Dagur - 20.12.1986, Síða 20
20 -r DAGUR - 20. desember 1986
Litið inn íjólaföndur hjá 6 ára bömum íLundarskóla
Síðustu vikurnar fyrir jólin
eru líklega skemmtilegasti
tíminn í skólum landsins,
ekki síst hjá yngstu nemendun-
um. Þau fá að heyra jólasögur,
föndra, læra jólalög og meira að
segja hlusta á jólalög af plötum. í
Lundarskóla var mikil jóla-
stemmning er undirrituð kom þar
í heimsókn hálfum mánuði fyrir
jól og fékk að fylgjast með einni
kennslustund hjá 6 ára börnum.
Leið mín lá niður í kjallara,
nánar tiltekið í stofu 8 þar sem
saman voru komnar tvær for-.
skóladeildir, alls 30 börn, með
kennurum sínum. Kennararnir
voru þær Þorbjörg Vilhjálms-
dóttir og Sólveig Jónsdóttir. Vel
er búið að forskóladeildunum og
aðstaðan þannig að hægt er að
opna á milli bekkja og er þá opið
á milli þriggja kennslustofa.
Þessa stund sem ég fylgdist
með jólaundirbúningnum hjá
börnunum voru þau að vinna
sameiginlegt verkefni. Verkefnið
var það sem gerðist á jólanóttina
fyrstu, öðrum megin við jólanótt-
ina voru síðan gömlu jólin á
íslandi og hinum megin voru jólin
eins og við höldum þau nú til
dags. Börnin fengu mismunandi
Það er ekki alveg á hreinu hvað þessi er að gera, en það þarf greinilega hamar til að fullkomna verkið.
Frntu ióknóttm
fæddist. Fyrst sáu vitringarnir
stjörnuna, vissu þá að nýr drott-
inn var fæddur og gengu af stað.
Hvert? Til Betlehem, þar sem
þeir fundu Jesúbarnið í jötunni."
Já, maður kom ekki aldeilis að
tómum kofanum hjá þessum
fróðu stúlkum.
V:
ið annað borð sátu þær
Katrín, Harpa, Guð-
björg og Eygló: Hvað
skyldu þær vera að gera? „Við
erum að búa til fjárhúsið með
Jesúbarninu. Nei, nei, það er
ekkert erfitt og við gerðum þetta
alveg einar. Það er að vísu svolít-
ið erfitt að setja sagið á, það á að
vera heyið.“ En hverjir eru þarna
í fjárhúsinu. „Það eru María,
Jósep og Jesúbarnið.“ Og þá vit-
um við það.
Það var nú óðum að koma
lokamynd á verkefnið stóra og
börnin höfðu staðið sig eins og
hetjur. Lengst til vinstri voru
gömlu jólasveinarnir 13 á leið
niður að gömlum íslenskum
sveitabæ, en fyrir utan hann
kúrði jólakötturinn. Á miðri
mynd var joianóttin fyrsta inni í
hring. Þar voru Jósep, María,
Jesúbarnið, stjarnan, kindur og
höldum þau nú til J W if t fjj |l f m/mÆ/Sj B/mWm/m/M/fí W/tk hring. Þar voru
n fengu mismunandi I J ■ W WrW m \J W WWm W W W W m WW Jesúbarnið, stjar
sömlu iólin og jólin okkor
verkefni og síðan var allt límt á
stóra mynd.
Þær Þorbjörg og Sólveig
sögðu börnin vera búin að
vinna atburðabók um
Jesúbarnið og jólin. „Við tókum
fyrir jólaþema. Byrjuðum á að
fjalla unr af hverju við höldum jól
og það var af því að Jesús fæddist
þá. Fyrsta atburðablaðið var um
fyrstu jólin. Næst fjölluðum við
um gömlu jólin á Islandi og því
sem þeim fylgdi, jólaköttin,
Grýlu og gömlu jólasveinana.
Annað atburðablaðið var um
gömlu jólin. Að lokum fjölluðum
við um jólin okkar, við bökuðum
piparkökubörn og föndruðum
jólatré og rauða jólasveina. Síð-
asta atburðablaðið var því um
jólin eins og við höldum þau í
dag. Þessum bókum ætla börnin
síðan að pakka inn og þær verða
jólagjöf til pabba og mömmu."
Börnin voru í litlum hópum að
föndra og sum voru á hlaupum,
það var í mörg horn að líta við
svona vandasamt verk. Þær Lín-
Börnin horfa stolt á afrakstur vinnu sinnar.
ey, Ágústa, Rannveig og Jó-
hanna sátu saman við borð og
voru ákaflega íbyggnar á svipinn.
Ég spurði þær hvað þær væru að
gera. „Við erum að búa til vitr-
ingana þrjá,“ sögðu þær Líney,
Ágústa og Rannveig, en Jóhanna
kvaðst vera að búa til stjörnu.
Þær voru víst nokkrar á himnin-
um jólanóttina fyrstu, ein áber-
andi stærst. „Það er alveg ofsa-
lega gaman að föndra," voru þær
Það er ekki verra að kennararnir hafi hönd ■ bagga þegar 30 börn eru saman komin til að vinna að sameiginlegu
verki, en það verður að segjast að samvinnan gekk ótrúlega vel og hratt fyrir sig.
Það er nú betra að nota vel af lími til að listaverkið tolli saman.
Þarna er að komast mynd á verkið, inni í hringnum er jólanóttin fyrsta.
stöllur sammála um. „Við vorum
líka að föndra á laugardaginn og
þá komu pabbi og mamma með.
Nei, nei, það er enginn vandi að
búa til vitringa. Við klippum bara
út pappír og límum efni á.“ Þær
Líney, Ágústa, Rannveig og Jó-
hanna voru alveg með það á
hreinu af hverju við höldum
jólin. „Það er af því að Jesús
fleira. Hægra megin við hringinn
voru svo jólin okkar. Þar var fag-
urlega skreytt jólatré, börn úr
piparkökum, pakkar og fleira til-
heyrandi. Börnin voru stolt þegar
verkefninu var lokið, en hungrið
sagði líka til sín og þau settust
því niður með nestið sitt. En
meðfylgjandi myndir segja meira
en mörg orð. -HJS