Dagur


Dagur - 20.12.1986, Qupperneq 14

Dagur - 20.12.1986, Qupperneq 14
H r-P^Scr ZMwmterc.ím K r Óskum Húsvíkingum svo og landsmönnum öllum 4 gleðilegra jóla og farsæls komandi árs Þökkum samstarfíð á árinu Bæjarstjórn Húsavíkur Oskum Akureyringum svo og landsmönnum öllum og farsæls komandi árs Þökkum samstarfið á árinu Bæjarstjóm Akureyrar Gleðileg jól farsælt komandí ár Þökkum ánægjuleg viðskipti áárinusemeraðlíða „Fótö var komið út í véliim og allt virtist klappé og klárt“ - Jóna Björg Heiðdal lenti í erfiðu ferðalagi fyrir jólin 1967 að getur reynst bagalegt fyrir fólk að hafa ekki upp á einhverja daga að hlaupa, til að koma sér á milli staða, hvað þá landshluta fyrir jólin. Þau Jóna Björg Heiðdal og Baldvin Kristjánsson sem nú búa á Sauðárkróki fengu að reyna það árið 1967. F>á bjuggu þau á Blönduósi og ætluðu að dvelja hjá foreldrum Jónu yfir jólin. Ferðasaga Jónu er á þessa leið: Við gátum ekki lagt af stað fyrr en á Þorláksmessu vegna þess að Baldi starfrækti bakaríið á Blönduósi þá og þurfti auðvitað að veita viðskiptavinunum þjónustu alveg fram á síðustu stund. Við ætluð- um að fljúga suður með síðustu vél frá Sauðárkróki fyrir jólin. Brottfarartími hennar var klukk- an 6 síðdegis á Þorláksmessu. Við vorum frekar tíma- naum þegar lagt var af stað á Krókinn, en mið- að við góða færð áttum við að ná þangað áður en flugvélin færi. En þegar við komum í Bólstaðar- hlíðarbrekkuna var allt ófært, þannig að við komust ekki neitt á Volkswagen bjöllunni okkar. Við börðum að dyrum í Bólstaðar- hlíð og bóndinn þar var svo almennilegur að bjóðast til að draga okkur yfir Vatnsskarðið. Sem hann og gerði og gekk það svona sæmilega, svo að við gátum haldið ferð okkar áfram. En við höfðum tafist mikið við þetta og vorum alveg búin að afskrifa það að komast suður með vélinni. Það var svo lán í óláni að þegar við komum á Krók- inn kom í ljós að fluginu hafði verið seinkað vegna veðurs. Fram eftir öllu kvöldi var verið að fresta flugi eins og farþegar með innanlandsflugi frá smærri stöðum eru ekki óvanir á þessum árstíma. Um miðnættið vorum við kölluð í síðasta skiptið út á flugvöll og þá loksins kom vélin. Allt virtist klappað og klárt. Það voru allir komnir út í flugvélina og hún í þann veginn að hefja sig til flugs, þegar bilunar varð vart. Þegar þetta kom upp veltum við svolítið fyrir okkur hvað við ættum að gera og komumst að þeirri niðurstöðu, að allt kapp yrði lagt á að koma flugvélinni suður, þar sem koma þyrfti flug- manninum og flugfreyjunni heim fyrir jólin svo að þau þyrftu ekki að eyða jólunum á Sauðárkróki. Síðan gistum við hjá venslafólki um nóttina og klukkan átta morguninn eftir kom viðgerðar- vél norður. Hún blindlenti og ég heyrðj sagt að það hefði enginn annar en þessi tiltekni flugmaður sem flaug vélinni getað leikið eft- ir að lenda vélinni við svona erfið skilyrði. Þetta var einhver frægur flugkappi á þessum tíma. Síðdeg- is á aðfangadag var búið að gera við vélina og um hálfsexleytið gengum við inn úr dyrunum hjá foreldrum mínum í Reykjavík. Við sem sagt komum rétt áður en klukkurnar hringdu jólin inn. Þetta voru svo eftir allt sem á undan var gengið ákaflega yndis- leg jól. Síðustu jólin sem við dvöldum að heiman. -þá Jóna Björg Heiðdal. Óskum viðskiptavinum vorum gleðilegra jóla og farsœldar á fcomandi ári. Þökkum viðskiptin á líðandi ári. Landsbanki íslands Strandgötu 1, Akureyri, Brekkuafgreiðsla, Kaupangi, Raufarhafnarafgreiðsla.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.