Dagur - 18.12.1980, Side 23

Dagur - 18.12.1980, Side 23
Jón er hér við túrbínu sem síðar var flutt suður á land og framleiðir nú rafmagn f Borgarfirði. Þessi túrbína á að geta framleitt ca. 150 kílóvött þegar hún er fullbúin. Mynd: Matthías Gestsson. sveitabæjum, enda breyttust þeir meira en orð fá lýst. Bjarni var brautryðjandi, jafnframt hagleik sínum og miklum afköstum. Þau eru mörg rafljósin í slóðinni hans. Sumar rafstöðvamar hans ganga enn, eftir hálfa öld. Til dæmis um það er rafstöðin í Klambraseli í Reykjahverfinu. Hún gengur enn, varð fimmtug í sumar og var upphaflega sett í kjallarann í íbúðarhúsinu og er þar enn. Sú er víst búin að borga sig. Sumar stöðvar Bjarna hafa verið gerðar upp. Allar hafa þær gegnt ákaf- lega þýðingarmiklu hlutverki og voru næstum að segja ómetan- legar. Rafstöðin á Húsavík og síðar rafstöðvar Bjarna Runólfssbnar frá Hólmi svöruðu fáum spurn- imgum, sem upp komu í huga Jóns, en vöktu margfalt fleiri. Nú er frá því að segja, að á aldrinum 10-12 ára fór Jón að út- búa spjaldahjól, sem hann lét bæjarlækinn snúa, var það undirfallshjól og setti hann það í stokk, sem vatnið bunaði fram úr. Þetta var nú fyrsta vatnsaflstækið hans Jóns á Granastöðum. Lét lækinn strokka rjómann Næsti áfangi á verkmenning- arbraut drengsins á Granastöð- um var sá, að hann gat látið bæj- arlækinn snúa strokknum. Strokkur var til á bænum, hand- snúinn og var bæði seinlegt, leið- inlegt og erfitt að snúa sveifinni. Mun drengurinn hafa fengið að reyna það, því hann fékk nú áhuga á því að láta vatnsaflið létta undir og tókst það. En Jón var fermdur þegar þessi áfangi náðist, sá fyrsti í þá áttina að auðvelda störf og flýta þeim. Þetta vakti dálitla forvitni fólks, jafnvel ánægju en mjög í hófi. Sjálfum fannst drengnum hann vaxa af þessu verki og mjög að vonum. Jón var nú kominn á þann ald- ur, að ætlast var til þess að hann tæki mikinn þátt í algengum störfum á heimilinu. Hann gerði svo en notaði hverja stund til að föndra og smíða og naut lang- lundargeðs föður síns hvað það snerti að fá að sinna hugðarefn- um sínum marga stund. En þó voru það sunnudagarnir, sem mest voru notaðir. Þeir voru há- tíðisdagar Jóns og kappsamlega notaðir til smííia og tilrauna, eftir því sem orka og hugvit leyfði. Lækirnir voru enn hugðarefni Jóns og Páll bróðir hans vann að því með honum uppi í fjalli, að veita þeim saman til að auka vatn bæjarlæksins. Fóru mörg sunnu- dags-dagsverkin í það starf bræðranna. Þegar bæjarlækurinn varð vatnsmeiri en áður, tókst Jóni að setja niður ofurlitla kvörn við húsvegginn, þannig að hann gat tengt vatnshjól sagarblaði beint, án framleiðslu rafmagns. Tengt var með reim og var sögin notuð með góðum árangri og var ekki laust við að þetta tiltæki þætti skrýtið. Þegar hér var komið sögu hafði fólk áttað sig á því, að pilturinn varlagtækur. Má kannski um það segja, og þótti engum mikið. Nú er frá því að segja að íbúð- arhúsið í Ártúni var byggt árið 1945. Þá voru steypuhrærivélar nær óþekktar, en þá var það til, að útbúnar voru fótstignar tunnur til að hræra steinsteypuna í, en ennþá var algengast að hræra á palli með skóflum og var erfitt verk og seinlegt. En Jóni datt enn lækurinn í hug þegar bygging var undirbúin. Um eitt hundrað metrar voru á milli læksins og hins verðandi íbúðar- húss. Hann setti kaðalreim frá læknum og á byggingarstað og leiddi orkuna úr læknum þangað heim og hrærði steypuna í allt húsið í tunnu. Tvö hjól voru á steyputunnunni og var hægt að slá reiminni yfir á fríhjólið, t.d. á meðan helt var úr tunnunni eða í hana mokað steypuefninu. Kannski voru þetta allt ómerkilegir hlutir, nema þá helst í augum piltsins. Strokkurinn, sögin og steyputunnan fengu afl sitt beint úr læknum og örvuðu