Dagur - 12.02.1958, Síða 8

Dagur - 12.02.1958, Síða 8
8 D A G U R Miðvikudaginn 12. febrúar 1958 «5555555555555555555555555555555555555555555555555« 1 DAGUR | | Ritstjóri: ERLINGUR DAVÍÐSSON | 2< Afgreiðsla, auglýsingar og innheimta: Þorkell Björnsson R ;? Skrifstofa í Hafnarstræti 90 — Sfmi 1166 4> « Árgangurinn kostar kr. 75.00 « Blaðið kemur út á miðvikudögum n g og laugardögum, þegar efni standa til s> Gjalddagi er 1. júlí « ?? Prentverk Odds Björnssonar h.f. $ : »55555555555555555555555555555555555555555555555550 „Dagur“ f jörutíu ára FYRIR RÉTTUM 40 ÁRUM hóf nýtt blað göngu sína á Akureyri og nefndist það Dagur. Ekki var það fyrirferðarmikið en varð áhrifaríkt undir ritstjórn hæfra manna. Það kom fyrst út hálfsmánaðarlega, en síðan er það vikublað kall- að, en kemur þó út miklu oftar. Þegar síminn kom var illa spáð fyrir blöðunum, sem þá voru til. Með komu útvarpsins létu hrak- spárnar heldur ekki á sér standa. En reynslan hefur sýnt að aukin fréttaþjónusta með þeim leið- um efldi blöðin./ Dagblöðin hafa aldrei verið stærri, fjölbreyttari að efni eða verið meira lesin en einmitt nú. En þau eru öll gefin út í höfuðstað landsins. Vikublöðin, sem gefin eru út utan Reykjavíkur, mættu sýnast lítils megnug í hinu rnikla blaða- flóði. Þessu er þó ekki þann veg farið og er a. m. k. síaukinn kaupendafjöldi Dags ánægjuleg sönn- un fyrir því að Norðlendingar vilja hafa sitt blað, þótt það geti ekki keppt við sunnanblöð að stærð. Vikublöð setja sér auðvitað um margt þrengri ramma en dagblöðin og eru tengdari vissum landshlutum. En þar hafa þau vissulega ómetan- lega þýðingu. Þegar Framsóknarflokkurinn var stofnaður, tók hann að sér málstað æskunnar í landinu og þeirra, er voru lítils megnugir. Þá þegar var blaðið Tím- inn stofnaður og Dagur nokkrum mánuðum síðar. Á 40 ÁRA GÖNGU hefur Dagur látið flest vel- ferðarmál Norðlendinga til sín taka og oft með glæsilegum árangri. Hann hefur stutt Framsókn- arflokkinn og staðið vörð um samvinnuhreyfing- una. Hugsjónir ungmennafélaganna og samvinnunn- ar hafa til þessa dags verið aflgjafi Dags. Án hug- sjóna verður ekkert blað fertugt, og án baráttu væri blaðið þróttlaust. Samkvæmt hugsjónum sínum og stefnuskrá, er Framsóknai-flokkurinn eins konar milliflokkur. Til hægri og vinstri eru öfgarnar uppmálaðar í íhaldi og kommúnisma. Á SÍÐUSTU ÁRUM OG MÁNUÐUM hefur orð- ið veruleg breyting á stjórnmálaflokkunum. Nú er enginn íhaldsflokkur til á íslandi. Sjálfstæðis- flokkurinn, arftaki íhaldsflokksins gamla, hefur hneigzt meira og meira í átt til nazisma, enda margir forustumenn hans gamlir aðdáendur Hitl- ers og lærisveinar. Sjálfstæðismenn hafa í æ rík- ari mæli tekið upp ýmsar baráttuaðferðir þeirra. Áróðurinn í skólum landsins, allt niður í barna- skóla, er eftir fyrirmyndum Hitlers. Gulu sög- urnar bera sams konar skyldleikamerki við hina þýzku ofbeldisstefnu og í skjóli fjármagnsins el- ui' Sjálfstæðisflokkurinn upp og veitir atvinnu heilli stétt atvinnumanna. Hið innra skipulag flokksins er sterkt og áróðursvélin malar misk- unnarlaust og vantar ekki eldsneytið. En ekki eru það þó hugsjónirnar, sem kraftinn gefa, heldur peningarnir. Fyrir þeim gengur