Alþýðublaðið - 17.09.1968, Side 7
Ifi
Rætt við Elínborgu Ágúsfsdóttir, Ólafsvík:
Húsmæöur á Snæfells-
halda orlofsviku
Orlofsvika húsmæðra í Snæfellsness- og Hnappadalssýslu var að
Búðum 2. til 8. sept. sl. og var þetta í 5. sinni síðan orlofsvika
húsmæðra var upp tekin. 45 konur á aldrinum 24 til 81 árs voru í
dvölimii að þessu sinni. Orlofsnefndir í héraðinu eru tvær:
frú Ólöf Ágústsdóttir, Lauga.
gerðisskóla, Eyjahr.
— Ásthildur Teitsdóttir, Hjarð
arfelli, Miklah.hr.
Ragnl^jfður Jónsdóttir,
Brautarholti, Staðarsveit.
— Kristbjörg Jónsdóttir, Felli,
Breiðuvík.
— Arndís Þorsteinsdóttir,
Syðstu-Görðum, Kolbeins-
staðahr.
Norðan f jalls :
frú Unnur Jónsdóttir, Stykkis-
hólmi.
— Lára Jóelsdóttir, Innra-
Leiti, Skógarströnd.
— Ragnheiður Þorgeirsdóttir,
Helgafelli, Helgafellssvt(it.
— Ólöf Þorleifsdóttir, Grafar-
nesi.
— Hrefna Magnúsdóttir, Hell-
issandí.
— Elinborg Ágústsdóttir, Ól-
afsvík, sem var stjórnandi
ásamt' frú Unni Jónsdóttur,
Stykkishólmi.
Frú Elinborg Ágústsdóttir
hafði þetta að segja um orlofs.
dvölina:
I
B ú ð i r eru sérstaklega heppi
legur staður sem orlofsdvalar-
staður húsmæðra, sökum nátt-
úrufegurðar. Staðurinn virðist
hafa eitthvert það aðdráttarafl,
að sá, sem hefur verið þar einu
sinni, langar þangað aftur. Húsa-
kynni eru þar góð og öll þjón.
usta. Síðast en ekki sízt vil ég
nefna hótelstýruna, Lóu Kristj-
ánsdóttur, sem «r eins og móðir
staðarins. Alla hennar aðstoð
okkur til handa, þökkum við or-
lofsnefndarkonur.
Ég vil sérstaklega taka það
fram, að hér er ekki um líknar-
starf að ræða eða konur séu að
þiggja neina ölmusu, heldur er
hér um að ræða sjálfsögð lög.
skipuð félagsleg réttindi fyrir all
ar húsmæður á öllum aldri. Að-
sókn að þessum orlofsdvölum er
alltaf að aukast. Þær, sem hafa
farið einu sinni, vilja fara aftur,
en hinar ganga fyrir. Sú nýjung
barst í þessa orlofsdvöl, að Elna
Bárðardóttir frá Grundarfirði,
ein dvalarkonan, efndi til happ-
rættis innan hópsins. Vinningar
voru heimaunnir munir, sem
Elna vann sjálf. Andvirði þess
gaf hún í orlofssjóð. Einnig bár-
ust okkur peningagjafir frá dval.
arkonum öllum.
Þetta er þakklátt starf. Kon-
urnar eru mjög ánægðar með
dvölina og hafa gaman af að
lís-ggja sitt af mörkum til skemmt
unar. Það eru ótrúlegir skemmti-
kraftar, sem finnast meðal hús-
mæðranna og kemur fram á
kvöldvökunum. Leitast er við að
hafa kvöldvökurnar samansettar
af fróðleik og með sem mestum
rricnningarsvíp, ásamt léttara
efni. Á kvöldvökunum var sung.
ið, Baðstofuþáttur með tóvinnu,
sögulestur, kveðið svo og skálda-
kvöld. Lesið úr verkum Guð-
mundar Kambans og Davíðs Stef-
ánssonar. Hver kvöldvakan end.
aði með því, að konurnar fóru
sameiginlega með faðirvorog
sunginn var sálmur og á leftir
var gengið til náða.
Eg gat þess í upphafi, að eink-
unnarorð hópsins voru þessi orð
lögfræðingsins: EINN FYRIR
ALLA OG ALLIR FYRIR EINN.
