Alþýðublaðið - 26.07.1968, Page 7
» » * * • 11 ' t
r í |?t Mfiij f*f 13tiÍt«S«X!tl? lllv I »>I1 ?Tir*fin ff * f Rf I f f 1» ftlfll* 1 f HU1 »*í ! » MII *» * I' M
*• >»!niM»mf't>viV8ii**■*»•*? ?s m*.*»».***
Rætt ¥iS QuSJcn Ingimundarson, íþróttskennara á Sauóárkróki, um aðstöðu
til íþrétfai^kana og fleira.
Er frétíamaður blaðsins var staddur á lands-
mótinu að Eiðum fyrir skömmu átti hann tal við
Guðjón íngimundarson, íþróttakennara á Sauðár-
króki, í tilefni af því að ákveðið er að halda næsta
landsmót UMFÍ á Sauðárkróki árið 1971.
—- Hvaða aðstaða er hjá
ykkur tit að halda slíkt mót?
— Við höfum malarvöll, en
erum að gera grasvöll. hannig
ha.gar til á Sauðárikróki að
basrinn er byggður undir há-
um brekkuin. Aðalbyggðm er
á láglendinu undir brekkun-
um og þar hefur einnig verið
aiu.urkaö íþróttasvæði. Syðst
á svæðinu er malarvöllur, sem
var gerður fyrir nokkrum ár-
um; tekinn í notkun í kring-
um árið 1950. Þar næst er
svæði, seín er ætlað fyrir gras
völl, og við ætlum að ljúka
við gerð hans fyrir næsta
landsmót: Næst tekur við
sundlaug, sem sömuleiðis er
hálfbyggð, en hefur samt ver
ið í notkun síðan 1957. Þeim
áfanga, sem nú er í smíðum,
ætlum við að ljúka við fyrir
landismótið.
Það eykur á ánægju okkar
að fá að haltíia landimótið
1971, að þá eru 100 ár liðin
frá því að staðurinn byggðist.
Það var árið 1871, ssm maður
sezt fyrst að á Sauðárkrcki
sem heimilisfastur, og var sá
maður smiður. Þar áður hiafði
verið verzlunarstaður á Sauð-
árkróki, en viðkomandi höfðu
þar ekki fast aðsetur.
— Hvernig eruð þið búnir
undir landsmót?
— Héraðið er kannski bæði
stórt og fagurt, en það er ekki
ýkja fjölmennt, og þar af leið
andi er okfcur talsverður vandi
á höndum að taka að okkur
framkvæmd landsmóts. Það
kostar mikið og óeigingjarnt
starf og krefst öflugs íþrótta-
lífs. Ef við tökum til saman-
burðar Héraðssambandið
Skarphéðinn, sem stóð fyrir
hinu rómaða Laugarvatnsmóti,
og svo þetta mót hér, sem mér
hefur líkað mjög vel, þá er
það ljóst að þessi samtök eru
mun fjölmennari en við. Þá
hafa landsmótin stöðugt ver-
ið að vaxa í sniðum og orðið
veglQgri, og því verður sífellt
erfiðara að sjá um þessi mót.
— Eru ekki landsmótin orð
in full umfangsmikil, ef svo
mætti að orði komast?
— Það eru deildar meining
ar um það hvort allar keppnis
greinar eiigi heima á lands-
mótunum. Fyrsta skrefið til
að draga úr ■ umfangi þeirrá
var stigið núna, þar sem nú
var eklti samtímis þing UMFÍ.
Það léttir á forráðamönnum
mótsins, bæði hvað snertir
undirbúning og húsnæðisþörf.
Það er deilt um, hvort auka
eigi við eða fáekka keppnis-
greinum, og ég tel t.d., að
sundíþróttin sé dálítið útund-
an. Það eru teknar með flest-
allar frjálsíþróttagreinar, en
fóar sundgreinar. Hins vegar
er erfitt -að bæta við. Aðstaða
til sund'keppni á landsmótum
hef,ur að jafnaði verið lakari
en til frjálsíþrótta. Starfsíþrótt
ir eiga að mínu áliti heima á
slíkum mótum, en skoðanir
eru skiptar um hvað þær eigi
að skipa mikið rúm.
