Alþýðublaðið - 17.09.1968, Síða 2
{MMKW
Bitstjórar: Kristján Bersi Ólafsson (áb.) og BenediKt Gröndal. Simar: 14900
14903. — Auglýsingasími: 14906. — Aðsetur: Alþýðuhúsið við Hverfisgötu,
Reykjavík. — Prentsmiðja Alþýðublaðsins. Síml 14905. — Askrlftargjald kr.
120,00. — f lausasölu kr. 7,00 eintakið___Útgefandi: Nýja útgáfufélaglð bf.
SÆNSKU KOSNINGARNAR
Úrslit 'sænsku þingkosniínganria
urðu með öðruim hætti en fiestir
spáðu. Jafnaðarmenn unnu mik-
inn sigur, (bættu við sig 12 þing-
sætum og náðu (hreinum meiri-
hluta. Hægrifiokkarnir urðu fyr-
ir miklum voribrigðum. Þeir hafa
í marga mánuði ilátið sem þeir
ættu silgur vísian, en rétt héldu
velli, þó þannig að Folkpartiet
tapaði miklu en Oenterpartiet
vann á. Loks biðu kommúnistar
stórfélldan ósigur, og töpuðu 5
iaf 8 þingsætum.
Kosninigaúrslitin ieru talin
mikill persónulegur sigur fyrir
Tage Erlander forsætisráðherra.
Viirðast Svíar ekki vera þreyttir
á forystu hans, enda þótt hann
haifi verið í stöðu sinni í 22 ár.
Erlander hafði rauriar við hlið
sér sveit vaskra, ungra stjórn-
málaimanria, sem ibörðust af
þrótti fyrir Skýrum skoðunum.
Kosningabaráttan var löng og
hörð, og bemur ölilum saman um,
að jafnaðarmenn hafi háð hana
af meiri þrótti og ákafa en
nokkru sinni fyrr.
Meginröksemd gegn jafnaðar-
mönnum í kosningabaráttunni
var, að þeir iværu búnir að sitja
of lengi við völld, það væri kom-
inn tími til skipta. En það þarf
meira til að vinna kosningu í
landi eins og Svíþjóð. Stjórnar-
andstaðan var sundúrleit og
hafði ekkil upp á skýra stefnu að
bjóða á móti ríkisstjóminni, Sví-
ar hafa án efa talið vissara að
fela þeim vö'ldin áfram, sem hafa
tryggt landinu frið og frelsi í
áratugi, bægt frá atvinnuléysi og
haldið þjóðinni á óstöðvandi
framfariabraut á öllum svilðum.
Jafnaðarstefnan héfur í Sví-
þjóð koinið skýrast fram í trygg-
ingamálum, nú síðást hinu stór-
brotna líféyriskerfi fyrir alla
landsmer.n. Þá er þess að geta,
að ríkisválidið hefur traust tök á
efnahagskerfinu sem heild, tök
sem borgaraflokkarnir vilja fá
einkafjármagni í hendur. Árang-
ur hinnar sænsku jiafnaðarstefnu
hefur verið ein beztu lífskjör á
jörðunni, atvinnia og öryggi).
Jafnaðarmenn hafa nýlega
misst meirihluta og farið frá
völdum í Noregi og Danmörku.
Margir töldu líklegt, að þessi þró-
un mundi berast til Svíþjóðar og
fara eins þar. En svo hefur ekki
orðið. Sóknin til hægri í norræn-
um stjórnmálum hefur verið
stöðvuð um sinn.
Það er sérstáklega athygliS-
vert, að isænskir kommúnistar
skyidu tapa miklu fylgi, og það
fólk skyldi ganga í 'lið með jafn-
aðarmönnum. Er fullyrt, að inn-
rásin í Téhkóslóvafcíu eigi megin-
þátt í þessum úrislitum. Þó er
foringi sænskra kommúnista,
Hermanisson, einn þeirra sem
hvað harðast hafa fordæmt inn-
rás Sovétríkjanna. Hefur hann
fgengið svo langt, að Moskvuút-
varpilð hefur séð sérstaka ástæðu
til að ráðast á hann.
Útreið Hermarissons og komm-
únistaflökksins á sunnudag er
sönnun þess, að kjósendur telja
það ’ekki næigilégt, þótt menn
snúist nú öndverði^ á móti Sovét-
ríkjunum, ef þeir hafa verið gall-
harðir bommúnistar árum saman
og varið fyrra ofbeMi állt aftur
á tíma Stailins. Fyrri kjósendur
sænskra kommúnista drógu rök-
rétta ályktun iaf því, sem gerzt
hefur, og greiddu j’afnaðarmönn-
um atkvæði.
Taige Erlander verður án efa
'forsætisráðherra Svía enn um
sinn, þótt hann sé kominn á elli-
launaáidur. Hann og flokkurinn
hafa fengið iljóst umfooð þjóðar-
innar og munu í trausti þess
stýra sænsbu þjóðinni til enn
bjartari framtíðar.
Úrslftín
Framhald af bls. 1.
verið talin, og þangað til geta
liðið nokkrir dagar.
Kosningaúrslitanna í Svíþjóð
var beðið með mikilli eftirvænt-
ingu, en margir bjuggust við
því að eins kynni að fara þar
og í Danmörku og Noregi, að
borgaraflokkarnir næðu þar
meirihluta úr höndum jafnaðar-
manna, og virðast sænskir
stjórnmáiamenn úr þeim flokk-
um hafa gert sér talsverðar von.
ir um að svo færi. Úrslitin
reyndust’ hins vegar mesta trausts
yfirlýsing sem sænskir jafnaðar-
menn hafa fengið frá kjósendum
um margra áratuga skeið, en
þingstaða þeirra hefur ekki orðið
jafn sterk við neinar kosningar
síðan 1940. Er þetta mikið þakk-'
að persónulegum vinsældum Er-
landers forsætlsráðherra, en öll,
um ber saman um það, að úrslit-
in só>’ raikUl .persónulegur sigur
fyrir hann.
