Dagur - 30.11.1983, Síða 1
TRÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
66. árgangur
Akureyri, miðvikudagur 30. nóvember 1983
135. tölublað
Raforkuverð mun hærra hérlendis en á Norðurlöndunum:
„Borgum fimmfalt hærra
orkuverð en keppinautamir“
— segir Árni Árnason um verðmun á raforku til iðnaðar í Noregi og á Akureyri
„Það er forkostulegt, á sama
tíma og áhersla er lögð á iðn-
aðaruppbyggingu í orði, þá
er iðnaðinum boðið upp á
fimmfalt hærra orkuverð en
samkeppnisaðilum okkar í
Noregi, svo tekin séu
dæmi,“ sagði Árni Árnason,
forstjóri Byggingavöruversl-
unar Tómasar Björnssonar,
í samtali við Dag.
Fyrirtæki Árna hefur að
undanförnu unnið að uppbygg-
ingu á léttum iðnaði, t.d. panel-
og límtrésframleiðslu og það nýj-
asta er að gegnfúaverja timbur.
Sagði Árni í því sambandi, að
raforkan væri ekki það eina sem
gerði iðnaðinum erfitt fyrir í sam-
keppni við innflutning. Nefndi
hann dæmi, að greiða þyrfti 15%
toll af fúavarnarefnunum, en á
sama tíma er flutt inn gegnfúa-
varið timbur tollfrjálst.
„Við eigum í samkeppni við
innflutning og það gefur auga
leið, að við stöndum höllum fæti
í þeirri samkeppni á meðan við
greiðum fimmfalt hærra raforku-
verð en samkeppnisaðilarnir,“
sagði Árni. „Raforkuverð til al-
menns iðnaðar er svipað og til
ljósa í verslunum og skrifstofum,
sem löngum hefur þótt okurtaxti.
Menn geta svo hugleitt réttmæti
þess að bjóða samkeppnisiðnaði
upp á slíkan taxta. Það bendir
ekki til þess, að mikill áhugi sé
fyrir því í fullri alvöru, að iðn-
aðurinn styrkist og skapi fleiri
atvinnutækifæri," sagði Árni
Árnason í lok samtalsins.
„Ég er ekki tilbúinn að sam-
þykkja það, að atvinnurekstur
á Akureyri greiði 6-9% meira
fyrir raforkuna en sambærileg-
ur rekstur í Reykjavík. Ég veit
það hins vegar fyrir víst, að
raforkuverð til heimilisnota í
Reykjavík er 8.13% dýrara en
á Ákureyri og það hlýtur að
koma öllum Akureyringum til
góða,“ sagði Sigurður Jóhann-
esson, stjórnarformaður Raf-
veitu Akureyrar, aðspurður
um áskorun atvinnumálanefnd-
ar til Rafveitunnar þess efnis,
að Rafveitan samræmi ork-
uverð sitt til atvinnurekstrar
töxtum Rafveitu Reykjavíkur.
„Okkar taxtar eru í stöðugri
endurskoðun og þessi mál hafa
verið rædd innan stjórnarinnar
að undanförnu,“ sagði Sigurður.
„Þegar hefur verið ákveðið að
þeir sem hafa verið með 30 kw
hámarksnotkun færist í 50 kw
hámarksnotkun, sem er veruleg
lækkun. Sú ákvörðun kemur til
framkvæmda fljótlega. Einnig
hefur verið ræddur sá möguleiki,
að bjóða ódýrari raforku þá 7-8
mánuði á ári, sem Rafveitan hef-
ur næga umframorku. Engin
ákvörðun hefur verið tekin í því
sambandi ennþá, enda ókannað
hvort slíkt getur komið einhverj-
um að notum. Hitt er víst, að
Rafveitan hefur fullan áhuga og
vilja, að gera það sem í hennar
valdi stendur til að efla atvinnulíf
á Akureyri,“ sagði Sigurður Jó-
hannesson.
Nr*
mi
Mynd KGA
60 fá uppsagnarbréf
„Við undirritaöir starfsmenn
Slippstöðvarinnar hf. skorum
á bæjarstjórn Akureyrar að
hlutast til um að nú þegar verði
gengið til samninga við Slipp-
stöðina hf. um smíði á togara
þeim er Útgerðarfélag Akur-
eyringa bauð út sl. vor, svo
ekki þurfí að koma til fram-
kvæmda þær stórfelldu upp-
sagnir sem nú eru fyrirsjáan-
legar hjá Slippstöðinni hf. Við
viljum benda á að starfsfólk,
sem sagt verður upp hjá SIipp-
stöðinni hf., hefur ekki í
nein önnur störf að hverfa hér
í bæ sem óhjákvæmilega hefur
í för með sér stórkostlegan
brottflutning úr bænum.“
Þetta er bréf sem 209 starfs-
menn Slippstöðvarinnar hf. á
Akureyri hafa skrifað undir, og
nokkrir fulltrúar þeirra afhentu
Valgerði Bjarnadóttur forseta
bæjarstjórnar í gær. Þegar þetta
er skrifað er ekki annað fyrirsjá-
anlegt en að uppsagnir 60 starfs-
manna fyrirtækisins komi til
framkvæmda á morgun.
„Það hlýtur að vera hagur
bæjarfélagsins að þetta verkefni
fari ekki úr bænum, og við viljum
fyrst og fremst með þessu bréfi til
bæjaryfirvalda vekja athygli á
þeirri alvarlegu stöðu sem upp er
komin,“ sagði Örn Einarsson,
einn af trúnaðarmönnum starfs-
manna í Slippstöðinni, sem af-
henti Valgerði Bjarnadóttur
bréfið í gær.
„Slippstöðin er eitt af fjórum
undirstöðufyrirtækjum Akureyr-
arbæjar og það sjá allir hversu
alvarlegt ástandið er þegar þarf
að segja upp öllum þessum fjölda
starfsmanna, svo ég tali ekki um
það tjón sem stöðin verður fyrir.
Ef 60 menn verða látnir fara frá
fyrirtækinu verður það óbætan-
legt tjón því það er búið að
byggja starfsemi stöðvarinnar
upp á þeim starfsmönnum sem
þar vinna,“ sagði Örn Einarsson.
Sjá nánar á baksíðu.