt til að ráð-
ast að skipum okkar á þessu sjálf-
tekna yfirráðasvæði sínu. Það er
nauösynlegt að fá skýrar Knur i
þessi mál, þetta er ekki einkamál
örfárra útgerðarmanna." sagði
Gísli Svan Einarsson, útgerðar-
stjóri Drangeyjar og Hegraness,
sem eru á veiöum á Svalbarða-
svæðinu.
Norðmenn létu til skarar skríða
gegn íslenskum togurum á Sval-
barðasvæðinu í gær. Að sögn ís-
lenskra skipstjórnarmanna á
svæöinu skutu Norðmennirnir að
togaranum Má SH um klukkan 20
í gærkvöldi. Skipið var ekki aö
veiðum þegar atburðurinn varð og
unnu skipverjar að lagfæringum á
togvírum. Fjtt um daginn klipptu
Norðmennimir troliin aftan tir
Blika EA og Hegranesi SK, en skip-
verjar náðu þeim upp. Þá gerðu
Norðmennimir tilraun til að klippa
trollin frá Stakfelli ÞH og Hágangi
2. _sem siglir undir hentifána.
í skeyti frá Drangey SK til útgerö-
ar skipsins kemur ennfremur fram
að Norömenn þverbrutu alþjóða-
siglingareglur tneð háskasiglingu
þar sem þeir sigldu á fullri ferð í
kringum Blika EA og svöruöu ekki
kalli hans á alþjóðlegri neyðar-
bylgju.
í skeyti frá íslensku skipunum
kemur fram að 6 íslensk skip eru
á svæðinu. Skipsijórarair gera
kröfu um tafarlaus viöbrögð
stjórnvalda í þá veru að réttarstaða
íslensku skipanna verði ljós.
Ryskingar á
Laxinn var tregur til að taka í morgun, á fyrsta veiðidegi í Elliðaánum. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri
renndi fyrst allra með aðstoð Evu Kamillu Einarsdóttur, frænku sinnar, og fékk leiðbeiningar Garðars Þórhallsson-
ar, formanns árnefndar. DV-mynd GVA
Til handalögmála kom á stjórnar-
fundi íslenska útvarpsfélagsins í höf-
uðstöðvum Stöðvar 2 sl. föstudag.
Urðu þessar ryskingar á milli Sig-
urðar G. Guðjónssonar, lögmanns og
varamanns í stjórn, og fjögurra af
fimm fulltrúum fráfarandi meiri-
hluta.
Til ryskinga kom þegar Sigurður
stóð upp frá borði með sölusamning
á hlut Stöðvar 2 í Sýn í höndunum
og hugðist taka ljósrit af honum á
vél fyrir framan fundarsalinn. Hann
stóð upp og sagðist ætla að leggja
lögbann á þennan samning.
Á leið sinni til dyra var hann stöðv-
aður af fjórum stjómarmönnum
vildu þeir að Sigurður skilaði hon-
um. Þá á Sigurður aö hafa svarað
fyrir sig en lét pappírana loks af
hendi og fundi lauk skömmu síðar
með hurðarskellum.
Sjá einnig á bls. 2
Verdhrunátómötum
„Það hefur orðið verðhrun á tómöt-
um. Heildsöluverðið er farið úr 195
kr. kg í 98 kr.,“ sagði Kolbeinn Ág-
ústsson, sölustjóri hjá Sölufélagi
garðyrkjumanna, í morgun en fram-
leiðslan er með mesta móti núna.
Veðriðámorgun:
Rigning
sunnan-
lands
Sunnan og suðaustankaldi en
stinningskaldi á stöku stað. Rign-
ing sunnanlands og þykknar upp
norðanlands þegar kemur fram á
daginn en þar verður þó þurrt að
mestu. Hlýtt í veðri, einkum
norðanlands og austan.
Veðrið í dag er á bls. 28
NSK
KÚLULEGUR
Poufáípyi
SuAuriandsbraut 10. S. 680489.
LGTTi
alltaf á
Miövikudögum