2 17. sept- •:< 1968 — ALÞÝÐUB
Arftaki
Frambald af bls. 1.
innx. sumar mjög fljótlega,
m a. er búizt við að Herman
Kling dómsmálaráðherra hætti
jafnvel í þessum mánuði. Og
um eða upp úr áramótum er
búizt við víðtækari breytíng-
um á stjórninni. Og úrslitin
munu gera það alveg öruggt,
að það verður Olof Palme sem
tekur vð af Erlander sem leið-
togi flokksins.
— Þá vekur það einnig at-
hygli að Þjóoarflokkurinn
se— vrr sfærsti borgaralegi
flokkurinn tapar ellefu þing.
sætum, en Miðflokkurinn verð
ur stærsti andstöðuflokkur-
inn, og það er eflirtektarvert
að fylgisaukning Miðflokksins
er fyrst og fremst í borgun-
um, en sá ftokkur hefur hingað
til átt mest fylgi í dreifbýl-
inu. Tap Þjóðarfíokksins er al-
mennt skoðað sem vántraust
á Sveu Weden, seni nýlega
hefur f»!ið við forystu í
flokknum. Yngri menn í Þjóð-
orflokknum hafa margir brugð
izt þannig við úrslitunum að
leggja á það áherzlu, að ekki
megi dragast lengur að sam-
eina Þjóðarflokkinn og Mið-
flokkinn, en Hedlund leiðtogi
Miðflokksins segir nú, að ekk.
ert liggi á því. Hægri flokk-
urinn ætiaði sér að vinna 10
þingsæti, en tapar í staðlnn
allt að 5-
— Þessi úrslit eru geysilega
mikill sigur, og þctta er í
fyrsta skipti síðan 1940, að
jafnaðarmenn hafa hreinan
melrihluta í báðum deildum
sænska þingsins.
Sinnbrot
Framhald 3. síðu.
iðinu, sem þeir hafa haft af því
að koma kassanum á brott með
sér, þar sem engir peningar voru
í honum. Hins vegar voru í hon-
um verðbréf, víxlar og ávísanír,
sem eigendur telja að séu að
verðmætl 4—5 milljónir króna.
Erfitt verður fyrir þjófana að
koma þessum pappírum i form
peninga. Peningakassinn er um
70—80 cm. á ræð en 50 60 cm.
á kant. Kassinn er allþungur og
er talið, að ekki hafi færri menn
en tveir til fjórir getað komið
honum á brott. Þjófarnir hafa
farið upp á .þak hússins, en
helmingur hússins er aðeins
hálfsteyptur. Þeir hafa farið upp
vinnupalla og vinnustiga og
komizt að hurð, sem er aðeins
til bráðabirgða. í gegnum þessar
dyr hafa þjófarnir komizt inn í
verzlunina.
Einnig var brotizt inn í Múla.
kaffi, sem er við hliðina á Hall-
armúla. Þáðan slálu þjófarnir
talsverðu magni áf tóbaki, að því
er talið er 18 lengjum af sígar.
ettum og nokkrum tugum kassa
af smávindlum.
Þá var brotizt Inn í skrifsíofu
Loftórku á Hólatorgi 2 og þaðan
stol'ið 8 þús. kr; í þenihgúm.
Ekkert þessara innbrota upp-
lýstist í iær, en málin eru í
rannsókn hjá lögreglunni.
Erlendar
fréttir í
stuttu máli
DR. SALAZAR forsætisráð
herra Portúgals, sem ný-
lega var skorinn upp vegna ! ►
blóðtappa í höfðinu, versn
aði í gær og er líf hans
talið í hættu. Óstaðfestar
fregnir í Lissabon í gær
hei-mdu, að læknar hans
hefðu grun um að blætt
hefði inn á heilann og
haft var eftir traustum
hebnildum, að dr. Salazar
væri orðinu meðvitundar-
iaus.
TILKYNNT var í Aþenu í
gær, að fyrrverandi stjórn
málamenn í Grikklandi,
sem setið hafa í haldi,
verði látnir lausir næst-
komandi mánudag. Þessi
náðun nær þó ekki til
vinstri .sinnaðra stjórn-
málamanna, sem sitja í
fangavist á eyjunum Leros
og Jaros né heldur til her
manna sem teknþ- voru
höndum eftir byltingart 1-
ra.un Konstantíns konungs
í fyrra.
„FRELISÚTVARPIГ f
Vietnam útvarpaði í gær
hátíðlegri yfirlýsingu þess
efnis, áð hermenn þjóð-
frelsishreyfingar Vietcong
hefðu svarið þess dýran
eið að berjast til s gurs
gegn Suður-Vietnömum og
Bandaríkjamönnum, en
liggja dáuðir ella. Yfirlýs
ingin á að hafa verið gef
in í bréfi til forseta Norð
ur-V etnam, Ho Chi Minh.
SAMKVÆMT frcgnum frá
London hafa hersveitir Ní
geríumanna skotið niffnr
Þyrlu frá Barnahjálp Sam-
einuðu þjóðanna (UNICEF).
Þyrlan var á leíff til Bi-
afra með matvæli og lvf.
Þyrlan, sem vár hvítmál-
uð og greinilega merkt
rauðum krossi, var af gerð
inni S-55. Flugmaðurinn,
sem er Baiidaríkjasnaðúr,
Beck að n«fni, og þriggja
manna áhöfn særðust all-
ir.