Dagur - 28.01.1953, Blaðsíða 10
10
D A G U R
Miðvikudaginn 28. janúar 1953
Frumvarp Sjálfstæðsmanna
(Framhald af bls. 4).
- Frá fundi Bændaldúbbsins
(Framhald af 7. síðu).
reglur eru um álagningu útsvar-
anna. Enginn stafkrókur er held-
ur í fi-v. þessu um það, að nokkuð
af hagnaði gjaldenda af skatta-
lœkkun frv. eigi að renna til bæj-
ar- eða sveitarfélaga.
En hér er einmitt komið að
kjarna málsins. Lög um skatta til
ríkissjóðs og útsvör til bæjar- og
sveitarsjóða þarf að undirbúa' og
afgreiða samtímis. Þetta var Alþ.
ljóst í fyrra, þegar það samþ.
ályktun um heildarendurskoðun
laga um skatta og útsvör. Og
skattamálanefndin stefnir að því
í starfi sínu að samræmdum till.
um þetta hvoru tveggja. Þegar
sett eru lög um skatta til ríkisins,
þarf að hafa hliðsjón af því, hvað
útsvörin nema miklu, svo að
hæfileg takmörk verði sett fyrir
heildargreiðslum gjaldenda, jafnt
einstaklinga og bæjar- og sveit-
arsjóða. En fram hjá þessu er al-
veg gengið í frv., sem hér ljggur
fyrir. Þar eru aðeins till. um fá-
ein atriði viðkomandi tekjuskatti
til ríkisins, en ekkert hreyft við
útsvarsmálinu. Auk þess er aðal-
efni frv. þannig, eins og eg hef
þegar sýnt, að ekki er hægt að
fallast á það.
Skattabyrðin.
Hv. frams.m. málsins var í ein-
um kafla ræðu sinnar að tala um
það, hvað skattahækkunin á al-
menningi hefði orðið mikil á und-
aeförnum árum, án þess að
kvæðum skattalaganna hefði ver-
ið breytt. Eg vil út af þessu í
ræðu hans vekja athygli á því, að
í gr.g. með frv., neðst á bls. 5,
segir; með leyfi hæstv. forseta:
„Með hliðsjón af tekjuskattsstig-
anum sjálfum hefur engin raun-
veruleg aukning á skattþunga frá
árinu 1952, af tekjum 1951, átt
sér stað hjá þeim, sem njóta um-
reiknings á tekjum.“ Og síðast í
þeirri sömu málsgr., á bls. 6, seg-
ir( með leyfi hæstv. forseta — þar
sem verið er að skýra frá því, að
birt sé tafla þar á eftir um skatt-
greiðslurnar, — þar segir á þessa
leið: „er þetta hvort tveggja sett
fram í eftirfarandi töflum, og
mun það nægja til þess að sýna
fram á, hvernig óbreyttir skatt-
stigar hafa aukið raunverulega
skattbyrði þeirra aðila, sem ekki
njóta umreiknings á tekjum, en
þeir, sem njóta umreiknings, hafa
staðið í stað.“
Nú liggur það fyrir, að á þessu
nýbyrjaða ári, þá munu allir þeir
einstaklingar að fullu njóta um-
reikningsins, sem hafa allt upp í
68,850 kr. tekjur, og það held eg,
að við getum ekki kallað lágtekj-
ur eins og nú er ástatt.
Það er margt, sem taka þarf til
athugunar við endurskoðun
skatta- og útsvarslaga. Við
ákvörðun tekjuskatts þarf, eins
og eg hef áður vikið er, að hafa í
huga, hvað útsvörin nema miklu,
og setja fyrirmæli um þau, svo að
samanl. upphæðir þessara út-
gjalda fari ekki úr hófi fram. Það
þarf að fyrirbyggja, að félög verði
látin borga samtals í ófrádráttar-
hæft skatta og útsvör meira en
sém nemur öllum skattskyldum
tekjum þeirra, eins og nú á sér
stað í mörgum tilfellum, vegna
veltuútsvaranna. Slík skatt-
heimta er til hindrunar heilbrigð-
um atvinnurekstri og hér þarf að
ráða bót á. Eignaframtalið þarf að
lagfæra. Fasteignir eru nú yfir-
leitt taldar til eignarskatts með
aðeins hluta af raunverulegu
verði þeirra, en peningaeignir eru
metnar fullu verði. Hér er óvið-
unandi ósamræmi, sem þarf að
leiðrétta. Ákvæðum um persónu-
frá'drátt þarf að breyta. Skatta-
mál hjóna þarf að taka til sér-
stakrar athugunar, og margt
fleira þarf að athuga og gera till.
um, þó ekki sé hér talið. Og við
endurskoðun laga um skatta og
útsvör þarf að sjálfsögðu að
minnast þess, að ríki, bæjar- og
sveitarfélög þurfa að fá fjárþörf-
um sínum fullnægt á einhvern
hátt. En allt þarf þetta að athug-
ast í heild og afgreiðast í einu
lagi, því að mörg þýðingarmikil
atriði málsins eru svo nátengd,
að afgreiðsla þeirra þarf að fylgj-
ast að, svo að nauðsynlegt og
eðlilegt samræmi verði í lagafyr-
irmælum um þessi mál. Till. um
heildgrlöggjöf um skatta og út-
svör þarf sem allra fyrst að leggj-
ast fyrir þingið. Frv., sem hér
liggur fyrir, getur ekki komið að
gagni við lausn málsins.