flokksvélin. Sjálfstæðismenn eru yfirleitt ekki lausir á fé, en hér á Akuryeri borga flokksmennirnir álitlegar upphæðir í flokkssjóðinn, bjargálna kaupmenn og aðrir í sæmilegri atvinnu, verða að sjá af frá 5—15 þúsundum króna hver. Þetta aukaútsvar sitt greiða þeir að vísu ekki möglun- arlaust, en þegar þeir hafa gefið af sálu sinni, hehnta þeir mikinn hlut sér til handa og harðna í bar áttunni fyrir flokk sinn. Sjálf- stæðisflokkurinn er enn á því millistigi að látast vera allra vin- ur. Hann felur ennþá vígtenn- urnar, en mun sýna þær, ef svo illa og ólíklega færi að hann kæmist til valda. Tækifærissinn- aður braskaraflokkur kom í stað- inn fyrir íhaldsflokkinn gamla og eru það ill skipti fyrir þjóðina. Til vinstri er svo Alþýðuflokk- urinn, sem vii'ðist á hröðu und- anhaldi og niðurleið, gagnstætt því, sem orðið hefur um bræðra- flokka hans á öðrum Norður- löndum, sem þar hafa eflzt og reynzt hinir farsælustu. Kommúnistar eru fámennur hópur á íslandi og fer fækkandi. Hins vegar hefur Alþýðubanda- lagið, með kommúnistakjarnann, rnikið fylgi. Ætla má að sá flokk- ur standi á tímamótum. Líklegt má telja, að innan skamms taki þeir við völdum í flokknum, sem aðhyllast ekki alþjóðlegan komm únisma né vilja vera línudansar- ar Rússa. Ef þróunin heldur í þessa átt, sem margt bendii' til, verður Alþýðubandalagið ábyrg- ur og vaxandi verkalýðsflokkur, en íslenzkir kommúnistar utan- garðs menn. Ábyrgir menn og hugsandi hljóta jafnan að velta því fyrir sér, hver sé hamingjuleiðin fyrir okkur öll. Liggur hún í gegnum algera forsjá ríkisvaldsins? Eða mun skefjalaus eiginhyggja vísa veginn? Þjóðareðlið svarar þess- um spurningum hiklaust neit- andi. Hinar hófsamlegu leiðii' samvinnu og samhjálpar, með sterka siðferðisskyldu og rétt- lætiskennd einstaklinganna, munu reynast farsælastar og í þeim anda vill Dagur vinna af fremsta megni. D-íjöreíni við doða - Mjalfavé! úr ryðfríu sfáli Doðinn getur stundum verið leiður gestur í íslenzkum fjósum. •Hámjólka nýbærur þurfa mikillar árvekni og aðgæzlu við, einkum þær, sem hafa tilhneigingu til að fá doða. Nauðsynlegt er að vera vel á verði fyrir burði kúnna og reyna að koma í veg fyrir doðann, og í því sambandi má benda á, að er- lendar tilraunir og enda innlend reynsla hafa sýnt, að mikil stein- efnagjöf — einkum mikill fosfór- skammtur í t. d. dikalsíumfosfati eða mónónatríumfosfati — reyn- ist mjög áhrifaríkt til þess að koma í veg fyrir doða. Góð varúðarregla er það einnig, eftir burð, að full- mjólka ekki kúna, en mjólka oft- ar. En jafnvel þótt hitt og annað sé reynt til þess að afstýra doða, verða menn einatt að leita aðstoð- ar dýralæknis, og þá má oft ekki mikinn tíma missa. Það virðist augljóst, að þær var- úðarreglur, sem rætt var um hér að framan, eru mjög áhrifaríkar í sumum kúahópum, en reynast aítur miður í öðrum. Þetta getur auðvitað stafað af því, að kýr, eða einstakar ættir þeirra, eru mis- jafnlega næmar fyrir doða, eða af hinu, að mismunandi mikil vönt- un sé á steinefnum í einstökum tilfellum. Loks getur orsökin verið sú, að þar, sem steinefni hafa engin á- hrif haft á doðatilhneigingu, hafa kýrnar e. t. v. ekki verið færar um að hagnýta þessi steinefni. Þannig getur