Dagur - 04.09.1987, Page 2

Dagur - 04.09.1987, Page 2
2 ~ DAGUR - 4. september 1987 ■u« %J~r <1 ii/iiijriuiiciMiiii» ekki komdu við, þar er margt forvitnilegt. ko pokinn _____M____________> pokar Framleiðum allar stærðir plastpoka. M POKINN Verðum með sérstaka kynningu á plastpokaframleiðslu okkar laugardaginn 5. sept. frá Líttu inn á Iðnsýninguna! AKO pokinn - Plastiðjan Bjarg Eig: Sjálfsbjörg Akureyri. Skólaskór og kuldaskór í úrvali á börn, dömur og herra. Einnig nýkomin sending af flókainniskóm á dömur og herra. ATVENNA Okkur vantar nú þegar hresst og duglegt starfsfólk á dagvakt og kvöldvakt við ýmiss störf í Skinnaiðnaði. Einnig getum við bætt við fólki á næturvakt frá kl. 1.35-7.00. '/2 vaktir koma til greina. Unnið er eftir bónuskerfi. Mötuneyti er á staðnum. Lítið inn og kannið tekjumöguleika. Upplýsingar hjá starfsmannastjóra. IÐNAÐARDEILD SAMBANDSINS GLERÁRGÖTU 28 AKUREYRI SÍMI (96)21900 ■ ; Svipaður fjöldi hefur borist af kærum vegna álagningar opinberra gjalda nú og undanfarin ár. Skattakærur: Frestur rann ut um síðustu mánaðamót - verða væntanlega afgreiddar fyrir 1. nóvember Þann 30. ágúst sl. rann út frest- ur sá er skattgreiðendur höfðu til þess að gera athugasemdir við álagningu opinberra gjalda síðasta árs. Dagur hafði sam- band við Gunnar Rafn Einars- son skattstjóra Norðurlands eystra, og spurði hann hvort mikið hafi borist af kærum. „Þetta er ósköp svipað magn og venjulega,“ sagði Gunnar. Hann sagði ennfremur að byrjað væri að vinna úr þeim og nokkrir hafi fengið leiðréttingu nú þegar. Samkvæmt lögum ber að ljúka vinnu við kærurnar innan tveggja mánaða frá því kærufrestur renn- ur út. Gunnar sagði að þeir stefndu að því að ná þessu, og gætu þeir það, yrði það eina kjör- dæmið sem lyki leiðréttingum á réttum tíma. Þeir sem lögðu inn kæru vegna álagningar að þessu sinni mega því búast við svari frá skattstjóra í síðasta lagi í októberlok. VG Samvinnuferðir/Landsýn: Hafa aldrei fyrr flutt jafn marga farþega í frí - umsvif skrifstofunnar á Akureyri hafa tvöfaldast á einu ári „Við getum ekki annað en verið ánægð,“ sagði Helgi Jóhannsson framkvæmdastjóri Samvinnuferða/Landsýnar í samtali við Dag, er hann var spurður hvort um aukningu í sölu ferða hjá þeim hafi verið að ræða. „Samvinnuferðir hafa aldrei flutt jafnmikið af fólki í sumarleyfí eins og í ár.“ „Það sem hefur komið okkur mest á óvart er hversu gífurlega vel hefur selst í sumarhúsin í Hollandi og Englandi. Það fylltist strax í vor í þessar ferðir, og bættum við t.d. við ferðum til Hollands um 50% og dugði það ekki til. Ein ástæða þessarar aukningar tel ég fyrir víst að sé sú, að á meðan laun í landinu hafa hækk- að um 30% hækkuðu ferðimar ekki nema um 2-5%, svo í raun lækkuðu þær. Sólarlandaferðirnar gengu mjög vel, við fjórfölduðum söl- una til Mallorka og er sú eyja nú ekki ný undir sólinni. Við vorum með mjög hagstætt verð þangað og er það vafalaust ástæðan. Miðað við síðasta ár er þetta án efa mun meiri sala en á síðasta ári. Það er ljóst að almenningur, sérstaklega fjölskyldur ferðast orðið meira. Þetta er orðinn rík- ari þáttur í lífi fólks, það er alveg ljóst.“ Helgi var spurður að því hvort þeir hafi orðið varir við breytingu á ferðahögum fólks, og sagði hann að fyrir tveim árum hafi orðið mikil aukning í „flug og bíll“ pökkunum. Það fólk sem hafi dvalist í sumarhúsum hafi nú í stórauknum mæli leigt sér bíla og gert mikið af því að fara í stuttar ferðir á eigin vegum. „Fólk er orðið reynslumeira hvað ferðalög snertir." „Varðandi skrifstofu okkar á Akureyri, þá hafa umsvif hennar aukist gífurlega. í júlí sl. höfðum við selt þar jafnmikið og aílt síð- astliðið ár. Það stefnir í það að umsvifin þar tvöfaldist á milli ára. Starfsemin hefur sprengt utan af sér húsnæðið og veltan nálgast 80-100 milljónir,“ sagði Helgi að lokum. VG Seljum bæði nýja og Norðlenskt fyrírtæki Norðlensk gæði Gúmmívinnslan hf Rettarhvammi 1 Akureyri Simi 96-26776

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.