Dagur - 20.12.1986, Qupperneq 7
LAUFEY SIGURÐARDÓTTIR:
Rauða kertið
- Bemskuminning
Það var árið 1917 sem okkur var
gefið rauða kertið.
Heimsstyrjöldin fyrri stóð þá
yfir með allar sínar ógnir og
skelfingar.
Þeir sem þá voru að alast upp
eiga sínar fyrstu minningar í
skugga stríðsins. Allar þær
fréttir er bárust af stríðinu voru
ógnarfréttir. Þar sem tveir
menn hittust eða fleiri voru
sagðar stríðsfréttir. Þau fáu
blöð sem gefin voru út sögðu frá
hörmungum stríðsins erlendis
og því sem gerðist við íslands-
strendur.
Skipum var sökkt rétt upp við
landsteina, öll voru þau hlaðin
nauðsynjavörum, mat, kolum
og salti. Þarna fórust Flóra,
Vesta og Seres. Minni skip fór-
ust einnig.
Allt í kringum landið voru
kafbátar á sveimi, menn fórust
og víða ríkti sorg. Börnin
heyrðu tal fólksins og skildu
áhyggjur fullorðna fólksins en
skildu ekki hvers vegna menn
voru að heyja stríð. Oft var
spurt hvers vegna? Ekki eiga
íslendingar í stríði, við erum
vopnlaus þjóð.
Eftir því sem leið á árið 1917
urðu áhrif stríðsins hér á landi
meiri. Dýrtíð óx og sagt var að
lítið væri af vörum í búðunum
og margir gátu lítið keypt því
fátækt var víða mikil. Allt þetta
gerði dagana dapurlega.
Svo leið að jólum og kaup-
staðarferð var undirbúin.
Skrifaður var minnismiði, hvað
ætti að kaupa, fullorðna fólkið
var hrætt um að ekki fengist allt
sem skrifað var. Við börnin
vonuðum annað því æska allra
tíma er vongóð og oft er það
vonin sem gerir lífið bærilegt.
Þegar komið var úr kaup-
staðnum var æði margt sem
ekki hafði fengist. Einn pakki af
litlum kertum kom þó úr dótinu
og við krakkarnir urðum himin-
lifandi. Það yrði þó hægt að
kveikja á kertum á jólanótt.
Á næsta bæ við foreldra mína
bjuggu hjón á Iitlu koti. í upp-
hafi búskapar sx'ns höfðu þau
misst mikið af bústofni sínum af
völdum náttúruhamfara og
réttu ekki við eftir það enda
hlóðst á þau ómegð.
Húsfreyjan átti eina systur,
hún var gift kaupmanni á Akur-
eyri. Þessi góða kona sendi gjaf-
ir er konxu sér vel í alisleysið á
litla bænum. Eitt barnið tóku
þessi góðu hjón og ólu upp.
Með jólaferðinni 1917 kom
stór sending á þetta fátæka
heimili, sem vakti mikla gleði.
Þarna var margt er ekki hafði
nokkru sinni sést þar á bæ þar á
meðal stór kerti undur fögur.
Eitt af stóru kertunum var
sent til okkar. Það var rauða
kertið er ég hefi aldrei gleymt
síðan og þeim góðleik er fylgdi
gjöfinni, fylgdi ljósinu á því.
Þetta er rauðasta kertið er ég
hefi séð svo var rauði liturinn
skínandi fagur.
Kertið var snúið og í snún-
ingnum var gyllt rönd, það glóði
á það eins og gull.
Við börnin biðum í ofvæni
eftir því að sjá ljósið á þessu
dásamlega kerti. Á undan hús-
lestri, sem ævinlega var lesinn,
var kveikt, svo var sálmurinn „í
dag er glatt í döprum hjörtum“
sunginn.
Vissulega var víða dapurlegt
á jólunum 1917 en þá eins og
fyrr og síðar hefur ljósið frá jöt-
unni í Betlehem lýst inn í sorg-
myrkrið.
Eftir lesturinn var sunginn
sálmurinn „Heims um ból“.
Fögnuður og friður fyllti bað-
stofuna það var alls staðar
bjart, litlu kertin voru tendruð
þar senx hægt var að koma þeim
fyrir.
Bjartast var ljósið á rauða
kertinu enda var það lang-
stærst, það bar mesta birtu.
Helgi stundarinnar náði til
okkar allra og gleymist ekki.
Síðan hefi ég kveikt á mörg-
um kertum og held ég að ljósið
á rauða kertinu sé í minning-
unni einna skærast.
Fögnum jólum og gleðjumst
yfir hverju ljósi er fellur á leið
okkar og geymum minningarn-
ar.
Gleðileg jól.
Laufey Siguröardótfir
frá Torfufelli.
Gleðileg jól
og farsælt komandl ár
Þökkum viðskiptin
/
AUGLÝSJNGAR
BORÐFANAR
SKILTI
Veggplatti með áletruninni
Drottinn blessi heimilið
útgefinn af KFUM og KFUK til
styrktar félagsheimili félaganna.
Verð kr. 1.100,-.
Fæst í Pedromyndum
og Hljómveri.
Gleðileg jól
og farsælt komandi ár
Þökkum viðskiptin á árinu.
Herrabudin
HAFNARSTRÆTI 92 - SÍMI 26708
<r
20. desember 1986 - DAGUR - 7
t
/
tr*
OUum viðskiptavinum og
landsmönnum sendum við okkar bestu
jóla- og nýársóskir.
Þökkum viðskiptin á árinu.
ic
V
AKIJR
Kaupangi, símar 24880 & 24830.
Æ
/
Gleðileg jól
og farsælt komandi ár
Þökkum viðskiptin á árinu.
Skóbúð Húsavíkur og
Sjóváumboðið Húsavík
j
'\
n
Sendum viðskiptavinum okkar
og landsmönnum öUum okkar bestu
jóla- og nýársóskir
Þökkum viðskiptin á Uðnum árum.
Kaupvangsstræti 4, sími 26100
\
n
Sendum viðskiptavinum
og landsmönnum öllum okkar bestu
jóla- og nýársósldr
Þökkum viðskiptin á Uðnum árum.
HERRADEILD
t.r.imifél.igsgolu 4 Akurcyn Sinti I.IS'I1
á/
-/"Av
/ :
*
Oskum viðskiptavinum okkar
gleðilegra jóla
Þökkum viðskiptin á Uðnu ári.
Bifreiðaverkstæðið Yfldngur
Furuvöllum 11, sími 21670.
-0
-<
/
\
*
Oskum öUum viðskiptavinum okkar
gleðilegra jóla
og farsældar á komandi ári
ISPAN HF.
Norðurgötu 55, sími 22333 og 22688.