Dagur - 18.04.1984, Blaðsíða 15
18. apríl 1984 - DAGUR -15
„Útvarp Randver
góðan daginn“
Nemendur
í Oddeyrar-
skóla í
„starfsviku“
í tilefni af starfsviku Oddeyrar-
skólans litum við þar inn, dag
einn í vikunni. Þar voru í gangi
fjölmörg verkefni. Nemendur og
kennarar skólans höfðu meðal
annars komið á fót útvarpinu,
Randver, og unnu að því hörðum
höndum að setja saman efni sem
hægt væri að útvarpa.
Víða mátti sjá krakka í hópum
að sinna margs konar verkefnum,
t.d. voru nemendur í 9. bekk að
búa til forrit í tölvur sem síðan
geta gefið upplýsingar um sjálfan
þig og spár um framtíðina. 8.
bekkur var aðallega með verk-
efni úr mannkynssögunni og svo
7. bekkingarnir sem gengu í
verslanir og verksmiðjur og
gerðu ýmsar kannanir.
Pessi verkefni nemenda skól-
ans verða svo til sýnis á skólasýn-
ingu sem haldin verður í skólan-
um næstkomandi laugardag.
En hér birtum við nokkrar
myndir frá starfsvikunni og við
skulum láta þær tala sínu máli.
Verkefni unnið af nemendum í
starfskynningu:
Þeim Stefáni Steindórs-
syni og Vidda Mar. úr Oddeyrar-
skólanum og Rannveigu Ár-
mannsdóttur Glerárskóla.
Útvarp Oddeyrarskóli! Góðan daginn
mmm
8. bekkur í afslöppun.
Og hér er svo útvarpið Randver Tækniheimurinn? Eddi og Högni setja forrit í tölvur.
staðsett....
Unnið að gerð útvarps og skemmtiþátta.
SENDUM FÉLAGSMÖNNUM OG VIÐSKIPTAVINUM BESTU ÓSKIR UM
GLEÐILEGT SUMAR
MEÐ ÞÖKK FYRIR VETURINN