Dagur - 24.12.1949, Side 29

Dagur - 24.12.1949, Side 29
29 •i l ■ I • ■ • . . JÓLABLAÐ DAGS C. O . f'J.'!" I 'i : pg, kynnuni af ],nönnuin og málefn- iuyi0 sem geta; yerið eftirminni'leg og skemmtileg, þótt um stutta stund sé. Það er nær því ómetanleg ánægja, að eiga þess kost að sjá ein tvö þrjú úrvalsleikrit á hinum ágætu, gamaldags leikhúsum Lund- únaborgar. Og úr miklu er að velja. Eg get nefnt t. d. leikrit á liorð við „Death o fa Salesman“, með Paul Muni í aðalhlutverkinu, ,,A Street Cre named . Desir,e“, með Vivian Leigh, „She Stops to Conquere", með Michale liedgrave og Dinah Churchill (tengdadóttur gamla mannsins), o. fl. o. fl. Og svo eru það söfnin, sem öllum eru opin, og þau eru mörg, fögur og merkileg, og mundi taka hálfa mannsævi a. m. k. að kynnast þeim öllum til hlít- ar. Og fornfrægarbyggingar,garðar, minnismerki og sögulegar minjar blasa hvarvetna við. Þó lifir þessi borg ekki í fortíðinni. Hér er verið að byggja fyrir framtíðina. Víða má sjá rústir eftir sprengjuárásir Þjóð- verja. Heil, auð svæði inni í sjálfri borginni. Og hér má sjá endurreisn iná að verki, þá endurreisn, sem gengur hægt og hljóðlega fyrir sig, en örugglega þó, og styðst ekki við •grammófónphitur né nýsköpunar- glannir, lieldur raunhæft mat á ínöguleikunum. Þegav liér er komið í þessum skrilum,. er mér ljóst orðið, að það rúm, sem eg hafi ætlað til þeirra í þessu jólablaði, mun hvergi nærri duga til þess að gera því elni skil. sem upphaflega var þó ætlunin að ræða í þessari grein. En það var einn dagur í brezka Parlamentinu. Það kemur nefnilega stundum fyrir okkur blaðamennina, sem góðvilj- aðir náungar kalla blaðasnápa á stundum, að við þurfum að skril'a greinar okkar eftir hendinni, ef svo má kalla, og fylla ákveðið rúm í blöðunum, þegar annað efni er ekki tiltækt. Og þannig er þessi grein til orðin, að luin gengur beint frá ritvélinni í setjarávélina, og efni hennar og lengd er sniðið eftir því, hversu blýdálkarnir á auðu blaðsíðunum lengjast, og hún verður að enda síðast á. bls. 30, því að eftir það er ekkert rúm, nema hið eilífa, sem enginn endir er á. En snúum okkur þá að Parla- mentinu. Eg var svo heppinn fyrir 12 árum, að eyðá einum ævidegi í Parlamentinu. Þá voru lriðsamir tímar, sem kallað var. Þá var Bald- win forsætisráðherra og Chamber- lain fjármálaráðherra, en Eden ut- anríkisráðlrerra. Eg fékk þá ,eins og nú, að vera viðstaddur spurninga- tíma, sem áhorfandi á þingpöllum, og heyra þessa heiðursmenn og fleiri neðci mikilsverð mál. Það var Alexander, núverandi landvarnar- ráðherra, sem greiddi mér götu inn í þingsalina, en þá var hann ekkert nema óbreyttur þingmaður Sam- vinnuflokksins og enginn vissi, að fyrir honum ætti að liggja að verða hermálaráðherra í heimsstyrjöld né heldur landvarnarráðherra í kalda stríðinu. Að þessu sinni átti eg skipti við óbreyttan þingmann Verkamanna- flokksins, sem hefur dvalið liér á íslancli og er okkur mjög:'viiíveiit- ur. En enginn kemst inn á þingpall- ana í Parlamentinu nema sá, er hefur aðgöngukort frá þingnianni. Eg. fékk aðgöngukort að Parla- mentinu fimmtudaginn- 24. nóvem- ber sl. og eyddi raunar mest öllum þeim eftirmininlega degi í Jjví virðtdega húsi, sem frekar fnaatti þó kalla flæmi en hús, borg frekar en höll. Mér var sagt, að 1100 vistar- verur væru þar, og trúi því vel. Áð- ur en eg komst inn í þingsalinn, hafði hinn ágæti þingmaður fylgt mér um húsakynnin, og var jiað mikil göngnlör og íleira að sjá en hægt er að telja upp í vetfangi. En jjótt jiað, sem fyrir augun ber, sé í senn fagurt og markyert, fannst mér Jjé) meira til um að heyra sitt hvað um hina gömlu, géVðu siði, sem Parlamentið hefur enn í gildi, þé)tt mörgum hvatvísum nútíma- manni finnist slík fastheldni við fornar dyggðir furðu hjákátleg. — Eftir að þeirri miklu göngúför lauk, dvöldum t ið um stund á ])ing- mannabarnum, sem er virðuleg stofnun og henni í heiðri haldið, eins og Breta er von og vísa. Þaðan lá leiðin inn í matsal þingmanna. Þótti mér Jrar allt furðu spaíitanskt og ekki mikil tilraun gerð til [)ess að samræma Jiessar daglegu vistar- verur löggjafanna við annan bún- irtg hússins né umhverfi málstof- anna. Meiri tilraun hefur víst verið 'gerð til Jaess í Kringlu okkar í J)ing- húsinu í Reykjavík og mun þó naumast sagt verða, að löggjafar- störfin, sem ráðin liala verið ])ar, hafi betur gefizt Jijóðinni en um- ræður brezku þingmannanna á hörðum stólum í matsal Parla- mentisins. Eftir það hófst spurningatím- inn. Þessi þáttur í starfi brezka þingsins er merkilegur og er sá gluggi, sem jijóðin sér beza um inn í hið virðulega löggjafarjnng, Þá skjóta þingmenn spurningum að ráðherrum um allt milli himins og járðar og þeir standa þar ;og svara ‘ fyrir sig og sín störf, og þer þá oft við, að gagnrýni vérður horð frá. þingbékkjúm stjórnarsinna , ekki síoúr én stjörnarandstæðinga. Sá, eg og héyrði Jaess mörg dæmi þennan eftirminnilega dag. Þarna’ sprutlu upp, hver af öðrum, Bevin, Áttlee, Morrison (skemmti legastur Jieirra allra), Chuter Ede, Tomlinson o. s. frv. o. s. frv. Cegnt Jjeim sat stjórn- arandstaðan. Innstur Eden, þá Oliv- Stanley, einn hinn orðsnjallasti maður á þinginu, og svo hver af öðrum. En eitt skorti á: Gamli mað- urinn var ekki mættnr, var veikur heima með kvef. Var Jrar mikils að sakna lyrir forvitinn, erlendan ferðalang.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.