Dagur - 20.12.1986, Qupperneq 19
o'3yf rddfn539& .os: -- RUOAO — £f
20. desember 1986 - DAGUR - 19
af erlendum vettvangL
Feður eru misjafnir, einnig
meðal orangútana. Á Súmatra
haga karldýrin sér sem tryggir
fjölskyldufeður og halda hópinn
með maka sínum og afkomend-
um. Á Borneo þvælast þeir aft-
ur á móti um eins og frjálsir
ungkarlar, án fjölskylduábyrgð-
ar. Þetta kann að virðast undar-
legt, því að orangútarnir á þess-
um tveimur eyjum eru af sama
kyni, og því mætti búast við
svipaðri hegðun.
Indónesisku eyjarnar Borneo
og Súmatra eru einu staðirnir í
heiminum, þar sem orangútan-
ar lifa, ef frá eru taldir þeir, sem
lifa fangaðir í dýragörðum.
Þessir stóru apar eru, ásamt
afrísku mannöpunum, taldir
gáfuðustu dýr jarðar. Orangút-
an þýðir reyndar skógarmaður
(Orang = maður, (h)utan =
skógur). Áður fyrr áleit fólk, að
þetta væri sérstök tegund villi-
manna, sem kynni mannamál,
en óttuðust að þeim yrði skipað
til vinnu, ef þeir opinberuðu
þennan hæfileika.
Orangútanar eru rauðbrúnir,
með háa hauskúpu, sterk-
byggða neðri kjálka og flatt nef.
Framlimirnir eru mjög langir,
og þegar dýrið stendur upprétt
ná þeir alveg niður að ökklum á
stuttum fótunum. Enda þótt
orangútanarnir sýnist stórir,
þegar þeir sitja eða sveifla sér
milli trjágreina, þá eru þeir ekki
mjög hávaxnir, karldýrin eru
Kátir karlar
Á Borneo haga orangútan-karlarnir sér á allt annan hátt en kyn-
bræður þeirra á nágrannaeynni Súmatra. Þeir láta kerlingarnar um
að gæta barnanna, flakka sjálfir um án allrar fjölskylduábyrgðar,
og njóta lífsins í ríkum mæli.
1,3-1,5 m og kvendýrin lægri.
Eins og simpansar, verða
margir orangútanar gamlir. í
dýragarði Philadelphiu náði
orangútanpar 54 ára aldri.
Mismunandi hættir feðra
vegna efnahagsaðstæðna
Á Borneo líkist kynlíf orangút-
ananna því sem gerist hjá flest-
um öðrum apategundum. Peir
lifa ekki í föstu sambandi sem
karl og kerling í koti sínu, held-
ur ferðast karlarnir milli þeirra
staða, þar sem kvendýrin og
ungviðið heldur sig og leitar
fæðu.
Það eru einkum vel fullorðin
og ráðrík karldýr, sem hafa
samfarir við kvendýrin á fengi-
tímanum. Kvendýrin aðstoða
þá gömlu karlana við að halda
ungviðinu í fjarlægð. Þetta er
venjuleg hegðun apa og miðar
að því að gefa afkomendunum
betra tækifæri til að lifa af, þeg-
ar kvendýrin og afkomendurnir
þurfa ekki að keppa við flökku-
karlana um þá fæðu, sem finnst
í nágrenninu. En á Súmatra er
þetta á allt annan veg. Þar yfir-
gefa karldýrin ekki kvendýrin
og afkvæmi þeirra, heldur halda
sig hið næsta þeim. Það er
ákjósanlegt fyrir fjölskylduna,
því að á Súmatra eru hlébarðar,
sem veiða orangútana. Kven-
dýrin og afkvæmin hafa því
fulla þörf fyrir vernd karldýr-
anna. Þessa vernd fá karldýrin
borgaða með því að hafa frjáls-
an aðgang að kynlífi allt árið,
en ekki aðeins um fengitíma
kvendýrsins. Þetta háttalag
minnir á mannfólkið, því að við
erum einu dýrin, þar sem ekki
er um ákveðinn fengitíma að
ræða en hægt að stunda kynlíl
árið um kring. Og það er skoð-
un margra, að ástæðan til þess
sé sú sama og hjá orangútan-
öpunum: Að auöveldara hafi
verið að fá karlana til verndar
og fæðuöflunar, ef þeir fengu
ótakmarkaðan aðgang að kyn-
lífi.
