Dagur - 24.04.1985, Blaðsíða 14
14 - DAGUR - 24. apríl 1985
Aðalfundur
Útgerðarfélags
Akureyringa hf.
veröur haldinn í matsal frystihúss félagsins
mánudaginn 13. maí nk. kl. 20.30.
Dagskrá samkvæmt félagslögum.
Stjórnin.
Akureyringar-Norðlendingar
Odýrustu sumardekkin
fást hjá okkur
Eigum ný og sóluð sumardekk
á hlægilegu verði.
Greiðsluskilmálar og kreditkort.
Opið kvöld og helgar.
Jafnvægisstillum og
vöndum fráganginn.
Bflaþjónustan
Hjólbarðaverkstæði, Tryggvabraut 14,
símar 21715 og 23515. Verkstjóri: Sveinn Bjarman.
Auglýsing um
skattskrá 1984
Skattskrá Norðurlandsumdæmis eystra 1984
liggur frammi á skattstofu umdæmisins aö Hafn-
arstræti 95, Akureyri, frá 24. apríl til 7. maí nk.
Einnig liggja þar frammi skrár um álagðan launa-
skatt 1984 og álagt sölugjald 1983.
Hjá umboðsmönnum skattstjóra liggja frammi
skrár hvers sveitarfélags.
Akureyri, 24. apríl 1985
Skattstjóri Norðurlandsumdæmis eystra.
AKUREYRARBÆR
Smábátalegur
Akureyrarhöfn auglýsir 20 smábátalegur í Sand-
gerðisbót lausar til umsóknar.
Umsóknarfrestur er til 30. apríl nk. og skal skila
umsóknum til Akureyrarhafnar, pósthólf 407, 602
Akureyri.
í umsókninni skal meðal annars koma fram nafn
bátsins og stærð (brl., lengd og breidd).
Eldri umsóknir óskast endurnýjaðar.
Hafnarstjóri.
VMA
Verkmenntaskólinn hélt
sína fyrstu árshátíð á
fimmtudagskvöldið í Sjall-
anum. Þar var margt til
gamans gert og skemmtu
nemendur og kennarar sér
með eindæmum vel.
Kennarar léku hinar
ýmsu kúnstir með bundið
fyrir augun og þá hlógu
nemendur verulega. En
kennararnir gátu svo í ró-
legheitum hlegið að nem-
endum, þegar þeir iðkuðu
morgunleikfimi eftir
undarlegum kúnstar
reglum. Og ýmislegt fleira
var á dagskránni.
Meðfylgjandi myndir
tók KGA á árshátíðinni og
þær tala sínu máli.