Dagur - 18.04.1984, Blaðsíða 12
12 - DAGUR -18. apríl 1984
Kardemomnui-
fe bærinn
eftir Thorbjörn Egner
Sýning skírdag 19. apríl kl. 15.00.
Sýning annan í páskum 23. apríl kl. 17.00.
Miðasala opin alla virka daga frá kl. 15-18.
Laugardaga og sunnudaga frá kl. 13 og fram að sýningu.
*
Súkkulaði handa Silju
í Sjallanum skírdag 19. apríl kl. 20.00.
Miðasala í Sjallanum sýningardag frá kl. 18.00.
Leikfélag Akureyrar.
^ SAMBAHO ÍSLENZKRA SAMVINNUFÉLAGA
lónaóardeild • Akureyri
Okkur vantar
vanar saumakonur
á dagvakt
Uppl. í síma 21900 (220 - 274)
Glerárgata 28 • Pósthólf 606 • Sími (96)21900
Starfsmaður óskast
til skrifstofustarfa
Um heilsdagsstarf er aö ræöa.
Vélritunarkunnátta æskileg.
Umsóknir sendist á afgreiðslu Dags, Strandgötu
31 merkt „Skrifstofustörf“ í síöasta lagi 27.
apríl nk.
Starf brunavarðar
við Slökkvistöð Akureyrar er laust til umsóknar.
Umsækjendur þurfa að uppfylla ákveðin skilyrði.
Upplýsingar veitir undirritaður.
Umsóknarfrestur er til 4. maí nk.
Slökkviliðsstjóri. - - • • • "
Bernharð Steingrímsson:
Mun Akureyri teljast til
smærri sjávarplássa að
10 árum liðnum?
Undanfarna mánuði hefur átt sér
stað allmikil umræða í fjölmiðl-
um um stóriðju og álver við Eyja-
fjörð. Hefur í umræðu þessari
ekki skort á sjónarmið ýmissa
afturhaldsafla sem sjá dauðann
og djöfulinn í hverju horni þegar
þessi mál ber á góma. Virðist það
vera viðtekin venja þegar stíga á
framfaraspor að upp rísa alls
kyns gamlir þröskuldar og kerl-
ingabækur sem telja það sína
heilögu skyldu að hamast með
öllum mætti gegn eðlilegri fram-
þróun. Má til gamans minna á
þær deilur sem urðu þegar ís-
lendingar símavæddust, og síðar
þegar útvarp og loks sjónvarp
komu.
í raun má nefna mýmörg dæmi
frá öllum tímum þar sem alls
kyns þjóðrembulið og afturhalds-
seggir hafa risið upp og talið sig
guðs útvalda brjóstvörn landsins
gegn slíkum vágestum sem nýj-
ungar og framfarir eru.
Ef maður skoðar svolítið þenn-
an samtíning sem nú harðast
berst gegn stóriðju við Eyjafjörð
þá rekur maður fljótt augun í að
samkór þessi samanstendur yfir-
leitt af fólki sem komið hefur ár
sinni það vel fyrir borð í þjóðfé-
iaginu að það þarf ekki að óttast
né kvíða atvinnuleysi, eignamissi
eða nokkra röskun á sínum lífs-
háttum þó ríkjandi ástand vari
áfram. Friðhelgi landsins verður
að sitja í fyrirrúmi fyrir eðlilegri
framþróun og afkomu almenn-
ings.
Pað virðist ekki snerta neina
taug í brjósti þessara aðila að nú
er svo komið að margur maður-
inn sem annars vildi gjarnan búa
áfram hér á Akureyri neyðist til
að selja íbúð eða húseign sína
fyrir hálfvirði og flytja þangað
sem hann getur fætt og klætt sig
og sína. Hefðu forystumenn Ey-
firðinga haft rænu á fyrir um 10
árum að hefjast handa við undir-
búning stóriðju þá má fullyrða að
ástandið væri ólíkt því sem það
er í dag. Þessum blessuðum for-
ustusauðum getum við nú þakk-
að það að í skiptum fyrir góða
raðhúsíbúð hér á Akureyri fæst
ekki öllu meira en skitin þriggja
herbergja kjallarahola á Reykja-
víkursvæðinu.
Ef þingmenn okkar og forustu-
lið halda áfram sínum sofanda-
hætti og þæfa málið e.t.v. næstu
10 ár til viðbótar þá er ástæða til
að óttast að hinn stolti höfuðstað-
ur Norðurlands geti varla státað
af stærri íbúatölu en Iítið sjávar-
þorp að þeim tíma liðnum.
Innan Alþingis er nú verulegur
meðbyr og fylgi með því að kom-
ið verði upp stóriðju við Eyja-
fjörð. Hins vegar bendir margt til
þess að við Eyfirðingar ætlum að
falla í þá ógæfu að láta aftur-
haldssemi og ráðríki einstakra
þverhausa koma í veg fyrir
möguleika á 500-1.000 nýjum
störfum fyrir okkur. Við þörfn-
umst þessa tækifæris og við þurf-
um á aðstoð og velvilja Alþingis
að halda í þessu máli enda löngu
komin röðin að Eyjafirði.
