Dagur - 07.12.1983, Blaðsíða 10
10 DAGUR - 7. desember 1983
Við bjóðum í jólamatinn:
„LONDON-LAMB
m*m ■' m mm
W'.Æ'.m
á meðan birgðir endast
Nýjar bækur frá Bókaforlagi
Odds Björnssonar
„Þar sem
vonin
grær“
Bókaforlag Odds Björnssonar á
Akureyri gefur nú út nýjustu
skáldsögu Ingibjargar Sigurðar-
dóttur, „Þar sem vonin grær“.
Eftir Ingibjörgu liggja um 20
skáldsögur, sem notið hafa
mikilla vinsælda, enda fjallar hún
um sígild viðfangsefni, gleðina og
sorgina, í gamalkunnu umhverfi
íslenskra lesenda.
í þessari nýju skáldsögu er það
Logi Snær, efnismaðurinn ungi,
sem bitur æskureynsla og síðar
eiturlyfin virðast ætla að leggja í
rúst. í sveitinni er hann særður
dýpst, en þar á líka upptök sín
hamingjulind þessa hrjáða borg-
arbarns. Mannkostir fara ekki í
súginn, því hann ratar að lokum
veginn eina.
Logi Snær gerist forystumaður
þeirra sem snúa af glötunarbraut,
því eins og hjúkrunarkonan Mar-
ín segir: „Kraftaverkin gerast
enn á okkar dögum . . .“
„Þar sem vonin grær“ er 197
bls., prentuð og bundin í Prent-
82
verki Odds Björnssonar. Verð
kr. 494,00.
„Ysjur og
austræna“
Bókaforlagið sendir nú frá sér
annað bindið af „ Ysjum og aust-
rænu“, eftir Jón Gísla Högnason
frá Læk. í bókinni eru frásagnir
mjólkurbílstjóra á Suðurlandi.
sAONAíÆrns
M.:ó;*T.mEítSTJóiiA Á Etroimr.ANEi
Þessar bækur lýsa því ævintýri
tækni og samvinnu sem opnaði
sveitirnar fyrir nýjum tíma.
í nafnaskrá 2. bindis eru yfir
1000 manna- og bæjanöfn og 140
ljósmyndir. Pað má því sjá af
öllu, að hér eru á ferðinni yfir-
gripsmiklar bækur um nýtt svið í
þjóðlegum fróðleik okkar. Les-
endur fögnuðu þessum einlægu
frásögnum í 1. bindi og varðandi
tök Jóns Gísla á viðfangsefninu
nægir að vísa til ritdóms eftir
Björn Þorsteinsson, prófessor í
Jón Gísli Högnason
MINNINGAÞ/ETn R
SAMKERÐAMANNA
sagnfræði við Háskóla íslands:
„Um þau stórtíðindi hefur
Gísli skrifað mjög athyglisverða
bók . . . Þegar þar að kemur er
hlutur erfiðismannsins oft
gleymdur, og tiltækar heimildir
fjalla jafnan um höfðingjana en
ekki fólkið sem þeir unnu fyrir
eða fjötruðu, þegar grannt er
skoðað. „Sagan gjarnan eignar
einum/afrekin þín dreifði
múgur“, kvað Stephan
G. . . . Því er ekki þann veg far-
ið hjá honum Gísla á Læk; þeim
Helga Ágústssyni og köppum
hans er öllum vel borgið og njóta
hverannars . . .“ (DV 3.1.1983.)
í 2. bindinu af „ Ysjum og aust-
rasnu“ eru frásagnamenn 30 tals-
ins og lýsa margháttaðri atvinnu-
uppbyggingu og samfélagsþróun.
Bókin er 441 bls. og kostar kr.
1.235,00.
Gengnar
leiðir“
Bókaforlagið sendir nú frá sér
nýja bók eftir Jón Gísla Högna-
son frá Læk, og nefnist hún
„Gengnar leiðir“. í bókinni eru
minningaþættir 8 samferða-
manna. Jón Gísli hefur áður tek-
ið saman safnrit með frásögnum
alþýðufólks, en sjaldan hefur
honum tekist að laða fram jafn
samstætt safn aðlaðandi persóna.
Með hans eigin orðum er þetta
„lífsreisa um langvegu, sem farin
var af þeim, sem geta glaðst og
fundið til“.
í bókinni eru sögur úr sveit og
frá sjávarsíðunni, ilmur úr sveit
og angan af hafi, - og lýsing á
því hvernig ísland nútímans varð
til. Sviðið er vítt, en merkastar
munu þykja frásagnirnar af
atvinnu- og búsetuþróun á
Suðurlandi. Mikill fjöldi ljós-
mynda er í bókinni og henni fylg-
ir ítarleg nafnaskrá. 216 bls.
Verð kr. 697,80.