Dagur - 15.12.1986, Side 4
4 - DÁGUR - Í5. desember 1986
á Ijósvakanum.
lsjónvarpM
MANUDAGUR
15. desember
18.00 Úr myndabókinni.
32. þáttur. Endursýndur
þáttur frá 10. desember.
18.50 Skjáauglýsingar og
dagskrá.
18.55 íþróttir.
Umsjón: Bjami Felixson.
19.25 Fréttaágrip á tákn-
máli.
19.30 Steinaldarmennirnir.
(The Flintstones).
Ellefti þáttur.
Teiknimyndaflokkur með
gömlum og góðum kunn-
ingjum frá fyrstu ámm
Sjónvarpsins.
Þýðandi: Ólafur Bjarni
Guðnason.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar.
20.35 ísland - Finnland -
Bein utsending
Frá fjögurra þjóða hand-
knattleiksmóti í Laugar-
dalshöll.
21.15 Keppikeflið.
(The Challenge).
Annar þáttur.
Nýr bresk-ástralskur
myndaflokkur í sex þátt-
um um undirbúning og
keppni um Ameríkubikar-
inn fyrir siglingar árið
1983.
Aðalhlutverk: John Wood,
John Dietrich, John
Clayton, Nicholas Hamm-
ond og Tim Pigott-Smith.
Þýðandi: Jón O. Edwald.
22.05 Köttur á heitu þaki.
(Cat on a Hot Tin Roof).
Nýleg bandarísk sjón-
varpsmynd gerð eftir
þekktu leikriti eftir Tenn-
essee Williams.
Leikstjóri Jack Hofsiss.
Aðalhlutverk: Jessica
Lange og Tommy Lee
Jones.
Þýðandi Dóra Hafsteins-
dóttir.
00.35 Dagskrárlok.
Irás 11
MANUDAGUR
15. desember
6.45 Veðurfregnir • Bæn.
Séra Einar Eyjólfsson
flytur.(a.v.d.v.)
7.00 Fréttir.
7.03 Morgunvaktin.
- Páll Benediktsson, Jón
Baldvin Halldórsson og
Lára Marteinsdóttir.
Fréttir em sagðar kl. 7.30
og 8.00 og veðurfregnir kl.
8.15. Tilkynningar eru
lesnar kl. 7.25, 7.55 og
8.25.
7.20 Daglegt mál.
Erlingur Sigurðarson flytur
þáttinn. (Frá Akureyri)
9.00 Fréttir.
9.03 Jólaalmanakið.
„Brúðan hans Borgþórs",
saga fyrir börn á öllum
aldri.
Jónas Jónasson les sögu
sína (11).
Jólastúlkan, sem flettir
almanakinu, er Sigurlaug
M. Jónasdóttir.
9.20 Morguntrimm.
- Jónína Benediktsdóttir.
Tilkynningar • Tónleikar.
9.45 Búnaðarþáttur.
Hákon Sigurgrímsson hjá
Stéttarsambandi bænda
talar um stöðu kvenna í
bændasamtökunum.
10.00 Fréttir.
10.10 Veðurfregnir.
10.30 Úr söguskjóðunni -
Klessumyndadeilan.
Þáttur um deilur Jónasar
frá Hiiflu við lista- og
menntamenn árin 1941 og
1942.
Umsjón: Árni Daníel
Júlíusson. Lesari: Sigrún
Valgeirsdóttir.
11.00 Fréttir.
11.03 Á frivaktinni.
Þóra Marteinsdóttir kynn-
ir óskalög sjómanna.
12.00 Dagskrá • Tilkynning-
ar.
12.20 Fréttir.
12.45 Veðurfregnir • Til-
kynningar • Tónleikar.
13.30 í dagsins önn-Heima
og heiman.
Umsjón: Hilda Torfadóttir.
(Frá Akureyri).
14.00 Miðdegissagan:
„Glópagull", ævisögu-
þættir eftir Þóru Einars-
dóttur.
Hólmfríður Gunnarsdóttir
bjó til flutnings og lýkur
lestrinum (10).
14.30 íslenskir einsöngvar-
ar og kórar.
15.00 Fréttir • Tilkynningar
• Tónleikar.
