Dagur - 20.12.1986, Side 10
10 - DÁGUR 20. desember 1986:
„Álám séð svona mikla gleði úrandliti nokkurrar skepnutí
- segir Sigrún Jónsdóttir á Rangá eftir að heimilishundurinn
sem talinn var af kom til baka
Það var mikil gleði hjá okkur hér um daginn þegar
heimils- og smalahundurinn á heimilinu kom í leit-
irnar eftir að hafa verið týndur í 12 daga. Við vorum
búin að gefa upp alla von um að finna hundinn aftur, sagði
Sigrún Jónsdóttir húsfreyja á Rangá í Köldu-Kinn.
Sagan sem Sigrún sagði var á þessa leið: Vitað var um
kindur sem voru út undir sjó og voru þar í sjálfheldu. Þrátt
fyrir það höfðu þær nóg að bíta, en erfiðlega gekk að kom-
ast til þeirra vegna vondra sjóalaga. Er von var á betra
veðri tóku sig til fjórir vaskir menn og ætluðu að ná kind-
unum, sem og þeir gerðu. Hins vegar þurftu þeir að bíða
eftir góðu lagi til að komast á þann stað þar sem kindurnar
voru. Hundurinn okkar, hann Depill var alveg ólmur að
komast með í ferðina, sem hann og fékk. Þegar mennirnir
voru að koma að landi til að sækja kindurnar, vildi ekki
betur en svo að hundurinn datt tvisvar í sjóinn og var hon-
um bjargað naumlega í síðara skiptið. Hundurinn varð
yfir sig hræddur og hljóp í burtu. Hann hlýðir einum syni
mínum alltaf mjög vel, en í þetta sinn hlýddi hann ekki
heldur hljóp í burtu. Hundurinn fór rakleitt yfir fjallið og
í átt til Naustavíkur og hvarf. Áður en hann íagði á fjallið
sást til hundsins frá bæjunum Björgum og Nípá og þaðan
fór maður á vélsleða á eftir honum en náði ekki. Þeir sem
voru með hundinn í fjörunum vissu ekki af þessu. Eftir að
þeir koma heim með kindurnar var farið að leita að hund-
inum en allt kom fyrir ekki. Við vorum búin að telja hann
af. Það var búið að leita mikið að hundinum og meira að
segja fljúga yfir þá staði sem líklegastir þóttu, en hann
fannst ekki.
Svo var það á 12. degi að bóndinn á Þverá hringir
hingað snemma um morguninn og segir að hann hafi
séð hundinn á hlaðinu hjá sér þegar hann kom út um
morguninn. Það stóð heima. Þetta var hundurinn okkar.
Þá var hann búinn að vera 12 daga að þvælast hræddur
uppi á fjöllum í mjög vondum veðrum. En hann er kom-
inn hér heim og er kátur og hress. Hann ber ekki þess
nterki að hann hafi verið á útigangi allan þennan tíma.
Það eru margir sem hafa lagt á sig erfiði til að leita að
hundinum og kunnum við þeim bestu þakkir. Ég
hef aldrei séð aðra eins gleði í andliti á nokkurri
skepnu eins og hundinum þegar hann kom hér heim og inn
í kjallara til okkur. Þetta er því mikil gleði á aðventunni,
sagði Sigrún Jónsdóttir á Rangá. gej-
Depill, hundurinn sem fór í 12 sólarhringa óbyggðaferð, og Margrét Baldvinsdóttir, Torfunesi.
LLL -feri- —
xc ii Tr s i TT fcL-1- fc lJ | | |~f| nr i i nr
+4= ...... ö s Ö B I I | | 11~ IWlH^
|TJq ‘ \ irj IDL...1 1 -JL-jul
ALPÝÐUHCJSIÐ
SKIPAGÖTU 14
Ósfaim öfíum viðsfóötmwum
okkar gfeBtíajra jóía
ogfarsœmr á komanái ári
Þökkum samstarfið og viðskiptin á árínu sem er að tíða
Alþýðubankinn hf.
26777
SJOMANNAFELAG
EYJ AFJARÐAR
25088
Félag verslunar-
og skrifstofufólks, Akureyri
21635
Samvinnuferdir - Landsýn
23727, 21400, 27777
D fá
- k(|
*
'i Ao
Skipstjórafélag Norðlendinga
21870
Eigna-
miðstöðin
sími 24606
Ólafur Birgir Árnason
lögfræðistofa, sími 24745
Iðja, félag verksmiðjufólks
23621
Vélstjóraíélag Islands
21870
Rafvirkjafélag Norðurlands
22119
HAGWÓNUSTAN HT
26899
Félag Málmiðnaðarmanna
Akureyri 26800
Trésmiðafélag Akureyrar
22890
Lifeyrissjóðurinn Sameining
21739
Verkstjórafélag Akureyrar
og nágrennis
25446
Myndbandahöllin
23580
Verkalýðsfélagið Eining
21794, 23503
Alþýðusamband Norðurlands
26333
21216