t. d. D-fjörefnaskortur orðið til þess, að skepnunni gagnist ekki kalk- né fosfórmagnið í fóðrinu nægilega, og sér í lagi ekki, ef um hánytja kýr er að ræða. Þetta hefir leitt huga að því, að D-fjörefnagjöf muni geta af- stýrt doða, og ýmsar amerískar til- raunir benda til, að nokkuð sé hæft í þessari ályktun. I tímaritinu „Jydsk Landbrug" gerir A. Th. Riemann, dýralæknir, grein fyrir niðurstöðum þessara tilrauna, og skýrir hann svo frá, að í tilraunahópnum hafi verið 48 Jerseykýr, sem vanda áttu fyrir því að fá doða eftir burð. Annar helmingur kúnna fékk nú fyrir burð sterka fjörefnablöndu. Það var dælt í þær allt að 10 sinnum venjulegum skammti af D-fjör- efni. I þeim tilraunahópnum, sem fékk þennan stóra D-fjörvisskammt fékk engin kýrin doða, en 14 af 22 kúm í hinum hópnum, sem ekki fékk fjörefnaskammt, veikt- ist af doða. I þessari tilraun hefir því verið greinlegur hagur að D- fjörefnisdælingunni, og má skýra það með því, að D-fjörefnið hafi greitt fyrir því, að mjög aukið magn steinefna hafi sogazt frá meltingarfærunum út í blóðið. Kalsíummagnið i blóðinu hafi því vaxið mjög mikið, og þess vegna hafi kýrin verið betur við því bú- in að fullnægja þeirri skyndilegu og miklu eftirspurn, sem gerð er til kalsíummagnsins í blóðinu, þeg- ar hin mikla mjólkurmyndun hefst eftir burðinn. Það er litlum vafa undirorpið, að vinna má mjög gegn doðanum með skynsamlegu fyrirkomulagi á fosfór-, kalsíum- og D-fjörefnagjöf. ALFA-LAVAL verksmiðjan hef- ir nú sent á markaðinn mjalta- vel að öllu leyti úr góðu, sænsku, ryðfríu stáli. Er það vönduð smíði og smekkleg. Mjólkurleiðsl- ur eru beinar og rúmgóðar. Spena- hylkin eru vönduð og þung og hylkjagreinirinn léttur, svo að þunginn dreifist jafnt á spenana. Sogskiptirinn er af nýrri og end- urbættri gerð og löggin á fötunni er ávöl. Oll er mjaltavélin smíðuð með tilliti til góðrar júgurheilbrigði og þess að ræsting veröi auðveld og árangursrík. Mjaltavél úr ryðfríu stáli er nokkru dýrari en eldri gerðir, en ekki munar það ýkjamiklu. MABEL RUTH JACKSON: Uppeldið heinia Um daginn var eg gestui' á heimili nokkru um skeið. Lítill sonur hjónanna dvaldi á dagheimili lengst af dagsins. Þetta var ófeiminn og elskulegur drengur, og mér fannst hann vera óvenjulega sæll og ánægður, og eg kynntist fljótt einni orsök þess. Þegar hann kom heim frá dagheimilinu, var hon- um alltaf mikið niðri fyrir; hann sagði af mikilli gleði og áhuga frá leikjunum, sem hann hefði lært þann daginn og öllu því, sem hann hefði gei't. Oft kom hann heim með pappírsörk, sem hann hafði teiknað á blóðrautt hús með gulum skorsteini og grænum dyrum, blóm með ógnarstórum legg eða mjög útlimalangan mann, sem engan hafði bolinn. Það var alveg sama, hvað mamma Roddys litla var að gera; hún gaf sér alltaf tíma til þess að hlusta á hann segja frá nýju leikjunum, og hún fór alltaf viðurkenningarorðum um verkin hans. Mér fannst þetta mjög ánægjulegt að sjá og heyra, því að hörmulegt hefði verið, ef hrifningu og áhuga þessa litla drengs hefði ekki verið mætt af skiln- ingi og samúð þeirra, sem honum þótti vænzt um. En mamma hans gerði meira. Teikning Roddys var fest með títuprjóni á striga, snoturlega innrammaðan, sem