Það var sannarlega haldið í þess
um hóp. Ég get ekki hugsað mér
samstilltari sálir, þótt hópurinn
væri mjög blandaður, sú elzta
81 árs en sú yngsta 24 ára. En
það gefst oft bezt, að hafa hóp-
inn blandaðan. Þá gefa kon.
urnar bezt hver annarri ungar og
aldraðar.
Fyrsta kvöldið kynnti Árni
Óla, rithöfundur, staðinn Búðir.
Hann fór einnig með konurnar
í Búðakirkju. Þar sagði hann
sögu kirkjunnar, sem er sérstök
og merkileg.
Hannes Hafstein, erindreki
Slysavarnafélags íslands, sýndi
fræðslumyndir um umferðarmál*.
og allskyns slysahættu. Hann
flutti erindi um slysavarnir í
heimahúsum, benti á margar var
úðarráðstafanir varðandi raf-
straum o. fl. Hann kenndi blást.
ursaðferð og lífgun úr dauðadái,
sýndi, hvernig ætti að skilja við
slasaðan mann á slysstað, ef
nauðsyn bæri til að skilja slas-
an mann eftir á slysstað. Hann
uppfræddi konurnar um margt',
sem að gagni má koma fyrir hús-
mæður.
Þetta er algjör nýjung á or-
lofsvikum okkar og voru konurn.
ar afar þakklátar Hannesi fyrir
komuna og allan þann fróðleik,
sem hann miðlaði þeim. Það er
ekki lítils virði fyrir sérhverja
konu að vita, hvað gera skal, unz
næst í lækni, ef slys ber að hönd-
um. Það getur munað mannslífi.
Þá flutti Sigurður Helgason
skólastjóri í Laugagerðisskóla, er-
indi um samstarf heimila og
skóla. Var það mjög fróðlegt og
átti erindi til allra mæðra og
uppalenda.
Organleikari í orlofsdvölinni
var frú Kristín Þorleifsdóttir,
Þverá, Eyjahreppi.
Á laugardagskvöldið var dans-
leikur og lék Sturla Böðvarsson
frá Ólafsvík á harmoniku. Kon.
urnar dönsuðu af miklu fjöri
hver við aðra. Á sunnudag var
guðsþjónusta í Búðakirkju. Séra
Magnús Guðmundsson, Grundar.
firði, messaði. Organleikari var
frú Áslaug Sigurbjörnsdóttir, en
meðhjálpari Sigurbjörn Gísla-
son.
Orlofsstarfið, sagði Elinborg,
að lokum, er mér mjög kært og
ánægjulegt að vinna að því. Dýr.
mætustu launin eru kærleiksbros
frá konunum, því að: eítt' kær.
leiksbros getur dimmu í dags-
birtu breytt.
Frú Elínborg Ágústsdóttir les
upp á kvöldvöku að Búðum.
Og ég þakka frúnni ánægjulegt
og fræðandi viðtal.
Ottó Árnason.
AUGLÝSING
frá lánasjóði íslenzkra námsmanna
Auglýstir eru tifl. umsóknar lán og styrkir
úr l'ánasjóði íst. námsmanna, skv. lögum nr.
7, 31. marz 1967, uim námslán og námsistyrki.
Umsóknareyðu'blöð eru afhent á skrifstofu
stúdentaráðs og S.Í.S.E. í Háskóla íslands,
hjá Menntaimál'aróði, Hverfisg. 21 og í sendi-
ráðum íslands erlendis.
Umsóknir skiulu hafa borizt í síðasta laigi
fyrir 15. nóv. 1968.
Úthlutun lána og styrkja fer fram í janúar og
fe'br. n.k.
Lánasjóður ísl. námsmanna.
Búðir á Snæfellsnesi.
flti . ö dut ■ iiiit ÍMHi
Héraðslæknisembætti
auglýst laust til umsóknar
Eftirtalin héraðslæknisemibætti eru laus
til umsóknar: Reykhólahérað, Flateyrarhér-
að, Suðureyrarhénað, Austu|r-Egilst|aða!hé|rálð
og Djúpavogshérað.
Umisófcnarfrestur um héruðin er titl 16. októ-
ber n.k.
Flateyrar- og Austur-Egillstaðahérað veitast
frá 1. mjvember n.k., en hin þegar að umsókn
arfresti loknum.
Laun samkvæmt l'aunakerfi opinberra starfs-
manna og staðaruppbót samkvaamt 6. gr.
læknaskipunarlaga.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið,
16. september 1968.
tfíi',
17v.sept. 19.6.8 - ALÞÝÐUBLAf)IÐ J