Dagur - 18.04.1984, Qupperneq 20
ÞJÓNUSTA
FYRIR
r
r
• a
HAÞRYSTISLONGUR
OLÍUSLÖNGUR og BARKA
PRESSUM
TENGIN Á
FULLKOMIN TÆKI
VÖNDUÐ VINNA
K-
§s
s
s
»
Búsetar láta
steinsteypuna
ekki sliga sig
- 139 stofnfélagar á Akureyri
139 manns gerðust stofnfé-
lagar í Húsnæðissamvinnu-
félaginu Búseta á Akureyri,
en frestur til þess rann út 15.
aprfl. Á næstunni verða
sendir út gíróseðlar fyrir 500
króna stofngjaldi og þeir
sem hafa greitt það fyrir 2.
maí verða fullgildir félagar
þegar númeraröð verður
dregin út, samkvæmt upplýs-
ingum Jóns Arnþórssonar,
formanns félagsins.
Auk Jóns í stjórn félagsins eru:
Gylfi Guðmarsson varaformað-
ur, Björn Snæbjörnsson gjald-
keri, Jón B. Pálsson ritari og
Halldóra Jóhannsdóttir spjald-
skrárritari. í varastjórn eru Jón-
ína Pálsdóttir, Jakob Björnsson
og Bjarni Reykjalín.
„Búseti er óskabarn síns tíma
á íslandi, þegar unga fólkið og
raunar fólk á öllum aldri hættir
að líta á húsnæði eins og lausa-
fjármuni, sem geti gengið kaup-
um og sölum. Það afþakkar
eignarétt steinsteypunnar, sem
því miður hefur sligað margan
manninn. Pess í stað kýs þetta
fólk íbúðaröryggi á viðráðan-
legum kjörum og greiðir húsa-
leigureikninginn eins og hvern
annan síma- eða rafmagnsreikn-
ing. Með þessum hætti á fólkið
fleiri kosti til lífsfyllingar,“ sagði
Jón Arnþórsson um megintilgang
Búseta. - GS.
Aðsókn að hótelum um páskana:
„Allt undir
veðri komið“
- segir Auður Gunnarsdóttir á Húsavík
Greinilegt er að hótclstjórar á
Norðurlandi eru uggandi um
að þeir gestir sem eiga pantað
um páskana muni ekki skila
sér, og er það að sjálfsögðu
veðurútlitið sem spilar þar
mest inn í.
„Það er allt upppantað hjá
okkur ef allir skila sér,“ sagði
Haraldur Sigurðsson hótelstjóri
á Hótel Akureyri er við ræddum
við hann. „Reyndar var allt upp-
pantað í fyrra einnig en þá
skiluðu sér ekki nema 5-6 manns
svo maður er við öllu búinn
núna,“ bætti Haraldur við.
„Pað er talsvert bókað hjá
okkur, ég reikna með um 30
manns, en það er allt undir veðr-
inu komið hvort dæmið gengur
upp,“ sagði Auður Gunnarsdótt-
ir hótelstjóri á Hótel Húsavík.
„Við eigum von á flestu af þessu
fólki á miðvikudag og ef ekki gef-
ur til flugs þá er hætt við að þetta
verði dapurt hjá okkur. Við verð-
um bara að vona að veðrið verði
gott.“
„Pað er nokkuð vel bókað hjá
okkur,“ sagði Kristján E. Jónas-
son hótelstjóri á Hótel KEA.
„Það er helst að það sé ekki bók-
að í eins manns herbergin en efi
allir skila sér reikna ég með að
við verðum með um 75% nýtingu
hér um páskana. En það er nokk-
ur hreyfing á þessu, sumir eru að
afpanta og aðrir þá að láta bóka
sig í staðinn." gk-.
Heldur virtist tíðindalítið að Skíðastöðum í Hlíðafjalli í gær, en væntanlega er það aðeins lognið á undan skíða-
mannastorminum. Mynd: KGA.
Fyrsta fjölbýlishúsið á Dalvík:
Tréverk hf. með
lægsta tilboðið
Tréverk h.f. á Dalvík var með
lægsta tilboðið í byggingu 8
íbúða fjölbýlishúss á Dalvík, á
vegum stjórnar Verkamanna-
bústaða í bænum, en tilboð
þessi voru opnuð á mánudag.
Grunnur hússins hefur þegar
verið steyptur en útboðið miðað-
ist við að verktaki skilaði húsinu
fullbúnu. Á það að vera fokhelt 1.
október, 2 íbúðir og sameign eiga
að vera tilbúnar 1. maí en fram-
haldið er háð fjárveitingu til
verksins.