Á Súmatra eru líka fleiri, sem
keppa um fæðuna. Orangútan-
arnir verða oft að berjast við
aðra apa um matinn, og þá er
vernd karldýranna meira öryggi
fyrir kvendýrin og afkomend-
urna. Þau hafa meiri möguleika
til að halda velli í lífsbaráttunni
með karlinn í nálægð.
Þessi samkeppni er óþekkt á
Borneo, þar sem kvendýrin eiga
auðveldara með að bjarga sér
sem einstæðar mæður. Sú hátt-
semi karldýranna, að „elska og
hverfa svo“ eykur einmitt á lífs-
möguleika orangútan-barnanna
á Borneo. Því að ef stórt karl-
dýr héldi hópinn með kvendýri
og börnum þess, myndi það
kannski éta svo mikið af því,
sem væri að hafa á viðkomandi
svæði, að ekki yrði nægjanlegt
eftir handa kvendýrinu og
afkomendunum. Á Borneo er
því sá faðir bestur, sem heldur
sig í fjarlægð. Dýrin hafa þann-
| ig ekki fastmótaða háttu, heldur
laga sig að aðstæðum. Þetta á
við um fleiri apategundir, t.d.
entellus apana, sem í Malasyu
lifa ýmist í einkvæni eða fjöl-
kvæni. Á norðurhluta eyjarinn-
ar, sem er þéttsetinn, er fjöl-
kvæni hjá öpunum, en á
suðurhluta eyjarinnar ríkir ein-
kvæni.
Innilokun veldur
breyttum háttum
Þegar orangútönum eða öðrum
gáfuðum öpum er haldið föngn-
um í dýragörðum, breyta þeir
eðlislægum háttum sínum. í
dýragarði njóta þeir ekki hins
frjálsa lífs úti í náttúrunni, en
eru aftur á móti lausir við að
þurfa að eyða tímanum í að
leita sér fæðu og verjast öðrum
dýrunt.
Þennan nýja frítíma, sem
neytt hefur verið upp á þá, nota
þeir í þágu frjóseminnar, því að
karldýrin verða öllum stundum
áleitin kynferðislega, og kven-
dýrin móttækileg lengri tíma.
Kvendýr simpansa eru tilbúin til
kynmaka ca. 30% af þeim tíma,
sem tíðahringurinn tekur,
kvengórillur í 14 daga. En
orangútan-konur, sem lifa fang-
aðar, eru oft til í tuskið allan
tíma tíðahringsins.
Villtir orangútanapar finnast
nú aðeins á eyjununt Borneo og
Súmatra. Þar eru síðustu dval-
arstaðir þessara vitru, en ógn-
vekjandi apa.
(ILL. Videnskab. - Þýð. Þ.J.)
*"k
s
Oskum landsmönnum
gleðilegra jóla
og farsæls komandi árs
i
'V
r75n AÐALGEIR FINNSSON HF
BYGGINGAVERKTAKI
FURUVÖLLUM5 P.O BOX 209 602 AKUREYRI ICELAND
SIMI: (96)21332 NAFNNÚMER 0029-0718
<7
/
Óskum öllum viðskiptavinum okkar
gleðilegra jóia
og farsældar á komandi ári
Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða.
Aps Viðgerðlr Verslun
(rmyfldiðVlNNUSTOFAN
Kaupangi síml 22817
\
r\
Oskum viðskiptavinum okkar
gleðilegra jóla
og farsældar á komandi árí
Þökkum viðskiptin.
SKÚTlSKAN Skipagötu 5, sími 26545.
i/
e
\
n
V
Gteðileg jól
og farsælt komandi ár
Sjálfsbjörg
Félag fatlaðra á Akureyri og nágrenni,
Bugðusíðu 1, sími 26888.
á/
Blómaskálinn
við Hrafnagil
sendir landsmönnum öllum
og viðskiptavinum sínum bestu
jóla~ og nýársóskir
og þakkar viðskiptin á árinu sem er að líöa^V
/
\
Óskum viðskiþtamönnum
og landsmönnum öllum
gleðilegra jóla
og gleðilegs nýárs
Þökkum viðskiptin á liðnu ári.
4?