Alþýðublaðið - 17.09.1968, Page 15
þekkti konuna. Hún myndi aldr.
ei láta Harris komast upp með
annað eins. En.. hann tók um
hönd hennar andartak. — Ef
þér viljið heldur að málið sé
látið í kyrrþey liggja, þá vona
ég að hann hafi þegar fengið
ráðningu.
— Eg held, að þér þarfnist
þess að gleyma þessu kvöldi,
sagði Alan, þegar þau komu
ú't 'á þjtóðv(egin!n. — Hvennijg
lízt yður á að þiggja boð, sem
ekkert þarf að borga ífyrir?
Gætuð þér hugsað yður að
snæða með mér kvöldverð í
næstu viku? Það væri mér sönn
ánægja, ef þér svöruðuð jál'_
andi.
Þetta hafði verið viðburðaríkt
kvöld, en þetta voru einnig það
góð endalok, að hún gleymdi
þessum tveim, andstyggilegu
mönnum.
— Þökk fyrir, sagði Kay ró_
lega. — Ég þigg boðið með þökk-
lim.
—Indælt! Það er góður matur
á Benchley hóteli. Þakkið þér
þann stað?
Þetta var bezta og dýrasta
hótelið í borginni og þau Trevor
höfðu aldrei haft efni á að fara
þangað, svo að hún sagðist aldr,
ei hafa komið þar.
— Eigum við að segja á mánu-
<Saginn? Má ég sækja yður klukk.
an sjö?
— Ég held, að það verði í lagi.
— Það gerir ekkert, þó að þér
verðið dálítið seinar fyrir. Ég hef
ekkert á móti því að bíða þegar
biðin er þess virði!
En þeir gullhamrar! Hann lét
hana finna, að honum fyndist
það heiður, ef hún færi út með
honum. Hann hélt ekki, að allt
væri sjálfsagt!
— Ég heyrði Harris nefna yð-
ur með fornafni, sagði hann.
— Heitið þér ekki Kay?
— Jú, Kay Lester.
—r Má ég kalla yður Kay?
— Ef þér ^viljið . ..
— Það vil ég gjarnan. Ég heiti
Alan — Alan Dyson.
„Kay. Alan. Þau brostu og hún
hló að sjálfri sér fyrir að hún
hafði látið, sem hún vissi ekki,
hvað hann hét. Ejns og hún hefði
ekki haft áhuga fyrir honum
frá því fyrsta.
Þegar liann ók lienni að búð-
inni, reyndi hann ekki að kyssa
hana og fá þar með björgunar-
Iaunin. Hann lét henni finnast
hún sem drottning, er hún gekk
að dyrunum. Hún leit við, þeg-
ar þar kom. Hann veifaði til
hennar og hún veifaði á móti.
Hún sagði ungfrú Forsythe
alla söguna daginn eftir. Fyrst
var ungfrúin áhyggjufull, en svo
hló hún.
— Yið getum komizt af áti
Stan Harris, sagði hún. — Ég
held, að síðasta afgreiðslustúlk.
an hafi farið hans vegna. Hún
vildi aldrei afgreiða hann. Ætli
það sé ekki ágætt, að honum
var sýnt í tvo heimana.
Kay, sem var að raða í hill-
urnar skildi, að hún hafði ekki
Sagt sannleikann. Einhverrar
ástæðu vegna hafði hún ekki get-
að sagt frá Martin Fletcher.
Hvers vegna var hún alltaf að
hugsa um hann? Hann, sem var
jafn andstyggilegur og Stan.
Gleymdu honum, sagði hún við
sjálfa sig. Hann er ekki þess
virði, að þú hugsir um hann.
Það var yndislegt að finna,
að hún var mikils virði og að
sijanað var við hana á hótelinu.
Hún hafði lagt sig fram til að
verða eins falleg og hægt' var
og farið níðþröngan, ljósbláan
kjól og bláa kápu með hvítum
bryddingum. í þetta skipti hafði
hún sett svart' hárið hátt upp
til að vera glæsileg.