Herbergi
til leigu á Syðribrekkunni.,
Sfgr. vísar á.
Fatahengi
1 ,, ;. * f ,é' £ , 5>v, £- ýi
Fatasnagar
NYLON:
UPPÞ VOTTABURSTAR
HANDB URSTAR
BAÐB URSTAR.
Jdrn- og glervörudeild
Skíðasleðar
Járn- og glervörudeild.
SKÍÐI
Skíðavax:
Östby, Bratlie
Skíðalakk
Járn- og glervörudeild.
- Grein E. C. Brun.
(Framhald af 1. síðu).
Glyptotekið, Listasafn ríkisins og
þjóðminjasafnið. Segir prófessor
þessi m. a. á þessa leið:
„.. . . Upp af þessu safni í Fiol-
stræti — og frá safni norrænna
handrita í Slotsholmen, — spratt
hin danska, þjóðlega sjálfsmeð-
vitund, en án hennar héfði
danska þjóðni ekki haldið áfram
að vera dönsk. Fyrstu útgáfurnar
og ritgerðirnar sáu dagsins Ijós
fyrir tíð Árna Magnússonar, á
lærdómstímum 17. aldarinnar. Og
frá upphafi upplýsingatímabilsins
kom hin mikla könnun fornnorr-
ænu. Allir lærðir menn landsins,
jafnvel Ludvig Holberg, sem ann
ars var ekki sérlega ofstækisfull-
ur norrænumaður, urðu að læra
hið forna mál og lesa bókmenntir
hins gamla tíma. Hinar gömlu
Kaupmannahafnarútgáfur þess-
ara fomu gersema, eru e. t. v.
mesta framlag vort til sögunnar.
Áhrif þessarar könnunar á skáld-
skapinn voru veruleg þegar á
upplýsingaöldinni. En fyrst voru
það Grundvig og Oehlenschlager
sem kendnu okkur um hina forn-
norrænu guði og hetjur til þess
að við gætum gert fortíðina að
eign okkar. Það var upp af fræ-
korni Árna Magnússonar, sem
lífs- og þekkingartré vort óx. . .“
í lok þessarar væmnu og yfir-
borðslegu greinar segir þessi
prófessor um íslenzku handritin,
sem hann forðast að nefna réttu
nafni, ísland er aldrei beinlínis
nefnt i allri gr'eininni: „Þau
geyma fortíð vora, þau eru dýr-
roætasta eign vor....“ í rit-
stjórnargrein Berl. Aften Avis,
sem fyrr er vitnað til, og er and-
svar blaðsins til Bi'un fyrrv.
sendiherra, vitnar ritstjórinn í
þessa grein Rubows prófessors og
telur hann sanna, hverja megin-
þýðingu handritin hafi fyrir
danska menningu!
Haag-dómstóllinn nefndur.
í grein í sama blaði, 12. þ. m.,
leggur einhver S. P. til, að hand-
ritamálið verði lagt til úrskurðar
fyrir alþjóðadómstólinn í Haag. í
ritstjórnargrein í Finansttdende
17. des., er því fagnað, að almenn-
ingsálitið í Danmörk sé að rísa
upp gegn afhendingu handrit-
anna og til styrktar prófessorun-
um, sem harðast berjast gegn því
að handritunum verði skilað. Og
umræðurnar halda áfram, mjög í
sama dúr og fyrr. Þótt einstakir
Danir taki drengilega undir kröf-
ur okkar um að skila hgndritun-
um (eins og Brun fyrrv. sendi-
herra og Poul Engberg skólastj.,
sjá grein hins síðar nefnda annars
staðar í þessu blaði) eru hinir þó
miklu fleiri, sem mæla gegn af-
hendingu. Blöðin og prófessor-
arnir eru líka vel á veg komnir að
æsa almenningsálitið — sem fram
tíl þessa, hefur naumast vitað að
handrítin væru til, hvað þá
meira, — gegn kröfum íslands og
til andúðar á íslendingum yfir-
leitt. F.nda hefui frv. bað, sem
boðað var að lagt yrði fyrir Rík-
isþingið um handritamálið, enn
ekki téð dagsins ljós. Segir það
sína sögu um áhrif þessarar her-
ferðar gegn Íslendingum.
Sandfaxið.
Þá fór Olafur nokkrum orðum
um sandfaxið, sem margir hefði
nú mikla trú á, enda hefði það
reynst vel í þurrum jarðvegi og
þó sérstaklega í sendnum jarð-
vegi. Þessi tégund var reynd
bæði sunnanlands og norðan-
lands þegar skömmu eftir alda-
mót. Niðurstaða þeirrar reynslu
varð, að sandfaxið væri allgott,
en engan veginn bezta tegundin.