15.20 Landpósturinn.
Frá svæðisútvarpi Akur-
eyrar og nágrennis.
16.00 Fréttir ■ Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Barnaútvarpið.
Stjórnandi: Vernharður
Linnet.
17.00 Fréttir.
17.03 Sinfóníur Franz
Berwalds.
Sinfonia nr. 4 í Es-dúr.
Umsjón: Anna Ingólfsdótt-
ir.
17.40 Torgið - Samfélags-
mál.
Umsjón: Bjarni Sigtryggs-
son.
Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir Dag-
skrá kvöldsins.
19.00 Fréttir.
19.30 Tilkynningar.
Daglegt mál.
Endurtekinn þáttur frá
morgni sem Erlingur Sig-
urðarson flytur. (Frá Akur-
eyri)
19.40 Um daginn og veginn.
Sigrún Þorsteinsdóttir í
Vestmannaeyjum talar.
20.00 Lög unga fólksins.
Þóra Björg Thoroddsen
kynnir.
20.40 Að tafli.
Jón Þ. Þór flytur skákþátt.
21.00 Gömlu danslögin.
21.30 Útvarpssagan: „Jóla-
frí í New York" eftir Stef-
án Júlíusson.
Höfundur les (9).
22.00 Fréttir Dagskrá
morgundagsins Orð
kvöldsins.
22.15 Vedurfregnir.
22.20 Ungt fólk í nútíð og
framtíð.
Annar þáttur af þremur:
Umsjón: Einar Kristjáns-
son.
23.00 Kvöldtónleikar.
a) . „Eitt lítið næturljóð"
K.525 eftir Wolfgang
Amadeus Mozart. St.
Martin-in-the-Fields
hljómsveitin leikur;
Neville Marriner stjórnar.
b) . Sellókonsert í D-dúr
eftir Joseph Haydn. Paul
Tortelier og Kammersveit-
in í Wurtemberg leika;
Jörg Faerber stjórnar.
c) . Sinfónía í Es-dúr op. 4a
nr. eftir Johann Stamitz.
Kammersveitin í Basel
leikur; Pául Scher stjórnar.
24.00 Fréttir • Dagskrárlok.
Irás 21
MANUDAGUR
15. desember
9.00 Morgunþáttur
í umsjá Kristjáns Sigur-
jónssonar og Sigurðar Þórs
Salvarssonar.
Meðal efnis: Barnadagbók
í umsjá Guðríðar Haralds-
dóttur að loknum fréttum
kl. 10.00, breiðskífa vik-
unnar, sakamálaþrautir og
pistill frá Jóni Ólafssyni í
Amsterdam.
12.00 Hádegisútvarp
með fréttum og léttri tón-
list í umsjá Margrétar
Blöndal.
13.00 Vid förum bara fetið.
Stjórnandi: Rafn Jónsson.
15.00 Á sveitaveginum.
Bjarni Dagur Jónsson
kynnir bandarísk kúreka-
og sveitalög.
16.00 Allt og sumt.
Helgi Már Barðason
stjórnar þætti með tónlist
úr ýmsum áttum.
18.00 Hlé.
20.00 Tekið á rás.
Ingólfur Hannesson og
Samúel Örn Erlingsson
lýsa leik A-Iandsliða
íslendinga og Finna í
handknattleik og leik
íslendinga og Bandaríkja-
manna í flokki pilta yngri
en 21 árs.
23.00 Dagskrárlok.
Fréttir eru sagðar kl. 9, 10,
11, 12.20, 15, 16 og 17.
RIKJSUTVARPIÐ
AAKLJRIYRI
Svæðisútvarp fyrir Akureyri
og nágrenni.
18.00-19.00 Gott og vel.
Pálmi Matthiasson fjallar
' um íþróttir og það sem er
efst á baugi á Akureyri og
í nærsveium.
hér og þac.
