Dagur - 04.09.1987, Side 5
4. september 1987 - DAGUR - &
Þeir láta sér annt um náttúruna landverðimh Friðrik Dagur Arnarson og Árni K. Helgason
Að smala ferðamönnum
út úr fjósinu
- spjallað við Árna K. Helgason og Friðrik Dag Arnarson
landverði í Mývatnssveit
„Sem landeigandi í sveitinni
græt ég ekki að spár um fjölg-
un ferðamanna rættust ekki,“
sagði Arni K. Heigason land-
vörður í Mývatnssveit. Við
hittum Ama að máli í bæki-
stöðvum landvarða og spurð-
um fyrst um ferðamenn. Hvað
annað? Ferðamenn hafa ekki
verið eins margir og búist hafði
verið við í kjölfar leiðtoga-
fundar og kynningarátaks. Og
það grætur Arni ekki. Nánar
um það.
„Það eru alltaf tvær hliðar á
hverju máli. Auðvitað kemur
það sér ekki vel fyrir hreppinn ef
ferðamenn eru ekki margir. En
ef ég tala sem landeigandi þá er
ástæðulaust að gráta það.“ Árni
býr á Grænavatni, en þar er gam-
aíl og reisulegur torfbær. Þangað
komu ferðamenn í hópum til að
skoða bæinn og eflaust að reyna
að gera sér í hugarlund forna
búskaparhætti Frónbúans í svo
sem eins og þremur bindum.
„Þeir voru bókstaflega út um all-
ar jarðir, þessir ferðamenn. Þeir
flæddu út úr rútunum og voru
upp og innan um allt. Ég lýg því
ekki, ég þurfti oftsinnis að smala
þessum ferðamönnum út úr fjós-
inu heima. Svo var þetta á öllum
gluggum. Þeir héldu greinilega
að þetta væri einhvers konar sýn-
ingasvæði.“
Árna var nokkuð mikið niðri
fyrir, sagði þó að nú væri ástand-
ið ekki svona slæmt. „Nú hringi
ég í Friðrik," sagði Árni og stóð
við það. Á meðan hann hellti upp
á gulan braga spjölluðum við vítt
og breitt um ferðamenn. Um leið
og kaffið var tilbúið birtist Frið-
rik Dagur Arnarson en hann er
einnig landvörður í Mývatns-
sveit. „Sonur myndavélaprests-
ins,“ eins og hann kaus að orða
það er við spurðumst fyrir um ætt
og uppruna.
Starfið er fjölbreytt og sögðu
þeir félagarnir að landverðir
keyrðu stundum mörg hundruð
kílómetra á degi hverjum. Bann-
að er að tjalda nema á þar til
gerðum tjaldstæðum og því fer
mikill tími landvarða í að fylgjast
með að þær reglur séu virtar.
„Við lendum oft í eigendum
íslands,“ sagði Friðrik Dagur
þegar við spurðum hvort mikið
væri um að fólk virti ekki regl-
urnar. Eigendur íslands eins og
hann kallaði landann eru að sögn
landvarða hvað erfiðastir með að
tjalda ekki á tjaldstæðum. „Þeir
eru oft ósáttir með að fá ekki að
tjalda þar sem þeim sýnist. Þeir
vilja líka sofa í bílum sínum og
telja að hljóti þeim að vera
frjálst, þar sem þeir eigi jú
landið. Við höfum bent þessu
fólki á að það þurfi að losa sig við
rusl þótt það sofi í bílunum sínum.
Við höfum margsinnis fundið alls
kyns dósir í gjótum og það má
rekja klósettpappírsslóðina langar
leiðir. Þegar við tölum við þetta
fólk segir það: Við elskum nátt-
úruna, við hendum aldrei rusli.
Okkur dettur alls ekki í hug að
rengja það, en samt hlýtur það að
vera einhver sem hendir ruslinu
sem við finnum.“
Umgengni um Stórugjá hefur
verið slæm í sumar og sögðu þeir
drengir, Árni og Friðrik að nokk-
uð væri um að „ölvaðir aðkomu-
menn“ gerðu sig heimakomna í
gjánni. Auk þess sem heima-
mönnum sumum hverjum leiðist
ekki að bregða sér í bað. „Um-
gengnin er vægast sagt hroðaleg.
Við erum að hirða upp brækur og
dömubindi allt í kringum gjána.
Liggur við maður finni alklæðnað
þarna eftir helgar. Það er spurn-
ing hvort við ættum ekki bara
alveg að láta það vera að hreinsa
upp eftir helgar. Fólk myndi þá
örugglega ekki fara ofan í ef það
sæi hvernig umgengnin er,“
sögðu Árni og Friðrik og bættu
því við að í gjánni væri meira af
saurgerlum en æskilegt er.
