Alþýðublaðið - 17.09.1968, Qupperneq 3
Á laugardagskvöldið voru gerðar tilraunir til
íkveikju á tveimur stöðum í Reykjavík og munaði
litlu að stórtjón hlytist a£ á báðum stöðunum. Laug-
ardaginn þar á undan var kveikt í á þremur stöðum
í borginni. Virðist því sem brennuvargur gangi laus
í Reykjavík og er ástæða til að borgarar séu á varð-
bergi, því að sjaldnast láta brennuvargar af iðju
sinni, fyrr en þeir hafa verið settir á bak við lás
og slá.
Á laugardagskvöldið var
slökkviliðið kvatt á tvo staði í
Reykjavík, en á báðum stöðun.
um var augljóst, að eldur var
Iaus af mannavöldum. Annar
þessara staða var að Langholts-
vegi 126, í kjallara mikils verzl.
unarhúss. Kjallari er undir hús-
inu, en í hann hafði verið safn.
að óhemjumiklu af alls konar
Gylfi Þ. Gíslason
Birgir Finnsson
Kjördæmafaing
á Vestfjöréum
Kjördæmisþingr Alþýðuflokksins í Vestf jarðakjördæmi verður
lialdið á Ísafirðí, sunnudag 22. september n.k. og hefst kl. 14.00-
Auk venjulegra þingstarfa munu þeir Gylfi Þ. Gíslason, vara-
formaður Alþýðuflokksins og Birgir Finnsson, alþingismaður ræða
stíórnmálav'iðhorfið.
drasli. Einhver hefur kveikt í
draslinu á laugardagskvöldið.
Hefði slökkviliðið ekki komið
tímanlega til að slökkva eldinn
í draslinu, er ekki að efa, að
stórtjón hefði hlotizt af, þar sem
margar verzlanir eru í húsinu og
þar af leiðandi mikil verðmæti
geymd þar.
Hinn st'aðurinn, sem hér um
ræðir, er heildverzlunarhúsnæði
Kristins Bergþórssonar að
Grettisgötu 3. Undirgangur
hússins hafði verið fylltur af
drasli um kvöldið og síðan kveikt
í öllu saman. Hefði ekki mátt
miklu muna, að eldurinn næði
að dreifast um allt húsið, áður
en slökkviliðsmenn komu á stað-
inn. Sauð á steininum í undir-
ganginum, þegar slökkviliðs-
menn komu og reykur hafði bor.
izt upp á skrifstofur á efri hæð.
Ef rúður liefðu sprugið, áður
en slökkvistarf hófst, hefði þarna
orðið stórtjón.
Laugardaginn næsta á undan
— eða fyrir rúmri viku síðan,
var greinilega um íkveikju að
ræða á þremur stöðum í Reykja-
vík. Fyrst í Timburverzlun Árna
Jónssonar & Co., Laugavegi 148.
Síðan hefur brennuvargurinn
haldið áfram niður Laugaveginn
og staðnæmst við Laugaveg 91,
en þar er verið að byggja nýtt
hús, þ. e. beint á móti Stjörnu-
bíói. Þegar slökkviliðið kom
þangað, voru vinnupallar þegar
byrjaðir að brenna Áfram hefur
brennuvargurinn haldið niður
Laugaveginn og staðnæmdist þá
við Laugaveg 38, þar sem hann
hélt iðju sinni áfram. Ekki varð
þar mikill eldur eða tjón, en þó
að ekki hafi hlotizt tiltakanlegt
tjón á neinum þessara staða, þar
sem brennuvargurinn hefur lagt
leið sína á, er hér um að ræða
afar alvarlegt mál.
þau sé leikið. Þeir sögðust enga
vitneskju hafa um íslenzka knatt
spyrnu aðra en þá, er portúgalsk
ir blaðamenn, sem hingað komu
fyrir skömmu, báru þeim.
Þeir vóru spurðir hvort þeir
myndu heldur leggjá áherzlu á að
sl^ora sem flest mörk eða sýna
sem bezta knattspyrnu og svör-
uðu þeir því til, að þeir myndu
gera hvort tveggja.
Þá spurðu blaðamenn Portú-
galana hvort' þeir vissu, að Valur
væri eitt af fáum liðum í Evrópu
sem aldrei hafa tapað leik á
heimavelli í Evrópubikarkeppni.
Þessu svöruðu Portúgalarnir því
einu, að þeir myndu gera sitt
bezta á miðvikudaginn til þess
að áframhald yrði ekki á þeirri
sigurgöngu. Kvað þá við hlátur
í salnum.
MILLJÍA^
VIRÐIRÆNT
Brotizt var inn á þremur stöð.
um um helgina. í Hallarmúla s.f.
var heilum peningakassa stolið.