ímyndunaraflið. Enginn trúði því að það tækist að láta bæjarlækinn hræra steypuna við húsbygging- una í Ártúni, en það trúleysi varð sér til minnkunnar. En eftir-var að ná tökum á hinu mikla ævintýri, að láta straumvatn framleiða raf- orku. Snéri sér að raforkunni Vatnsaflstöðvar urðu nú aðal- áhugaefni Jóns Sigurgeirssonar og hann las allt sem hann náði í til um það efni, spurði, skoðaði og fræddist smátt og smátt. Skömmu síðar fór hann að setja upp 12 volta stöðvar til ljósa. Hann þurfti að þreifa sig áfram um flesta hluti og smátt og smátt varð hann fær um að leysa stærri verkefni. Nú er hann búinn að smíða frá grunni og endurbyggja yfir 40 rafstöðvar, þ.e. vatnsvélar. Þær framleiða á annað þúsund kíló- vött samanlagt. Jón Sigurgeirsson í Árteigi hefur einnig smíðað tugi gang- ráða á rafstöðvar og er ekki vitað að þeir hafi verið smíðaðir á öðr- um stöðum hér á landi. Þessi smíði er vandasöm og flókin og hefur verið að þróast hjá Jóni í fjölda mörg ár, enda ekki smíðað eftir neinni fyrirmynd. Gangráðar eru til þess notaðir að halda gangi stöðvanna á jöfn- um hraða, hvort sem álagið er mikið eða lítið. Einkum smíðar Jón gangráða til að stilla vatnið en stundum smíðar hann þá til að stjórna spennunni og eru þá rafmagnsgangráðar, öðru nafni spennustillar. Helst þarf þetta hvort tveggja að vera á hverri vatnsaflsstöð og nú er farið að framleiða spennustillta rafala beint frá verksmiðjunum er- lendis. Ekki eru þær fregnir undarleg- ar, sem herma, að erlendir verk- fræðingar hafi undrast er þeir heyrðu um óskólagenginn út- kjálkadreng á íslandi sem smíð- aði nýja gerð gangráða í vatns- aflsstöðvar. Fyrr voru nefndar 12 volta stöðvar til ljósa, sem Jón byggði. En stærsta stöðin er hins vegar 150 kílóvatta stöð, sett niður á Húsafelli og skilar þó ekki enn fullum afköstum vegna galla á drifbúnaði, sem verður lagfærður nú í haust. Notað var bíldrif, sem ekki dugði nema til framleiðslu á 120 kílóvatta orku. Túrbína þeirrar stöðvar er um tveir metrár í þvermál og við hana smíðaði Jón vatnsgangráð. Þessa stöð sá ég og skoðaði þegar hún var á bil á suðurleið. Þrátt fyrir samveiturnar, sem leyst hafa raforkumál svo mikils fjölda heimila, ná þær ekki um land allt. Margir menn hafa í at- hugun að koma sér upp heimilis- rafstöðvum, þar sem nota má læk eða á í allra næsta nágrenni. Fyrirspurnir berast um kostnað og ýmislegt annað og Jón reynir að svara þvi eftir bestu getu, sem um er spurt. Heimilisrafstöðvar eru ekki hugsaðar sem sam- keppnistæki við samveiturnar, heldur til viðbótar, einkum þar sem erfiðast er að tengjast sam- veitum en vatnsafl er fyrir hendi. Lánamöguleikar til framkvæmda á þessu sviði hafa verið rýmkaðir til að flýta rafvæðingu á öllum heimilum landsmanna. Eiður, rafvirki, sonur Jóns í Árteigi vinnur á verkstæði föður síns og virðist samvinna þeirra góð. Mikið verkstæðishús er rétt við myndarlegt ibúðarhúsið Ár- teig, þar sem þeir feðgar smíða. í vor smíðuðu þeir nær 30 súg- þurrkunarblásara eftir pöntunum bænda, svo fleira sé nefnt en vatnsvélar í rafstöðvar og gang- ráða í þær. Sveitabæir þurfa 20 kílóvött Skemmtilegt er til þess að vita, að þeir eru fleiri hagleiksmenn- imir á þessu sviði en Jón í Árteigi. Björn Þórhallsson á Ljósavatni í sömu sveit og Jón hafa unnið sameiginlega að hinum ýmsu verkefnum, svo sem smíði vatns- véla og Björn hefur annast upp- setningu rafstöðva, sem Jón hefur smíðað og ennfremur hefur hann annast vandasamar viðgerðir víða um land og er, þegar þetta er skráð á haustdögum 1980, að Framhald á bls. 26. Hildur Eiðsdóttir og Jón Sigurgcirsson. Jón framleiðir ckki eingöngu tæki til rafmagnsframleiðslu. Hér sjáum við nokkra súgþurrkunarblásara. DAGUR.23

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.