— Áttu ekki von á því að
íþiróttalíf í Skagtl irði efjist
við væntanlegt landsmót?
— Það er eðlilega ætíð mark
mið með íþróttamótum a<5»
efla íþróttastarfið, og ef vel
tekst tíl, þá hafa slík mót
hvetjandi áhrif. Hins vegár ber
þess að gæta að undirbúning-
ur landsmóts krefst svo mik-
illar skipulagsvinnu, að það
getur reynzt erfitt áð géra
hvort tveggja í senn að blása
lífi í íþróttaslarfsemi viðkom
andi byggðarlags og sjá sóma
samlega um skipulagslegu
hliðina. Þá má líka benda á,
að samfara slíkum mótum er
lögð áherzla á uppbyggingu í-
þróttamannvirkja, sem geta
orðið mikil lyftistöng fyrir í-
þróttalíf héraðsins.
— Hvaða íþróttagreinar vill
unga fólkið hjá ykkur stunda?
— Það er margt á döfinni.
Við eigum fáa en ágæta frjáls
íþróttamenn; en ekki sigur-
vegara hér neima í einni grein»
— Gest Þorsteinsson í lang-
stökki. Við eigum liðtækhsund
folk, þó það sé ekki meðal sig
urvegara á þessu móti. Körfu
knattleikur er nokkuð í upp-
siglingu hjá okkur og í hand-
knattleik höfum við verið
mteð í íjöldamörg ár. Knatt
spyrnum'enn höfum við átt
nokkuð góða og erum í úrslit
um á þessu móti (Skagfirðing
ar unnu knattspyrnukeppnina
eftir jafntefli gegn Þingeying-
um í úrslitaleiknum). Við höf
u-m aldrei sett okkur það
mar.k, og getum það vart, að
sigra . stóru félögin í stiga-
keþpni, enda er það ekki aðal-
atriðið.
Guðjón Ingimundarson
lanna samruna
þriggja banka
LONDON, 25. júlí. — Brezka
stjórnin bannaði í dag, að þrem-
ur af stærstu bönkum Bretlands
verði steypt sgman. Er hér um
að ræða bankana Barclay’s,
Lloyds og Marcins. -„Slík sam-
steypa væri ekki í þágu almenn-
ings,” sagði Crosland, verzlunar-
málaráðherra, í neðri málstof-
unni í dag.
Stjórnin mundi ekki með
nokkru móti fallast á, að Barc-
lays og Lloyds sam?inuðust, en
hefði ekkert á móti því, að ann-
arhvor þessara riaabanica
gleypti í sig Martins, sem er
lang minnstur þessara þriggja.
Ákvörðun þessi byggist á
þeirri skoðun, að of mikil ein-
béiting í bankakerfinu sé ó-
æskileg. Samsteypa þessara
þriggja banka hefði orðið fjórði
stærsti banki heims og nofði
sennilega leitt af sér samruna
Midland Bank og National West-
minster Bank.
Frá lagalegu sjónarmiði getur
stjórnin strangt tekið ekki hindr-
að samruna sem þennan, en hins
vegar er talið sennilegast, að
bankarnir fari að vilja ríkis-
scjórnarinnar, segir AFP.
Frá setningu Eiðamótsins. Fánahylling (Ljósm. SJ)
Neita banrsi
London, 24. júlí.
Brezka stjórnin vísaði í öag
á bug þeirri hugmynd að
banna pólitískar skoðanakann-
anir og vaðmól í brezkri kosn
ingabaráttu. Kemur , skoðun
stjórnarinnar fram í ,,hvítri
bók“ um nýj.u kosningalögi)T.
Stjórnin vill lækka kosninga
aldurinn úr 21 ári í 18 — en
það mundi fjölga kjcssndum
um nálega 3 milljónir.
Nefnd fulltrúa allra flokka
hefur-undanfarin þrjú ár rætt
br&ytingarnar á kosningalög-
unum, og sú ókvörðun stjórn-
arinnar að lækka kosningaald
ur og leyfa skoðanakannanir
er frábrugðin meðmælum
nefndarinnar. Vildi nefndin að
ein's lækka kosningaaldurinn
niður í 20 ár.
26. jújí 1968 •— ALÞÝÐUBLAÐIÐ J
i