Betur reyndist það á Suðurlandi
en á Norðurlandi. Fræblanda sú,
er þeir ákváðu 1920 Sigurður
Sigurðsson og Einar Helgason,
var samsett með hliðsjón af þess-
ari reynslu. Þeir settu sandfaxið
í þurrlendisblöndur en ekki í
blöndur, sem ætlaðar voru í mýr-
lendi. Við ræktun á sendinni jörð
og gróðurstarfið á söndunum
sunnanlands hefur sandfaxið gef-
izt mjög vel, þó er nú‘ sýnt, að t.
d. hefur það ekki haldið velli á
sáðsléttunum í Oskjuhlíðinni í
Reykjavík. Það er því ekki ör-
ugt sáðgras, en þó sjálfsagt að
nota það, þar sem aðstæður
benda benda til að það hafi lífs-
skilyrði.
Frá umræðunum.
í umræðum þeim, sem urðu að
loknu erindi Ólafs kom margt at-
hyglisvert fram^ sem þó er ekki
tækifæri til þéss að rekja hér að
neinu ráði. Árni Jónsson til-
raunastjóri benti m. a.'á, að kyn-
bætur fara sífellt fram á gras
tegundum þeim, sem ræktaðar
eru í nágrannalöndunum og
grasfræ það, sem inn er flutt, sé
því í rauninni ekki sama fræið og
flutt var inn fyrir nokkrum ár-
um, enda þótt tegundarheitin séu
óbreytt. Danskir bændur t. d.
mundu ekki kaupa í ár gamlar
tegundir, heldur keppast við að
fá nýjar, sem tilraunir hefðu sýnt
að gæfu betri arð. Þá ræddi hann
einnig um áburðarnotkun og birti
fróðlega skýrslu um tilraunir í
Noregi um notkun hreins köfn-
unarefnis. Komust áburðar-
skammtar þar upp í 180 kg. af
hreinu köfnunarefni, en uppskera
varð einnig mikil, á annað hundr-
af hb. af hektara. Gunnar Krist-
jánsson á Dagverðareyri benti á,
að oft skorti á jarðvinnslukunn-
áttu hjá þeim mönnum, sem
stjórna dráttarvélunum, enda
þótt þeir kynnu vel að hugsa um
þær vélar og margt benti til þess
að tæki þau, sem dráttarvélarnar
draga, væri ekki ævinlega heppi-
leg, t. d. væri -ástæða til að ætla
að plógar, sem notaðir eru, séu
ekki ævinlega brotplógar, heldur
aðeins akurplógar. Jarðvinnslan
verður því ekki eins góð og
þyrfti að vera. Ketill Guðjó’nsson
á Finnastöðum ræddi um haust-
sáningu grasfræs og sagði frá at-
hyglisverðri reynslu sinni í því.
Sigurjón Valdimarsson í Leifs-
húsum gerði mun á vorkali og
vetrarkali og ræddi um ástæð-
urnar fyrir því. Sverrir Guð-
mundsson á Lómatjöm ræddi
um grasfrætegundirnar og rækt-
un mýrlendis. Þór Jóhannesson í
Þórsmörk sagði frá reynslu sinni
af notkun kílplóga og Kristinn
Sigmundsson á ’ Arnarhóli frá
notkun nýs plógs á Staðarbyggð,
sem enn er á reynslustigi. Fleira
athyglisvert kom fram í umræð-
unum. Næsti fundur bænda-
klúbbsins verður á þriðjudaginn
kemur og muji ætlunin vera að
ræða þá um áburðarnotkun.
frá S. I. F.
n ý k o m n a r
Kryddsíldarflök st. 2.00
Do. dós 12.25
Gaffalbiíar — 5.40
Lifrarkæfa — 5.00
Grænar baunir - 4.90
Blómkál — 8.00
Do. — 13.25
Gul. og gr. baun — 6.65
Agúrkusalat — 5.25
Muría . ! .,:l' 10.25 j
Fiskbollur f \ ■ oo Cri
De. ; 8.70|
Fiskbúðingur -'! 6.65
Do. — 10.80
Hvífkál — 9.80
Gulræíur — 7.90;
Kjötbúðir KEA.
Hafnarstræti 89. Sími 1714.
Ránargötu 1Q. Sími 1622.'
Húsmæður
Vér seljum daglega eftir-
íaldar fiskíegundir:
Hraðfryst ýsuflök
Úfvatnaðan saltfisk
Þurrkaðan saltfisk
Reykfan fisk
Nýtf fiskfars
Nýjan fiskbúðing
, t V? JS ‘ r ■ ífef ! i
Sendum heim yður að kostn-
aðarlausu. — Pöntunum veitt -
múttaka frd kl. S.30 d morgn-
ana í sima. ■
Sendlarnir fara af stað kl. 10 f. h.
Kjötbúð KEA.
Hainarstræti 89 — Sími 1714