hékk uppi á vegg í þessum tilgangi. Nú myndi pabbi hans sjá myndina, er hann kæmi heim. Eg brosti með sjálfri mér, er eg sá strák ganga oftlega fram hjá teikningunni á. veggnum og láta sem hann liti ekki í þá áttina, en hann gat ekki látið vera að gjóta augum til hliðar, og hreykinn var hann á svipinn. Hann hafði innt starf af höndum, og það hafði verið virt og viður- kennt. Einn daginn kom hann heim með pappírsfána, sem hann hafði búið til. „Mamma,“ sagði hann, „getum við ekki sett flaggið út í gluggann?" „I gluggann?" endurtók móðir hans, og eg bjóst við, að nú væri hún að hugsa um, hvar hún gæti komið fánanum fyrir, svo að sem minnst bæri á, því að heimilið var fallegt og öllu vel fyrir komið. „Já, mamma. Getum við ekki sett það í stofu- gluggann, svo að allir á götunni geti séð það? Gæt- um við það ekki, mamma?“ „Jú, auðvitað, vinur minn,“ sagði mamma hans, og svo hjálpaði hún honum að festa flaggið á rúð- una með límbandi. Mér fannst, að gleðisvipur drengsins hlyti að vera næg greiðsla fyrir það, sem sumar húsfreyjur hefðu áreiðanlega ekki tekið í mál. Annan dag kom Roddy heim með litla, rauða pappírskörfu. „Eg bjó til þessa körfu,“ sagði hann, „og það á að setja eitthvað í hana. Gætum við ekki sett eitthvað í hana, mamma?“ spurði hann ákafur. „Við skulum nú sjá, elskan mín,“ svaraði mamma hans. „Eldspýtur?" spurði hann. „Nei, heldurðu, að við ættum að láta eldspýtur í G pappírskprfu, Roddy?“ Hann hugsaði sig um. „Nei, kannske það gæti kviknað í henni,“ sagði hann. „Já, það er aldrei að vita,“ sagði hún, en svo bætti hún við: „Geturðu búið til fleiri körfur eins og þessa?“ „Auðvitað get eg það,“ svaraði hann. „Nú hefur mér ðottið dálítið í hug,“ sagði hún brosandi. „Búðu nú til eina körfu handa frú Jack- son, eina handa pabba þínum og eina handa sjálfum þér. Þessi er handa mér. Þegar við borðum kvöld- matinn á morgun, þá skulum við setja ofurlítið „gott“ í körfurnar og hafa eina hjá hverjum diski. Þá verðui' veizla. Þú átt nóg og marglitum pappírs- örkum í dótakassanum þínum.“ Gleðisvipurinn á andliti Roddys litla sýndi glöggt, að hann kunni að meta það, að körfurnar hans yrðu til einhvers gagns. „Þetta er ekki svo lítil fyrirhöfn allt saman,“ sagði eg seinna við húsfreyjuna, „en ósköp hefur Roddy litli mikla ánægju af þessu.“ „Já, er það ekki?“ sagði hún. „Eg vil hafa hann glaðan og hamingjusaman, en það er ekki einungis það, sem eg er að hugsa um. Við tölum mikið hérna á heimilinu um það, sem við gerum. Eg tala kann- ske um tilbreytnina, sem eg hafi í matargerðinni í þetta skiptið eða þá eitthvað, sem eg pr að sauma. Pabbi hans segir okkur frá ýmsu í starfi sínu á skrifstofunni. Eg vil, að Roddy finni, að það sé líka umtalsvert, sem hann gerir. En mér dettur líka annað í hug í þessu sambandi. Þetta eru smámunir, en geta þeir ekki haft sína miklu þýðingu fyrir Roddy — líka seinna á ævinni?“ „Jú, áreiðanlega,“ svaraði eg. „Þetta eru smá- munir, og þess vegna sést alltof mörgum mæðrum yfir það, hvílík tækifæri þarna eru til uppeldis og þroska; hér er verið að leggja grundvöll að ham- ingjusamri ævi. Þetta eru smámunir, en þeir eru stórir.“

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.