Álan talaði hvorki um augu
hennar, munn né vöxt. Hann
sagði aðeins: — Þér eruð yndis-
leg! og það þannig, að henni
fannst hún vera yndisleg. Hann
talaði um starf sitt og hún kunni
að hlusta. Hann kallaði það
„smábarnaskrifstofu” og sagðist
hafa erft hana eftir föður sinn.
Hins vegar vonaðist hann til
þess að komast að hjá stærra
lögfræðifyrirtæki seinna. Þau
horfðu á kvikmynd um kvöldið
og hann keyrði hana heim.
Það var ekki fyrr en Alan
hafði boðið henni fjórum eða
fimm sinnum út, sem hann
reyndi að halda aftur af henni,
þegar hann hafði ekið henni
heim. En það var aðeins með því
að snert'a hana lé.tt á handlegg,
inn og liún gat dregið höndina
að sér ef hún vildi.
Við höfum hitzt oft undan-
farið, Kay, sagði hann, — og ég
hef notið þess að vera samvista
við þig. — Það liefur allt' breytzt
eftir að þú komst. Hér er ind-
ælt að vera núna, áður fannst
mér ég vera grafinn lifandi
hérna.
Það hafði aldrei neinn talað
svona við hana fyrr. Hún leyfði
honum að halda um handlegg
sinn og leit á hann. Hann t'ók
utan um hana og dró hana að
sér. Hún hafði beðið kossa hans
og það gladdi hana að biðtíman.
um var lokið. Hikandi, blíðlegur
koss.
Hann leit upp strauk yfir hár
hennar. — Finnst þér gott að
umgangast mig Kay?
Hún grúfði enn andlitið nið-
ur við öxl hans. — Ég hefði
aldrei farið svona oft út með
þér, Alan, ef mér þætti ekki gott
að umgangast þig og vera nálægt
þér.
Hann tók hana aftur í faðm
sér og kyssti hana. Henni fannst'
töfrarnir vera maðurinn sjálfur,
en ekki tunglsljósið og brúin
yfir fljótið í dálítilli fjarlægð.
2. KAFLI
Alan ræddi oft framtíðina,
þegar þau hittust'. Um það hvers
konar skrifstofu hann vildi reka.
Hann talaði við hana í trúnaði
eins og hann áliti hana merka
manneskju. Og hann minntist
hvað eftir annað á Martin Fletch
er. Það átti að taka nýtt mál
fyrir milli hahs og bóndans,
sem átti jörðina við hliðina á
honum, Stúarts Greaves. Alan
sagði, að þeir hötuðu hvorn ann-
an eins og pestina.
Ætli það væri nokkur sá' mað_
ur til, sem Martin Fletcher ekki
hataði eins og pestina?
— Fletcher höfðaði málið í
þetta skipti. Hann heldur því
fram að kindur frá honum hafi
ráfað inn á landareign Greaves
og að Greaves hafi markað sér
þær. í fyrsta lagi hefði Fletcher
aldrei átt að hleypa kindunum
sínum á beit inni á landareign
Fletchers. í öðru lagi getur hann
ekki sannað að þetta séu hans
kindur. Hann á sjálfur að marka
sínar kindur.Það er mér sönn
ánægja að verja Greaves.
Alan fór að tala um annað
og Kay gleymdi þessu. Þetta kem
ur mér ekki við, luigsaði hún.
Hún vissi ekki, hvað þetta mál
átti eftir að verða þýðingarmik-
ið í lífi hennar. Hún vissi ekki
einu sinni, hvaða dag málið yrði
tekið fyrir. Þann dag, sem átti
eftir að gjörbreyta lífi hennar ..
Vitanlega hitti hún af og til
Martin Fletcher, en svipbrigða-
laust andlit hans og kuldalegt
augnaráð kom henni til að svara
honum í sömu mynt. Það var
engu líkara en atvikið með Stan
Harris hefði aldrei komið fyrir.
