Dagur - 23.12.1985, Page 3

Dagur - 23.12.1985, Page 3
23. desember 1985 - DAGUR - 3 Bæjarsjóður Akureyrar: Gjöld 30 milljónir umfram tekjur Heildarútgjöld bæjarsjóðs Ak- ureyrar um áramót munu að öllum líkindum verða u.þ.b. 30 milljónum króna meiri en heildartekjur á þessu ári og þar með hefur reksturinn farið 5- 10% fram úr áætlun. Að sögn Helga Bergs bæjar- stjóra eru einkum þrjár ástæður sem valda því að útgjöldin hafa orðið meiri en gert var ráð fyrir í ársbyrjun. í fyrsta lagi varð verðbólgan meiri en ráð var fyrir gert. Fjár- hagsáætlun þessa árs gerði ráð fyrir 30% verðbólgu en hún reyndist verða 35%. í öðru lagi urðu kjarasamning- ar þeir sem gerðir voru við STAK í sumar kostnaðarsamari en ráð var fyrir gert. „Kjarasamningarnir við STAK voru kannski heldur ríflegri en margir aðrir, en við vorum þarna að leiðrétta þann launamun sem við töldum vera hjá starfsmönn- Hrísey: Ekkert atvinnu- leysi Það sem af er árinu hafa Hrís- eyingar framleitt útflutningsaf- urðir fyrir u.þ.b. 180 milljónir króna að nettóverðmæti, að sögn Guðjóns Björnssonar, sveitarstjóra í Hrísey. Á sama tíma hafa skip Hrísey- inga landað fiski utan heimahafn- ar fyrir um það bil 21 milljón króna, miðað við verðmæti upp úr sjó. Auk Fiskvinnslustöðvar Kaup- félags Eyfirðinga eru í Hrísey tvær aðrar fiskverkunarstöðvar, Borg og Rif, sem gera báðar út sína báta. Frá því í janúar hefur enginn komist á atvinnuleysisskrá í Hrísey og fyrirsjánlegt að engin breyting verður þar á fram yfir áramót. Það er því óhætt að segja að atvinnuástand í Hrísey sé gott um þessar mundir. -yk. um bæjarins miðað við laun á hinum almenna markaði,“ sagði Helgi Bergs. í þriðja lagi fór framkvæmda- kostnaður við nýbyggingar langt fram úr áætlun og þá sérstaklega við Síðuskóla en þar fóru fram- kvæmdir 100% fram úr áætlun eða sem nam 16 milljónum króna. Bæjarstjóri sagði að innheimta opinberra gjalda gengi mjög vel og væri heldur betri en í fyrra. Greiðsluáætlun fyrir desember- mánuð gerir ráð fyrir yfir 90% innheimtu og ef nokkrir stórir að- ilar gera skil á gjöldum sínum fyrir áramót mun staðan um ára- mót verða betri en í fyrra, en þá voru innheimtuskil 92%. BB. Rafverktakar: Norðurland eítt löggildingarsvæði Rafveitur á Norðurlandi hafa komið sér saman um að Norðurland allt verði eitt lög- gildingarsvæði fyrir rafverk- taka og tekur breytingin gildi um áramót. Til þessa hafa rafverktakar sem t.d. hafa ætlað sér að starfa á Akureyri þurft að sækja sér- staklega um löggildingu til Raf- veitu Akureyrar. Hafi þeir síðan ætlað að taka að sér verkefni utan Akureyrar, t.d. á Húsavík, hafa þeir einnig þurft að sækja um lögglidingu þar. Nú hefur þessu semsagt verið breytt þann- ig að ein nefnd mun sjá um að veita rafverktökum á Norður- landi löggildingu og mega þeir þá taka að sér verk hvar sem er á því svæði. Nefnd þessi er skipuð yfir- mönnum Rafveitu Akureyrar, Rafveitu Húsavíkur, Rafveitu Sauðárkróks, Rafveitu Siglufj- arðar, Rafmagnsveitna ríkisins á Noröurlandi vestra og Rafmagns- veitna ríkisins á Norðurlandi eystra. -yk. Fyrir helgina lét Jon Benedikts- son af störfum ritara Bæjarþings Akureyrar, en Jón sem er 91 árs hefur starfaö sem ritari i þinginu i 52 ár. IVIynd KGA her aö ofan var tekin er Jon skrifaöi sina siöustu fundargerö i bæjarþingi. Nyarsfagnaður í Sjallanum „Við vöndum mjög til þessarar veislu, stillum verðinu í hóf, enda höfum