Nú vindum við okkar kvæði í
kross, piltar tveir ónafngreindir
þurftu að ná tali af Friðrik en svo
vildi til að er blaðamenn voru í
Mývatnssveit hafði Hrafn Gunn-
laugsson einmitt verið að ljúka
tökum á mynd sinni í skugga
hrafnsins og sagðist Friðrik hafa
fylgt honum á eftir eins og
skugginn. Piltarnir voru að hefj-
ast handa við að afmá öll verks-
ummerki. Við spurðum Friðrik
hvernig honum hafi fundist að
vera í „skugga Hrafns.“
„Það var gaman að vera með í
þessu. Ég hlakka mikið til að sjá
myndina og hvernig þetta kemur
út hérna," sagði Friðrik og bætti
við þessari setningu: „Ég sagði
nú einu sinni við Hrafn að hann
héldi stundum að hann gæti geng-
ið á vatninu án þess að sökkva."
Mynd Hrafns var tekin upp í
Dimmuborgum, en þar hefur ein-
mitt mikið verið unnið í sumar.
Búið er að laga göngustíga og
merkja leiðir. í samvinnu við
landgræðsluna og Náttúruvernd-
arráð er nú verið að gera kort af
Dimmuborgum. Sögðu þeir Árni
og Friðrik að sum svæðin í
Dimmuborgum væru illa farin
vegna mikils ágangs og mikilvægt
væri að fólk fylgdi merktum
göngustígum. „Margir íslending-
anna halda að við séum að
merkja leiðirnar til að þeir villist
ekki. Sannleikurinn er sá stór-
hættulegt getur verið að æða út
um allt og menn hafa lent í lífs-
hættu við það.“
- Ef við víkjum að öðru svona
í lokin. SkemmtiLeg atvik í vinn-
unni?
„Það er ekkert leiðinlegt að
fylgjast með kvenfólkinu baða
sig. Það léttir manni heldur lífið
við klósetthreinsunina. Einn
morguninn voru fjórar berar
hérna við vaskinn og sú fimmta
að klæða sig úr.“
Við látum þetta nægja í bili, þótt
samtal okkar hafi verið mun
lengra. Við ræddum um Mý-
vatnssveit sem er náttúruvernd-
arsvæði, „en það er bara hvorki
fugl né fiskur. Við viljum fá þetta
svæði merkt inn á kortið. Það
hefur verið margra ára barátta að
fá þetta svæði merkt, en þar
gengur illa.“ Piltarnir höfðu
miklu meira að segja um þessi
mál, en plássins vegna verðum
við að hætta. Hins vegar er morg-
unljóst að við verðum að ræða
Við piltana síðar. mþþ
sjma
í?óNusm
GREIÐSLUKORTAÞJÓNUSTA
ÍSLENSKRA GETRAUNA
Hér eru leikimir!
Leöcir 5. september 1987 1 X 2
1 KR - Valur* 2 1-A. - VIBIr* 3 Þór A. - K.A.'
4 I.B.K. - F.H.* 5 Völsungur - Fram* 6 Coventry - Man. United
7 Everton-Tottenham 8 Newcastle - Wimbledon 9 Oxford - Luton
10 Southampton - Sheff. Wed. 11 Watford - Norwich 12 West Ham - Liverpool
Hríngdu strax!
688-322
föstudaga kl. 9.00-17.00 laugardaga kl. 9.00-13.30
Höfðaberg
veitingasalur annarri hæð.
Opið frá kl. 7.30-23.30.
Ath. kvöldverður afgreiddur
frá kl. 18.00-22.00.
Opnunartími Súlnabergs
verður auglýstur síðar.
★
Laugardagur 5. september
Hljómsveit
Arasonar
leikur fyrir dansi til kl. 03.00
Borðapantanir hjá veitingastjóra
í síma 22200
★
Matseðill:
Grillaðir sniglar Bourguignonne
Laxalauf mmeð grænum spergli og hvítu smjöri
Maizsúpa Washington með wiskhy og portvíni
Rjómalöguð blómkálssúpa Dubarry
Reykfiskbaka með blaðlauk og sýrðum rjóma
Hvítlauksstungið lambalæri
Nauta- og grísasteikur með Madeirasósu
Ofnsteikt villigæs með appeisínusósu
Heitt eplapie með þeyttum rjóma
Fersk bláber
M
HOTEL KEA AKUREYRI