Kostnaðaráætlun var upp á
rúmlega 12,1 milljón króna og í
verkið bárust 6 tilboð frá verk-
tökum í Eyjafirði. Tilboð Tré-
verks var rétt rúmlega 10 milljón-
ir eða 82,88%, Tréver h.f. í
Ólafsfirði var með tæpar 12 millj-
ónir, Ýr á Akureyri með um 10,9
milljónir, Híbýli h.f. Akureyri
með rúmar 11 milljónir, Aðalgeir
og Viðar Akureyri með rúmar
11,4 milljónir og hæsta tilboðið
var frá Pverás h.f. á Dalvík upp
á 12,3 milljónir.
Að sögn Sveinbjörns Stein-
grímssonar bæjarverkfræðings á
Dalvík er að vænta ákvörðunar
um hvaða tilboði verður tekið
strax eftir páskana, en hann sagði
að allt benti til þess að lægsta til-
boðinu yrði tekið og Tréverk h.f.
myndi verða verktaki að bygg-
ingu þessa fyrsta fjölbýlishúss á
Dalvík. gk-.
Veður
í dag og á morgun er reiknað
með hægviðrí norðanlands, en
á morgun er reiknað með
slyddu öðru hvoru, samkvæmt
upplýsingum veðurstofunnar í
morgun. Á föstudaginn er síð-
an reiknað með austanátt og
norðaustanátt í framhaldi af
henni, sem leiðir að öllum lík-
indum til snjókomu og kóln-
andi veðurs. Þó er ekki reiknað
með miklu frosti. Á laugardag-
inn er spáð áframhaldandi
norðaustanátt, en lengra náði
veðurspáin ekki í morgun. En
við hjá Degi spáðum í spil og
útkoman varð sól og blíða á
páskadag!
# í stað
gjaldeyris
Skipverjar af sovéska rækju-
flutningaskipinu sem er í
höfn á Akureyri settu nokk-
urn svip á bæjarlífið í miðbæ
Akureyrar í gær. Hópur þeirra
var á stjái þar og skáru þeir
sig nokkuð úr fjöldanum sak-
ir klæðaburðar og framkomu.
Voru þeir hálf læðupokalegir
enda í „bisness". Gerðu þeir
nokkuð af því að lauma sér
inn í verslanir og tóku þá upp
úr poka sínum eða buxna-
streng sígarettur og vodka
og vildu greinilega hafa vöru-
skipti. Ekki er gott að ræða
við þessa kappa, enda orða-
forði þeirra af skornum
skammti eins og gjaldeyrir-
inn. En þetta athæfi þeirra
hlýtur að flokkast undir
sjálfsbjargarviðleitni í er-
lendri höfn.
# ívar er
óvinsæll
ívar Sigmundsson Hlíðar-
fjallsstjóri kom í viðtal hjá
RÚVAK á dögunum og pant-
aði „snjóþyngsta apríl í
manna minnum“. Ekki hafði
þetta viðtal fyrr verið sent út
en það tók að snjóa og blása
köldum vindum um Akureyri
og Hlíðarfjall en vikurnar á
undan hafði verið sannkallað
vorveður á Akureyri. Margir
blótuðu ívari fyrir þessa
„pöntun“ og þeir sem verst
tóku þetta upp óskuðu þess
að allt myndi fara á kaf í Hlíð-
arfjalli svo ófært yrði þangað
uppeftir og ekkert hægt að
aðhafast þar. ívar var í
margra huga óvinsæll mjög
en sjálfur hefur hann mjög
gaman af þessu öllu og fagn-
ar páskum með nægan
skíðasnjó fyrir sig og sína.
# Sjónvarpið
„Ég verð að segja alveg eins
og er að það hvarfíar að mér
í fyrsta skipti að fá mér
vídeótæki á leigu,“ sagði
einn kunningi S&S er hann
renndi augum yfir dagskrá
sjónvarpsins um páskana.
Þessi dagskrá er sannast
sagna ekki mjög áhugavekj-
andi fyrir allan þorra fólks -
fullyrðing sem hægt væri að
sanna með skoðanakönnun -
enda hátíðarsvipurinn á
henni yfirþyrmandi. Virðast
þeir sem settu þessa
dagskrá saman hafa gefið sér
það að landsmenn ætli að
sitja með helgisvip alla pásk-
ana og að bros megi ekki
sjást á einu einasta andliti.
En þeir hinir sömu ættu að
kynna sér aðsókn lands-
manna í vídeóleigurnar
þessa dagana. Reyndar hafa
sést auglýsingar frá vídeó-
leigum þar sem þær hvetja
fólk til þess að kynna sér
dagskrá sjónvarpsins (!) og
þarf ekki að fara mörgum
orðum um hvers vegna.