við orðið varir við mikinn áhuga hjá fólki fyrir þessu kvöldi,“ sagði Sigurður Sigurðsson veitingamaður í Sjallanum á Akureyri, en á ný- árskvöld verður mikið um dýrðir þar. Nýársfagnaður Sjallans hefst kl. 19 og verður gestum boðið upp á lystauka áður en borðhald- ið hefst kl. 20 stundvíslega. Mat- seðillinn er óvenju glæsilegur og samanstendur af sæsniglasúpa, - villibráðarpaté með radísum og rislingssósu, - rósapiparkrydd- aðri aliönd með hunangskara- mellusoðnum vínberjum, rjóma- bökuðum kartöflustrimlum, smjörbættum blaðlauk og val- hnetusalati. Þá kemur koníaks- ísterta með marsipan, konfekt - smákökur og loks kaffi og konfekt. Á meðan gestir snæða þennan veislumat leikur Strengjasveit Tónlistarskóla Akureyrar. Síðar syngja svo Michael Clarke, Þur- íður Baldursdóttir og Antonía Ogonovsky dúetta og léttar óper- ettur við undirleik strengjasveit- arinnar. Af öðrum skemmtiatrið- um má nefna að leikarar úr Leik- félagi Akureyrar syngja „Paper doll“ söngva úr leikritinu um Piaf. Að lokum verður svo dans- að við undirleik hljómsveitarinn- ar Áningar. - Miðasala er mánu- dag 30. des. kl. 18-20 og borða- pantanir alla daga í síma 22970. Verðið er kr. 2.700. „Bændur eru að kanna hvort samkomulag næst um aö skera niður allt fé á riðubæjum, en ég reikna ekki með að niður- staða fáist fyrr en í janúar,“' sagði Bárður Guðmundsson, héraðsdýralæknir á Húsavík í samtali við Dag. Tvö ný riðutilfelli komu í ljós í haust á bæjunt í Reykjadal og Aðaldal. Heilasýni voru tekin úr öllu fullorðnu fé sem slátrað var á Húsavík í haust og kvaðst Bárður reikna með að niðurstöð- ur úr rannsóknum á þeim gætu farið að berast. Ef bændur koma sér saman um slátra öllu fé af riðubæjum næsta haust gætu það orðið á milli 7 og 8 þúsund fjár. Þeir bæir sem um er að ræða eru í Kelduhverfi, Aðaldal, Reykjahreppi, Aðaldælahreppi, Reykdælahreppi og á Húsvík. -yfc Snyrtivörudeild: Primo. f m Jólalistaukinn í ár eru ilmvötnin frá ARMANI fyrir dömur og herra. CARTIER, CHANEL No 5 og 19. Karl Lagerfeld, Chloe, Sonia Rykel, og síðast en ekki síst JOY. VISA Leikvellir Frá og með næstu áramótum hækkar aðgangs- eyrir að gæsluvöllum og verður sem hér segir: Hver heimsókn barns kr. 20.- Hver heimsókn systkina kr. 30.- Afsláttur af kortum 20% Leikvallanefnd. RESTAURANT Restaurant Laut auglysir Opnunartfmi yfir jól. Þorláksdagur. Fjölbreytt kaffihlaðborð siðdegis og fram eftir kvöldi. Eldhusið opið frá kl. 18.00. Jólaglögg og piparkökur aiian daginn. Lokað aðfangadag og jóladag. Annar i jólum. Kvöldverður frá kl. 18.00. Lifandi tónlist. Föstudag 27. desember. Hljómplötukynning. Rúnar (rimlarokkari) Þ. Pétursson kynnir og áritar plötu sína „Auga i vegg“ Eidhúsið opið frá kl. 18.00-24.00. Laugardag 28. og sunnudag 29. desember. Opið allan daginn. Lifandi tónlist á kvöldin. Opið um áramót. Sjá nánar i augl. mánudaginn 30. desember. Borðapantanir í síma 22525. RESTAURANT LAUT HÓTELAKUREYR^ HAFNARSTRÆTI 98 Blaðið kemur næst út föstudag- inn 27. desember og er skilafrest- ur á efni og auglýsingum til kl. 16 á Þorláksmessu. Síðasta blað fyr- ir áramót kemur síðan út mánu- daginn 30. desentber og er skila- frestur efnis og auglýsinga til há- degis föstudaginn 27. desember. Fyrsta blað á nýju ári kemur síð- an út föstudaginn 3. janúar og er skilafrestur á efni og auglýsingum deginum áður.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.