Hundclt af yfirvöldunum í Danmörku.
s
Astin þekkir engin
aldurstiikmörk
- Hún er 16 - hann er 55
Barnið á að heita Nikki
Þau voru hundelt af yfirvöldun-
um og lögreglan hefur yfirheyrt
þau eins og glæpamenn. Þau hafa
orðið fyrir aðkasti, háði og
spotti. Orsökin? Hún er 16 ára en
hann er 55 ára. Aldursmunurinn
er 39 ár. Winnie Pedersen og
Svend Andersen skilja ekki þessa
andúð: „Hver ætlar sér að
ákvarða aldursmuninn á fólki
sem verður ástfangið? Við elsk-
um hvort annað og viljum lifa
saman,“ segir parið. Yfirvöldin
eru ekki á sama máli. Þau segja
að þetta samband sé ólöglegt og
hafa hvað eftir annað reynt að
hindra parið á allan hátt.
Svend og Winnie byrjuðu að
vera saman áður en Winnie varð
15 ára. Svend og fyrri kona hans
höfðu þekkt foreldra Winniar í
mörg ár. Þegar Svend skildi við
konu sína byrjaði hann að hitta
Winnie á laun en síðar varð sam-
band þeirra opinbert. Þegar yfir-
völdin fréttu þetta varð allt vit-
laust og parið var beðið um að
mæta í yfirheyrslu. Þar voru þau
spurð nákvæmlega út í samlíf
sitt.
Svend hefur verið skorinn upp
sex sinnum í öðru hnénu og nú
bíður hann eftir því að vera sett-
ur á örorkubætur. Winnie er
ennþá í skóla því hún er ekki
búin að ljúka skyldunámi. Þau
voru því mjög háð velvilja yfir-
valdanna. Bæjarfélagið útvegaði
þeim herbergi sem var aðeins sex
fermetrar. Þar að auki voru þeim
sett skilyrði um að þau mættu
bara hittast að deginum. Winnie
varð líka að lofa því að taka pill-
una.
# Við erum
bestir!
Víst er um það að víð
íslendingar erum miklir
hæfileikamenn. íslending-
ar hafa hvað eftir annað
náð frábærum árangri á
alþjóðavettvangi í hinum
ýmsu greinum. Jón Páll er
sterkasti maður í heimi og
Hóff er ennþá fallegasti
kvenmaður f heimi þó að
hún sé ekkí lengur Ungfrú
heimur. Á skáksviðinu
erum við hreint ótrúlega
sterkir miðað við höfða-
tölu og ekki má gleyma
boltaíþróttunum.
Skemmst er að minnast
þess þegar íslenska
landsliðið varð í sjötta
sæti á Heimsmeistara-
mótinu í handknattleik og
enn skemmra er sfðan við
gerðum glæsileg jafntefli
við Frakka og Sovétmenn
í knattspyrnu. Þetta er
glæsilegt! Það er sjálfsagt
að vera svolftið grobbinn
með það hvað maður er
fallegur og góður í hinu
og þessu.
• Öllu má
ofgera
En öllu má ofgera og þá er
ég kominn að þvf sem ég
ætlaði að segja. Það er
alveg merkilegt að við
íslendingar skulum ekki
vera löngu búnir að vinna
heimsmeistaratitilinn í
knattspyrnu, til eignar.
Maður opnar ekki sunnan-
blöðin án þess að lesa 3-4
fréttir um knattspyrnu-
hetjurnar okkar í Þýska-
landi og víðar. Það er auð-
vitað allt í lagi að fylgjast
vel með þessum mönnum
og vissulega standa þeir
sig frábærlega vel. En það
er engu líkara en að við
íslendingar eigum alla
bestu knattspyrnumenn í
öllum bestu félagsliðum
heims. Við hefðum gjör-
samlega átt að éta Frakka
og Rússa um daginn og
úrslitaleikur við Dfjegó
Arrmandó Marradonna
ætti aðeins að vera forms-
atriði.
# Dæmi:
Ásgeir Sigurvinsson er
auðvitað frábær og allt
það. En mikið obboðslega
er það orðin ófrumleg
frétt að hann sé efstur í
einkunnargjöf hjá Kicker,
Bild am sonntag eða hvað
þau heita þessi blöð.
Þetta er vikuiegur gestur í
ákveðnum ónefndum
blöðum og myndi slíkt
vera kallað gúrkutfð ein-
hvers staðar. Fyrir nú
utan það að maðurinn er
búinn að vera meiddur í 3
vikur og hefur því ekkert
spilað.