Stan hafði lært sína lexíu og nú
var hún vinkona Alans Dysons
— allir virtust líta á' það sem
staðreynd þessa dagana.
Kvöld nokkurt varð hún að
bíða eftir Alan, en það var mjög
óvenjulegt. Hún varð hrædd.
Hann myndi naumast hafa látið
hana bíða svona lengi án þess
að liringja, nema eitthvað alvar-
legt hefði komið fyrir? Hún vissi,
hvað hún myndi taka það nærri
sér, ef hann kæmi alls ekki og
hefði enga ástæðu til að geta
ekki komið.
Svo kom bíllinn. Hana lang.
aði mest til að hlaupa út og
heilsa honum, svo ákvað hún að
fara sér hægt og sýna honum
ekki, hvað liún hefði verið skelfd.
— Fyrirgefðu, hvað ég kem
seint'! Alan stökk út úr bílnum
og til hennar. — Ég tafðist í Bel-
chester og gat ekki hringt frá
skrifstofunni, svo ég ákvað að
aka hingað eins fljótt og ég mögu
lega gæti.
Hann var afar virðulegur í dökk-
gráu fötunum sínum. Hann
minnti á eftirsóttan lögfræðing.
— Það var Fletcher_málið, sagði
hann. — Það var heppilegt' að
við gátum lokið því á einum degi.
Fletcher hafði kallað þessa
heimsku vinnumenn sína sem
vitni. Og hann þurfti svo mikið
að kvarta yfir Greaves, að dóm-
arinn varð að skipa honum að
gæta orða sinna. En nú skulum
við vinna upp tapaðan t'íma, Kay!
En hún stóð grafkyrr, undrandi
yfir þeim áhuga, sem húnhafði
fyrir málinu.
— Svo það var í dag, sagði
hún. — Hvað kom fyrir?
— Fletcher tapaði auðvitað.
Hann gat ekki sannað, að kind.
urnar hans hefðu villzt inn á land
Greaves. Hann hélt því fram, að
Greaves hefði viðurkennt, að
hann hefði markað sér kindurn-
ar og hlegið að honum fyrir að
hafa gefið slíkt færi á sér. En
TR0LOFUNARHRINGAR
i Fl|6t afgréiSsla
| Sendum gegn póstkr'ofil.
OUDM; ÞORSTEINSSOH
gullsmiður
Banftastrælí 12.,
Frá barnaskólutn
Hafnarfjarðar
11 og 12 ára nemendur og nemendur í ungl-
ingadeild eiga íað mæta miðvikudaginn 18.
ísept. sem hér segir:
12 ára M. 10
11 ára kl. 11.
Uwglingadeilld !kl. 13.30.
Fræðslustjórinn í Hafnarfirði.
Á HVERJU HAUSTI
innritast fjöldi Reykvíkinga í Málaskólann Mími.
Aldur skiptir ekki máli, nemendur eru frá átta ára aldri
til áttræðs. Þjónusta skrifstofu Mímis á sér enga hliðstæðu
hérlendis. Er skrifstofan opin kl. 1-7 e.h. meðlan á innritun
stendur og frá 2-11 e.h. eftir að kennsla hefst. Hvers ósk-
ið þér? Byrjandi? Gagnfræðingur? Stúdent? Mímir hef-
ur flokka fyrir allar tegundir nemenda. Fyrir eða eftir
kvöldmat? Fremur á mánudögum en föstudögum, Mímir
vinnur þrotlaust að því að leysa hvers manns vanda. Fyrsta
flokks þjónusta, fyrsta flolds kennsla. Þetta vita nemend-
ur Mímis. Þess vegna koma þeir aftur.
Málaskólinn Mímir
Brautarholti 4
símS 1 000 4 og 111 09 (kl. 1-7 e.h.).
17. sept. 1968 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ- |,5