Andstæðingar stóriðju klifa
gjarnan á mengunarhættu, en
hvenær hefur heyrst frá þeim svo
mikið sem eitt lítið tíst út af
þeirri mengun sem efnaverk-
smiðjur bæjarins, mjólkursam-
lag, Sambandsverksmiðjurnar,
sjúkrahús o.fl. aðilar spýja í
Ppllinn.
Allri starfsemi mannsins tyigir
mengun sem óhjákvæmilega er
meiri þar sem verðmætasköpunin
er mest. Á jafn fjölmennum
vinnustað og stóriðja krefst verð-
ur að teljast eðlilegt að mengun
sé meiri en hjá minni fyrirtækjum
en við verðum að sýna þá sann-
girni að ætlast ekki til að mengun
af völdum stóriðju sé minni fyrir
hvern starfsmann en hjá öðrum
fyrirtækjum hér um slóðir.
Einn af okkar lúnari þing-
mönnum hefur tjáð sig um þá
kenningu að það væru 100 aðrir
möguleikar en stóriðja þó svo
hins vegar að það stæði svolítið i
manninum þegar spurt var eftir
hvað til greina kæmi. Hann hafði
jú unnið ötullega að því að redda
30 þúsundum fyrir einhvern og
gott ef það voru ekki 60 þúsund
fyrir annan og var á fullu að
bjarga fyrirgreiðslu upp á 45 þús-
und fyrir þann þriðja.
Nú er það svo með þessa 100
möguleika og mengunina að trú-
legt má teljast að erfiðara verði
að fylgjast með 100 smáum
mengunarvöldum heldur en ein-
um stórum eða er kannski öllum
heimilt að menga séu þeir nógu
smáir til þess að teljast ekki til
stóriðju?
Nú þegar Alþingi er reiðubúið
að standa að baki okkur í stór-
átaki til uppbyggingar atvinnu-
lífsins með stóriðju verðum við
að vera samvinnufús því við þurf-
um ekki að gera okkur neinar
Sveitakeppm Ungmennasam-
bands Eyjafjarðar í bridds er ný-
Iega lokið. Sveit Ungmennafé-
lags Svarfdæla varð sigurvegari,
en í henni eru Stefán Jónsson,
Eiríkur Helgason, Kristján Jóns-
son og Jón Jónsson. í öðru sæti
varð Ungmennafélagið Porsteinn
Svörfuður og Ungmennafélag
Skriðuhrepps varð í 3. sæti.
Þá er einnig nýlokið tví-
menningskeppni í bridds á veg-
um Ungmennafélagsins Dags-
vonir um að sú hin háa samkoma
nenni að dekstra okkur til sjálfs-
bjargar. Enn síður þurfum við að
gera okkur vonir um að yfirvöld
fari að vasast í einhverjum 100
smámöguleikum og bílskúra-
bissnes. Bjóðist okkur nú störf
fyrir 500-1.000 manns, plús
ómældur peningur í kassann hjá
Rabba þá getum við ekki staðið
þegjandi hjá ef forustusauðirnir
afþakka það. Það er ekki hægt að
una þeirri hugarfarslegu tregðu
og afturhaldi sem hér hefur verið
ríkjandi.
Þess vegna skora ég á alla
hugsandi menn að stuðla að því
að hafi þingmönnunum sem við
höfum kosið yfir okkur ekki tek-
ist að koma þessu máli á hreint
fyrir sumarfríið þeirra þá geti
þeir leitað fyrir sér með aðra at-
vinnu eftir næstu kosningar.
Að lokum þetta til þeirra sem
sjá mynd djöfulsins í öllu sem
heitir erlent fjármagn. Hvaða
hagkerfi sem menn aðhyllast þá
skiptir það engu hver á fjármagn-
ið. Það eitt skiptir máli hvernig
það er notað. Minnumst þess að
nú er ekki rétti tíminn fyrir
þjóðrembu og hræsnisfullt nátt-
úruverndarhjal, við þörfnumst
aðgerða.
(Annars átti þetta nú upphaf-
lega bara að vera smáauglýsing
þar sem ég ætlaði að auglýsa hús-
ið mitt til sölu.)
Bernharð Steingrímsson.
brúnar í Glæsibæjarhreppi. Sig-
urvegarar urðu Ingibjörg Helga-
dóttir og Jósavin Gunnarsson. í
2. sæti urðu Ómar Ingason og
Hringur Hreinsson og það var
aðeins eitt stig sem bar á milli. í
tvímenningskeppninni var spilað
um svonefndan „Slick 50“ bikar,
sem Smurstöð Þórshamars gaf.
Blómlegt briddslíf hefur verið
hjá Dagsbrúnarmönnum í vetur
og er spilað í Hlíðarbæ á hverju
þriðjudagskvöldi.
Jósavin Gunnarsson og Ingibjörg Helgadóttir sigruðu í
Blómlegt briddslíf
í Glæsibæjarhreppi