Dagur - 20.12.1986, Blaðsíða 18
18 - DAGUR - 20. desember 1986
Jól í Ijóðum íslemkra skálda
- SÝNISHORN
Jólin hafa í gegnum tíðina orðið mörgu skáldinu yrkisefni
og kveðskapurinn um þessa mestu hátíð kristinna manna er
ansi fjölbreytilegur. Jólalögin skipta þúsundum og ný lög
eru gefin út um hver jól. Textar þessara laga eru margir af
ódýrari gerðinni og gleymast fljótt. Það sama má segja um
lögin. Einstaka lög ná þó að festast í sessi og verða sígild.
Þeirra þekktast er örugglega jólalagið (eða sálmurinn)
Heims um ból. Ljóðskáldin hafa ekki síður en textahöfund-
arnir fjallað um jólin í verkum sínum. Svo til hvert einasta
íslenskt ljóðskáld hefur ort jólakvæði og því er af mörgu að
taka. Nánast af handahófi völdum við nokkur jólaljóð úr -
mismunandi þekkt - svona rétt til þess að sýna lesendum
mismunandi sjónarhorn skáldanna. Flest ljóðanna eru af
fallegri toganum en kvæði Steins Steinarr sker sig úr og er
óneitanlega frekar neikvætt, - napurt háð um allt tilstandið
sem jólunum fylgir. Sem fyrr segir er af svo mörgu að taka
að ljóðin hér að neðan eru einungis brotabrot af því sem
ort hefur verið um þessa hátíð ljóss og friðar. Vonandi
hjálpar þetta sýnishorn þó einhverjum við að komast í hið
eina og sanna jólaskap.
Þorsteinn Þ. Þorsteinsson:
JóCaóskir
Nú opnast hver hugsælu heimur
og hátíða-lotningin streymir
til barnanna ungu og öldnu,
sem upp aftur jólin sín dreymir.
í upphæðir ennþá frá djúpi
rís al-lífsins móðirin, sól..
Nú hringt er frá himni og jörðu
í hjörtu vor: Gleðileg jól!
Hve ljúft er á ljósið að trúa,
er leiðirnar skammdegið syrtir,
og eiga þá vordýrð að vetri,
sem vermir og gleður og birtir!
Nú vakir hver móðurlands minning;
hver mynd er hug vorum skýrð,
því innsigli íslenzkrar sálar
er ættlandsins náttúrudýrð.
Ég sendi þér sólskin um jólin
úr sál minni, - geislana hlýja.
Ég sendi þér árnaðar óskir,
að árið þér blessist hið nýja.
Stefán Sigurkarlsson:
Jóíanótt í
Styíiíiisíwbni
Kapellan stendur á kletti
kaidur vindur blæs af hafi
út um glugga líða örend ljósin
í svarta kletta.
Prestur, skrýddur hvítri hempu
dansar flosdans kringum altarið
sveiflar blossandi ilmkeri
og strýkur með hvítri þurrku
storknað blóð gamalla kaleika.
Himnear söngvar gráklæddu nunnanna
fylla rýmið - um of
og sjá,
tjaldskör himins flettist af
og dökkar öldur
þvo marglit rúðugler dýrlinganna
laglína boðar endurmat alls hins liðna
dimmir orgeltónar fá loftið til að titra
og fylla það draumum
þar sem hinir dauðu geta lifað áfram
(treglega þó).
Af himni hrynja krystallar
um hvíta turna.
Friðrik Guðni Þórleifsson:
jöí
Eplin voru ekki alltaf rauð
en ilmandi
og kertaljósin á trénu
og það bar til um þessar mundir
að heimurinn skyldi vafinn reifum
velþóknun á
og steikin í maganum
og undir morgun
knýja kristilegar smásögur til uppgjafar
ofan í dívanskúffu
fulla af draumum.
Gullslegin hálsbindi
rjómalitaðar skáldsögur
rauðvín með hvítvín með
boðskapur af skjánum
deilir vitund
með kærleiksríkum stríðstertum
koníak með líkjör með
og fagnandi ölvun breiðir sig
yfir vígvöll spennubókar
sem birtir þér ómengað fagnaðarerindið.
Öm Amarson:
Mgpsg
Nú rennur jólastjarna
og stafað geislum lætur
á strák í nýjum buxum
og telpu í nýjum kjól.
Hve kertaljósin skína
og sykurinn er sætur
og söngurinn er fagur,
er börnin halda jól.
Og mitt í allri dýrðinni
krakkakríli grætur
- það kemur stundum fyrir,
að börnin gráta um jól -
en bráðum gleymist sorgin,
og barnið huggast lætur
og brosir gegnum tárin
sem fífill móti sól.
Þá klappa litlar hendur,
og dansa fimir fætur,
og fögrum jólagjöfum
er dreift um borð og stól.
Nú rætast margar vonir
og draumar dags og nætur.
Ó, dæmalaust er gaman
að lifa svona jól.
Og ellin tekur hlutdeild
í helgi jólanætur,
er heimur skrýðist ljóma
frá barnsins jólasól.
En innst í hugans leynum
er lítið barn, sem grætur -
og litla barnið grætur,
að það fær engin jól.
Hannes Pétursson:
Ljós ocj fiíjómar
Jólanótt - og ég kveikti
á kerti rétt eins og forðum
litlu kerti.
Pað logar á borði mínu
unir þar sínu lífi
slær ljóma á þögnina.
Og bíð þess að ég finni
sem forðum að glaðir hljómar
séu lagðir af stað
út úr lágum turnunum
að ég heyri þá svífa
yfir hvítt landið og stefna
hærra, hærra!
eins og hyggist þeir setjast
á sjálfar stjörnurnar
svo ljós og hljómar
geti hafið í einingu saman
af himnum gegnum loftin
sína heilögu ferð.
Steinn Steinarr:
JóC
Sjá, ennþá rís stjarnan, sem brennur björtust og
mildust
á bládjúpum miðsvetrarhimni hins snæþakta
lands.
Sjá, ennþá nálgast sú hátíð, sem hjartanu er
skyldust
og huggar með fagnaðarsöngvum hvert angur
manns.
Og innan skamms byrjar kappát í koti og höllu,
og klukknahringing og messur og bænargjörð.
Það er kannski heimskast og andstyggilegast af
öllu,
sem upp var fundið á þessari voluðu jörð.
Og ger þú nú snjallræði nokkurt, svo fólkið finni
í fordæmi þínu hygginn og slóttugan mann:
Með kurteisum svip skaltu kveikja í stofunni
þinni,
og kauptu svo sóknarprestinn og éttu hann.