Ekki munu hafa verið peningar
í kassanum, en í honum voru
verðbréf, víxlar og ávísanir að
verðmæti-'4—5 milljónir króna,
að því er eigendur telja. Þá
var brotizt inn í Múlakaffi, sem
er við hliðina og þaðan stolið
talsverðu magni af sígarettum
og smávindlum. í skrifstofu Loft
orku á Hólatorgi 2 var stolið 8
þús. krónum. Óhætt er að segja,
að þjófarnir hafi ekki verið að-
gerðalausir um helgina, frekar
en endranær. Líður nú varla sú
nótt, að þjófar steli ekki verð-
mætum í stórum stíl eða valdi
meiriháttar skemmdum á þeim
stöðum, sem þeir brjótast inn á.
Aðfaranótt mánudagsins var
brotizt inn í Hallarmúla s.f. Þjóf-
arnir höfðu þaðan á brott með
sér peningakassa. Varla hafa
þjófarnir mikið upp úr öllu erf.
ÍMWtWMWtWWWWWWWMMWMWWWWMMHtMM^WWWVWWMWWWWMWWWMiWHWWMMWWVM|%%V Frh. á 2. SÍðu.
■17. sept. 1968 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3
Partúgalarnir viS komuna f gærs:
Gerum þa5 sem
getum!
Hópur eftirvæntingarfullra
knattspyrnuaðdáenda beið á
flugvejlinum í gær eft'r knatt
spyrnuliðinu heimsfræga Ben-
fica. Klukkan rúmlega 18
lenti þota Flugfélagsins á vt'll
inum með liðið og' eftirvænt-
ing'n óx. Þegar liðsmenn tóku
að birtast í dyrum flugvélar-
innar kváðu við fagnaðaróp úr
mannfjöldanum. í Iandgangn-
um stóð brátt allt liðið nema
— snillingurinn Eusébio.
Menn urðu þrumu lostnir.
Það kom í ljós á blaðamanna.
fundi, sem haldinn var að hótel
Loftleiðum skömmu eftir komu
l ðsins, að E.usébio hafði orðið
eftir í París til að veita viðtöku
gullskó, sem viðurkenningu sem
markhæsti knattspyrnumaður
Evrópu á þessu ári. Hann kæmi
hins vegar á morgun kl. 3,15'
með flugvél.
Á blaðamannafundinum á Hót'-
el Loftleiðum ræddu leikmenn.
irnir Coluna, Augusto, Torres og
Simoes við blaðamenn ásamt að-
alformanni Benfica. Var túlkur
til aðstoðar.
Portúgalarnir voru síður en
svo sigurvissir, allavega ekki á
yfirborðinu, og töldu leiki verða
erfiða og öll lið þess virði að við
MMVVVVMMMMMMMWMMMMVWMVMWMMMMMMMMMMWMVMMMMVMMMMMWMMMMMWMVWVMMMMMVMVVWVVWM
Karlmannaskór og koníaks-
flaska komu fljúgandi niður
Frá því fyrir helgi hefur In-
terpol, alþjóðalögreglan, velt
vöngum yfir munum, sem
komu þjótandi ofan úr loftinu
við Eystirasaltsströnd Þýzka-
lands á föstudaginn. Bóndi í
Ostermade í Slésvík tók eftir
því þann dag. að karlmanna-
skór komu allt í elnu þjót.
andi til jarðar rétt hjá hon-
um, á eftir þeim kom konjaks.
flaska, síðan pillustaukur og
að lokum lyfjaglas, og ekkert
af þessu brotnaði við fallið.
Lengra frá sá hann ýmiskonar
fatnað koma niður og falla í
sjóinn-
Lögreglan í Oldenburg lét
þegar í stað spyrjast fyrlr inn
það hjá flugfélögum, sem ann-
ast ferðir milli Norðurlanda
og meginlandsins, hvort far.
angur hefði týnzt, en fékk alls
staðar neitandi svar, og í gær
var Interpol tilkynnt um mál-
ið.
Á lyfjaglasinu sem fannst
stóð nafn elgandans, Jens
Lange Lyche framkvæmda-
stjóri frá Hönefoss í Noregi,
og líklega hefði lögreglan í
Oldenburg strax getað leyst
gátuna, hefði hún sett sig í
samband við hann. Lange
Lyche segist hafa flogið með
SAS-vél frá Hamborg kl. 13,20
á föstudaginn og komið tösku-
laus til Oslóar. ítrekaðar eftlr-
grennslanir hjá SAS í Osló
báru engan árangur, en nú
hefur komið í ljós, hvað af
töskunni hefur orðið. Lange
Lyche segir að sér komi þáð
hins vegar spánskt fyrir sjón-
ir, að lögreglan í Oldenburg
hefði snúlð sér til Interpol
með málið í stað þess að hafa
beint samband við hann.